12.8.2009 | 01:49
"Gamlir kunningar"
Jæja nú er vinur minn Torfi "á vigtinni" komin úr sumarfríi. "Viktarspjallið" komið í gang aftur og skap mitt að mildast. Er jafnvel til í að samþykkja Icesave. Og þá verður maður aðeins að breyta um bylgjulengd. Á flækingi mínum um heimshöfin "rakst" ég stundum á "gamla kunninga" Þ.e.a.s skip sem áður voru undir íslenskum fána og jafnvel byggð fyrir íslendingaSá skip koma Fyrir ca 10 árum var ég staddur í Palairos litlum hafnarbæ á V- strönd Grikklands. Við lágum með bb síðu að alveg upp í einu horni hafnarinnar. Þá sé ég skip koma inn í höfnina. Hvað sem gerði það, þá fannst mér ég strax eitthvað kannast við þetta skip. Það reyndist vera undir grísku flaggi og heita Philippos K. Philippos K .Og þegar skipið kom enn nær komu í ljós upphleyptir stafir Rangá,Bolungavík. Skelfing var að sjá aðfarir hin gríska skipstjóra. Það bærðist ekki hár á höfði slíkt var lognið. Mér var hugsað til þeirra Steinars, Rögnvalds, Jóns, Sveins og Sæmundar sem voru með skipið undir íslensku flaggi. Ætlaði að leggjast .... Hræddur er ég um ef einhver þeirra hefðu horft á aðfarirnar hefðu þeir fengið bát til að skutla sér um borð og láta manninn hætta að"nauðga" skipinu eins og hann gerði. Ópin og öskrin í honum sem ásamt akkerisskrölti vöktu undrun allra sem til sáum Hann ætlaði fyrst að leggjast aftan við okkur. Skrönglaðist fr......Eftir rúman klukkutíma eftir að hafa skrönglast fram með okkar stb síðu tókst honum loksins að leggjast að bryggju hinumegin við hornið fyrir framan okkur. Saga skipsins er eitthvað á þessa leið: Það var byggt í Elmshorn hjá Kremer Sohn,skipasmíðastöðinni. 1962. Fyrir Hafskip.Smíðanr 1095. 499 ts. 1666v dw. Lgd oa:66,5 Br:10.2. Það er selt til Danmerkur 1974 og fær nafnið John( einn góður vinur minn og nafni Ole Alex var með John og sagði það vera einn albesta coaster sem hann hefði siglt og .þeir voru nokkuð margir) 1985 er skipið selt aftur og fær síðan eftirfarandi nöfn. 1985,Eastland, 1989 Ranga, 1990, High Wind, 1990,Kostas.P og 2005 Pilippos K,Loksins Það skemmdist í bruna við Krít í júlí 2007 og endaði ævi sína í skipakirkjugarðinum í Allaga (Tyrklandi)í ágúst 2007.44 ára gamall. Það var seigt í þessum gömlu. Ég hitti fleiri "gamla kunninga á ferðum mínum" Bútaður niður í Aliaga. og kem með þá seinna..Það tókst ekki eins vel að skanna allar myndirnar en hæfileikar höfundar í myndvinnslu eru sáralitlar. Þrátt fyrir tilraunir vinar míns Torfa til að bæta þar um. Með von um að einhver hafi haft nennu og eða gaman að skoða þetta kveð ég kært.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:16 | Facebook
Um bloggið
Ólafur Ragnarsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
- kolbrunerin
- gudruntora
- gmaria
- dala
- nafar
- valmundur
- johannesgylfi
- gudrunmagnea
- rheidur
- gretarmar
- magnusthor
- nilli
- georg
- lydurarnason
- reykur
- johanneliasson
- helgigunnars
- hector
- kerfi
- kallimatt
- jonsnae
- jp
- jaj
- hva
- valurstef
- sigurjonth
- einherji
- fiski
- jakobk
- harhar33
- rs1600
- iceman
- thorirniels
- kjartan
- oliskula
- 1kaldi
- gretar-petur
- jon-o-vilhjalmsson
- skulablogg
- floyde
- ragnarb
- meistarinn
- palmig
- aevark
- morgunbladid
- zumann
- jensgud
- gutti
- gudni-is
- saethorhelgi
- geirfz
- iceship
- fuf
- saemi7
- ketilas08
- kokkurinn
- einarorneinars
- xfakureyri
- siggith
- stormsker
- valli57
- markusth
- luf
- framtid
- vefritid
- jakob
- postdoc
- jenni-1001
- mal214
- partners
- iceberg
- valdivest
- torfis
- gattin
- malacai
- benz
- gumson
- hildurhelgas
- minos
- seinars
- skinogskurir
- krist
- thjodarheidur
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 23
- Frá upphafi: 535992
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 22
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæll Óli
Ég var á dekkinu þarna í upphafi þ.e.a.s í júní 1962.
Þær breytingar sem maður sér að mastrið og bómur eru farin .Einnig er búið að
taka "fenderlistann" af síðunum.
Meira að segja er ramminn fyrir miðunarstöðina er ennþá í afturmastrinu.
Kveðja Bjarni Halld.
Bjarni Halldórsson (IP-tala skráð) 12.8.2009 kl. 20:30
Sæll Bjarni og ég þakka innlitið. Já mér var satt að segja hugsað til þín er ég var að semja bloggið. Það hefur veriið fjandi seigt í henni stálið blessaðri. Tekur þú undir orð vinar míns Óle Alex sem ég tala um hvað varðar sjóhæfnina.?. Þarf að fara að koma í kaffi. Hef 2svar komið þegar skipið þitt hefur verið hefur verið hér en þú í fríi. Kært kvaddur
Ólafur Ragnarsson, 12.8.2009 kl. 20:43
Sæll Óli. Fróðlegt að lesa sögu Rangár hafðu þökk fyrir að grafa þetta upp Óli minn. Já það var seigt í þeim þessum skipum sem smíðuð voru í Þýskalandi á þessum árum og raunar í öllum þessum skipum sem smíðuð voru fyrir Íslendinga meðan kaupskipaútgerð okkar var og hét. Gaman að sjá innlitið hjá Bjarna ég þarf að fara að hitta hann þegar henn verður á ferðinni hér um slóðir.
Með kærri kveðju
Heiðar Kristinsson
Heiðar Kristinsson (IP-tala skráð) 13.8.2009 kl. 22:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.