Fermingagjöfin fokin!!!

Jæja þarna flaug bankabókin með heilum 100 kr (á þávirði) sem afi minn gaf mér í fermingagjöf 1952. Alltaf er maður að tapa. En sem gamall Borgnesingur sem óst það upp þegar Magnús afi Jóhanns Hjartarsonar stórmeistara í skák var þar sparisjóðsstjóri og með að mig minni Hjört son sinn sem eina starfsmann spyr einfaldlega:"Hvernig í húla helvíti getur svona skeð. Hvernig getur sparisjóður í ekki stærra kauptúni tapað svona fúlgu:"

 

 

"21,2 milljörðum á síðasta ári og var eigið fé sparisjóðsins neikvætt um 15,1 milljarð samkvæmt efnahagsreikningi og eiginfjárhlutfall neikvætt um 32,1% hjá samstæðunni"

1 okt í ár verða 96 ár síðan 5 ára drengur Sigurður Bachmann lagði inn 5 krónur sem 1sti viðskiftamaður SM. Sigurður sem var sonur Guðjóns Bachmann vegavinnu verkstjóra gerðist síðar sjómaður og sigldi um árabil hjá Eimskipafélagi Íslands sem líka er búið að keyra til andsk.....

 

1917 lágu heilar 150.000 inni á bókum í SM. Nú sem fv inneignareigandi hlýt ég að spyrja:"ganga þessir andsk..... menn lausir sem gerðu þetta"   Ég held að sá gamli þarna uppi sé hættur að hlusta á mann. Kannske bölvar maður of mikið . Bölvar þessum andsk.... í öðru orðinu en biður svo guð að hjálpa sér í hinu

 

Og þessvegna verð ég hreinlega að leit á náðir skáldsins frá Skáholti. Og nota hann sem millilið í bænum mínum:"Af synd og fleiru sál mín virðist brunninn./Ó sestu hjá mér,góði Jesús nú,/Því bæði ertu af æðstu ættum runninn/og enginn þekkir Guð betur en þú."

Vonandi gengur þetta hjá mér en 100 kallin er glataður. Kært kvödd

 


mbl.is Bráðabirgðastjórn skipuð yfir SPM
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 535252

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband