21.10.2008 | 21:47
Dawson
í sambandi við þetta nafn Dawson kemur nafn togarans Ingólfs Arnarsonar upp í huga gamals togarakarls.Skyldi þessi knattspyrnumaður vera afkomandi Dawsons þess er reyndi að brjóta löndunarbann Englendinga á íslenskum fiski á bak aftur 1953.
B/V Ingólfur Arnarsson 1sti"Nýsköpunartogarinn"
Og að sjálfsögðu var það togarinn Ingólfur Arnarsson sem braut bannið.En Dawson þessi sem reyndist"ævintýramaður"í fjármálum sá um sölu fisksins.Sló hann öll met hvað varðaði dreifingu á fiskinum úr Ingólfi. Dawson tók við 4 förmum úr íslenskum togurum.Seinna þetta ár 1953 gera Íslendingar svo hagkvæman fisksölusamning við Ráðstjórnarríkin
B/V Pétur Halldórson einn af hinum glæsilegu"Nýsköpunartogurum"
Ég er ennþá sár og reiður stjórnendum þessa landa að láta togaran Ingólf Arnarson fara beint í skrot.Ég er farin að linast í trúnni að varðveita heilu skipin.Það kostar of mikla peninga og það allavega nú um stundir.En að t.d. brúin og þau tæki er það voru hefðu t.d. ekki verið hirt til varðveislu finnst mér til vansa stjórnvöldum Þegar skipið kom nýtt til landsins 17-02-1947 var það fullkomnasta fiskiskip í heimi.
Eldri Fylkir að hlaupa af stokkunum
Togarinn Ingólfur Arnarsson og skipstjóri hans lengast af,hinn kunni afla/farsæli ölingur Sigurjón Stefánsson hafa skrifað nöfn sín í togarasölu Íslands gylltum stöfum.Undir stjórn Sigurjóns braut skipið 2svar löndunarbönn Englendinga 14 okt 1953 og svo 27 nóv 1956.
Sigurjón skipstjóri tv á tali við Dawson hinn enska
Einnig varð skipið 1sti togari til að landa ísfiski í Boulogne Frakklandi þegar gerð var tilraun til sölu ísfisks þangað.á 6ta áratug síðustu aldar.Ég er enn sár út í svokallaða stjórnenda þessa lands að láta þetta mikla afla og happa skip fara átölulaust í brotajárn.Ég er farin að gera mér grein fyrir að varðveita heilt skip er erfitt,og kostar mikla peninga.
Baldur einn af"öldungunum"sem nú er horfinn af sjónarsviðinu.Svipaður bátur og Blátindur
Mér finnst ég sjá slæmt dæmi hér í höfninni þ.e.a.s.Blátind,sem virðist vera hér opin öllum.Hvort sem er óboðnir gestir eða slæm veður.En ef menn gefðu nú t.d.hugsað um að varðveita brúna af Ingólfi og þá með þeim tækjum sem í henni voru.Svo að skipstjórar framtiðarinnar gætu séð aðstæður í brú þessara skipa.Þegar ég var á honum var að mig minnir mig að það hafi verið Huges neista dýptarmæli.Sennilega var einnig Huges fisksjá.
Valberg II VE ex Víkingur III ÍS
Einnig er ekki of seint í rassin gripið að endurbyggja t.d neðri lúkarinn í skipinu.Enn í 1stu var hann 1 geimur.Kojur fyrir 16 menn.Efri lúkar var með kojur fyrir 8 menn inn af setustofu.En þetta gæti verið langtímaverkefni.Ég gerði athugasemd í fyrra við forstöðu við Sjóminjasafn Íslands.Þetta ét ég nú ofan í mig og það með mikilli ánægju.Ég hef ekki heimsókt safnið en þeir sem það hafa gert gefa því góða einkunn og segja störf forstöðukonunnar til fyrirmyndar.Ég tek orð mín í hennar garð til baka og bið hana afsökunnar á þeim.
Hér í Vestmannahöfn liggur svo annar bátur sem sér fram á sömu örlög og Ingólfur Arnarson þ.e.a.s að vera seldur í brotajárn.Svona hálfgerður"Brautryðandi"ef svo að orði mætti komast.Líkt og Ingólfur og Blátindur.Þessi bátur heitir nú Valberg II en er kannske þekktastur undir nafninu Víkingur III ÍS.
Varðveita hefði mátt t.d brúna og tæki hennar af Ingólfi Arnar.
Þetta er síðasta orginal eintakið af svokölluðum síldar og vertíðarbátum sem Íslendingar létu byggja í Noregi í kring um 1960.Gaman væri að menn reyndu að forða brú hans og keis.Hvar á landinu það yrði svo varðveitt t.d Byggðarsafnið hér í Eyjum, Síldarminjasafnið á Siglufirði,Sjóminjasafnið í Reykjavík.Hafi einhver haft nennu til að lesa þessar hugleiðingar er sá hinn sami kært kvaddur.Förum öll á þess guðs vegum sem við trúum á.
Dawson ákærður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:58 | Facebook
Um bloggið
Ólafur Ragnarsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
- kolbrunerin
- gudruntora
- gmaria
- dala
- nafar
- valmundur
- johannesgylfi
- gudrunmagnea
- rheidur
- gretarmar
- magnusthor
- nilli
- georg
- lydurarnason
- reykur
- johanneliasson
- helgigunnars
- hector
- kerfi
- kallimatt
- jonsnae
- jp
- jaj
- hva
- valurstef
- sigurjonth
- einherji
- fiski
- jakobk
- harhar33
- rs1600
- iceman
- thorirniels
- kjartan
- oliskula
- 1kaldi
- gretar-petur
- jon-o-vilhjalmsson
- skulablogg
- floyde
- ragnarb
- meistarinn
- palmig
- aevark
- morgunbladid
- zumann
- jensgud
- gutti
- gudni-is
- saethorhelgi
- geirfz
- iceship
- fuf
- saemi7
- ketilas08
- kokkurinn
- einarorneinars
- xfakureyri
- siggith
- stormsker
- valli57
- markusth
- luf
- framtid
- vefritid
- jakob
- postdoc
- jenni-1001
- mal214
- partners
- iceberg
- valdivest
- torfis
- gattin
- malacai
- benz
- gumson
- hildurhelgas
- minos
- seinars
- skinogskurir
- krist
- thjodarheidur
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 22
- Frá upphafi: 535995
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 21
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hefur einhver áhuga á að geyma svona muni þó þetta sé saga landsins,við eigum ekki nýsköpunartogara og ekki síðutogara.Þetta er bara skammarlegt.
Guðjón H Finnbogason, 21.10.2008 kl. 23:12
Heill og sæll Óli
Það er skömm að ekki skuli haldið betur utan um þennann þátt Íslandssögunar - Mér finnst alltaf eins og að hlutur nýsköpunartogarana í sögu þessa lands hafi verið settur niður a.m.k. til hliðar. Það hefði verið vel til fundið hjá stjórnendum þessa lands að halda eftir Ingólfi Arnarssyni sem safni - Hann hefði getað legið virðulegur við bryggju þar sem tónlstahöllinn er nú hálf byggð. Höllinn hefði hinsvegar mátt missa sig - Þakka gott og fróðlegt innlegg af þinni hálfu í þennann málaflokk -
Kjartan Ásmundsson (IP-tala skráð) 22.10.2008 kl. 09:10
Sæll og blessaður Ólafur, og takk fyrir síðast, sem þú mannst sennilega ekkert eftir.
Ég hafði gaman af þessari færslu þinni, ég var nefnilega 2 eða 3 ár með Sigurjóni á Ingólfi Arnarsini, þarna var bæði hörku skip og góður skipstjóri á ferð.
Ýmislegt rifjaðist upp við lesturinn, og allt eru það hugljúfar mynningar.
K.:
SigfúsSig.
Sigfús Sigurþórsson., 23.10.2008 kl. 19:25
sæll Ólafur, þetta eru góð orð í tíma töluð, vonandi tekst að ná eyrum þeirra sem stjórna, en að öðru kæri bloggvinur, stúttúngurinn er búinn að hanga í 5 sólahringa, er það nóg? ef ekki hvað heldur þú að hann þurfi að hanga lengi? Hafðu það gott, kær kveðja úr Hafnarfirðinum.
Helgi Þór Gunnarsson, 24.10.2008 kl. 13:23
Sælir allir og takk fyrir innlitið.Vitanlega man ég eftir þér Sigfús.En ekki kom það upp þá að þú hefðir verið á Ingólfi.Og Helgi Þór leyfðu honum(stútungnum) að hanga þangað til þið komið hingað.Guðjón!berðu kollega þínum Jóni Friðgeirs kveðju mína ef þú rekst á hann.Kjartan!kveðjur á þinn vinnustað.Var hjá okkar gömlu skipsfélögum(Stefán Þór)sem enn liggja á spítalanum í dag.En annars verið allir kært kvaddir.
Ólafur Ragnarsson, 24.10.2008 kl. 19:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.