Farmenn og fl

 

Mig langar að leyfa mér að hafa skoðun á núinu.Hvernig komast.unglingar dagsins í dag að atvinnuvegunum t.d. sjómennsku.Og hvernig snýr heimurinn að þeim með öllu sínu yfirgengilega auglýsingaflóði og öllum þessum raunveruleikasjónvarpsþáttum.Ég lýsti því um daginn hvernig Reykljavíkurhöfn heillaði mig óharnaðan ungling utan af landi.

Nú sjá unglingar engin skip nema í fjarska.Enginn fær að koma lengur að þeim.Enda kannske engin áhugi fyrir að sjá útlenska"dalla"með mönnum um borð sem skilja ekki íslensku.Er nokkuð gert af skólum til að kynna þeim undirstöðuatvinnuvegi landsins.Siglingar,fiskveiðar,landbúnað Íslendingar kenndu því löngum um að þeir hefðu glutrað niður sjálfstæði sínu í öndverðu vegna þess að þeir létu siglingar úr höndum sér og urðu eingöngu upp á náð og miskunn norskra kaupmanna komnir með ferðir landa á milli.

 

Í náinni framtið verðum við að vera undir náð og miskun erlendra manna um mönnun þeirra skipa sem hingað sigla.Ég heyrði einusinni einn af forráðamönnum skipafélags halda þvi fram að sjómaður væri sjómaður hvar sem er í heiminum.Það er að vísu alveg rétt.En reynsla manna er ekki sama af Kyrrahafinu og Atlantshafinu.Menn hljóta sína reynslu af því hafsvæði sem þeir eru vanastir að sigla á.Mér kemur í hug er "harbourcaptain"frá Salemskipafélaginu sænska kom eina hringferð með okkur á m/s Hofsjökli.Þeir voru,hjá Salem að hugsa um að bjóða í flutninga á frosnum loðnuafurðum beint til Japan.Eftir ferðina hristi hann höfuðið og sagð eitthvað á þá leið að hann treysti ekki sínum skipstjórum að sigla hingað.Ef augu stjórnvalda fara ekki að opnast hvað farmennskuna varðar þá erum við í djúpum sk...

 

Ráðamenn ættu að rifja upp ræður fv forustumanna þjóðarinnar þegar þeir minnast á sjálfstæði og siglingar. Gamli sáttmáli var undirritaður á árunum 1262-64 sem færði Íslendinga undir Noregskonung gegn því að honum yrði greiddur skattur sagðist hann skyldu tryggja reglulegar siglingar til landsins og frið.Margir ráðamenn hér á árum áður töldu við hafa fengið sjálfstæðið til baka þegar við náðum siglingunum í okkar hendur.Mér finnst íslendingar í dag þurfa að íhuga þessi mál gaumgæfilega.Við eigum enn sem betur fer dugandi farmenn sem görþekkja aðstæður við þetta land.Ég minnist þess á"Ríkisskips"árunum þá var nokkuð stór útlenskur dallur að lesta fiskimjöl á Austfjörðum.Á þessu skipi voru allavega hásetar frá suðurlöndum.

 

Þetta var um vetur og íslensk veðrátta í essinu sínu.Verkamenn úr landi þurftu að opna og loka lúgum ef veðurskilyrði kröfðust þess.Ég man að annað skip beið lestunnar út á einni höfninni en þessi harðneitaði að hreifa sig fyrr en það yrði almennilega bjart.Það getur orðið töf á slíku þegar dagur er sem styðstur á þessu landi.Ef mér misminnir ekki þá var slóð af brotnum bryggjum sem hann skildi eftir sig.Ég lenti í óhappi á suðlægum slóðum sem ekki hefði skeð ef ég hefði verið kunnugur hafsvæðinu.Það er eins og við íslendingar byrgum aldrei brunninn fyrr en barnið er dottið niður í ´ann.

 

Við ættum að taka okkur tak Íslendingar og styðja við bakið við alíslenska farmennsku.Íslendinga verða að skila þýðingu íslenskrar farmennsku.Við verðum að sjá dimmubakkan út við sjónarrönd hvað þetta varðar.Við finnum oft fyrir því hér í Eyjum ef Herjólfur stenst ekki áætlun sína hverra ástæðu það  nú er.Eybúar eru fljótir að finna fyrir ef siglingar hindrast af einhverjun ástæðum.Það virðist eins og við heyrum aldrei í aðvörunnarbjöllum hvar hvenær þær glymja.Munið eftir orðum ráðamenna í fyrra er danir og fl voru að skrifa um íslenskan efnahag.Hvað kom svo í ljós.Ég læt þetta nægja í bili og kveð ykkur sem lesið hafa kært


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Rétt hjá þér og mikið var Jökullinn gott sjóskip

Jón Aðalsteinn Jónsson, 28.4.2008 kl. 22:52

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Ek vildi nú bæta því við lika,að við eigum að skrá okkar fraktskip á Íslandi en ekki erlendis og manna þau héðan/Þakka þessa þörfu grein og orð i tima  töluð/Kveðja Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 28.4.2008 kl. 23:35

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Á meðan stjórnvöld taka undir það að nú sé það "fjármálageirinn" sem sé mikilvægasta tekjulindin fyrir þjóðarbúið og tala um "nýja hagkerfið" (sem ég fæ nú ekki alveg botn í hvað er og hvernig virkar, en það er annað mál), þá er ekki von á góðu.  Þegar ráðamennirnir vita ekki á hverju þjóðin byggir afkomu sína, þá erum við í "djúpum sk...

Jóhann Elíasson, 29.4.2008 kl. 07:39

4 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heill og sæll Óli minn þetta er góður pistill hjá þér og ég er þér innilega sammála, en því miður þá held ég að okkar ráðamenn hafi lítinn eða engan áhuga á þessum málum. Það má ekki einu sinni kalla Stýrimannaskólann og vélskolann sínum réttu nöfnum fyrir þessum svokölluðu ráðamönnum. En eins og maðurinn sagði um árið: þetta kýs fólkið yfir sig og verði því að andskotans góðu (fyrirgefðu orðbragðið) Ég var að vinna inn í Reykjavíkurslipp í dag og í gær og það er ömurlegt að sjá hvernig verið er að naga niður allar byggingar og jafna þær við jörðu, það er eins og dauðahönd sé að leggjast yfir allt svæðið, meira segja sér maður það á fólkinu sem er að vinna þarna að það er dapurt og vonleysið skín úr andlitiu. Þeir sem standa í viðgerðum á þessum stálskipum eru pólverjar sem svo sannarlega kunna sitt fag, við íslendingar eru að tapa niður þessari list að smíða og gera við skip.

'Eg held að engar breytingar verði nema við losnum við Sjálfstðisflokkinn úr stjórn landsins og Frjálslindi flokkurinn komist að með einhverju góðu fólki. XF

kær kveðja

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 29.4.2008 kl. 23:09

5 Smámynd: Guðjón H Finnbogason

Sæll Óli.Dóttursonur minn er í tíundarbekk og í skólann sem hann er í komu fulltrúar frá Fjöltækniskólanum áður Sjómannaskólanum og kyntu fyrir nemendum þeirra árgangs hvað skólinn hafi uppá að bjóða og hann sagði mér peyinn að það hafi nokkrir spennt eyrun yfir þessu,þannig að það er spor í rétta át að vera með slíkar kynningar.Þessi dóttursonur minn fékk að koma með mér í nokkra daga fyrir tveimur árum og fer í sumar með mér einn túr hann hefur mikinn áhuga á sjómennsku.

Guðjón H Finnbogason, 30.4.2008 kl. 22:25

6 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Þakka ykkur öllum innlitið.Ég tek undir með ykkur já Jón "Hoffinn"var fínn.og gott "crew"Gott að heyra Guðjón!En krakkarnir komast ekki eins í snertingu við skipin og mennina á þeim eins og áður.Manni voru nú sennilega oft sagðar yfirdrifnar sögur af sjónum af þeim mönnum sem maður,óharnaður unglingurinn talaði við hér í den.En þær gerðu þetta bara ennþá meir spennandi og sjóinn áhugaverðari.Kært kvaddir

Ólafur Ragnarsson, 1.5.2008 kl. 13:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 535997

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband