1.4.2008 | 17:40
Líf,heilsa og löggæsla
Þar nú svo bæði með vélar og menn að þegar þau eldast þurfa þau meiri aðgæðslu og ummönnun.Ég tala nú ekki um þegar keyrslan hefur verið í óhófi hér áður fyrr.Í dag er 1sti dagur minn"på fri fod"eftir algera yfirferð hjá hinum ágæta yfirlækni Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja og hinu ekki síðra ágæta starfsfólki sem þar starfar.Það er nú efni í sérstakt blogg.Það má segja að maður hafi verið tekin frá A-Ö.Síur hreinsaðar,pumpan athuguð og króntappinn ,ja við skulum ekki tala um hann.Svo voru allskonar tegundir efna prófaðar til að halda þessu gamla"hrói"í sem besta lagi.
Svo nú er sá gamli komin í,allavega skoðunarfært ástand.Nú ég var að væla um daginn um tölvuskort ella heldur vandræði með gamla tölvu sem komin er í aftökuklefann.Og enn hef ég heppnina með mér eins og í heilsufars málum Ritstjóri"Heima er best" vill hlaupa undir bagga með mér gegn því að fá aðgang að þessu "grúski"mínu og fá að birta þar það sem ég kem til með að grúska af neti og úr minni mínu á næstunni.Svo að ef einhver hefur áhuga á tilvonandi grúski mínu þarf sá hinn sami að kaupa það blað.
En ég kem nú til með að skifta mér svolítið af líðandi stund og birtra hér.En ég hef nú frekar lítið fylgst með landspólitíkinni.Blöðin bárust illa inn á deildina sem ég lá á og ég hreinlega grét það ekki.Og ég nennti oft ekki að horfa á sjónvarpið.En eitt er það mál sem mig langar að rífa kja.. yfir.Það er þetta með hringlið með embættin á Suðurnesjum.Hvað er eiginlega í gangi.Hverjum er það í hag að ganga svona blákallt gegn vilja flestra sem að mínu mati hafa vit málinu.Það virðast vera til sterk öfl í landinu svo sterk að enginn,sem þekkir til þeirra þorir ekki að nefna þau..Hvaða öfl eru það sem stóðu t.d. bak við hótanirnar í garð löggæslumanna í Keflavík.?
Hvaða öfl standa á bak við smyglið á eiturlyfjunum til landsins?Öfl sem þeir sendiboðar sem"skotnir"eru þora ekki að nefna nöfn á.Dettur t.d. einhverjum í hug að "Pólstjörnu"smyglið hafi verið"fjármagnað"af þeim sem dæmdir hafa verið fyrir?Getur verið að það sé"einhverstaðar" verið að þrýsta á einhverja til að veikja þær varnir sem Lögæslan á Suðurnesjum er búin að byggja upp.Þó alltaf sé verið að"skjóta sendiboðana"þá hlýtur Það að skaða "þessi"öfl sem standa sennilega að baki meirihluta smyglsins á eiturlyfjum til landsins.
Hver sem þau eru og hvernig sem þau starfa hlýtur það vera þeim til hagsbóta ef fleinn er rekinn í hold löggæslunar á Keflavíkurflugvelli.Ég hef hlustað rökin bæði með og á móti þessum áætlunum og mér finnst satt að segja að rökin á móti þessum, áformum sterkari en þau sem eru með.Og hugsið ykkur um leið og milljarðar eru lánaðir og gefnir nokkrum vildarvinum í formi húseigna á Vellinum er farið á sjá á eftir nokkrum milljónum til þess að æskulýður þessa lands verði sem mest án eiturlyfja.Verið ávallt kært kvödd og heilt lifandi.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Ólafur Ragnarsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
- kolbrunerin
- gudruntora
- gmaria
- dala
- nafar
- valmundur
- johannesgylfi
- gudrunmagnea
- rheidur
- gretarmar
- magnusthor
- nilli
- georg
- lydurarnason
- reykur
- johanneliasson
- helgigunnars
- hector
- kerfi
- kallimatt
- jonsnae
- jp
- jaj
- hva
- valurstef
- sigurjonth
- einherji
- fiski
- jakobk
- harhar33
- rs1600
- iceman
- thorirniels
- kjartan
- oliskula
- 1kaldi
- gretar-petur
- jon-o-vilhjalmsson
- skulablogg
- floyde
- ragnarb
- meistarinn
- palmig
- aevark
- morgunbladid
- zumann
- jensgud
- gutti
- gudni-is
- saethorhelgi
- geirfz
- iceship
- fuf
- saemi7
- ketilas08
- kokkurinn
- einarorneinars
- xfakureyri
- siggith
- stormsker
- valli57
- markusth
- luf
- framtid
- vefritid
- jakob
- postdoc
- jenni-1001
- mal214
- partners
- iceberg
- valdivest
- torfis
- gattin
- malacai
- benz
- gumson
- hildurhelgas
- minos
- seinars
- skinogskurir
- krist
- thjodarheidur
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (1.11.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 18
- Frá upphafi: 535908
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Velkominn heim Óli minn og það er gott til þess að vita að ekkert alvarlegt amaði að þér. Ég er örugglega ekki einn um að hafa saknað þín hér á blogginu. Kannski að tímaritið "Heima er bezt" öðlist fyrri virðingarsess í tímaritaflórunni hér þegar þú ferð að skrifa í það?
Jóhann Elíasson, 1.4.2008 kl. 18:02
Já velkomin heim 'Ólafur hvaða klössun var þetta eins og talað er um skipin eða hvað???en vonandi að þetta blifi vel/Einu sinni var ég áskrifandi af heima er best!!!!,maður verður bara að kaupa það aftur/Kveðja og góðar óskir/Halli gamli
Haraldur Haraldsson, 1.4.2008 kl. 22:09
Sæll Ólafur og vertu velkominn á bloggið aftur, vonandi hefur þú hestaheilsu um ókomna framtíð. kær kveðja.
Helgi Þór Gunnarsson, 2.4.2008 kl. 20:12
Sælir drengir:Þakka hlý orð,Nú er maður komin með nýja tölvu og alles.Maður þarf bara meira vor í sig til að komast almennilega í gang.Kært kvaddir
Ólafur Ragnarsson, 2.4.2008 kl. 20:25
Velkominn úr "slipp" Gott að lesa það að sjóarasögurnar þínar eru að komast á prent . Endilega hnipptu í okkur hér á síðunni þegar fyrsta tölublaðið með sögu af sjónum (og í höfnum ) kemur út. Þá eru það landsmálin og daglega amstrið . Bloggið er gott í það .
kveðja
Sævar Helgason, 2.4.2008 kl. 21:44
Sæll Sævar!
Takk fyrir innlitið.1sta sagan er í marsblaði Heima er best.,En hún er tekin ef bloggiu og var um veru mína á b/v Ingólfi Arnarsyni 1960.Fleiri sögur af blogginu eru svo væntanlegar í næstu blöðum.Kært kvaddur
Ólafur Ragnarsson, 2.4.2008 kl. 23:08
Sælir aftur strákar!
Ef þið viljið "kíkja" á Heima se best er slóðin
http://www.heimaerbezt.net/
Kært kvaddir
Ólafur Ragnarsson, 3.4.2008 kl. 06:14
Heill og sæll Ólafur.
Velkomin aftur á bloggið kæri vinur það er gott til þess að vita að þú sjálfur ert á meðal okkar. Gangi þér allt í haginn
Jóhann Páll Símonarson.
Jóhann Páll Símonarson, 6.4.2008 kl. 17:15
Heill og sæll Jóhann Páll!Takk fyrir innlitið og hlý orð.Sé fram til að styðja þig í þínum skrifum íslenskum sjómönnum til hagsbóta.Ávallt kært kvaddur
Ólafur Ragnarsson, 6.4.2008 kl. 18:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.