Lögæsla

Eftirfarandi er úr bloggi mínu frá 4 apríl í vor.Þá var ég sakaður um hræðsluáróður.En ég get ekki betur séð en ég hafi haft rétt fyrir mér:

 

".Það er merkilegt hvað sumir virðast alveg fara úr límingunum,þegar rætt er um hugmynd Björns Bjarna.um varalið lögreglunar og tala um tindáta.Gerir fólk á Íslandi sér ekki ljóst enn að litla saklausa Ísland er að komast í tengingu við umheimin.Fyrir 30 árum hefði bankagjaldkeri hlegið hefði að honum verið beint byssa.Hann hlær ekki í dag.Í þá daga vorum við með að minnstakosti 5 varðskip/báta.Nú eru þau 2.Litlu varðskipin sem við áttum þá,höfðu eftirlit með fiskveiðiflota annara þjóða.Sem sagt veiðiþjófum.

 

Nú erum við lausir við þá.Allavega höldum við það.En blasir ekki önnur ógn við okkur í dag?Ógn sem gæti haft að mörgu leiti skelfilegri afleiðingar á stóran hóp íslendinga.Nýtt og stórt varðskip er mjög gott mál sem ég held að allir séu sammála um það.En er það nóg?Hvað um eiturlyfjabarónana sem sitja um landið?Hvað með allar eyðivíkurnar/firðina á Austfjörðum?

 

Ég hef því fleygt að þær hafi verið notaðar hér á árum áður og þá fyrir guðaveigar.Menn eru ekki lengi að skjótast á góðum hraðbát yfir hafið til þeirra og landsetja slatta af eiturlyfjum þar í ró og næði.Það hefur enginn eftirlit með þessu í dag.Er ekki alltaf verið að skera niður peninga til hinnar almennu löggæslu.Ég er hlynntur tindátunum hans Björns.Þeir eiga líka að vera dreyfðir um landbyggðina og þeir eiga að hafa til umráða kraftmikla hraðbáta.

 

Og geta farið á sjó með litlum fyrirvara.Nú ætla ég ekki að gruna innlenda/erlenda verkamenn á Austfjörðunum um neina græsku.En væri maður eiturlyfjabarón skildi maður ekki líta hýru auga til þessa mannfjölda samankomnum á einum stað.Hvað með að menn færu að hafa ábata af á smygla saklausum flótta mönnum hingað sem svo myndu vinna fyrir lúsalaunum hjá fégráðugum verktökum.Setjumst niður og íhugum það.Hættum að halda að engin geri okkur mein af því að við séum svo litlir og afskekktir""

 

Svo mörg voru þau orð.Ég er faktíst viss um að "farmurinn sem nú fannst er ekki sá fyrsti og sennilega ekki sá síðasti.En vonandi fer þeim að fækka mikið með auknu eftirliti.Ég held að augu manna hljóti að fara opnast,Kært kvödd.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

En ætli hafi þurft allan þennan viðbúnað? Og eins og þú bendir á Ólafur er verið að fylgjast allstaðar með?

Jóhann Elíasson, 20.9.2007 kl. 15:10

2 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Þessi leið er örugglega búinn að vera notuð í mörg ár. kv.

Georg Eiður Arnarson, 21.9.2007 kl. 07:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 535350

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband