Ferðasaga 4

Carrabean            

Ég skildi við ykkur í Galvestone,eftir mikið"skuespil"þar.Næsta höfn var Puerto Limos i Costa Rica.Á leiðinni kom skeyti frá útgerðinni um næstu lestun en hún var "Full//bekvem last af Greenheart lumber.Georgtown/Glasgow"Einnig kom skeyti þar sem okkur var hælt í hástert yfir góða skipulagningu á þeirm farmi sem við vorum að klára að losa,Og ég veit að skipið fékk fleiri svona túra eftir að ég hætti.Og er faktíst í "timecharter"hjá sömu aðilum.

                      

Kvöld í Carrabean                                             Frá Costa Rica      Myndir teknar í óleyfi af "Netinu"

Við komu til Puerto Limos  að kveldi 2nnars jóladags og vorum aðeins 2 tíma í höfn.Við fengum leiðindaveður til Georgstown og komum þangað 5 jan 2004.Greenheart er trjátegund sem (að ég held)aðeins vex í Guyana og í Belize.Þetta er mjög harður viður og er svo þungur í sér að hann sekkur.Greenheart er t.d.notað í undirstöður járnbrautarteina og í bryggjur.Hann mun vera á válista S.Þ um tré í útrýmingarhættu.Það er mikið hægt að skrifa um Georgtown.Og ekki á færi svona staula eins og ég er í skrifum.

                    Brú yfir Delemara River 

Þinghúsið í Georgtown                 Fiskimaður  á Demerara River         Brú yfir Demerara River

Myndir af netinu

Georgtown liggur við Demerara River.1966 fékk landið sjálfstæði.Fyrst voru sósjalískar stjórnir við völd sem hafa kannske ekki tekið málin nógu föstum tökum.Og ef Skotinn (eigandi farmsinns)vinur minn er traust heimild náðu nokkrir"gæðingar"tökin á öllu sem máli skifti Auðsjáanlega hefur verið gróska í öllu þarna það bera hálfhrunin mannvirki á öllum sviðum merki um.Hver á aðalsökina ætla ég mér ekki að dæma um.Eigandi,farmsins fyrrnefndur Skoti var staddur þarna.Bara til að fá farminn keyptan þurfti hann að setja peninga inn á bankareikninga í Sviss einskonar mútur.Síðan þurfti hann að semja um verðið og borga farminn áður en afhending ætti sér stað.

 

   

Bryggjumyndir frá Georgtown.Mínar myndir    

Oft þyrfti hann að bíða eftir afhendingu.Þarna fer maður ekki í land öðruvísi en með vopnuðum verði.Glæpir eru mjög algengir þarna.Almenningur sýpur dauðan úr skel meðan auðmennirnir velta sér uppúr peningum.Mig minnir að verkamenn vinni sér inn 5 dali á dag.En verðlag er í lægra lagi og vegna þess fór ég einn daginn aðeins í land til að kaupa mér T- shirts og stuttbuxur sem lítil not hafa orðið af vegna þess sem síðar skeði í heilsufarsmálum.Ég hafði komið nokkrum sinnum til Georgtown(sigldi þangað t.d nokkrar ferðir með "Rís")en aldrei haft tíma til að fara í land.

 

 Gamlir og yfirgefnir dallar           

Og svo bauð Skotinn okkur Andrési í kvöldverð með farmseljendunum eitt kvöldið.Þeir komu í stórum Mesedes bílum akfeitir með gullhringi á flestum fingrum og gullsnúrur um hálsinn.Illskiljanlegir hvað ensku snerti..Svo komu 2 af þeim um borð meðan á lestun stóð og ég átti mátt með mig þegar verið var að hjálpa þessum"drekum"um borð.En þarna virtist allt vera í niðurníðslu sama hvert litið var.Hrunin hafnarmannvirki  eru minnismerki um blómlegt líf við höfnina

    

Sennilega 2 gamlir"danir"Lady Zai til vinstri Marline í miðju og svo gamall "landi" Albert 1 ex Eldvík en þessa mynd tók ég Í Georgtown í einni af mínum fyrri ferðum þar.

 Ömurlegt satt að segja.Einhversstaðar stendur að"Það eru ekki minnismerkin sem segja okkur söguna.Það eru rústirnar""Það má kannske segja um Georgetown.Hvarvetna blasa við manni rústir verksmiðja og leifar af blómlegum iðnaði.

               

Mörg "stykkin"vógu um og yfir 30 tonn og þau urðum við að taka með báðum bómmunum.

Þetta var dálítið erfið lestun.Komið var með tréð á prömmum.sem stundum þurfti að taka frá og koma með annan í staðin með passandi tré.Málbandið mikið notað.Öll trén sem eru sneidd eru höggvin til með öxum.

                     

Við bryggju í Georgtown                                     í nógu að snúast

Skotinn vildi meina að eftir að"innfæddir"tóku við völdum þá hafi þeir hirt allan ágóða af iðnaði og námugreftri en ekkert gert til að halda hlutunum við.

 

   Lega Gyuana        Þennan fengum við á leiðinni þangað en við höfðum yfirleitt færi úti á siglingum og fengum oft á krókinn T,d sverðfisk eins og þennan,gullmarkril og túnfisk.Allt án kvóta

Lestunin gekk vel og allir voru ánægðir.Hún tók 5 daga og fórum við frá Georgtown þ 9 jan 2004.

 

Við komum svo til Glasgow þ 25 jan eftir viðburðarlitla ferð.Þá þegar höfðum við fengið að vita að skipið átti að lesta aftur til Falklandseyja.Í Glasgow fórum við Andreas skipstjóri í frí.Hann eina ferð eins og ég ætlaði líka en ég var sleginn út af laginu um tíma af þeim leiða sjúkdómi Krabbameini.Þetta varð svo síðasta sjóferð mín til Carrabean Sea.

                      

Þessar myndir eru fengnar að"láni"af Netinu en þær eru fra Greenock(Rétt hjá Glasgow) þar sem við losuðum

En Andreas er enn skipstjóri á Marianne Danica og siglir nú í "timecharter"hjá sömu aðilum sem áttu IMO farminn forðum.Hann átti líka eftir að fara nokkrar ferðir til Falklandseyja.Lesta svo í Brasilíu til Carrabean og svo lesta Greenheart lumber í Georgtown.

                                     

Frá Greenock  og Glasgow sjálfri Myndirnar fengnar að láni af Netinu

En skipstjórinn sem leysti hann af í Glasgow forðum heitir Niels Nielsson og er það í síðasta skifti sem ég hef séð hann,en hann var að losna úr "gíslingu"sjóræninga í gær.En hann er nú skipstjóri á"Daniva White"Eftir að hafa náð mér nokkurn veginn af"krabbanum"og byrjað að sigla aftur og vonast til að komast á mitt góða skip"Marianne Danica"varð ég að látra í minni pokann þar sem"pumpan"bilaði.Svo núna sit ég og læt hugan reika til baka.Reyni að koma orðum að þessu reiki ef einhver hefði smá ánægju af því.Á milli þess sem ég reyni að"rífa"kjaft yfir ýmsu sem fellur ekki að þeim skoðunum sem ég leyfi mér að hafa og fáir hafa áhuga á

Kært kvödd


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það hefur sannarlega verið viðburðaríkt og skemmtilegt að sigla í "Karabíska hafinu".  Þær hafa verið fróðlegar og skemmtilegar ferðasögurnar þínar og maður hefur beðið í ofvæni eftir þeirri næstu.

Jóhann Elíasson, 24.8.2007 kl. 07:00

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Sama segi eg þetta er flott og maður er hufangin biður eftir meiru/Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 29.8.2007 kl. 00:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 535356

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband