Guðsgáfur

Bara svona til að vera ekki alltof neikvæður og/eða vera alltaf með einhvert röfl og rugl þá datt ég um þennan um daginn:

Það sem fer hér á eftir er spurning sem sett var fram á miðvetrarprófum í
efnafræði við University of Washington háskólann.  Svar eins nemandans varsvo stórkostlegt að prófessorinn ákvað að leyfa öðrum að njóta þess.
Aukaspurning:
Gefur helvíti frá sér hita eða tekur helvíti til sín hita ?
Flestir nemendur settu niður staðhæfingar og reyndu að sanna niðurstöður
sínar með tilvísun í lög Boyles sem segja að gas kólni undir minnkandi
þrýstingi en hitni undir auknum þrýstingi.

En einn nemandi skrifaði eftirfarandi:
 Í fyrsta lagi þá þurfum við vita hvernig massi helvítis breytist í tíma.
Þess vegna þurfum við að vita tíðni þess að sálir fari inn í helvíti og
tíðni þess að sálir fari úr helvíti.
 Ég tel þó að við getum gengið út frá því að ef sál fer einu sinni inn í
helvíti þá kemur hún ekki út aftur og þar með sleppi engar sálir úr helvíti.
 Hinsvegar til að áætla hversu margar sálir fara inn í helvíti er rétt að
skoða mismunandi trúarbrögð í heiminum í dag.  Flest þessarar trúarbragða
halda því fram að ef þú ert ekki hluti af þeirra trú, þá farir þú til
helvítis.  Þar sem það eru fleiri en ein trúarbrögð í heiminum og þar sem
fólk tilheyrir ekki fleiri en einum trúarbrögðum í einu, má ganga útfrá að
allar sálir fari til helvítis.
 Miðað við tíðni fæðinga og dauða eins og það er í dag má reikna með að
sálum í helvíti fjölgi með ógnarhraða.  Nú skulum við líta á breytinguna á
stærð helvítis, því lög Boyles segja að til þess að hiti og þrýstingur í
helvíti haldist sá sami, verður stærð helvítis að stækka í samræmi við
fjölda sálna sem bætast við. Þetta gefur okkur tvo möguleika:
 1. Ef helvíti er að stækka með minni hraða en tíðni sálna sem bætast við þáhlýtur hiti og þrýsingur að hækka þar allt fer til helvítis.
 2. Ef helvíti er að stækka hraðar en aukning sálna sem inn í það fer, þá
hlýtur hiti og þrýstingur í helvíti að minnka þar til helvíti frýs.
Þannig, hvort er það ?
 Ef við skoðum staðhæfingu sem Guðrún bekkjasystir mín setti fram við mig
þegar ég var í fyrsta bekk:  "Það verður kaldur dagur í helvíti áður en ég
sef hjá þér", og ef tekið er tillit til þeirrar staðreyndar að hún svaf hjá
mér í gær þá hlýtur númer 2 að vera svarið.
 Þannig að ég held því fram að helvíti gefi frá sér hita og sé í reynd þegar
frosið.Hin hliðin á þessari kenningu er að þar sem helvíti er þegar frosið og taki ekki við fleiri sálum, þá er eini valkosturinn sá að allar sálir fari til
himna og sanni tilvist eilífrar sæluvistar, og það útskýrir að í gærkvöldi
kallaði Guðrún hvað eftir annað "Ó guð, Ó guð".
 Þessi nemandi var sá eini sem fékk A.



« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Það var og...

Æsir voru líka á þeirri skoðun að það frysi í helvíti, en sennilega hefur búseta mannana haft áhrif þar á um, því á norðulöndum þurfa menn ekki að hafa áhyggjur af því að þurrkar og hitar eyðileggi lífsviðurværi, heldur frost og kuldi.

Sú kenning er líka til að helvíti og himnaríki sé innra með sérhverjum manni og á hans eins valdi að velja hvaða leið sé sú eina sanna.  Himnaríki eða helvíti. 

Ester Sveinbjarnardóttir, 11.6.2007 kl. 15:37

2 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Stúdentinn virtist hafa valið leið himmnaríkis eftir viðbrögðum áðurnefndar Guðrúnar að dæma.

Ólafur Ragnarsson, 12.6.2007 kl. 13:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 536880

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband