27.9.2010 | 23:13
Um konur m.m.
Jæja þá er haustþingi í litlu snyrtilegu húsi í höfn friðar lokið. Þingforsetinn farin til Tyrklands svo nú verður maður að drekka Merild 103 upp á eigin reikning.. Mörg mál bíða vetrarþingsins. Þar á meðal eftirfarandi misskilningur hjá frægri bandarískri skáldkonu.
Þar sem RUV er gersamlega búið að ganga frá glápi á sjónvarpsútsendingar þaðan og sem gamall fiskimaður leitar maður á önnur mið fyrir glápið" Og þar sem ég næ öðrum norrænum stöðvum fiska ég mikið á SVT eða Sveriges Television. Þar er skemmtilegur norskættaður spjallþáttur sem heitir Skavlan. Í þætti í síðustu viku komu til Skavlans frægir gestir þ.a.m Mona Sahlin fv forsætisráðherrakandidat svía og þessi fræga bandaríska skáldkona Erica Jong.
Hún fullyrti að norrænir karlmenn hefðu ekki vitað um þann hluta kynfæra kvenna sem nefndur er á alþjóðamáli klitoris fyrr en upp úr 1960. Einhverjir arabar hefðu vitað um þetta litlla pínupons.Einnig talaði hún um einhvern G punt. En þessu mótmæli ég því ég veit að íslenskir sjómenn, allavega stór hluti þeirra, upp úr 1950 vissu um fyrrnefnda hlutinn Allavega var ég fræddur á þessu kring um 1953. Meira segja var mér sagt, sennilega af því að ég hafði verið á skipi með Bolinder glóðarhausvél að þessi litil kvennhlutur væri eins og glóðathausinn.
Það þyrfti að hita hann vel eða þar til að hann yrði glóandi þá myndi vélin með smurverkinu og öllu kraminu fara í gang. En ég er að skilja það núna að mér var aldrei sagt hvernig ætti að slökkva almennilega á apparatinu. En það vita arabarnir sennilega best. Ég vil leggja það til að Egill Helgason fái þessa skáldkonu í þáttinn hjá sér og nokkrir sjómenn komi og leiðréttu þennan misskilning. En hérna er hægt að sjá eitthvað af þætti Skavlans: http://svtplay.se/t/102974/sasongspremiar__skavlan Ég mun að sjálfsögðu leggja þetta mál fyrir vetrarþing "Litla snyrtilega hússins við höfn friðar" En vegna tímaskort haustþingsins var það ekki hægt.
En þetta G-puntsmál verður sennilega síðast sett til afgreiðslu tónlistasérfræðinga þingsins því ég held að þarna sé um að ræða svipað mál og þetta dúra" eða "moll" mál tónlistarinnar Þ.e.a.s tónlist er leikin í A-dúr eða jafnvel G-dúr. Ég held að stundum hafi maður lent á t.d.óvart á Á- puntinum ef maður var í einhverjum puntaþreifingum. Því stundum fékk maður "Á " kjaftinn. Óviðbúið. Eða K-puntinn samanber kinnhest. En gömlu sjóararnir virtust ekkert vita um þennan fja..... punt.
Þetta mun vera G moll en engin mynd mun vera til af G puntinum
En nútímasjómenn ættu ekki að vera í vandræðum með að finna hann með þessari nýju GPS tækni. Ég mun reyna að fá 1 nútímasjómann sem ég veit að er vel að sér í öllum þessu puntum í kvennmannslíkamanum til að leita. Hann er í forsætisnefnd þingsins svo þetta verður lagt fyrir hann um leið og þingið byrjar aftur og hann í landi eftir ca 10 daga
Einnig mun verða tekið fyrir afleiðingar frystingar mannslíkamanns . En sagt er að sé maður frystur og afþíddur komi fleiri sellu sem höfðu verið dauðar tll starfa aftur. Hvort þetta "dauður úr öllum æðum" system lifnar við aftur þarf að rannsaka. Svo nú bíð ég bara eftir að hann frjósi svo ég, já eða þannig.
Það má enginn taka þetta bull í mér sem einhverja lítisvirðingu á kvenfólki. Því fer fjarri. Virðing mín á konum er meiri en svo að það sé ætlun mín að gera lítið úr þeim. Ég er kannske að horfa á málið með "vitlausum" gleraugum.
Hann getur verið napur í Noregi.
Mér hefur alltaf þótt þilið þunnt milli kláms og listar. Hér er listaverk sem rifjar upp sögu sem gamall til -Noregs fluttur Eyjapeyi sagði mönnum hér fyrir nokkrum árum. Með því kveð kært kannske með "karlrembukveðjum"
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 28.9.2010 kl. 00:07 | Facebook
Um bloggið
Ólafur Ragnarsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
- kolbrunerin
- gudruntora
- gmaria
- dala
- nafar
- valmundur
- johannesgylfi
- gudrunmagnea
- rheidur
- gretarmar
- magnusthor
- nilli
- georg
- lydurarnason
- reykur
- johanneliasson
- helgigunnars
- hector
- kerfi
- kallimatt
- jonsnae
- jp
- jaj
- hva
- valurstef
- sigurjonth
- einherji
- fiski
- jakobk
- harhar33
- rs1600
- iceman
- thorirniels
- kjartan
- oliskula
- 1kaldi
- gretar-petur
- jon-o-vilhjalmsson
- skulablogg
- floyde
- ragnarb
- meistarinn
- palmig
- aevark
- morgunbladid
- zumann
- jensgud
- gutti
- gudni-is
- saethorhelgi
- geirfz
- iceship
- fuf
- saemi7
- ketilas08
- kokkurinn
- einarorneinars
- xfakureyri
- siggith
- stormsker
- valli57
- markusth
- luf
- framtid
- vefritid
- jakob
- postdoc
- jenni-1001
- mal214
- partners
- iceberg
- valdivest
- torfis
- gattin
- malacai
- benz
- gumson
- hildurhelgas
- minos
- seinars
- skinogskurir
- krist
- thjodarheidur
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 21
- Frá upphafi: 535994
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 20
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.