Sjómannadagurinn

Saga bernsku íslensku þjóðarinnar er jafnframt saga mikilla sæfara. Manna sem ekki létu sér allt fyrir brjósti brenna.Manna sem ekki létu hættur eða erfiðleika hindra för.

CONVAR aus EXT10992

Manna sem sigldu litlum fleytum um ókunnar slóðir með fá önnur  tæki, en eigin eftirtekt og ásafnaðri reynslu til að leita landa, frelsis og frama.Andi þessara manna hefur lifað í æðum þjóðarinnar um aldir. Af sæhetjum erum við komin. Fyrir því er sönnunin í kringum okku. Hafið.

CONVAR aus EXT11056 

Eitt af þjóðskáldunum kvað: "Föðurland vort hálft er hafið / helgað þúsund feðra dáð./ Þangað lífsbjörg þjóðin sótti, /þar mun verða stríðið háð". Það er algerlega á hreinu að hingað komu ekki aðrir en sem höfðu tekið vígslu sjómannsins. Sjómenn er að finna í flest öllum stéttum. Var t.d ekki Gissur biskup Ísleifsson farmaður áður en hann varð biskup. Og var ekki Ögmundur Pálsson biskup skipstjóri á skipi Skálholtstaðar.

CONVAR aus EXT10983 

Og kemur ekki "sjómannseðlið" mikið upp í þjóðinni. Ég er nú að miða við mig sjálfan á sínum tíma:"afla mikils sóa og eyða".Orti ekki Örn Arnar m.a: "Ég vil ærlegan gróða/eða botnlaust tap"  Íslenskir sjómenn hafa tekið þátt í 2 heimstyrjöldum og orðið fyrir miklum blóðtökum. Sérstaklega í WW2. Frá upphafi hefur líf sjómannsins mótast af starfi hans, umhverfi og kjörum.

CONVAR aus EXT10966 

Hann þarf að skifta við volduga aðila haf og himin. Vald þeirra er svo mikið, máttur þeirra svo óbrotlegur að ekki þýðir að mæla á móti. Síðan þar hann að skifta við það vald sem stýrir kjörum hans, Vegna alls þessa á þjóðin að styðja við bakið á sjómönnum sínum. Og hún á að hætta öfundinni yfir launum þeirra Kært kvaddir sem það eiga skilið


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 535220

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband