"einskonar vírusvörn "

Það er eins og ráðherrar VG líti á sig sem einskonar vírusvörn og allar tilraunir til arvinnuaukningar sem vírusa. Og þetta skuli vera afsprengi svokallaðra vinstrimanna. Það finnst mér umhugsunarvert fyrir atvinnulausa. Kært kvödd
mbl.is Tafir hafa stórskaðað atvinnuuppbyggingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"við völlinn"

Skyldi þetta hafa verið svona vakningarhögl ofanfrá til þeirra við völlinn . Skyldi ekki hafa bulið í þakinu. Ekki ætla ég mér að legja dóm á endurkomu einnar þingkonunnar. En fókl hefur í mín eyru talið þetta ögrun við fólkið í landinu. Og mótmæli eigi eftir að endurtaka sig. Ekki veit ég. Kært kvödd
mbl.is Haglél í borginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"í húsið við völlinn."

Þennan mann á að senda strax í húsið við völlinn. Það er komið nóg af hörpuleikurum en vantar nauðsynlega fiðluleikara. Maðurinn er búinn að sanna kunnátti sína í hljóðfæraslætti og stjórnun á sama tíma . Kært kvödd
mbl.is Lék á fiðlu við stýrið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"vanvirðing fyrir fólkinu í landinu"

Vanvirðing fyrir reglum. Heitir það ekki á hreinni íslensku "vanvirðing fyrir fólkinu í landinu" Kært kvödd
mbl.is Vanvirðing fyrir reglum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"hörpuleikararnir við völlinn"

Hvað skyldu hörpuleikararnir við völlinn verða lengi að þrasa um þetta. Í svörum og andsvörum Og hvað skyldi þurfa að skipa margar nefndir af fokdýrum "sérfræðingum" næstu missirin. Manni dettur í hug einræðisherra sem spilaði á hörpu meða að borgin hans brann. Kært kvödd
mbl.is Hörð gagnrýni á einkavæðinguna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"löglærðan mann "

Ég vissi einusinni um löglærðan mann sem var  kokkur á trollbát. Hann las alltaf ýsunni rétt hennar áður en hann skar hana á háls. Ég held að sala á ýsu til USA hafi margfaldast þegar þetta fréttist. Það mun hafa verið allt annað bragð af ýsum sem fékk löglega aftöku.Kært kvödd
mbl.is Fé slátrað að hætti múslima
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"mikla vitsmuni"

Það þarf nú ekki mikla vitsmuni til að skilja að vitaskuld tóku stjórnamálamenn samstöðu með bankamönnum. Margir af þeim þ.e.a.s stjórnmálamennirnir voru skuldbundnir þeim eftir stórgjafir í kosningasjóði þeirra eða flokks þeirra. Einnig voru sumir af þeim í stjórnunarstörfum hjá fjármálafyrirtækjum Kært kvödd
mbl.is Sýndu samstöðu með bankamönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"hvernig á "ekki" að stjórna"

Það er ekki nema von að það þurfi að þrengja að þessu fólki sem t.d. sér um ummönnun fatlaðra og eldri borgara. Það hyski getur bara drullast til að sjá betur um sig sjálft. Ríkið vantar peningana til að borga fokdýrum sérfræðingum og nefndum til að segja sér hvernig á "ekki" að stjórna. Kært kvödd
mbl.is Þrengt meira að almannaþjónustu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 13. september 2010

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 537323

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband