"bolli af vatni"

Þetta er með algerum endemum að svona skuli vera liðið. Hvernig Ísrelsmönnum fá að haga sér. Ég næ bara ekki alveg upp í að kristnir menn skuli styðja þetta. Er mannkærleikurinn fyrir bí.

 

Þegar konur og börn eru drepin á Gaza er verið að verja hendur sínar og hryðjuverkamenn drepni Ef Ísralesk börn eru drepin þá eru það árásir á saklausa borgara.

 

Ímyndið ykkur þið sem t.d búið við rykið frá eldgosinu. Fólkið á Gaza fær sem samsvarar 1 bolla af vatni á dag. Meira þarf ekki að segja. Kært kvaddir þeir sem það eiga skilið


mbl.is Árás Ísraela rædd í utanríkismálanefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"gleðipillur"

Þetta hljóta að vera góðar fréttir  Og hrein viðbót fyrir Reykvíkinga við úrslit kosningana í gær. Þekktan grínista sem borgarstjóra og lægra verð á gleðipillum. Kært kvaddir sem það eiga skilið (mér er sagt á það sé hroki í þessari kveðju en mér er bara fjand... sama)
mbl.is Þunglyndislyf lækka um 20-63% í verði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjómannadagurinn

Saga bernsku íslensku þjóðarinnar er jafnframt saga mikilla sæfara. Manna sem ekki létu sér allt fyrir brjósti brenna.Manna sem ekki létu hættur eða erfiðleika hindra för.

CONVAR aus EXT10992

Manna sem sigldu litlum fleytum um ókunnar slóðir með fá önnur  tæki, en eigin eftirtekt og ásafnaðri reynslu til að leita landa, frelsis og frama.Andi þessara manna hefur lifað í æðum þjóðarinnar um aldir. Af sæhetjum erum við komin. Fyrir því er sönnunin í kringum okku. Hafið.

CONVAR aus EXT11056 

Eitt af þjóðskáldunum kvað: "Föðurland vort hálft er hafið / helgað þúsund feðra dáð./ Þangað lífsbjörg þjóðin sótti, /þar mun verða stríðið háð". Það er algerlega á hreinu að hingað komu ekki aðrir en sem höfðu tekið vígslu sjómannsins. Sjómenn er að finna í flest öllum stéttum. Var t.d ekki Gissur biskup Ísleifsson farmaður áður en hann varð biskup. Og var ekki Ögmundur Pálsson biskup skipstjóri á skipi Skálholtstaðar.

CONVAR aus EXT10983 

Og kemur ekki "sjómannseðlið" mikið upp í þjóðinni. Ég er nú að miða við mig sjálfan á sínum tíma:"afla mikils sóa og eyða".Orti ekki Örn Arnar m.a: "Ég vil ærlegan gróða/eða botnlaust tap"  Íslenskir sjómenn hafa tekið þátt í 2 heimstyrjöldum og orðið fyrir miklum blóðtökum. Sérstaklega í WW2. Frá upphafi hefur líf sjómannsins mótast af starfi hans, umhverfi og kjörum.

CONVAR aus EXT10966 

Hann þarf að skifta við volduga aðila haf og himin. Vald þeirra er svo mikið, máttur þeirra svo óbrotlegur að ekki þýðir að mæla á móti. Síðan þar hann að skifta við það vald sem stýrir kjörum hans, Vegna alls þessa á þjóðin að styðja við bakið á sjómönnum sínum. Og hún á að hætta öfundinni yfir launum þeirra Kært kvaddir sem það eiga skilið


"skrítin tík"

Hún er skrítin tík þessi pólítík. Þegar Dagur Eggerts segir í Reykjavík segir að það sé í beinu framhaldi þar sem meirihlutar falli þá taki sigurvegarnir yfir.

 

En hvað með Hafnarfjörð þar ætla VG að halda Samfó við völdin. Þrátt fyrir augljósa andúð borgarana. Sem þeir sýnu með dræmri kjörsókn og auðum seðlum..

Enn og aftur enn og aftur sýna stjórnmálamenn  hve oft vilji fólksins er sniðgenginn og faktíst að minnihlutinn ræður alltof oft. Kært kvaddir sem það eiga skilið


mbl.is Nær sjötti hver Hafnfirðingur skilaði auðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 31. maí 2010

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 537319

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband