"árinni kennir"

Það er alveg með endemum hve þessir dusulmenni kenna hver öðrum um hvernig fór. "vitaskuld tek ég fulla ábyrgð" er setning sem maður heyrir í öðruhvoru samtali. En svo kemur: "en það er bara ekki við mig að sakast" Einhverstaðar stendur:"árinni kennir illur ræðari"

 

Það er von að almenningur sé algerlega búinn að missa trúna á þetta helv.... : "vildarvinastjórnskipulag" sem hér hefur ríkt og nú er alvara á ferðum fyrir það lið sem sitja þessa gagnlausu fíflafabrikkku við vissan völl í Reykjavík. Að svona trúðaframboð eins og t.d framboð Jacobs Haugaard í Danmörk  sem skolaði honum inn í Folketinget 1994 - 1998, verði ekki að veruleika hér Hann lofaði t.d. meðvind á öllum hjólastígum. Og mætti hjá Þórhildi drottningu sem flokksformaður í pokabuxum

 

Það má nú vera meira andsk..... spörfuglaminnið í fólki ef það fer að kjósa yfir sig aftur   þessa fjan.... sakleysinga sem nú starfa við fg völl. Ég er eldri en tvævetur en ég man aldrei eftir annari eins kúvendingu í pólitík og hjá ráðherra fjármála. "fátækt á Íslandi misskilningur" segir hann nú" Þeir rústuðu hinu fullkomna velferðarþjóðfélagi sem var" Hann vílar sér ekki ,sem sagt nú að lofa  það kerfi sem hann sjálfur gagnrýndi í öll þau ár sem hann var ekki í stjórn en þau eru æði mörg. Og kalla sig "1stu hreinu vinstri stjórnina er alveg með ólíkindum.

 

 

XD hefur aldrei þrengt sultarólina á almenningi eins og þessi hreina v-stjórn hefur gert. Ég ætla að stofna flokk og lofa sól á öllum svölum. Logn á Stórhöfða. Rok og rigningu í 101.Steikur og humar á borð fátæklinga en sigin fisk nei hann er alltof góður,saltfiskþunnildi (kannske of góð líka) og hafragraut á borð allra ráðherra nema mín kæmist ég í stjórn. Og ég ætla að mæta hjá nafna mínu á Bessastöðum á peysufötum.

Nei þetta er dauðans alvara á ferðum að einhverjir meiri hálvitar kæmust ínn á fg stað ef svona horfir. Og það er eins gott að dómskerfið sjái að sér því ef svo færi ekki þá yrði ég hræddur um virkilegar blóðsúthellingar.


mbl.is „Allir á árarnar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"hvað nú"

Ja frú varaformaður "Hvað gera danir nú" senda sína menn í skóla til að læra meira Lítil völd virðast stjórnendur sumra flokka hafa haft Á bara að syngja" framm fram fylking og svo"aldrei að víkja


mbl.is Uppnám vegna orða um þjóðstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"hvað hrærist í hausnum"

Hvað hrærist eiginlegar í hausnum á þessum mönnum. Er það fja..... grautur sem ég hataði sem barn. Ég segi bara aftur og enn "skammist ykkar bara"


mbl.is Segir aðgerðum stjórnvalda ekki um að kenna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef menn bara kynnu að skammast sín

Ef bara þessir menn hvort sem eru fv stjórnendur og nv stjórnendum þeirra 3ja flokka sem flækjast í þetta margþvælda mál kynnu bara að skammast sín og segja á hreinni íslensku:Ég/við gerðum mistök og ég/við biðjumst þjóðina afsökunnar í okkar framferði.
En orðin "fyrirgefið "eða" ég/við gerðum mistök"virðast ekki vera til í orðabók stjórnenda þessa lands. Nú afsaka þeir sig og skella skuldinni hver á annan. Hvernig á öðruvísi að fara fyrir þjóðum sem engan auðmjúkan stjórnemda eiga
Hugsið ykkur hrokan í þessu lið. Eins og óvitar á dagheimili.
Nú er brýn þörf á að það fólk sem  nú situr á alþingi og á einhvern þátt í þessu andsk..... bulli sjái sóma sinn í því að víkja. Ekki út í kantinn heldur algerlega út af veginum. Sýna þann kraft að horfast í augu við veruleikan sagði forsætisráðherra.
En gerir hún það sjálf ???  Eru Össur og hún nýkomin að stýrinu???
Okkar farsæla velferðarkerfi var eyðilagt segir nú fjármálaráðherra. Gott að heyra hann segja þetta Ekki sagði hann þetta fyrir hrunið. Skemmtilegt að heyra hann hæla fv stjórnarherrum fyrir það sem hann svo eyðilagði

mbl.is Einkavæðingin ekki mistök
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann gleymdi einu

Mikið bull vall út úr munnum flokksforingana við umræðu um margnefnda bók. Einn þeirra las bara fyrirsagnir fjölmiðla. En hann gleymdi 1nu. Megn eigendaskítalykt leggur af þessum fyrirsögnum. Mogginn reynir að  beina athyglinni að eigendum Glitnis en Vísir veltir sér upp úr skuldum þingmanna bæði nv og fv. Og nú spyr maður  af hverju gleymdi þingmaðurinn að segja í hvaða blaði hvaða fyrisögn


mbl.is Dýrkeypt samfélagstilraun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"rotið kerfi"

Það þarf engan "hámenntaðan stjórnmálafræðing" til að tilkynna að Kerfið hér á landi sé rotið. Það vissu allir fullfrískir íslendingar úr alþýðustétt. Það hafa mannaráðningar og vinavæðingin sannað fyrir okkur þessum sauðsvörtu fyrir löngu 


mbl.is Kerfið orðið rotið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"sá 1sti af þeim"

Björgvin er 1 sti sem sér sóma sinn í að víkja.En þó ekki alveg út í kant. Bara obbólítið. Hver verður næstur.Nú hlýtur fólk að spyrja sig:  Hversvegna  mátti Össur ekki segja Björgvin af fundinum út af Glitni ?. Ingibjörg Sólrún skuldar fólkinu í landinu svar við þessari spurningum
mbl.is Björgvin stígur til hliðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"ekkert"

Ekkert í þessari skýrslu sem ég hef heyrt enn hefur komið mér á óvart. Og fjölmiðlarnir velta sér upp úr henni eftir eigendum. Það er alveg tandurljóst
mbl.is Skýrslan kom þjóðinni á óvart
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"sá 1sti í afsagnar röðinni"

Þetta er bara 1sta vers. Gaman að vita hve margir koma í versunum sem eiga eftir að fylgja
mbl.is Björn Ingi hættir tímabundið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Yes minister"

Muna menn eftir ensku þáttaröðinni:"Yes minister" ? Mörgum þótti nóg um litla vitneskju ráðherrans í þáttunum á málinu sem hann átti að stjórna. Hve marga þannig ráðherra skildum við hafa átt. Og hve marga:"Yes minister" skildum við hafa átt sem stjórnuðu öllu bak við tjöldin
mbl.is Ráðherra óviss um lögin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Bloggfærslur 12. apríl 2010

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 537318

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband