12.2.2010 | 18:29
"sammála"
Jóhanna er sammála öllu og stýrir algerlega duglausir ríkisstjórn. Á þessum erfiðu tímum ætti hreinlega að loka Alþingi senda þá skuggasveina og meyjar sem það sitja heim Enda til einskins nýt og þjóðin algerlega búinn að missa trúna á þetta lið
Fela svo óháum og hlutlausum mönnum jafnvel erlendum (þar sem það væri þrautin þyngri að finna slíka íslendinga) stjórn landsins næstu 10 - 15 árin meðan við erum að vinna okkur upp úr ÖLLUM ósómanum.
Öllum sagði ég því stór hluti fg skuggasveina/meyja eru bendluð við allan helv.... ósóman. Koma þessum siðblindu afætum í burt frá stjórn landsins. Við erum að upplifa smápart af sönnunum um að hafa ekki þingmenn sem ráðherra. Ég kveð kært þá sem eiga það skilið
![]() |
Eiga að víkja til hliðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
12.2.2010 | 18:09
"veitir kannske ekki af"
Þeim veitir kannske ekki af þessum lyfjum í flokknum þeim.Gamlir kallar að velli lagðir af föngulegum konum. Nafninu bráðlega breitt í Vinstri Grænar eða kannske frekar Vinstri Bleikar Kærar kveðjur til þeirra sem eiga það skilið
![]() |
Skora á ráðherra að endurskoða niðurskurð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.2.2010 | 18:03
"hetjur"
Maður verður ósjálfrátt hreykinn af að vera íslendingur við svona fréttir. Að íslendingar séu framarlega í allslags hjálparstarfi. Með allri virðingu fyrir í íþróttum og handbolta þá finnst mér nafnið "hetja" dálítið of notað nú um stundir.
Ég vona að fólk skilji hvað ég er að fara. Fólk sem leggur sig í stóra hættu við að hjálpa/bjarga öðrum eru virkilegar hetjur. Maður gæti kannske skift hetjum í 2 flokka Hvurndagshetjur og Sparihetjur. Hvurndagshetjur er fólk eins og rústabjörgunarmennirnir á Haíti um daginn Flugmenn og aðrir starfsmenn LHGÍ.Sjúkraliðar lögregluþjónar Nú þetta hjúkunarfólk sem greint er frá í greininni heyrir undir þennan flokk.
Ég held satt að segja að fólk hér heima viti ekki alveg út í hvað þetta fólk er að fara út í. Þegar svona skeður í þessum fátæku löndum er mikil hætta á að allslags hættulegir sjúkdómar breiðist út. Það vill svo til að ég hef kynnst sjúkrahúsi á Haíti af eigin raun.Ég segi kannske frá því seinna. Við getum sett íþróttafólk okkar í Sparihetjuflokkinn.
Og við þurfum að styðja báða flokkana Eins og þegar við heiðrum íþróttamenn fyrir unnin afrek( sem ég er ekki að gera lítið úr) ættum við kanske t.d að heiðra flugsveit LHGÍ með góðum framlögum þegar þeir bjarga mannslífum.
Og af því stór hluti þjóðarinna lítur niður á sjómenn af því þeir tilheyra engum anga af svokallaðri menningu þá ber að líta á að það getur einhver af fg hóp hnigið niður einhverstaðar langt frá næsta lækni. Og þá væri fjandi hart að fá svarið :"ekki hægt að senda þyrlu vegna fjárskorts"Læt þetta duga í bili og kveð þá sem eiga það skilið kært.( margir líta á þessa kveðju sem hroka en mér er andsk..... sama)
![]() |
Hjálparstarfsmenn til Haiti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.2.2010 | 02:36
á hvaða lyfjum??
Á hvaða lyfjum er þetta lið eiginlega ??.
En sem betur fer er ekkert að marka þetta vegna þeirra mörgu sem ekki svöruðueða ætla að skila auðu.
Þetta sýnir vel vantrúna á "kaffibrúsakallana"við Austurvöll Þá sem eiga það skilið kveð ég kært
![]() |
Sjálfstæðisflokkur með mest fylgi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.2.2010 | 00:05
Hvað liggur á??
Maður er alveg steinhættur að botna í hlutunum Um hvað er að ske í hausnum á sumun ráðherrum. á meðan einn þeirra ferðast um landið og boðar lokanir á sjúkrahúsum og heilsugæslum ferðast annar erlendis og boðar ja hvern andsk..... það er óljóst.
Meðan landhelgisgæslan er í svo miklu fjársvelti að líf manna er sett á spil, þá er hent milljónum í "gæluverkefni"sumara ráðherra. Hvaða manni með greind yfir meðallag dettur í hug að EBE hjálpi upp á sakir hér.
Hvaða manni með fg greindarstig dettur í hug að þegar EBE er komið í standandi vandræði með sum meðlimslönd sín fari þeir að taka hálfgjaldþrota land í sínar raðir. Með 2ja stafa verðbólgu og svo sollið viðskiftalíf að skítalyktin af því er að kæfa "nágrannana" Svo þeir halda um nefið og pynguna.
Væri nú ekki annars vit í að staldra aðeins við og nota peningana sem í þetta fara í landhelgisgæsluna eða i gæslu á heilsufari landans. Reyna að halda lífi í sauðsvarta liðinu svo hægt sé að rú það enn betur inn að skinninu
Ég er það gamall að ég man vel eftir er fjárlögin náðu þeirri, að þess tíma himinháu tölu "MILLJARÐUR" Nú er þessi tala bara vasaaur hjá þeim skítseiðum sem komu okkur á kaldan klakan Og sem spóka sig um "millahverfin" í London og fleiri borgum þar sem svona þjófahyski safnast saman í
Meðan ekki er hægt að sækja heiðarlegan sjómann með hjartabilun út á sjó vegna fjárskorts LHGÍ. Og þessir stórþjófar eru svo bara dubbaðir upp í stjórnarformenn í þeim fyrirtækjum sem þeir keyrðu í þrot og sem verið er að draga upp úr skítnum á okkar borgaranna kostnað. Ég misnotaði brennivín og fl í mörg ár mér til óbóta og skammar
Sem heitir í dag að vera alkahólisti. Mér þykir þessir gjörningar bankana og rökstuðningur þeirra fyrir þeim vera eins og ég hefði á mínum verstu árum verið settur yfir vínbúð af því ég hefí svo langa og reynslu af brennivíni. Alþingismenn eru algerlega búið að missa tiltú fólksins. Svo maður tali nú ekki um ráðherraliðið. Einu ráðherrarnir sem fólkið treystir eru ekki alþingismenn. Það er athyglivert. En þrátt fyrir reiðina kveð ég þá sem eiga það skilið kært
![]() |
Össur ræðir við nýjan utanríkisráðherra Litháen |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Bloggfærslur 12. febrúar 2010
Um bloggið
Ólafur Ragnarsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
kolbrunerin
-
gudruntora
-
gmaria
-
dala
-
nafar
-
valmundur
-
johannesgylfi
-
gudrunmagnea
-
rheidur
-
gretarmar
-
magnusthor
-
nilli
-
georg
-
lydurarnason
-
reykur
-
johanneliasson
-
helgigunnars
-
hector
- kerfi
-
kallimatt
-
jonsnae
-
jp
-
jaj
-
hva
-
valurstef
-
sigurjonth
-
einherji
-
fiski
-
jakobk
-
harhar33
-
rs1600
-
iceman
-
thorirniels
-
kjartan
-
oliskula
-
1kaldi
-
gretar-petur
-
jon-o-vilhjalmsson
-
skulablogg
-
floyde
-
ragnarb
-
meistarinn
-
palmig
-
aevark
-
morgunbladid
-
zumann
-
jensgud
-
gutti
-
gudni-is
-
saethorhelgi
-
geirfz
-
iceship
-
fuf
-
saemi7
-
ketilas08
-
kokkurinn
-
einarorneinars
-
xfakureyri
-
siggith
-
stormsker
-
valli57
-
markusth
-
luf
-
framtid
-
vefritid
-
jakob
-
postdoc
-
jenni-1001
-
mal214
-
partners
-
iceberg
-
valdivest
-
torfis
-
gattin
-
malacai
-
benz
-
gumson
-
hildurhelgas
-
minos
-
seinars
-
skinogskurir
-
krist
-
thjodarheidur
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 537317
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 13
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar