Bréfið frá Björk

Þetta er með endemum. Hvað er fólk eiginlega að hugsa Að vísu eru um 30% sem eru óákveðnir eða vilja ekki gefa upp skoðun sína. En ég rakst á bréf sem ákveðin kona af landsbyggðinni sendi alþingismönnum. Og nú er bara að fara að dæmi hennar. Ég tók mér bessaleyfi að birta það hér svo getur fólk bara aðlagað það að sinni persónu og sent. Ég skora á fólk að gera það.  En bréfið var birt í DV

"

„Uppsagnarbréf til þeirra Alþingismanna á Alþingi Íslands sem setið hafa þar síðan fyrir hrun.
Afrit sent til allra Alþingismanna.


Ágæti Alþingismaður

Ég er Íslendingur. Ég er líka háskólamenntuð kona sem hef kosið að búa á landsbyggðinni og vinna að uppbyggingu atvinnu og samfélags, án þess að átta mig á hversu tilgangslaust það gæti verið á tímum eins og nú, þegar aðgerðir Alþingis virðast miða að því að lama atvinnulíf í landinu og hrekja fólk frá dreifbýli og úr landi með öllum tiltækum ráðum.

Nú heyrast fjölmargar fréttir af niðurskurði grunnþjónustu og vænleg fyrirtæki í tryggum rekstri eru keyrð í þrot af ‘ríkisbönkum’. Sveitarfélögum eru settar þröngar skorður og draga saman í rekstri sínum.
Á sama tíma og samdráttur er á öllum stigum samfélagsins er ekkert það að finna sem mætti kalla mótvægi við þessa þróun. Mótvægið mætti t.d. finna í skattakerfinu sem í öðrum löndum er notað til að hvetja aðila til að stofna og reka lítil og meðalstór fyrirtæki. Nei, hér virðist einungis áhugi á að hampa þeim ríku og stærstu fyrirtækjunum.

Mikið er fjallað um erlendar fjárfestingar og þörfina á þeim en samt situr frumvarp um ívilnanir (og þar með opna gegnsæja stjórnsýslu) fast í ráðuneytum (sem nota bene hafa ekki löggjafavald) og áberandi virðist að einungis varasamir fjárfestar, með grugguga fortíð, fjárfesti hér, umluktir orðrómi um arðrán og mútur til íslenskrar stjórnsýslu og stjórnmálamanna. Heiðarlegir fjárfestar forðast svona óreiðu og munu ekki láta sjá sig fyrr en hér hefur verið skapað eðlilegt viðskiptaumhverfi.

Það þrengir að fjölskyldunum í landinu, fjölmargir eru að missa heimili sín og enn fleiri geta ekki séð sjálfum sér og börnum sínum fyrir mat. Lágmarks framfærsla er í dag óviss stuðull sem hið opinbera þorir ekki að reikna út þar sem ljóst er að fjölmargir íslendingar lifa langt undir fátækramörkum.

Ágæti þingmaður: Þú berð ábyrgð á að skapa þetta umhverfi. Þú hefur brugðist í því verkefni að laga ástandið. Þar sem það er nú orðið ljóst að velferð okkar skiptir þig engu vil ég tilkynna þér að það er gagnkvæmt. Það er því einlæg ósk mín að þú segir starfi þínu lausu svo fljótt sem auðið er og gefir öðrum tækifæri til leiða þjóðina út úr þessum erfiðleikum.

Björk Sigurgeirsdóttir“ ""

Kært kvödd

 


mbl.is Litlar breytingar á fylgi flokkanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Botninum náð"

Hvar endar þetta allt saman. Sjáið nú ruglið. Botninum náð heyrði ég talað um einhverstaðar um daginn  Nú ætti þetta lið bara að ganga hreint til verks.

Þessi andskotans óþjóðalýður sem kennir sig við gamalmenni öryrkja o.sv.fr ætti bara að hætta að væla. Það á bara að bjóða hverjum einum í þessum aumingahópum að velja um 1 milljón og blásýrutöflu eða bara éta það sem úti frýs. (sem margir eru farnir að gera)

 

Ef einhverjir af  þessum aumingum taka fyrri kostinn geta þeir látið sér líða eins og manneskju meðan þeir eyða milljóninni svo er bara að bryðja blásýruna. Þetta væri miklu hreinlega en murka líftóruna ú þessu fólki  að hætti stjórnvalda.

 

Enda næst ekkert meir út úr þessum aumingum. Maginn er kominn upp í kok á fólki svo er búið að herða sultaról þess

Þetta sparaði mikla peninga sem svo mætti nota í einhver gæluverkefni. Málið leyst og þessi hreina tæra útburðar vinstri stjórn getur andað léttar. Að þetta fólk skuli samsama sig við norræna velferð er hrein móðgun.

 

Aldrei hafa nútíma íslensk stjórnmál sannað eins tilgangsleysi sitt og undanfarna daga. Ímyndið ykkur. Stjórnarliðar mega ekki taka undir hagsmunamál sem  kæmu sér vel fyrir fólkið í landinu af því að :"STJÓRNARANDSTAÐAN STAKK UPP Á ÞVÍ FYRST"

 

Þvílík fjarstæða. Svo talar þessi lýður um sannfæringu sína. Jú hún er sennilega til fyrir flokkinn en ekki fólkið í landinu það er á hreinu Þetta er með hreinum endemum  Poul Schlüter stjórnaði Danmörk að mig minnir í 11 ár alltaf með minnihluta stjórnum.

 

Þetta væri óhugsandi hér á landi. Algerlega óhugsandi allavega með því fólki sem situr alþingi í dag. Hvað skildi vera búið að álykta mikið og oft innan þings og út í flokkunum eftir hrunið til hagsbóta fyrir alþýðuna. Og hvað hefur komið út frá því. Ekkert, 0  Það þarf að eyða þessu stjórnkerfi mennta og auðmanna sem stjórnar þessu landi í skjóli svokallaðra VINSTRI manna.

 

Það þarf að fara langt aftur í aldir til að finna aðra eins andsk.....  íhaldsfauska og nú eru við völd. Og ef þetta lið sem situr á alþingi fer ekki að renna í grun hverju fólkið er að mótmæla þá held ég að uppúr sjóði og það alvarlega á næstunni. Kært kvödd


mbl.is Hollvinir mótmæla niðurskurði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 3. október 2010

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 537323

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband