"Jesús Kristur og ég"

Einhvern veginn er mér oft hugsað til "Skáldsins frá Skáholti" nú um stundi. en honum var tíðort um fátækt,synd og spillingu. Og mig langar að deila með ykkur ljóðinu sem hann kallaði:

 Jesús Kristur og ég 

Hér sit ég einn með sjálftraustið mitt veika /á svörtum kletti er aldan leikur við/Á milli skýja tifar tunglið bleika/og trillubátar róa fram á mið./Af synd og fleiru sál mín virðist brunninn./Ó sestu hjá mér,góði Jesús nú,/Því bæði ertu af æðstu ættum runninn/og enginn þekkir Guð betur en þú / 

Ég veit þú þekkir einnig eðli fjandans/sem alla daga situr fyrir mér/Og þótt ég tali vart í auðmýkt andans/ber enginn dýpri respekt fyrir þér./ Hvað sem trú vor týndum sauði lofar/ef taglsins auðmýkt nær í hjartað inn/mig langar til er tunglið færist ofar/að tala við þig eins og bróðir minn/ 

Sjá ef við litum gegn um móðu og mistur/þess mikla hafs,er tíðin saman jók/þá væri margs að minnast,Jesú Kristur /frá morgni lífsins.sem að drottinn skóp /Og hvernig voru Edens elstu verðir? /Í Edens lund hjóp syndin þeim til skrokks. /Við skyldum muna mannsins fyrstu gerðir, /að meðfædd prýði reyndist þriðja flokks./ 

Mamma þín var drottins eina drottning /og dyggra hátta fyrsta og síðsta von /því hef ég einatt hjartað fullt af lotning /fyrir hreinni mey er elur slíkan son /Sú fæðing,Kristur leiddi þig til ljómans /Og lýsti þér sem kórónuðum jarl /En ég er bara sonur fátæks sjómanns, /er seinna gerðist boginn eyrarkarl /

  

Þú lést þér annt að leita týndra sauða /létt þér tókstu skrílsins háð og spott /Þú vaktir einnig verur upp frá dauða /og vildir hverjum einstaklingi gott /Og þetta vald þitt vil ég glaður lofa/ vald sem mér og fleirum hefur birst  /því verði dauðans vart í mínum kofa /vanalega dey ég sjálfur fyrst /  

Og mannstu kvöldið,er þú bljúgur breyttir /í brúðkaupinu regndropum í vín /þá varstu góður þeim,sem urðu þreyttir /og þekktu ekki veginn heim til sín /Og þessi gæði vil ég glaður lofa /er gáfu hlýju,þeim sem gerðist kallt /því verði dropans vart í mínum kofa /vanalega drekk ég sjálfur allt / 

  

En dóm á þig ég dirfist að leggja/Dómur sá mundi einnig fylgja mér/Því margt er líkt í eðli okkar beggja/ Þótt andinn  virtist fleygari hjá þér / Þú komst í heiminn til að hugga og gleðja /huggað konur enginn betur gat / Í stað þess á ég”system”til að seðja/ soltinn lýð,er þráir góðan mat 

En hvern þann sem að hrellir mest og blekkir /heldur fólkið besta mann. /Það skyldi engan undra sem að þekkir / einhvert brot af þessum lífsins rann/.Ó Jesús minn þó ég og þú sért firrtur/ og jafnvel hún sem eitt sinn fæddi þig/ því allmennt varstu ekki að góðu virtur /og ennþá síður virðir fólkið mig

Og um það mál við aldrei megum kvarta /Því uppi á himnum slíkt er kallað suð / En ósköp skrýtið er að eiga hjarta /sem ekki fær að tala við sinn guð. / Hver síðastur þú sagðir yrði fyrstur / en svona varð nú endirinn með þig/ Og úr því þeir krossfestu þig / Kristurhvað gera þeir við ræfil eins og mig /

Njótið vel og lengi Kært kvödd


Hvervegna ekki erlendan??

Til að forðast alla vanhæfni er þá ekki ráð að ná í menn í embætti sérstaks saksóknara erlendis frá. Láta Evu Joly um að ráða þessa menn. Í landi það sem knattspyrnudómari getur varla verið óhlutdrægur vegna ættar/vinar/klíku/stúkutengsla verður erfitt að finna rétta manninn. Kært kvödd


mbl.is Auglýst eftir saksóknurum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vatnavextir

Enn og aftur misles ég fyrirsögn Ég las þetta Vaxtavextir af völdum lægðar. Ég óttaðist að leggja ætti nýjar álögur á þrautpínda eldri borgara og öryrkja út af svokallaðri efnahagslægð.

Því ef fundnar eru upp einhverjar álögur eru þær lagðar á þessa hópa. Þeir liggja best við höggi. Lifandi eða dauðir.Svo er spurningin  hvort þessi vatnavextir valdi eins miklum skaða og hinir hafða gert. Kært kvödd


mbl.is Vatnavextir af völdum lægðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

1 apríl ????

Þegar maður sér svona jákvæðar fréttir lítur maður ósjálfrátt á almanakið. Maður lofa allar jákvæðar fréttir nú til dags. Nóg af hinu. Kært kvödd
mbl.is Skatturinn fær að kyrrsetja eignir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

792%

Hvernig getur svona skeð. Eru ekki Hagkaup og Bónus í eigu sama fyrirtækis????Ef rétt er eru það þá verslunarstjórarnir sem ráða hvernig þeir"snuða"almenning. Ég bara spyr? Kært kvödd

 


mbl.is Mikill verðmunur á grænmeti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"of seint í rassinn gripið"

Jæja er kannske eitthvað af smáviti að síast inn í þá menn sem stóðu að þessu samningum. Að við getum aldrei greitt þetta. Og stöndum þá uppi sem besskjaldaðir óreiðumenn á heimsvísu.Kært kvödd
mbl.is Gera sér ekki grein fyrir byrðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vill ekki stríð við aðrar þjóðir

Hann vill ekki stríð við aðrar þjóðir. En hann fer á fullu í stríð við eldriborgara öryrkja og þá sem minna mega sín í sínu eigin landi. Lítill er nú kjarkurinn. Og það er ekki verið að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur eða hitt þó heldur Kært kvödd
mbl.is Vill ekki stríð við aðrar þjóðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrir hvað?????

Fyrir hvern ands..... spyr maður. Hvað með alla ráðuneytisstjórana aðstoðarmennina og annað starfsfólk ráðuneytisins. Er þarna frænda-vina væðingin á fullu.´Ekki veit ég Kært kvödd
mbl.is 300 milljónir fyrir ráðgjöf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Reiði almennings !!!!

Þórtt mér líki ekki svona vinnubrögð þá skil ég þá reiði sem er í almenningi. Á meðan t.d. sá sem á þetta hús pakkar bara saman í rólegheitum til að flýja land, er ráðist á öryrkja eldri borgara og meira segja fókl sem er horfið yfir móðuna miklu fær ekki frið fyrir rukkunum frá skatti eða TR.

 

 

 

Og það skulu vera stjórn flokka sem kenndu sig við alþýðu sem stjórnar. Eimdarleg fannst mér rök ráðherra félagsmála. Og nú hlýtrur maður að spyrja sig. Vita stjórnarandstöðuþingmenn ekkert í sinn haus hvað lög varðar. Því alltaf þegar þeir eru komnir í stjórn þessir andsk..... lagleysingar bera þeir því að þeir verði að framfylgja lögum. Þvert á það sem þeir hafa sagt í stjórnarandstöðu.

 

 

Hafa þessir vitleysingar engan skilning fyrr en þeir eru búnir að skríða á bakinu á alþýðunni upp í svo háa ráðherrastóla að þeir tala eins og til seinþroskaðra barna þegar þeim þóknast að tala niður til okkar svörtu sauðanna. Það virðist vera að ráðuneytisstjórar og  aðstoðarmennirnir er koma þeim í skilning um að það sem þeir rifu stærðstan kja..... yfir í stjórnasrandstöðu var bara lögleysa og rugl,

 

Á meðan fer fram er svo stórfeldur stuldur í sambandi við bankahrunið fram fyrir framan nefið á þeim.Skilaefndarmenn MAKA KRÓKANA og allt í góðu. Stórvanhæfir ( vegna starfa sinna við hina föllnu banka, ættar og viðskiftatengsla) menn í þeim Og sé einhverjum sagt upp (hversvegna???) fá þeir bara bara stöðu í öðru fyrirbæri sem telst til uppbyggingar bankahrunsins eða hvern andsk.... þetta heitir alltsaman. Það er algerlega búið að sanna það sem spáð var, að það á ekkert,ekkert að gera annað við almenning en að pína hann.

 

 

Lenga í hengingarólunum. Þessir sömu menn sem rifu stólpa kja.. í stjórnarandstöðu og töluðu um að hlífa eldri borgurum öryrkjum og þeim sem minna mega sín segjast nú bara verða að fara eftir lögum. Ja lítið vit hefur guð gefið þessum mönnum ef þeir ætlast til að þeim sé trúað, af almenningi Þá tala ég um allflesta af almennum borgurum. Ekki menn/konur sem líta á stjórnmál sem einhverskonar barnatrú. X þetta eða hitt bara af því mamma og pabbi gerðu það Kært kvödd


mbl.is Sást skvetta málningu á húsið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Bloggfærslur 7. ágúst 2009

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband