"Gamlir kunningar"

Í nóv.1996 kom ég á skipi til Georgetown í Guyana. Við vorum með hrísgrjóna farm frá Surinam. Þegar í höfnina kom lögðumst við fyrir aftan skip sem hét:ALBERT J.image 24ALBERT J. Mér hafði fundist ég kannaðist við skipið á  siglinguna inn í höfnina. Og þegar við vorum lagstir að bryggju komu yfirmálaðir upphleyptir stafir á skut þess í ljós:"Eldvík Reykjavík"image 23 ALBERT J. Skipið var byggt hjá Jansen, M. í  Leer Þýskalandi 1968.  1458 ts 2879 dw, loa: 75,3 brd:11,8. Yard nr 89. Fær nafnið Tasso 1971 nafni breytt í Heidi. image 3 Eldvík ex Heidi.1975 kaupa Víkur h/f ( Finnbogi Kjeld) skipið og skíra Eldvík.  1989 er skipið selt og fær nafnið: CIDADE DE FARO - Síðan 1992 AFRICA - Og 1995 ALBERT J. Sem það hét er ég sá það. image 4 Skipið breytt

Skipinu var breitt meðan Finnbogi átti það og settur krani á mitt skipið Og þannig var það er ég sá það 1998image 24 ALBERT J. Einhversstaðar á ég fleiri myndir af "gömlum kunningum" og kem til með að birta þér er fram líða stundir. Með von um að einhver hafi þarna kannast við"gamlan kunninga"kveð ég ykkur kært.


Gleðitíðindi

Þetta hlýtur að teljast gleðitíðindi . Áhöfn  Actic Sea er komin um borð í rússnesku freigátuna Ladny. Upplýsir Viktor Matveyev fulltrúi útgerðarinnar"Solchart Management" við Fairplay í dag. Varnarmálaráðherra rússa Anatoly Serdyukov hefur líka staðfest fréttina. Þetta ætti að gleðja aðstandendur sjómannana, Ladnyj Freigátan Ladny.En gamlir nöldursamir sjóarar eins og ég eru að vísu glaðir yfir endurheimt sjókmannana en líta kannske á málið hálfgerðu hornauga. Af hverju er þessi gífurlegi áhuga rússa. Cap Verde costcardinn segist hafa séð skipið ca 400 mílur út af eyjunni.

 Arctic Sea Actic Sea með timburfarm

Þessu vildi rússneski ræðismaðurinn á eyjunni eyða. En núna segjast rússar hafa"fundið"skipið 300 sml frá eyjunni. Og ég er viss um að lausnargjaldskrafan var blekking.  Hver sem svo stóð að henni. Gert bara til að dreifa áhuga manna,

Ég velti eftirfarandi fyrir mér. Hvað voru mennirnir sm komu um borð í skipið við Öland að gera?? Hversvegna var AIS kerfi skipsins aftengt ?? Eins og hlýtur að vera. Og hversvegna þessi mikli áhugi rússa á skipinu??

Jú kannske þarna eru 15 rússar um borð. En margar rússneskar skipshafnir hafa lent í klóm sjóræninga við Sómalíu. En rússnesk herskip hafa lítið skift sér af þeim eftir að þeim var sleppt. Stundum matar og vatnslitlum.

 

Þrennt stendur uppúr: Hvað er um borð í skipinu sem rússar höfðu áhyggur út af. Fyrir utan sjómennina.?? Hvað skeði við Öland?? Og hvað skeði milli þess sem að Cap Verdemenn sáu það og þangað til að rússar þykast hafa fundið það ????. Sennilega fáum við aldrei að vita það. Kært kvödd


mbl.is Áhöfn Arctic Sea heil á húfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 17. ágúst 2009

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband