6.7.2009 | 21:22
Hækkun í hafi !!!
Það er fleira sem getur hækkað í hafi en súrál. Sakaði ekki Hjörleifur Guttormsson þv( 1981)iðnaðarráðherra Alusuisse um hækkun á súráli til ÍSAL í hafi á sínum tíma ? Í vetur las ég að 210 milljónir hefðu breytst í 650 milljónir á leiðinni til Kína. Í sambandi við fyrirhugaða heimsýningu 2010
Eða þannig í febr 2009 :"Fram kemur í frétt China Daily, að þátttökugjald í sýningunni er 40 milljónir juan, sem er jafnvirði 650 milljóna króna. Fram kom hins vegar í desember, að áætlað er að kostnaður Íslands vegna sýningarinnar verði um 210 milljónir króna og verður kostnaðurinn borinn af ríki, borgarstofnunum og atvinnulífi.
Heimssýningin verður haldin frá 1. maí til 31. október 2010 undir yfirskriftinni Betri borg - betra líf. Gert er ráð fyrir að 70 milljón gestir sæki sýninguna að þessu sinni. Alls hafa 185 ríki og 46 alþjóðastofnanir skrifað undir samninga um þátttöku."
Og heimurinn gapir af undrun yfir þáttöku hins eiginlega gjaldþrota ríkis Íslands. Já þeir skí.. ekki með því skráþurru í landinu því. Kært kvödd
![]() |
Telja dún hafa sexfaldast „í hafi“ |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.7.2009 | 20:29
Fermingagjöfin fokin!!!
Jæja þarna flaug bankabókin með heilum 100 kr (á þávirði) sem afi minn gaf mér í fermingagjöf 1952. Alltaf er maður að tapa. En sem gamall Borgnesingur sem óst það upp þegar Magnús afi Jóhanns Hjartarsonar stórmeistara í skák var þar sparisjóðsstjóri og með að mig minni Hjört son sinn sem eina starfsmann spyr einfaldlega:"Hvernig í húla helvíti getur svona skeð. Hvernig getur sparisjóður í ekki stærra kauptúni tapað svona fúlgu:"
"21,2 milljörðum á síðasta ári og var eigið fé sparisjóðsins neikvætt um 15,1 milljarð samkvæmt efnahagsreikningi og eiginfjárhlutfall neikvætt um 32,1% hjá samstæðunni"
1 okt í ár verða 96 ár síðan 5 ára drengur Sigurður Bachmann lagði inn 5 krónur sem 1sti viðskiftamaður SM. Sigurður sem var sonur Guðjóns Bachmann vegavinnu verkstjóra gerðist síðar sjómaður og sigldi um árabil hjá Eimskipafélagi Íslands sem líka er búið að keyra til andsk.....
1917 lágu heilar 150.000 inni á bókum í SM. Nú sem fv inneignareigandi hlýt ég að spyrja:"ganga þessir andsk..... menn lausir sem gerðu þetta" Ég held að sá gamli þarna uppi sé hættur að hlusta á mann. Kannske bölvar maður of mikið . Bölvar þessum andsk.... í öðru orðinu en biður svo guð að hjálpa sér í hinu
Og þessvegna verð ég hreinlega að leit á náðir skáldsins frá Skáholti. Og nota hann sem millilið í bænum mínum:"Af synd og fleiru sál mín virðist brunninn./Ó sestu hjá mér,góði Jesús nú,/Því bæði ertu af æðstu ættum runninn/og enginn þekkir Guð betur en þú."
Vonandi gengur þetta hjá mér en 100 kallin er glataður. Kært kvödd
![]() |
Bráðabirgðastjórn skipuð yfir SPM |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 6. júlí 2009
Um bloggið
Ólafur Ragnarsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
kolbrunerin
-
gudruntora
-
gmaria
-
dala
-
nafar
-
valmundur
-
johannesgylfi
-
gudrunmagnea
-
rheidur
-
gretarmar
-
magnusthor
-
nilli
-
georg
-
lydurarnason
-
reykur
-
johanneliasson
-
helgigunnars
-
hector
- kerfi
-
kallimatt
-
jonsnae
-
jp
-
jaj
-
hva
-
valurstef
-
sigurjonth
-
einherji
-
fiski
-
jakobk
-
harhar33
-
rs1600
-
iceman
-
thorirniels
-
kjartan
-
oliskula
-
1kaldi
-
gretar-petur
-
jon-o-vilhjalmsson
-
skulablogg
-
floyde
-
ragnarb
-
meistarinn
-
palmig
-
aevark
-
morgunbladid
-
zumann
-
jensgud
-
gutti
-
gudni-is
-
saethorhelgi
-
geirfz
-
iceship
-
fuf
-
saemi7
-
ketilas08
-
kokkurinn
-
einarorneinars
-
xfakureyri
-
siggith
-
stormsker
-
valli57
-
markusth
-
luf
-
framtid
-
vefritid
-
jakob
-
postdoc
-
jenni-1001
-
mal214
-
partners
-
iceberg
-
valdivest
-
torfis
-
gattin
-
malacai
-
benz
-
gumson
-
hildurhelgas
-
minos
-
seinars
-
skinogskurir
-
krist
-
thjodarheidur
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 24
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 16
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar