"svo bregðast........."

Svo bregðast krosstré sem önnur tré, Ellilífeyrisþegar öryrkjar og þeir sem minna mega sín vonuðust líka eftir að kjör þeirra yrðu varin En ekkert varð af því. Og svo er bara sungið": Ljúft er að láta sig dreyma" Kært kvödd
mbl.is Vonast eftir láni í lok ágúst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeir trúðu !!!

Margir trúðu á"alræði öreiganna" En varð aldrei að ósk sinni. Friedrich Engels(1887)Engels og Karl Marx (1875) Karl Marx boðuðu;" Verkamenn allra landa sameinist. En af þessu varð aldrei. Verkamenn héldu áfram að vera fátækir og sameinuðst aldrei. Og réðu aldrei neinu um sinn hag. Og það er eiginlega kaldhæðni örlaganna að 2 flokkar hér á landi sem eru raunar runnir undan rifjum þessara fg slagorða skulu eiginlega líta á þá sem minna mega sín sem sinn aðalsparibauk þegar spara þarf.Fiji1w Veit ekki hvar þessi mynd er tekinn en þau voru lélegri sum híbýlin í Kingston.Hér virðist stefna í einhverja mestu fátækt sem hefur þekkst hér frá stríðslokum. Ég hef á flakki mínum um heimin séð virkilega fátækt. Sárasta fátæktina sem ég sá var t.d í Mumbai á Indlandi. Þar sem maður sá börn og dýr slást um eitthvað ætilegt á sorphaugum borgarinnar.lavega Ég vil benda fólki á að við sjómenn sjáum yfirleit altaf aðra hlið á löndum en ferðafólk. Fátækrahverfin eru yfirleitt upp af hafnarhverfunum.poverty people calgary alberta poor men homeless recycle garbage society cities street life canada lifestyles gary moore photo 14647 Verður þetta algeng sjón á Íslandi.Mesta bil á milli hins mikið ríka og mikið fátæka fannst  mér sjá á Jarmaika.great%20depression Þetta er að ég held orðin algeng sjón hér á landi.Að vísu komst maður ekki í land í nokkrum borgum í Brasilíu og á V-strönd S- Ameríku kom ég aldrei. Mig vantar leiðina yfir Kyrrahafið frá Asíu yfir til Ameríku eða öfugt. 42103080 139 3940 Þetta líka Og þetta fer sennilega líka að verða algengt hér á landi contentment Kannske þetta verði líka að veruleika. Að það verði fleiri en þeir sem settu allt í bál og brand2073505689 2ae8c16643 Íslenskur útrásarvíkingur á uppleið.

 sem fari þessa leiðdick whittington Pælið í því eins og sagt er á mjög svo slæmri íslensku, En hafið ekki þetta með ykkur hunting%20rifles En biðjum bara einhvern þarna uppi að hjálpa okkurjeebus, Kært kvödd


mbl.is Út yfir gröf og dauða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingu

Ég óska skipshöfn og eigendum Aðalsteins Jónssonar til hamingu með þennan árangur. Smáljós í myrkrinu. En skrítin myndbirting hjá MBL að birta mynd af þorski með frétt af síldarafla. En hvað um það, látum það ekki skemma stemminguna. Kært kvödd
mbl.is Aflaverðmæti komið yfir milljarð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í klónum á AGS

Það er sem ég sagði. Ríkistjórnin er algerlega í klónum á Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn (AGS).Þetta sannar það lions Þau hjú "Jóstein" halda að þau líti svona út.En eru bara svona í veruleikanum   twokittens Og Steingrímur heldur þegar hann lítur í spegil þá sjái hann þetta perception Og hvað varð um hina rómuðu Norrænu samvinnu  ? handphoto 2826 200812301 Og hvar eru rússapeningarnir ?sacma Kært kvödd
mbl.is Afgreiðslu AGS frestað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rangt skip?????

Þetta er furðuleg frétt.. Engum verðmætum var stolið. Sænska tollgæslan veit ekki meir. Málið allt hið furðulegasta.  Manni dettur helst í hug glæpagengi sem hefur haft pata af einhverri sendingu en lent á vitlausu skipi. Kært kvödd 
mbl.is Sjórán við strendur Svíþjóðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"mögulega of langt gengið"

"Það er ljóst að lögreglan á gríðarlega erfitt með að ná þessum 10% niðurskurði,“ segir Steinunn Valdís Óskarsdóttir, formaður allsherjarnefndar. „Það er umhugsunarefni hvort ekki hafi verið gengið of langt þegar þess var krafist að lögreglan skæri niður um 10%"

 

Ja bragð er að  þá barnið finnur. Skyldi það hafa verið erfitt fyrir formann alsherjarnefndar að komast að að 10 % niðurskurður hjá embætti sem var í algeru fjársveliti væri mögulega of langt gengið , Ja mikil er spekin Kært kvödd


mbl.is „Mögulega gengið of langt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjárhagurinn!!!!

Það er ekki nóg að þrengt sé að þeim hópum sem minna mega sín beint með aðgerðum stjórnvalda heldur er líka þrengt að þeim  með sífeldri lækkun krónunar. Sem kemur svo fram í hækkuðu verðlagi.

En ég gat nú ekki annað en skellihlegið er ég las stjörnuspá fyrir mig í dag:  "

Fjármálin þurfa aðgæslu við svo þú ættir að halda útgjöldunum niðri eins og frekast er kostur. Gakktu í að klára þessi mál svo þú getir haldið þínu striki bæði í leik og starfi."

Ha ha það kemur vel á vondan Kært kvödd


mbl.is Gengi krónunnar veiktist um 0,59%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"illur grunur"

Margir vilja nú meina að þarna sé verið að skjóta sendlana. Alveg eins og t.d. í eiturlyfjasmyglinu. Dettur einhverjum í hug að þessir "gæjar"sem er verið að taka fyrir smygl, fjármagni það sjálfir. Nei og aftur nei. Og við hverja eru þeir svo hræddir að þeir ríghalda kja... 

 

 

Margir segja hvað þetta mál varðar að þessir menn séu það ungir að þeir gætu ekki búið yfir svo mikilli þekkingu á svona málum sem þurfti til að framkvæma þetta. Hugsið um það. Kært kvödd


mbl.is Gæsluvarðhaldsúrskurðir staðfestir í fjársvikamáli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"verðhjöðnun"

"Svo bregðast krosstré sem önnur tré" Það er með endemum hve allar spár allra þessara svokölluðu "sérfræðinga"eru alltaf að klikka.

Einu sinni heyrði ég það haft eftir gömlum stjórnmálamanni:"að það væri ekki stjórnmálamennirnir sem væru slæmir heldur væru þeir með slæma ráðgafa" Ég hugsa að það sé nokkuð til þi þessu.

 Muna menn ekki eftir öllum spám frá greiningardeildum bankanna þrátt fyrir alla greiningu og greind sprakk heila búntið það er áhugavert í sambandi við bankahrunið  að lesa eftirfarandi eftir Jóhann Hauksson í DV:gerið svo vel:http://www.dv.is/brennidepill/2009/7/29/hin-nyja-valdastett/ 

Kært kvödd


mbl.is Líkur á verðhjöðnun hverfandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Réttlátara????

„Það er alveg augljóst að við ætlum ekki að hafa sambærilega umgjörð um fjármálakerfið og var,“ er haft eftir Gylfa Magnússyni viðskiptaráðherra

 

Ég sjálfur hélt að við fengum heiðarlegra kerfi út úr ósköpunum en er orðin vondaufur um að það komi til. Maður er að sjá það nú hve máttlausir þessir stjórnmálamenn eru. Og aftur og enn kemur fámennið okkur illa.

Vinagreiðaklíkusamböndin halda.Ég held satt að segja að best væri að flytja inn alla ríkisstjórnina. Svo að hægt sé að gera eitthvað að viti. Ég held  t.d. að Svíar hafi fengið heiðarlegar, (allavega í bili) þjóðfélag enda var þar tekið alvarlega á sumum málum. Og þar voru ekki eldri borgarar og þeir sem minna máttu sín aðalóvinurinn eins og virðist vera raunin hér. Þetta dj..... hálfkák hér er bara fyndið.

 

Íslenskir auðmenn sem komu sinni þjóð á vonarvöl baða sig í peningum og sól. Í London, á Flórída og við Persaflóann að sagt er. Og kaupa nú óáreittir stórfyrirtæki erlendis. Jafnvel þó að gjaldþrot félaga í þeirra eigu séu nú sett á reikninginn sem Jón og Gunna eiga að borga.

Það er alvega sama hve mikið saumað sé að Jóni og Gunnu þau skulu sko fá að borga skuldir óreiðumanna hér heima og erlendis. Og hinn mikli baráttumaður, aðalfjárhirðir Íslands fær ekki rönd við reist og er óvenju lágmæltur og alveg sallarólegur yfir þessu. Jað öðruvísi mér áður brá .Kært kvödd


mbl.is Komið að endurskoðun á umgjörð fjármálakerfisins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 30. júlí 2009

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband