"nokkur furða"

Er það nokkur furða að trúin á atvinnu- og efnahagsmál  sé í lágmarki. Fólk skilur hvorki upp né niður í þessu öllu saman. Nú er það fólk, sem komst til valda uppúr svokallaðri "búshaldabyltingu" við stjórnina. Og hreint út sagt lítið sem ekkert hefur  skeð hvað varðar tilgang hennar. Er fólk sem tók þátt í henni sátt við árangurinn.???  Nú eru þeir við stjórn sem hæst höfðu og heimtuðu menn "krossfesta" og réðust á lögreglu með stóryrðum.

 

 

Nú er annað hljóð í strokknum. Nú er þetta fólk lágmælt og hefur ekki hátt.  Eru Jóhanna og Steingrímur virkilega ánægð með hvað þau hafa gert fyrir þá sem minna mega sín ???. Ég held að hinn bitri sannleikur sé að þau ráða ekkert akkúrat ekkert við ástandið. Þau eru algerlega máttlaus. Algerlega máttlaus í klónum á "International Monetary Fund; skammstafað IMF" og hinu ríku löndum í Evrópu. fv nýlenduveldum og landi sem virkilega græddi landa best á WW2

 

 

Og hinn bitri sannleikur er líka að það verður aldrei neinn sóttur til saka í þessu svokallaða "bankahruni". Hvernig á það að geta skeð í svona litlu samfélagi þar sem meira segja knattspyrnudómari kemst ekki hjá að vera sakaður um hlutdrægni vegna skyldleika við einhvern leikmanna. Ættartengsl.klíkur.stúkur og góður vinskapur sjá til að það verður aldrei neitt gert í þeim málum. Þetta er bara  hinn bitri sannleikur. Nú svo er hvergi pláss fyrir aðra en hættulegustu glæpamennina. Það er búið að koma því svo fyrir

 

Hvað annað en að fá D.O úr Seðlabankanum hafa gengið fyllilega eftir af kröfum f,g"byltingar" Ekkert annað. Og almúginn hefur ekki fengið,annað en lengingu á HENGINGAÓLUNUM  Er Hörður Torfa sá annars ágæti maður ánægður með það sem skeð hefur??? Ég bara spyr. Kært kvödd


mbl.is Lítil trú á efnahagsmálum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ný tækifæri fyrir "suma"

Hér er kannske nýtt tækifæri fyrir suma. Ég tala nú ekki um ef Sir Richard Branson fær lendingarleyfi hjá "kallinum á tunglinu" fyrir félag sitt  Virgin Galactic. Um 300 manns víða um heim hafa samanlagt greitt 40 milljónir dala í innborgun á sæti í geimferðir félagsins.  Kannske næsta útibú Landsbanka Íslands verði á tunglinu. Kært kvödd


mbl.is Geimferðir frá Abu Dhabi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Umfangsmikið fjársvikamál !!!!

Ja svona hélt maður að gæti ekki skeð  í íslensku fjármálalífi. Fjársvik og það talin umfangsmikil. Maður er bara dasaður eftir svona fréttir úr þessu heiðarlega f.g lífi.  Lengi lifi heið........ eða þannig Kært kvödd
mbl.is Tveir handteknir vegna fjársvika
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ok Björgúlfur !

Það verður gaman að fylgast með þessu. En svona gamall haus eins og minn skilur ekki fyrir hvern íslenskir fjölmiðlar hafa eins og stendur í yfirlýsingunni:" hafa tekið að sér að dreifa skipulögðum óhróðri, véfréttum og lygum um sig "

 

Hann hlýtur að að vita hverjir standa að þessum skipulagða óhróðri, véfréttum og lygum um hann Þ.e.a.s Björgúlf. Og að hann fari í meiðyrðamál hlýtur allur sannleiksfús almenningur að fagna. Ekki satt. Kært kvödd


mbl.is Björgólfur Thor: Skipulagður óhróður, véfréttir og lygar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Allt eðlilegt"

Ja það er von að þessir menn brosi gleitt á myndum. Sitja að sínu auði og hafa ekkert gert af sér Þeim finnst sennilega það "eðlilegar fjárfestingar "að setja 1 stk þjóð á hausinn Kært kvödd
mbl.is Bjarni Ármannsson: Eðlileg fjárstýring
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hatturinn tekinn ofan

Ég tek hattinn ofan fyrir Rögnu ráðherra dómsmála  En það er mikið miður hvað litla peninga hún fær í sinn málaflokk. En ég hnaut um eina setningu hjá henni þegar hún segir: "Og ég verð bara að segja þá skoðun mína, eftir umræðu síðustu viku, að það sé komið að lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu að svara fyrir sína starfsemi"

 

Hvað meinar frúin ? Er kannske "setuliðið" á Lögreglustöðinni við Hlemm orðið og stórt.  En lögreglumenn fá ekki alltaf réttláta umfjöllun  hjá almenningi.  Oft talað um misbeitingu valds. Ég varð sjálfur fyrir óréttlátri meðferð hjá henni hér í"den" En þá vörðu þáverandi stjórnendur alltaf alla sína menn hvern andsk.... sem þeir gerðu.  En þetta finnst mér hafa breyst.

 

Núverandi yfirlögregluþjónn í Reykjavík Geir Jón Þórisson hefur ítrekað sagt að sem er satt, að lögreglumenn séu bara fólk eins og við. Sem ég tel rétt,. Og ef maður dokar aðeins við og hugsar málið þá hlýtur það að vera slítandi að vera að kjást við mismunandi á sig komið fólk vegna áfengis eða annara vímugjafa.

 

Mér þætti það lítið spennandi að þurfa að vaða móti illa druknum eða dópuðum manni sem enskis svifist. Og sem jafnvel væri með hníf eða slíkt einhverstaðar á sér. Mig sem sagt langar ekki til að vera í þeirra sporun er svona skeður að ég held alloft. Látu okkur þykja vænt um laganna verði. Og ég segi bara :"Áfram Ragna" Kært kvödd


mbl.is „Algjör misskilningur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingu Edda Heiðrún !

Ég óska Eddu Heiðrúnu og Hollvinasamtökunum til hamingu. Það yljar alltaf þegar svona mál fá svona góðar undirtektir hjá almenningi Kært kvödd


mbl.is Safnaði 1.356 þúsund krónum fyrir Grensásdeildina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Ráðist á garðinn þar ....."

Þessu þora stjórnvöld. Að endurheimta 3 milljarða ofgreiddan lífeyrir af lífeyrisþegum. Ja það er ekki verið að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur.

 

Hvernig væri nú að láta þessa svokallaða "auðmenn" þessa nútíma sauðaþjófa borga TR þennan rosalega skaða Ég bara spyr???? um leið og ég kveð ykkur kært 


mbl.is Ofgreiddur lífeyrir 3 milljarðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"þessu bulli"

Það á að steinhætta þessu bulli og leggja peningana í LHGÍ. Og það á stundinni. Ég er viss um að okkur stafar engin hætta úr lofti. Rússagrýlan er löngu dauð.  Og sú hætta sem mest ógnar okkur kemur af sjó. Eiturlyfjasmyglið.  Kært kvödd
mbl.is „Þetta er óþarfi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju ???

Af hverju eru ekki sett lög til að ná heim þeim milljörðum sem "auðmenn" komu undan í skattaskjól og aðra reikninga erlendis. Þeir skulda okkur"Jóni og Gunnu"milljarða.Allavega ef fer sem horfir Og nota þá peninga til að endurjármagna Lögæsluna og þar innifalin LHG .

 

Það er tregara en tárum taki að þyrla LGH gat ekki vegna fjárskorts aðstoða Slökkiliðið í Grindavík. Og enn tregara að hugsa sér að þessi 2 ríkisfyritæki ef hægt er að orða það svo séu hreinlega "lömuð" . Ég satt að segja hef trú á Rögnu Árnadóttir. En ég held að hendur hennar séu ríbundnar vegna niðurskurðar.

 

Það var athyglisverð skoðanakönnun um vinsældir ráðherra,sem var gerð einhverstaðar um daginn. Þá kom hún út sem öruggur sigurvegari og hinn borgaralegi ráðherrann Gylfi Magnússon var nr 2. Þjóðin eiginlega hafnaði hinu dótinu. Ég held hreinlega að fólk geri sér ekki grein fyrir hvaða áhrif það getur virkilega haft að þessi 2 embætti séu í fjársvelti. Sjúkraflug bjarganir bæði af sjó og landi er sett í uppnám. Ásamt mörgu hvað varðar öryggi borgaranna

Allt afleiðingar af hegðun manna sem ekki má eftir lögum hreyfa við, En sem skemmta sér í glæsiveitingahúsum í London og eða njóta sólar í glæsivillum á Flórída algerlega"untouchable" Í lögreglunni eru sennilega misjafnir sauðir sem og í öllum starfgreinum. En ég er viss um að langstærsti hluti þeirra eru bara venjulegt fólk sem er að vinna sín störf af alúð. En þeir eru ekkert öfundsverðir hvað starfsumhverfi snertir. Og embættið rétt höktir á hækjum v

 

Það er með endemu að stórsvildlarar sem lugu út milljara viða um heim en láta hina mjög svo "ríku"  (eða hitt þó heldur)Jón og Gunnu borga fyrir sig og hreinsa eftir sig"skítinn"


mbl.is Lögreglumenn örþreyttir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 28. júlí 2009

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband