Hvað næst.???

Það fer nú að fjúka í mann í sannleika sagt. Mér finnst þetta nú bíta höfuðið af skömmini. Vera með svona hótanir. Eru þetta ekki hreinlega afskifti af innarríkismáli hjá lýðveldinu Íslandi ?. Halda þessi"brussukallar"að þeir séu komnir aftur á nýlendutímabilið.

 

Og við séum nýlendan. Við eru það allavega ekki enn. Hvað sem verður. Svo tala menn um að hafa áhrif. Ja sveiattan. Og Össur hefur sennilega  ætlað að halda sínum kja... lokuðum líkt og virðist hafa gerst undanfarið. Nei mæðradagsstjórnin"Jósteinn"ætti bara að hafa þor til að segja þessum köllum að halda kjaf.. og það á dönsku ef annað þrýtur. Kært kvödd í bili


mbl.is Þrýst á Íslendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vildi í"grjótið"???

Vildi mannræfilinn bara ekki ýta á yfirvofandi vistun ??? En þetta var náttúrleg alveg ú hött hin stórhættulega aðferð sem hann notaði ef svo hefði verið. Kært kvödd í bili
mbl.is Ökuníðingurinn lék sama leik fyrir tveimur árum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Iceslave" 3

Ég vona að ég verði leiðréttur ef ég er að fara með rangt mál þegar ég fullyrði á Lilja Mósesdóttir sé færasti þingmaður VG í hagfræði. Er ekki Þór Sari hagfræðingur ? Er ekki Tryggvi þór Herbertsson doktor í hagfræði ? og er Pétur Blöndal ekki sprenglærður í einhversskonar peningafræðum?

 

Og ef rétt er þá hlýtur maður að spyrja sig:"af hverju er ekki hlustað á þessa þingmenn sem öll út yfir flokksbönd eru á móti" Icesave" Ég vona að ég verði leiðréttur aftur ef ég fer með rangt mál í því sambandi. Kært kvödd í bili


mbl.is Tjáir sig ekki um ummæli Lilju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Iceslave" 2

Myndin hér að neðan var yfirleitt kölluð:“The Big Four.”  En margir hafa haldi því fram að kalla ætti hana;“The Big Dummies.”00000139 Þarna sjást forustumenn Evrópu í júni 1919 ásamt þv forseta USA Woodrow Wilson. Sem stendur lengst t h. Í dyrunum stendur Georges Clemenceau þv forseti Frakklands svo Vittorio Emanuele Orlando  þv forsætisráðherra Ítalíu. Og lengst til v David Lloyd George þv forsætisráðherra Breta. Margir hafa haldið þvi fram að þessir menn hafi unnið stríðið en tapað friðnum með þessum frægu en að margra mati illræmu samningum.versailles02 Undirskrift samningana 28 júni fyrir 90 árum. Góður vinur minn, þýskur skipstjóri sem er ári yngri en ég sagði eitt sinn við mig:" það er aldrei talað um hvað skeði á millistríðsárunum í Þýskalandi ".Ég ætla ekki að fara nánar út í það.germaniageketend Þessi mynd var máluð á þeim árum í Þýskalandi og heitir einfaldlega:"Lady Germania chained to a torture pole" untitled Samtíma teikning. Af hverju þessi upprifjun. Jú af því ég held að við séum að sigla inn í svipað ástand og þjóðverjar voru neyddir í fyrir 90 árum. Held að það sé verið að leiða okkur til:" slátrunar" Læt þetta duga af nöldri í bili. Kært kvödd


mbl.is Telja að ljúka verði Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fangelsin full !!!!

Hvernig á annað að vera. Það er alltaf verið að auglýsa sleifarskap undanfarinna ára í fangelsismálum. Nú er bara pláss fyrir þá alverstu.

 

Ef réttvísin virkaði rétt og allt færi fram eftir henni þá kemur til með að vanta"very large"pláss á næstunni ef næst í alla seka"kreppukalla".

 Mér finnst að nota mætti hluta af  þessari beinagrind af hljómlistarhúsi og innrétta þar allavega bráðabirgðar fangelsi. Svona þangað til að tímarnir breytast eitthvað til batnaðar. Þá yrði þessi rándýri kofi til meira gagns. Kært


mbl.is Innbrotum og þjófnuðum fjölgar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Iceslave"

Hverjum andsk...... á maður að trúa. Ég hafði trú á að þessi stjórn myndi reyna að koma skikki á hlutina. En hvað hefur hún gert til hjápar heimlilinum ? Ekkert,Síró.0. Aðeins lengt í hengingarólunum. Og bankarnir aldrei harðari í innheimtu sinni þó eigandinn hafi boðað þar bót og betrun.

volcanolighning Blikur á lofti

Því var lofað að hinum lægst launuðu yrði hlíft. Ég hugsa að ég tilheyri þeim flokki. Og mín kjör hafa rýrnað svo um munar í háu verðlagi og skertum lífeyrissjóðsgreiðslum.  Sem að ég hélt að TR myndi bæta , Nei og aftur nei. Aldrei haldið fastar í budduna á þeim bæ.

 

Clam 01 Þjóðarskútan liggur undir áföllum

Þrátt fyrir vin fátækra Stefán Ólafsson. Stórflótti fólks úr landi er jafnvel fyrirsjáanlegur. Ég man í"den"þegar vinstrimenn gagnrýndu straumimn til Sverige á sínum tíma. Þeir héldu hvorki vatni eða vindi yfir þessum ósköpum. En í vor sagði einn af fv ráðherrum Samf. að þetta hefi nú líka sínar björtu hliðar. Fólk myndi víkka sjóndeildarhringinn og kynnast öðrum þjóðum. Frúin gerði hreinlega ráð fyrir að fólkið kæmi til baka.

 

S2300086 og er að sligast

Flyti fólk t.d. út með börn undir skólaaldri þá má það vera mikil ættjarðarást að snúa til baka allavega fyrr en börnin eru búin með skólanám. Ég vona að þið skilið hvað ég meina. Og í flestum tilfellum verða börnin sem þá eru komin á legg eftir. 

the ant bully Iceslave

Nei þessi ríkisstjórn finnst mér ekki standa sig allavega ekki eftir mínum væntingum til hennar. En hvað um það.  Þegar virtir fræðimenn eins og Jón Daníelson prófessor við London School of Economics, sem segir: "alla útreikninga sem hann hafi séð á afleiðingum Icesave-samningsins séu gallaðir. „Nokkurs konar Excel-hagfræði er notuð þar sem forsendur eru settar fram í Excel-skjölum og greiðslugeta áætluð.“ Hann segir í Excel-hagfræðinni oft miðað við hagkerfið eins og það var árið 2007."

chimp6 Ég held að sumir átti sig ekki á hvað þeir eru að gera

Hverju á þá gamall þverhaus með ekkert vit á peningum að trúa. Ég skora á Alþingi að fella þrælalögin.. Þar mætti alþingismenn hugsa til 16ánda forseta USA. Læt þetta duga af nöldri f.h. Kært kvödd


mbl.is Er ríkisstjórnin að gera samskonar mistök og útrásarvíkingarnir?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 21. júlí 2009

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband