Tími til kominn

Ég fagna þessari ákvörðun ráðherra félagsmála. Hún hefði mátt vera tekin löngu fyrr. Þó bregði fyrir hálfgerðri kosningasviðalykt af þessu þá er þetta mjög svo gott mál.

 

Mér finnst satt að segja aldrað fólk sem er með bogið bak kræklótta fingur,ónýtar mjaðmir sem er búið að fórna sér fyrir að það fólk sem nú er að mennta sig t.d. eiga það skilið.   Og margt af þessu  fólki , kannske sérstaklega verkamenn og konur,bændur og konur þeirra og iðnaðarmenn og konur þeirra sem ekki borguðu í lífeyrissjóði, sem ekki komu fyrr en það var komið yfir miðjan aldur stendur virkilega höllum fæti í dag.

 

Ég held að lífeyrissjóðirnir ættu að láta af þessari ofurlaunastefnu og lúxusjeppastyrkjum og taka meiri þátt í byggingu almennilegra íbúða handa þessu fólki. Það á það skilið af þjóðinni sem í dag nýtur ávaxta af lífstarfi þess,að þeim sé búið áhyggjulaust æfikvöld. Læt þetta duga í bili Kært kvödd


mbl.is Tæpum milljarði úthlutað úr Framkvæmdasjóði aldraðra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðilegt sumar !

Ég óska ölum bloggvinum almennum vinum og félögum og öllum sem hafa kíkt á síðuna mína, hvar í flokki þeir standa GLEÐILEGS SUMARS og ég þakka öllu þessu fólki fyrir ánægjuleg samskifti yfir veturinn.covjeculjak Hann læt af stjórn í gær Mér skilst að það hafi munað litlu hér í Eyjum að Sumar og Vetur frysu saman því ættum við von á góðu sumri. Ég bið góðan guð að gefa að allir gangi sáttir í mót sumrinu.

 TanagerSummerMSY01 Þessi tóku við En hann er kannske of skrautlegur fyrir okkur. En eru ekki skrautlegir fuglar sumstaðar sumstaðar við völdinGWO Sp09 GladTidings 1 Þetta er okkur kærkomið 2146908199 85ef2db315 og þessi.

Þótt vitanlega sé kosningatitringur í fólki og maður vandi kannske ekki þeim sem eru manni ósammála í pólitík ekki kveðjurnar nú um stundir. En þannig er nú þessi skrýtna tík pólitíkin.Læt þetta duga í bili með kærum sumarkveðjum.


mbl.is Frost á Suðurlandi og Vestfjörðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 23. apríl 2009

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband