18.1.2009 | 19:42
Allt konum að kenna
Sagði Gunnar Bragi Sveinsson að hann vildi ekki standa í vegi fyrir því að fönguleg kona kæmist í stjórn flokksins.Öllu má nú koma á blessað kvenfólkið
![]() |
Dróg sig til baka úr ritaraslagnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.1.2009 | 17:31
Vilji fólksins
Þetta formannskjör segir manni margt.Aðallega þó það að hinn almenni framsóknarmaður hafnaði þeim mönnum sem komið hafa að stjórn flokksins undanfarið.Þetta finnst mér að gömlu flokkarnir allavega þeir 2 sem nú stjórna ættu að taka til alvarlegrar íhugunar.Hinn almenni borgari vill ekki þá"kúkalabba"sem stjórnað hafa þessu landi undanfarin ár.Sérstaklega held ég að Íhaldið ætti að fara að athuga sinn gang og stokka upp spilin.
![]() |
Sigmundur kjörinn formaður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.1.2009 | 14:44
Heimilisiðnaður m.m
Hver er nú sekari.Sá sem bruggar 1 tunna af gambra eða þeir sem"brugguðu"þann"mjöð"sem fólkið er að súpa seyðið af í dag.Ég vona að fólk skilji hvaða mjöð ég er að tala um.Ég er óvirkur alkahólisti og hef verið um nokkurt skeið.Ég þekki sjúkdóminn(ég kalla þetta sjúkdóm því það heldur mér edrú.Mér er fjandans sama hvað aðrir kalla alkahólisma)Og því þekki ég afleiðingarnar af honum.Margt af fólki er hreinlega neitt til að taka afleiðingum af alkahólisma.
Þá meina ég aðstandendur alkans þótt það sjálft sé ekki í neinskonar neyslu.Mér er stundum hugsað til þess í dag að svona sé komið fyrir fólkið í landinu.Það sé að takast á við afleiðingar af einhverskonar"isma"sem það á enga sök á en aðrir hafa kallað yfir hana.Talaði ekki einn stjórnmálaforinginn um að "fjárglæframennirnir"þyrftu í einhverskonar"meðferð"Og þá er meint"meðferð"en ekki að vera"með í ferð"eins og þessum helv.... mönnum leyfist enn í dag.Maður opnar hvorki útvarp,sjónvarp eða blað öðruvísi en sagt sé frá einhversslags fjármálabraski sem háttsettir menn eru meira eða minna flæktir í.
Sama fólkið sem bara var hækkað upp fékk að leika lausum hala í bönkunum.Það er löngu gengið fram af allri heilbrigðri skynsemi og búið að brengla svo heiðarleikaskyn almennings að bara það hálfa bæri í bakkafullan lækinn.Ég er viss um að það tekur fleiri áratugi að bæta þann skaða sem komin er á"þjóðarsálina"hvað þetta varðar.Svo eru það fjölmiðlarnir.Í síðustu viku varð ég vitni að hvernig hægt er að slíta setningar svo úr samhengi að það hugnist allt öðrum aðilum en þeim sem setninguna sagði.Hann Georg Arnar hefur bloggað um þetta á sinni síðu og ég bið fólk sem áhuga hefur að lesa um það á henni.Hér er linkur á hana:
http://georg.blog.is/blog/georg/
Nú ætti að taka alla fjandans bruggara hvers kyns þeir eru og láta þá standa fyrir máli sínu.En það eina sem stjórnvöld virðast hafa til málana að legga er:"haldiði kja... og takið utan um hvert annað.Faðmlög er allra góðra gjalda verð og nauðsynleg.En sum slík hafa kannske stundum líka bara aukið á"kreppuna"Þ.e.a.s það hefur komið í ljós 9 mánuðum síðar.
Á 1stu árum þar síðustu aldar voru ung hjón dæmd til ævilangrar þrælkunnar(á 1sta dómstigi) í hegningarhúsi fyrir stuld á 2mur veturgömlum ám.Það sem vakti furðu að þau voru það efnuð að þau hefðu geta komist af án þessa þjófnaðar.Það má kannske segja að"græðgin"hafi orðið þeim að falli.Á þessum tíma voru dómstigin 3 sem kannske ætti að endurvelja það.En"sumir"eru kannske svo ætt og vinamargur að þeir gætu komið vinum og vandamönnum inn í öll stigin.Að þessu mæltu kveð ég þá er lesið hafa kært
![]() |
Lokuðu bruggverksmiðju |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggfærslur 18. janúar 2009
Um bloggið
Ólafur Ragnarsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
kolbrunerin
-
gudruntora
-
gmaria
-
dala
-
nafar
-
valmundur
-
johannesgylfi
-
gudrunmagnea
-
rheidur
-
gretarmar
-
magnusthor
-
nilli
-
georg
-
lydurarnason
-
reykur
-
johanneliasson
-
helgigunnars
-
hector
- kerfi
-
kallimatt
-
jonsnae
-
jp
-
jaj
-
hva
-
valurstef
-
sigurjonth
-
einherji
-
fiski
-
jakobk
-
harhar33
-
rs1600
-
iceman
-
thorirniels
-
kjartan
-
oliskula
-
1kaldi
-
gretar-petur
-
jon-o-vilhjalmsson
-
skulablogg
-
floyde
-
ragnarb
-
meistarinn
-
palmig
-
aevark
-
morgunbladid
-
zumann
-
jensgud
-
gutti
-
gudni-is
-
saethorhelgi
-
geirfz
-
iceship
-
fuf
-
saemi7
-
ketilas08
-
kokkurinn
-
einarorneinars
-
xfakureyri
-
siggith
-
stormsker
-
valli57
-
markusth
-
luf
-
framtid
-
vefritid
-
jakob
-
postdoc
-
jenni-1001
-
mal214
-
partners
-
iceberg
-
valdivest
-
torfis
-
gattin
-
malacai
-
benz
-
gumson
-
hildurhelgas
-
minos
-
seinars
-
skinogskurir
-
krist
-
thjodarheidur
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 3
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 25
- Frá upphafi: 537312
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 17
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar