14.6.2008 | 20:46
Bakkafjara m.m
Ég hef gefið mig út fyrir að vera á móti Bakkafjöruframkvæmdunum.Ég hef byggt það á þeirri reynslu sem ég fékk þegar ég sigldi hjá Ríkisskip sem skipstjórnarmaður.Einnig af tali við kunningja mína hér í Eyjum.En ég brenndi mig svolítið á að lesa ekki vel yfir rök þeirra sem hlynntir eru þessari framkvæmd.
En eftir að hlusta á mér kærkomna kunninga sem eru á öndverðu máli við mig er ég orðinn svolítið"beggja blans"En þó ekki sannfærður.En svo er það staðreyndin í þessu máli:En hún er þessi:"Það er búið að opna tilboð í verkið og það kemur til með að hefjast nú á næstu vikum".Lægsta tilboðið átti Suðurverk hf., 1,87 milljarða króna eða 60,1% af kostnaðaráætlun.Og nú er bara ekkert annað að gera fyrir fólkið hér í Eyjunni að taka því.Og vona bara að þetta gangi allt vel.Við megum ekki láta það henda okkur að þetta verði talað svo niður að fólk verði hrætt við að sigla með komandi ferju.
Og svo verða þeir sem stjórna þessu af ríkisins hálfu að vanda vel sig t.d. um hönnun skipsins og smíði þess.Enga helv.... vinagreiðapólitík.Mér finnst,minnugur nokkra skipa sem íslensk stórnvöld hafa látið smíða fyrir sig þau ekki hafa staðið sig í stykkinu.Og síðasta dæmi um líkan gjörning er Grímseyjarferjudæmið.En svo verður að vanda vel ráðningu skipstjórnarmannana.Þeir mega hvorki vera of ungir eða of gamlir.Það sagði einu sinni við mig danskur ráðningastjóri hjá útgerð þar í landi."Við viljum helst menn um tvítugt með 40 ára reynslu."En þetta var nú sagt í gríni.En öllu gríni fylgir einhver alvara.
En að öðru.Hvað er það sem þarf,til að kippa ráðherra fjármála niður á jörðina.Í viðtali við hann um daginn,09-06-08 segir hann m.:Ég held ekki að við þurfum að hafa of miklar áhyggjur," segir Árni. Eins og hlutir hafa þróast er samdráttarhættan aðallega tengd alþjóðlegri þróun." Hann vísar þar til hækkandi verðs á matvælum og eldsneyti."
Á sama tíma segja menn ASÍ þetta.þ. 11-06-08 Miðstjórn ASÍ leggur áherslu á að stjórnvöld grípi þegar til aðgerða til að sporna gegn vaxandi atvinnuleysi og fjöldagjaldþrotum. Í því sambandi telur miðstjórnin mikilvægt að opinberir aðilar auki mannaflsfrekar framkvæmdir s.s. viðhaldsverkefni og reyni eftir megni að afstýra þeirri innlendu lánsfjárkreppu sem við búum við. Miðstjórnin telur einnig mikilvægt að Íbúðalánasjóður verði nýttur til að aðstoða skuldsett heimili sem komast í þrot með því að veita greiðsluerfiðleikalán."
Og í Mogganum þ 11-06-08 segir m.a:Greiningardeild Landsbankans spáir því að verðlag hækki um 1,2% júní og gangi spáin eftir eykst 12 mánaða verðbólga í 13,1% samanborið við 12,3% í maí. Greiningardeildir telur að verðbólga nái hámarki í tæplega 14% í ágúst en verði 3,5 % í maí á næsta ári."
Allt í lagi segir ráðherra fjármála.Honum er fjan..... sama þótt hinn almenni borgari allavega stór hluti af þeim eigi ekki fyrir salti í grautinn.Stór hluti af almenningi er ekki eins vel alinn og gæðingar ráðherra.End 3.korter í kosningar og margir fullvissir um að hann verði komin þá í þægilegri stól.Honum er and....... sama um nokkra röflara sem rétt skrimta.Stjóra Landsvirkjunnar kemur ekkert við kjör almennings í landinu
Og svo að enn öðru.Nú er ráðherra sjávarútvegs búinn að svara áliti mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna Í svari sjávarútvegsráðherra kemur fram að kærendum verða ekki greiddar skaðabætur né fiskveiðistjórnarkerfinu íslenska umbylt í einu vetfangi," segir í svari ráðherra og verði nefndin að hafa skilning á að kerfi sem þróast hafi á undanförnum áratugum verði ekki bylt á sex mánuðum.
Um sé að ræða langtímaverkefni og verði sérstökum vinnuhópi falið það starf. Hins vegar er boðað að efnt verði til allsherjarskoðunar á íslenska fiskveiðistjórnunarkerfinu í náinni framtíð með breytingar í huga þannig að komið verði til móts við kröfur mannréttindanefndar SÞ, eftir því sem unnt er, segir í svari ráðherra.Ég læt fólk um að dæma þetta svar sem er í heild sinni að finna hér: http://www.sjavarutvegsraduneyti.is/frettir/frettatengt/nr/9305
En nóg um þessa fjand... pólitík.Í Mogganum 11-06-08 er þessi fyrirsögn: Ístogarinn Óskar RE-157 varð vélarvana upp úr miðnætti í nótt, 11 mílur frá landi.Déskoti hafa þeir verið heppnir að togarinn bráðnaði ekki áður en tókst að bjarga mönnunum.Svo þessar hörmulegu fréttir:"Það er bara þannig að hann er réttdræpur, þótt það sé ljótt að segja það," segir Erling Ólafsson skordýrafræðingur um hinn alræmda spánarsnigil, sem hefur gert sig heimakominn á Íslandi á síðustu árum"Hvurskonar ands...... móttökur eru þetta eigilega.Hvað segir menntaklíkan yfir þessum ósköpum.Ef einhver hefur nennt að lesa þetta kveð ég þann sama kært.Lifið heil
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Bloggfærslur 14. júní 2008
Um bloggið
Ólafur Ragnarsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
- kolbrunerin
- gudruntora
- gmaria
- dala
- nafar
- valmundur
- johannesgylfi
- gudrunmagnea
- rheidur
- gretarmar
- magnusthor
- nilli
- georg
- lydurarnason
- reykur
- johanneliasson
- helgigunnars
- hector
- kerfi
- kallimatt
- jonsnae
- jp
- jaj
- hva
- valurstef
- sigurjonth
- einherji
- fiski
- jakobk
- harhar33
- rs1600
- iceman
- thorirniels
- kjartan
- oliskula
- 1kaldi
- gretar-petur
- jon-o-vilhjalmsson
- skulablogg
- floyde
- ragnarb
- meistarinn
- palmig
- aevark
- morgunbladid
- zumann
- jensgud
- gutti
- gudni-is
- saethorhelgi
- geirfz
- iceship
- fuf
- saemi7
- ketilas08
- kokkurinn
- einarorneinars
- xfakureyri
- siggith
- stormsker
- valli57
- markusth
- luf
- framtid
- vefritid
- jakob
- postdoc
- jenni-1001
- mal214
- partners
- iceberg
- valdivest
- torfis
- gattin
- malacai
- benz
- gumson
- hildurhelgas
- minos
- seinars
- skinogskurir
- krist
- thjodarheidur
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (1.11.): 3
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 18
- Frá upphafi: 535908
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar