Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

"virki rétt"

Nú er bara að vona að "réttvísin" virki rétt, Fólk er meira eða minna að tapa trúnni á hana eins og á stjórnmálin. En ég treysti á hinn ópólitíska?? ráðherra dómsmála. Og ég hef grun um að margir líti á parið, hana og sérstakan saksóknara sem síðasta hálmstráið hvað það varðar, Kært kvaddir sem það eiga skilið
mbl.is Skýrslutökum lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"laun herrana"

Það verður nú að sjá um að þessir"herrar" hafi skyrtur og skó til skiftana Þetta eru nú sennilega ekki alveg "viðhaldslausir"menn.Hvaða byrðir skyldu nú lagðar á okkur þessa helv.... asna sem erum búnir að vinna, má segja skítverkin. Þó ég hafi aldrei talið sjómennsku vera skítverk og sannarlega verið hreykinn af starfsheitinu "Sjómaður"

donkey Byrða á okkur asnana

Þá er ég sennilega ekki ofarlega í metorðastiga mannlífs þessa lands. En ég hef engar áhyggur. Foreldrar mínir voru höfundar að fæðingu minni, vonandi í samvinnu við þann sem öllu ræður. Og ég sjálfur höfundur að lífi mínu. Kannske í takmarkaðri samvinnu við sama aðila.

UpstairsDownStairsFront Metorðastiginn??? 

En það er gamallt fólk sem kannske byrjaði að tapa aleigunni til stórþjófa. Og eru nú að tapa stórum peningum fyrir stórtöp þeirra lífeyrissjóða sem það kannske náði að borga í einhver ár, Hugsið ykkur fleiri tugir ef ekki hundruð sjóðsfélaga á aðalfundum en teljandi á fingrunum atkvæðisbærir menn. 

Old Seaman 

Hvaða geðveiki er eiginlega i gangi. Er virkilega allt að fara til andsk.... og engin virðist hafa vilja til að stöðva það. Kært kvaddir sem það eiga skilið


mbl.is Kjararáð leitar til ráðuneytis vegna launakjara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"siðblinda"

Það er sárara en tárum taki þessi siðblinda í þessu fólki sem kennir sig við stjórnmál, Heldur þetta fólk að almenningur trúi hverjum andsk...... sem á borð er fyrir hann er borið. Mér finnst fyrirlitningin hjá þessu liði vera hreinlega alger á svokölluðum almenningi.

Það megi segja því allan fjan... og hann þ.e.a.s almenningur eigi bara að steinhalda kja... og taka allri lyginni sem einhverjum sannindum Kært kvaddir þeir sem það eiga skilið.


mbl.is Fella kaupmálann úr gildi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"láta taka mark á sér"

Skelfing eru stjórnmálin orðin lákúruleg, Og hrokinn í svokölluðum"stjórnmálamönnum/konum" ríður hvorki við einteyming eða berbakt.Þetta er haft eftir einni slíkri í einu blaðanna um framboð Jóns Gnarr:" Það er eiginlega ekki bara gult spjald á stjórnmálaflokkana, það er líka falleinkunn fyrir kjósendur,“ segir Ólína" Enn ein sönnunin hvernig þetta hys.. lítur á okkur þessa sauðsvörtu.

200px Yellow card svgFyrst 2 svona en þau eru komin

Þetta segir ein af þeim manneskjum sem situr á hinu "lága"alþingi og ætti að taka svona framboð ekki sem gult spjal heldur sem Rautt og það með stórum staf. Misstökin sem kjósendur gerðu var að kjósa fólk eins og hana í í húsið við völlinn í austri. Fyrir það ættu kjósendur ekki að fá gult spjald heldur líka Rautt, Ímyndið ykkur hrokann sem fellst í þessum orðum þingkonunnar. "Ja miklir menn erum við Hrólfur minn og fallega pissar brúnka"var einhverntíma sagt.

292399741 0 Svo er það þetta mundið það. Það verður þjóðin sem gefur ykkur það. Þið sem eruð gagnlaus við húsinu við völlinn.

Þetta fólk sem situr inni í húsinu við völlinn sem vill láta taka mark á sér ætti að sjá til að þar verði hreinsað til. Þó konan með gula spjaldið tali digurbarkalega nú kemur að skuldadögum. Og þá væri það grátlega fyrir hana að falla fyrir einhverju "grínframboði" sem verður nóg af ef heldur fram sem horfir. Kært kvaddir sem það eiga skilið


mbl.is Krefjast afsagnar stjórnmálamanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"rugl og vitleysa"

Hvaða heilvita manni með meðalgreind kemur í hug að ó-læsir og skrifandi uppgjafa fiskimenn á smájullum taki svona skip ná hjálpar innanfrá(innherjaverknaður)  Moscow University, Rússneska tankskipið sem þeir tóku í morgum lítur svona út:

 Ship+Photo+MOSCOW+UNIVERSITY Fórnarlambið

Gallery Somali pirates Pi 005 Ræningarnir

p13 17777557 og hér

 


mbl.is Sómalískir sjóræningjar hertóku flutningaskip
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"rúlla þessu upp"

Einhvernveginn held ég að Hanna Birna eigi eftir að"rúlla"þessu upp. Með allri viðingu fyrir hinum kvernkyns formönnum framboða. Og þó ég sé henni ekki sammála í landsstjórnmálum. En mér fannst hún sýna af sér skörungsskap í sirkusnum kringum Ólaf F.

Þegar hún tök af skarið þegar hann réði ekkert við ástandið og kom lagi á hlutina. Sveitastjórnamál og landsmál eru að mínu mati ekki sami hluturinn. Og það kæmi mér allsekki á óvart að þarna sé næsti formaður XD.

Mér hefur alltaf þótt Dagur vera of tækifærissinnaður og hann er ekki maður að mínu skapi. Jón Gnarr gæti ef svo heldur fram sem horfið sett strik í reikninginn. En Hanna Birna getur sett upp heillandi bros og Gnarr fer að nálgast vissar litabreytingar í aldri.

Og heillandi bros getur "doblað" okkur þessa gráfiðruðu upp úr bæði sokkum og skóm. Ég held að hinir frambjóðendur eigi ekki möguleika. En þetta eru nú engar sraðreyndir heldur hugleiðingar gamalls kalls á "vissu" skeiði. Kært kvaddir sem það eiga skilið.


mbl.is Jón Gnarr og Hanna Birna best
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"þó nú væri"

Vitaskuld þurfa allir hærri laun. Bankamenn og aðrir launþegar. Vitaskuld þurfa öryrkjar mannsæmandi laun/bætur auk eldri borgara atvinnulausra og annara sem minna mega sín.

Og ekki ætla ég að gera lítið úr hinum almenna bankastarfsmönnum.Þó nú væri að þau fái hærri laun En spurningin er einfaldlega þessi: gengu þessi hækkun upp allan skalann?. Kært kvaddir sem það eiga skilið


mbl.is Laun bankamanna hækka 1. júní
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"vegið í sama knérunn"

Það er haldið áfram að vega í sama knérunninn. Veikt fólk öryrkjar,eldri borgarar og þeir sem minna mega sín er enn og aftur látið borga reikninginn.

Meðan þjófarnir (maður getur ekki kallað þessa menn annað) leika við hvern sinn fingur. Búa í fleiri fermetra húsum hérlendis og erlendis. Eru að koma verðmætum úr landi beint fyrir framan augun á yfirvöldum. Og ferðast um heiminn sem aldrei áður.

 

Og eftir að hlusta á  Kastljós undanfarið heyrir maður að þeir menn sem við völd voru og fengu peninga til að "styrkja"lýðræðið kunna ekki að skammast sín frekar en fyrri daginn Kært kvaddir sem það eiga skilið


mbl.is Reynt að lækka lyfjakostnað sjúkrastofnana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"lífsreynsla"

Það var líka mögnuð lífsreynsla að að hlusta á "Kastljós" kvöldsins. Hvernig fv ráðherra var í örvæntingarfullu undanhaldi líkt og hershöfðingar Hitlers í undanhaldinu í Rússlandi, í seinni heimsstyrjöldinni  

Og skilur ekki enn að þess lengur setið er í svona stöðu því fjær er hann endurkosningu. Allavega ef maður skilur almúgan rétt. Þetta fók skilur ekki að klukkan glymur því ekki lengur. En þetta helv.... gullfiskaminni íslendinga ríður að vísu  ekki við einteyming Kært kvaddir sem það eiga skilið


mbl.is Algjörlega mögnuð lífsreynsla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"fyrstu hreinu"

Þá fyrst færi nú skörin að færast upp á bekkin ef við ynnum þennan að marga tónlistamanna(ég hef ekkert vit á tónlist) mati skrípaleik. Þá yrði nú gamlingarnir að herða enn sultarólinu því enhverjar "millur" kæmi það til að kosta.

 

Frú Jóhanna og þau hennar hjú í hinni fyrstu hreinu vinstri stjórn yrðu nú ekki lengi að koma með eitt svipuhöggið enn. Kært kvaddir sem það eiga skilið


mbl.is Spá Íslandi úrslitasæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.9.): 3
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 537756

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband