Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

"við völlinn."

Mikið er nú að gera hjá hörpuleikurunum við völlinn. Formaður svokallaðrar Atlanefndar sem er lærður lögfræðingur lætut hafa eftir sér að þetta væri eitt dapurlegasta mál sem hann hefði farið höndum um. Það er nefnilega það.

 

Þessum fræðingum þykir það dapurlegt að kollegar séu "grunaðir " um stórfelld afglöp, Grunaðir ennþá munið það. En þeim þykir ekki dapurlegt þegar fólk sem kannske út af gerðum þeirra  fyrrgreindu  stelur sér kjötlæri úr kjörbúð. Sem fyrst er líka bara grunuð. 

 

Nei þá vælir enginn. En ef kollega er grunaður  þá brestur allur kórinn í grát. Látið ykkur ekki detta í hug að annað komi út úr þessum fíflagangi annað en meiri fjárútlát. Sen aftur þýðir þyngra líf hjá minnimáttar hópum þjóðfélagsins. Kært kvödd


mbl.is Trúnaði aflétt að hluta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"bjóst fólk við "

Hverju bjóst fólk við ?. Þetta er sérsniðinn dómur fyrir auðvaldið. Og verst af öllu er að þeir sem pöntuðu hann kenna sig við alþýðu. Þetta vissu allir sem skilja sæmilega íslensku. Vildarvina-klúbbsfélaga-skólabræðra og systra - væðingin á fullu Kært kvödd
mbl.is Dómurinn mikil vonbrigði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"vinaráðning"

Hvað skyldi þessi "vinaráðning" kosta og hverju skyldi hún skila ????. Ég bara spyr??? Kært kvödd
mbl.is Ráðin tengiliður vegna vistheimila
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"hinn mjóa veg"

Það sætir miklum undrum að á sama tíma og Kirkjan er alltaf að predika fyrir manni að að þræða hinn mjóa veg ætlar Vegagerðin að fara að breikka hann . Það er eins og alltaf hjá ríkinu stofnanir þess talast ekki við. Kært kvödd
mbl.is Vilja breiðari vegi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"haldi sínum launum"

Vitaskuld þarf að tryggja að þetta  lið haldi sínum launum. Það yrði nú rosalegt ef ekki fengust peningar fyrir rannsóknarnefndir sem nú eru skipaðar út og suður og sem hjálpa nú sennilega lítt launuðum embættis og þingmönnum um aukatekjur.

 

Það væri gaman að vita hvað almenningur í landinu sé búinn að borga fyrir  þetta svokalla'i haustþing. Og hvað hafi komið jákvætt fyrir heimili landsins út úr því þingi. Það er hreinlega ekki hægt að segja annað en "Hypið ykkur heim", það er ódýrara fyrir fólkið í landinu.Kært kvödd


mbl.is Tryggja þarf fjárhagslegt sjálfstæði þingsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"drollað með þetta í þinginu"

Dettur einhverjum með sæmilega heyrn og greind í hug  að eitthvað verði gert annað en það verður drollað með þetta í þinginu . í svörum og andsvörum, andköfum eða hvað þetta heitir alltsaman, þessi hringavitleysa í húsinu við völlinn.

 

En ekki dettur þeim í hug að taka fyrir afleiðingar hrunsins á ýmsa minnihluta hópa fyrir utan slangurs af ungu fólki sem sér fram á hungurkjör sett fram af megahátlaunuðum bankastjórum sem bara hugsa um eigin rassg.. Ein og liðið við völlinn  gerir einnig Kært kvödd


mbl.is Mikið tilfinningamál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"einskonar vírusvörn "

Það er eins og ráðherrar VG líti á sig sem einskonar vírusvörn og allar tilraunir til arvinnuaukningar sem vírusa. Og þetta skuli vera afsprengi svokallaðra vinstrimanna. Það finnst mér umhugsunarvert fyrir atvinnulausa. Kært kvödd
mbl.is Tafir hafa stórskaðað atvinnuuppbyggingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"við völlinn"

Skyldi þetta hafa verið svona vakningarhögl ofanfrá til þeirra við völlinn . Skyldi ekki hafa bulið í þakinu. Ekki ætla ég mér að legja dóm á endurkomu einnar þingkonunnar. En fókl hefur í mín eyru talið þetta ögrun við fólkið í landinu. Og mótmæli eigi eftir að endurtaka sig. Ekki veit ég. Kært kvödd
mbl.is Haglél í borginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"í húsið við völlinn."

Þennan mann á að senda strax í húsið við völlinn. Það er komið nóg af hörpuleikurum en vantar nauðsynlega fiðluleikara. Maðurinn er búinn að sanna kunnátti sína í hljóðfæraslætti og stjórnun á sama tíma . Kært kvödd
mbl.is Lék á fiðlu við stýrið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.9.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband