Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Hin tæra íhaldsstjórn

Hér er mynd af ríkisstjórn sem sat að völdum fyrir tæpum 60 árum síðan, Sennilega kölluð "argasta íhaldsstjórn" af andstæðingum sínu sem þá voru Sameiningarflokkur Alþýðu Sósíallistaflokkurinn  og Alþýðuflokkurinn. Sem sagt fyrirrennarar nv stjórnarflokka. Takið eftir mönnunum hægra megin á myndinni. Ábyggilega oft kallaðir mestu andsk..... íhaldskurfar og jafnvel hnýtt aftan við:"sem landið hefur alið"

17 Maðurinn næst okkur hægramegin í mynd var ráðherra viðskifta. Í byrjun desember þess árs byrjuðu verkföll sem lamaði landið  En vitið þíð hvað þessi "tæra íhaldsstjórn " gerði jú hún beitti sér fyrir lausn verkfallsins Með hverju.? Jú hún beitti sér fyrir að auka kaupmáttinn lækkun vöruverðs lækkun farmgjalda m.a. Svona leit t.d listinn á almestu nauðsynjum út

 

"1.Mjólk lækkun úr 3,25 í 2,71  2. Kartöflur lækkun úr 2,45 í 1,75  3. Kaffi lækkun úr 45,20 í 40,80  4. Sykur lækkun úr 4,14 í 3,70  5. Saltfiskur lækkun úr 5,60 í 5,20 6. Lækkun á kolum o. fl.  7. Brennsluolía lækki um 4 aura"

Nú situr stjórn sem kennir sig við fg stjórnarandstöðufloka sem fær sérmeðferð hjá sumum ónefndum verkalýðsforustumönnum.  Ímyndið ykkur þessi "tæra íhaldstjórn" sá til þess að bensínverð lækkaði um"nokkra aura". Ja ef þessi gaur karl marx eða þessi engels eru ekki farnir að hrista höfuðið yfir þessum afbökunum á kenningum þeirra sem eru unnar af þessum "ungum" sem ranglega kenna sig við þær,þá er ég ílla svikinn. Við erum komin alltof og hættulega langt til hægri.Þegar ráðherra fjármála talar um að "nokkrir aurar" skifti engu máli 

 

donkey fyrir löngu sligaðan almenning

 

Nokkrir aurar skifta máli þegar þá vantar, En það skilja  ráðherrar eins og hann ekki enda búin að hreiðra vel um sig launa- og lífeyrislega  Við þurfum gruggaða vinstri stjórn ekki tæra það er á hreinu, Sú "tæra" er löngu komin á síðasta söludag. Hvað skyldu vera margar nefndir að störfum fyrir hana? Hvað skyldu vera mörg mál sem eru komin í"farveg"? Og hvað skyldi þetta helv.... bull allt kosta mikla peninga?  Og hver skyldi svo vera látinn borga?? Sú tæra virðist ekkert sjá annað en auka álögur á fyrir löngu sligaðan almenning. Kært kvaöö


mbl.is Bensínið hækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"vera fluga á vegg"

"Það á ekki að kasta steini úr glerhúsi" Stendur einhverstaðar. Það væri gaman að vera fluga á vegg í þingflokksherbergi Samfylkingarinnar er kvótamálin eru rædd. Kært kvödd
mbl.is Þekkja aðeins viðvarandi flokkadrætti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"einhverjar krónur "

„Vandinn er nú sá að þó að ríkið lækkaði sínar álögur um einhverjar krónur á lítrann þá vegur það svo lítið á móti þessum gríðarlegu hækkunum á innkaupsverði" Þetta segir ráðherra fjármála hjá þeirri "tæru".

Maður sem er í forustu fyrir flokk sem þóttist vera flokkur verkalýðsins. Fer ekki helmingur af útsöluverðinu á bensíni til ríkisins.  Það er tregara en tárum taki að í tíð þessarar "fyrstu tæru vinstri stjórnar" skuli vera að myndast hópur manna sem má flokka undir öreiga "Proletariat"

Hópur sem vegna okurverðs á bensíni kemst ekki einusinni til að ná í haframélið sem er eitt af því fáa sem það getur keypt sér til matar. Og mér finnt það hreinlega lúalegt af fg ráherra að halda svona málflutningo á lofti. Manni sem ekur um á bíl sem eyðir olíu/bensíni borgað af okkur hérna niður á jörðinni. Á launum sem svarar til upp í þreföld lægstu daglauna verkamannsins Kært kvödd

 


mbl.is Bensínlækkun breytti litlu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"fyrstu hreinu vinstri "velferðarstjórnar""

Ætli þau viti að dagar þessar fyrstu hreinu vinstri "velferðarstjórnar" séu taldir. Að það takli þvi ekki að stofna þingflokk.

Manni skildist það á Lilju Móses um daginn að þígstörfin yrðu léttari í þingflokki og að það væri eiginlega brýnt að stofna slíkan flokk.

Ja þannig skildi ég málið. En hvað skildi hafa breyst. Það skildi þó ekki vera að þau hjú Jóhanna og Steingrímur J séu að skilja, Manni finnst einhvernveginn að þau séu að skilja að borði og sæng ef svo skáldlega mætti að orði komast.

 

Lögskilnaðurinn sé svo skammt undan. Það er nú einusinni þannig  að Samfylkingin er allavega klofinn í kvótamálinu og VG eiginlega klofin í herðar níður. Og þó ég sé ekki aðdáandi XD þá get ég ekki annað en brosað þegar stjórnarsinnar tala um klofning þar.

Og það er nú orðið þannig að hlusta á frú Jóhönnu að manni dettur helst í hug gömul slitin plata með gömlu dönsunum. Þetta kemur allt svona í belg og biðu. Verið kært kvödd


mbl.is Ekki tímabært að stofna þingflokk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjómannadagurinn II

Af því ég bloggaði áðan um sjómannadaginn er ekki úr vegi að birta hér brot úr forustugrein Moggans á Sjómannadaginn fyrir 50 árum En þar segit m.a:

"HVER SÁ DAGUR, sem færir hina íslensku þjóð saman, laðar til samstilltra átaka fyrir góðum og nytsömum málum, skapar samúð og góðvild milli stétta okkar fámenna þjóðfélags, hver sá dagur sem þessu fær áorkað er góður dagur. Af þessum ástæðum er Sjómannadagurinn, sem við höldum hátíðlegan í dag, góður dagur.

Hann hefur þrátt fyrir það að vera minninga- og baráttudagur sjómannastéttarinnar orðið almennur hátíðisdagur allra landsmanna. Á því er oft haft orð að þessi litla þjóð sé deilu- og þrætugjörn um of og jafnvel öðrum þjóðum deilugjarnari um innanlandsmál sín.

Á það, hvort svo sé í raun og veru, skal ekki lagður neinn úrskurður hér. Hitt vitum við, að margvísleg togstreyta og þröngsýni hefur oft tafið framgang góðra mála. Okkur hefur skort hæfileika til þess að sjá nægilega vítt yfir þjóðarhag, en horft í þess stað á takrnörkuð sjónarmið stétta og starfshópa á líðandi stund.

Baráttan um þessi sjónarmið hefur stundum valdið óþörfum töfum á framsókn þjóðarinnar til raunhæfra og varanlegra framfara".  Tilvitnun lýkur. Leturbreitingar eru mínar.Svo mörg voru þau orð. Verið ávallt kært kvödd


Sjómannadagur

Ég vil byrja á að benda hér á blog vinar míns Sigmars Þórs Sveinbjörnssonar um daginn. Og svo taka undir með honum.

http://nafar.blog.is/blog/nafar/entry/1160382/#comments

Ég skil satt að segja ekki þessa andsk.....  meinvillu að þurfa að uppnefna Sjómannadaginn og kalla hann "Hátíð hafsins"

 

Nafn hans er lögfest í lögum nr 20 þ. 26 mars 1987 Þar segir m.a:" 1. gr. Fyrsti sunnudagur í júnímánuði ár hvert skal vera almennur frídagur sjómanna með þeim undantekningum sem um getur í lögum þessum. Beri hvítasunnudag upp á fyrsta sunnudag í júní skal sjómannadagur haldinn næsta sunnudag á eftir.
Sjómannadagurinn skal vera almennur fánadagur." Tilvitnun lýkur. Leturbreitingar eru minar

Vitaskuld hefur hafið verið okkur gjöfullt og það ber að þakka. En fyrir þá þakkarhátið má finna annan dag. Málið er það að ein af aðal ástæðum fyir að halda Sjómannadaginn hátíðlegan er að minnast þeirra sem töpuðu í baráttunni við hafið og líka að fagna þeim sem unnu hana.

 

Þessvegna er t.d mönnum veit verðlaun fyrir unnar hetjudáðir við björgun annara. Einnig eru gamlir sjómenn sem sluppu (misjafnlega vel samt) í viðureign sinni við hafið heiðraðir. Ég er eignlega hálfhissa á að forsvarsmenn þeirra launþegasamtaka sem tilheira sjómönnum skuli láta þetta nafnabrengl ekki til sín taka.

 

Þótt maður sé flokkaður sem gamall neikvæður og úrillur leyfi ég mér að hafa þessa skoðun. Og finnst þetta "hátíð hafsins" kjaftæði háfgerð móðgun við þá menn sem lutu í lægra haldi í baráttunni við það. En það er kannske líka sjómönnum sjálfum að kennar ef nafnið á degi þeirra er að þurkast út. Þeir þyrftu kannske að taka meiri þátt í deginum.

 

Hér áður var keppt í reiptogi beitningu bætningu jafnvel splæsningu og ýmsum handbrögðum tengdri sjómennsku. Það þarf ekki háttlaunaða svokallaða listamenn til að gera daginn ánægjulegan. Svo finnst mér vera athugandi að færa daginn aftar í almanakinu. Vorið er oft svo nýkomið í byrjun júní í þessu harðbýla land. Þótt alvarleikinn eigi að svífa yfir vötnum þá á þetta líka að vera fagnaðarhátíð þeirra sem háðu kannske tvísýna baráttu en unnu sigur. Og þar með sigurhátíð yfir hafinu. Kært kvödd


Gleðilegt sumar

Um leið og ég óska lesendurm siðunnar gleðilegs sumars og þakka innlitin á vetrinum fagna ég þessum farsælu endalokum með áhöfninni á Huginn. Enda eins og Guðmundur skipstjóri benti á " réttir menn á réttum stöðum " Sem hreinlega gætu verið einunnarorð þerra bræðra sem reka skipið af miklum dugnaði

Tweety   Crab Happy Summer

 

Og nú eru 45 daga (þrjú korter !!!!!) til Sjómannadags. Og í tilefni þess er kannske ekki úr vegi að benda áhugamönnum um sjómennsku á nokkrar myndasíður með skipa og báta myndum. Hafliði Óskarsson á Húsavík hefur opnað togarasíðu sína aftur. þar verða til umfjöllunnar svokallaðir "Nýsköpunartogarar" slóðin er :

 http://togarar.123.is/

Tryggvi Sigurðsson vélstjóri og módelsmíður heldur úti fiskiskipasíðu á  slóðinni:

http://batarogskip.123.is/

Nú ég sjálfur er með síðu um flutningaskip á slóðnni :

http://fragtskip.123.is/

Inn á þessum síðum eru svo slóðir á margar áhugverðar báta/skipasíður. Skoðið og njótið kært kvödd


mbl.is Hefði getað farið illa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"það gott fyrir almúgann"

Rosalega er það gott fyrir almúgann að svona stórsnillingar fái að "grassera" í peningapólitíkinni. Hvenær birtist Jón Ásgeir og fl slíkir hressir og kátir hvítþvegnir,skuldlausir og tilbúnir að velta sér upp úr peningum sem kreistir hafa verið út úr fyrst nefndum hóp. Kært kvödd

Ps Það er kannske von að núverandi stjórvöld vili setja 110 ára þagnarskyldu að öll "góðverkin" sem hún hefur gert

Sami 


mbl.is Bankinn yfirtók alla hlutabréfaeign
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Er þetta ekki "

Er þetta ekki hálfgert spark í rassg.... á  Gylfa Arnbjörnssyni & co. Það verður gaman að fylgast með hvað skeður hjá Framsýn Kært kvödd
mbl.is Fá aukalega ein mánaðarlaun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.9.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband