Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

"Þarna lærðu "

Þarna lærðu Stýrimannaskólanemendur "íþróttir" á sínum tíma. Eða þannig Kært kvödd
mbl.is Gamalt íþróttahús friðað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"og þeir sem minna mega sín"

Eldriborgarar, öryrkjar og þeir sem minna mega sín hafa fundið illilega fyrir menningunni undanfarið og ekki sést einusinni roða fyrir sólini hvað það varðar. Og ekki lýsa menningarvitarnir í því dimmviðri.Kært kvödd 
mbl.is Nýir tímar í menningarsögunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Er nú ekki nóg helv.... "

Er nú ekki nóg helv.... pappirssnifsafokið um allt. Þetta stendur í fréttinni "sem farþegar geta annað hvort lesið á meðan ferðalaginu stendur eða tekið með sér heim" en gleymdist að bæta við " eða hent þegar úr vagninum er komið" Kært kvödd
mbl.is Frí blöð í strætó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"En þurfa kannske"

Ég samfagna Akureyringum. En þurfa kannske Vestmanneyingar að fara huga betur að sínum málum í kjölfarið?? Kært kvödd
mbl.is Fagnar kaupum Samherja á starfsemi Brims
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

" hrynja skrautfjaðirnar af"

Ja hérna Þær eru að hrynja skrautfjaðirnar af þeirrar tæru. Er  maðurinn ekki á "listamannalaunum" Sagði ekki Voltaire að: "Eru stjórnmál annað en sú list að kunna að ljúga á réttum tíma" 

Og segir ekki Biblían "verður er verkamaðurinn launa sinna" Það er samhljómur í þessu. Það væri gaman að vita hvað"við" greiðum þessum manni í laun samtals fyrir að sitja með hönd undir kinn hálfsofandi á samkundunni við Austurvöll.

Og ætli Jóni Bjarna sé ekki skítsama um þennan "flokkaflakkara" Kært kvödd


mbl.is Styður ekki Jón sem ráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"fyrir ódæðið"

Ja hann valdi sér staðinn fyrir ódæðið. Mér finnst satt að segja þeir sem stjórna í húsi spölkorn frá séu að fremja samnefnt ódæði á þjóðinni. Allavega þeim sem minna mega sín. Kært kvödd
mbl.is Reyndi að nauðga stúlku á Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"tilgangsleysi stjórnmálanna"

Þetta sýnir tilgangsleysi stjórnmálanna nú meir en margt annað. Meiningarlaust skítkast á báða bóga. Ef einhver smávirðing fyrir þessum furðufuglum á þessu svoköluðu alþingi hefði verið einhverstaðar fyrir hendi,  þá væri ýmislegt sem þessi frú sem fer fyrir þeirri tæru hefur látið sér um mun fara:"ekki boðlegt í sölum" fyrrgreindar samkundu. Skítkast hver í annan og skotgrafarhernaður eru aðalsmerki títtnefndar samkundu. Enda kemur ekkert að viti frá henni allavega nú um stundir Kært kvödd
mbl.is Ekki boðlegt í sölum Alþingis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"tregara en tárum taki "

Það er eiginlega tregara en tárum taki þegar glæsileg ungmenni falla á vigvelli eiturlyfjanna. Og líka er það sárgrætilegt að ekki skuli nást í morðinga þessarar fallegu stúlku.

 

Þó að einhverjir sendlar séu skotnir öðru hvoru nást höfuðpaurarnir sennilega aldrei. Og yfirleitt eru þeir sem nást þrælar þessara manna. Sem þeir eru búnir að ná tangarhaldi á í gegn um eiturlyfin, Þessir andsk.... eru slægari en svo að jafnvel sendlarnir hafa ekki hugmynd um hverir þeir eru.

 

Og ég er þess fullviss að í hópi þeirra eru jafnvel menn  úr heimi þeirrar hroðalegu peningagræðgi sem við erum farin að þekkja úr svokölluðu "viðskiftalífi"

Menn sem svífast einskis til að verða ríkari en þeir eru. Ég held að "peningagræðgin" virði engin landamæri. Einn dáinn einstaklingur á móti tugmiljóna gróða hafi lítið að segja í það gin Verið kært kvödd


mbl.is
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"ráðherrar í vinstsinnaðri ríkisstjórn "

Hvaða vitibornir ráðherrar í vinstsinnaðri ríkisstjórn  í heininum sem stæði frammi fyrir viðtækum verkföllum dytti i hug að senda svona lokaútkall. "Ef þið takið þetta ekki étið þið þá bara skít" Sem sagt algör uppgjöf.

Myndu ekki vitibornir ráðherrar vinstri sinnaðrar ríkisstjórnar leita að með lokandi ljósi að lausn málsins til að forða þjóðinni frá verkfallsvofunni. Ráðherrar nv ríkisstjórhnar eru bornir en ekki vitrir 

Og það er dautt á ljósinu hjá þessum enskinsnýta ráðalausa vinstrihræring. Svo þvælast sumir úr grautnum bara út til Indlandi að keppa við forseta Ólaf um vinsældir þar Þó allt sé að fara til andsk..... hér spókar hann sig bara skælbrosandi þar. Hvað skyldi sú ferð kosta? Og hver skyldi borga? Kært kvödd


mbl.is Sendu lokaútgáfu yfirlýsingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"sviknum loforðumí"

Margt hefur maður nú af sviknum loforðumí gegn um tíðina. Og mikið gaf maður af þeim í vissu ástandi sem maður stóð ekki við. En ekkert af því komst í hálvkvísti við hinn langa lista af loforðum þeirra "tæru". Nú þau gætu notað hann aftur við næsti kosningar.

 

Hann er jú ónotaður Ég vona bara að Guðfríður Lilja hristi líka af sér einræðistakta formans VG og taki höndum saman við Lilju Mósesdóttir og fleiri konur sem tilbúnar eru að taka upp hanskan fyrir okkur hérna niðri á jörðinni.   Konur sem ekki eru á þingi nú úr fjórflokkunum. Þær eru allar komnar langt fram yfir síðasta söludag Hver og ein einasta. Ásmundur Daði og  Atli ættu að slást í hópinn með "stelpunum" og okkur jarðarbúunum. Kært kvödd


mbl.is Kosningaloforðafólkið vandamál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.9.): 0
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband