Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

"Þetta er farið að minna mig"

Þetta er farið að minna mig töluvert á vangaveltur mína um hvar hin virkilega ¨Ábyrgð" liggur. Bankastjóra, forstjórar lífeyrisstjóða og annara fjármálastofnana þurfa mikil laun sem með jöfnu millibili eru hækkuð vegna mikillar ábyrgðar. Læknar flugstjórar og skipstjórar sem mikla ábyrgð bera á mannslífum þurfa að ná sínum launahækkunum með verkföllum með jöfnu millibili. (læknar að vísu í fyrstaskifti nú)Ég er viss um að ef læknar heyrðu til t.d. ferðaþjónustu eða fiskbveiða væri löngu búið að setja á þá lög(ekki það að ég sé að kalla eftir þeim í þessu sambandi)því að þá væru peningar í húfi ekki mannslíf. Verið ávallt kært kvödd


mbl.is Nýgreindir áhyggjufullir og reiðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Þetta er að verða"

Þetta er að verða með hreinum ólókindum hvernig hægt er að "klína" málskonaði þeirra sakfelldu í þessum málum "Sérstaks" á Ríkið Jafnvel þótt menn séu dæmdir sekir.Manni er jafnvel farið að koma til hugar að þetta sé gert með ráðum til að láta Ríkið "blæða" svo mikið að það gefist upp hætti að eltast við þessa andsk... Ég er viss um fengi ég og við hérna niðri á jörðinni sakfellisdóm þyrfti við að greiða allan sakarkosnað Það er sem sagt ekki sama Jón og séra Jón Með allri minni virðingu fyrir "sérunum" Verið ávallt kært ködd


mbl.is 66,8 milljónir falla á ríkið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Vinnuheimsókn"

Vinnuheimsókn!!!!!! Öllu má nú nafn gefa. Nógir peningar í svona helv.... snatt. Svei attan verið sam kært kvödd


mbl.is Einar í vinnuheimsókn í Washington
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingu

Ég segi bara "Til hamingu Páley" Þú munt sinna þessu vel Verið kært kvödd


mbl.is Skipar tvo nýja lögreglustjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Það er orðið þannig háttað"

Það er orðið þannig háttað í heilbrigðismálum þessa lands að "gæludýr"(Suspendisse) fá nú um stundir mun betri læknisþjónustu en manndýrið(homo bestia) Fái gæludýrið einhverja innvortisverkji vælir það þar til eigandin fer með það til dýralæknis.Og kemst að strax að eða þá daginn eftir Fái gamall maður verki á magnann þýðir ekkeret að væla þvi ekki næst í lækni vegna fægðar eða verkfalls fyrr en erfti 1 eða to mánuði Verið kært kvödd
mbl.is „Gætu þurft að bíða“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Ég hef satt að segja ekki skilið"

Ég hef satt að segja ekki skilið í hamagangnum í sambandi við þessi norsku vopn. Skilur fólk ekki af hverju norðmenn eru að losa sig við þau. Er fólk svo heimskt að það muni ekki hvað skeði Osló þ 22 júli 2011. Hvaða almennilegum borgara í Noregi datt þá  í hug að svoleiðis atburðir gæti skeð í eins friðsælu landi norður í höfum . Engum. En þetta skeði nú samt.

 

Og hvað eru norðmenn að gera nú?. Þeir eru jú að skifta út eldri gerðum af vopnum til að vera betur í stakk búna til að mæta öðrum slíkum atburð EF kæmi til hans. Mér finnst ábyrð þeirra manna sem lát eins og fífl aftur og enn þarna niður á þessu svokallaða alþingi mikil. Hvernig getur nokkur lifandi maður á Íslandi í dag fullyrt að maður með sama hugsunnarhátt og hryðjuverkamaðurinn norski  fyrirfinnist ekki hérlendis. Í þessu friðsama landi hér norður í höfum.

 

Þessir "sjóræningar" inn á fg samkundu hegða sér einkennilega. Þeir eru hundfúlir yfir að lokað skuli verið á heimasíður þar sem hausar eru látnir fjúka af "vantrúuðum" og blóðið gjósi úr strúpunum. Það eigi að     leyfa almenningi (þ.a.m sennilega börnum líka) að sjá hryllinginn  En vilja svo hafa lögæslumenn óvopnaða sem þurfa kannske að eiga við vitskerta menn sem hafa tekið að upp hjá sér að vilja útrýma þvi fólki hérlendis sem aðhyllist þá trú sem "heimasíðueigendurnir" hafa afskræmt. Svona "ræningar" eiga ekkert erindi inn á smkunduna við völlinn. Þeir æsa bara upp vitleysuna sem þar ríkir fyrir. Fólk verður að fara að skilja að við erum kominn í samband við ummheiminn  Verið kært kvödd


mbl.is Þrisvar fengið gjafir frá Noregi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Nam hún fræðin hérlendis."

Nam hún fræðin hérlendis. Nei ég bara spyr Henni frekar en íslenskum ráðamönnum dettur ekki í hug að segja af sér út af svona smámunum
mbl.is Sökuð um að misfara með fé
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Í sambandi við skatta"

Í sambandi við skatta. Dettur einhverjum heilvita manni sem eittkvað hefur fylgdst með hlutunum í þessu landi síðustu 12-15 árin að nv ráðherra fjármála styði að keyptar verði upplýsingar um fé í skattaskjólum.Ég heyrði áðan í einum af XD þingmanninum sem sagði að þetta mál þyrfti mikillar yfirferðar Nei þessu verður ekki vel tekið af XD allavega Það er alveg nóg að borga velvöldum lögmönnum sem ekkiert eru að snúa stóru steinumum við stórar upphæðir við að rannsaka málið. Vegna þess ætti að setja af stað landssöfnun til að kaupa þessi gögn,. Það mætti svo byggja að minssta kosti einn Landspítala fyrir peningana sem kæmu úr þessum skjólum. Þjóðverjar keyptu svona gögn með góðum árangri. Erum við eitthvað meiri en þjóðverjar ? Kannske spilltari ef eitthvað er. Kært kvödd.


mbl.is Tvísköttunarsamningur við Albaníu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Trit­on er eitt af skipunum"

Trit­on er eitt  af skipunum sem einn af "snjallari" stjórnmálamönnum (að vísu hættur í bili)  síðari tíma vildi útiloka frá Reykjavík Hann er ekki víður sjóndeildarhringurinn hjá þessu liði sem gefur kost á sér til opinberrar þjónustu nú um stundir og alltaf fer hann versnandi  Hann takmarkast af rassk.....   á þeim manni í það og það skiftið og stolnum sem hann sækist eftir. Komist hann í hann er honum borgið og aðrir geta bara étið skít hans vegna. Kært kvödd
mbl.is Dönsk þyrla sótti slasaðan mann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Enn og aftur"

Enn og aftur. ENN OG AFTUR ætlar ríkisstjórn Auðvaldsins sem nú ræður ríkjum hérlendis að þrengja að fjárhag þeirra sem minna mega sín Grípum aðeins niður í greinina sem bloggað er út frá "For­svar­menn li­f­eyr­is­sjóðanna telja auðsætt að þessi aðför leiði til skerðing­ar á áunn­um rétt­ind­um sjóðfé­laga í þeim sjóðum þar sem skuld­bind­ing­arn­ar eru mest­ar gagn­vart ör­orku­bót­um. Jafn­framt blas­ir við að þeir sem tóku ákvörðun um af­nám þess­ara út­gjalda rík­is­sjóðs halda óskert­um rétt­ind­um, enda í Líf­eyr­is­sjóði op­in­berra starfs­manna þar sem ör­orku­byrði er hverf­andi" Tv.lýkur

 

 

Hugmyndaflugið sem þeir þessir andstæðingar okkar hérna niðri á jörðinni hafa, ríður ekki við einteyming Hugmyndaflug við  að finna eitthvað sem reitir af okkur síðustu aurana. En þegar kemur t.d tilhögum heilbrigðismála er hugmyndaflugið ekkert Það er læðst að okkur með að hækka matarverð sem með einhverjum dómadagsreikningum sem jafnvel sumir  svokallaðir hagfræðingar botna ekkert í .Matiurinn á að hækka en "flatskjáirnir" og þvílikar vörur eiga að lækka öryrkjum eldriborgurum og þeim sem minna mega sín til hagsbóta. Hvað skildi mörgum % af fg hópum koma sér þetta vel. Það er með hreinum ólíkindum hve hreint og örugglega er gengið til verks Engir krabbameinslæknar á landinu eftir 6 ár engin læknakandidatar sem útskrifast í vor koma til starfa hérlendis. Stórútgerðir sýna virkilega góða afkomu. En þeir eru látnir ( jú jú þeir borga til Ríkisins það veit ég) sleppa þetta vel að um milljarða hagnað er um að ræða En borga þeir eins mikið hlutfallslega og umræddir hópar borga af sínum tekjum.

 

 

Ekki hef ég á móti að menn fjárfesti í vænlegum félögum. En þá kemur þetta "stöndum saman" dæmi Það er alltaf af þessum andsk..... fíflum (ég get ekki annað sagt) í þessari auðvaldsstjórn talað um að við verðum bera birgðarnar saman. Hvernig er með auðliðið á Flórída og víðar ?? Bera þeir eins miklar birgða og sjúki maðurinn eldri borgarinn og öryrkinn ?? Þeirra mottó virpist vera "það er ykkar að afla, okkar að eyða" Eins og sést af úrdrættinum úr greininni hér að ofan snertir þetta ekki þá sjálfa. Þeir passa sig á því. Og það er með ólókindum líka hve þessi hópur sem kallast alþingismenn rótast í sandkassanum öllum til óþurftar. Hvernig þeir eru þarna bara til að vera ósammála síðasta ræðumanni. Orðin "að leggja sig fram og reyna semja um mál" er horfið úr orðaforða þeirra. Og svo þegar einhver leyfir sér að svo gagnrýna störf þessara manna er maður bara afgreiddur með "þú er hálviti sem ekkert vit hefur á þessum málum. Þegiðu bara"  Ofureinfalt. Kært kvödd


mbl.is Aðför sem skerðir áunnin réttindi sjóðfélaga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 536774

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband