Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

"allri virðingu fyrir konum"

Með allri virðingu fyrir konum sem ég met mikils hef ég skoðun á þessu máli.  Ég á móti bæði mannsali og ofbeldi gegn konum. Já og ofbeldi yfirleitt En andlegt ofbeldi er líka til  En þetta stórasystir dæmi  finnst mér aðeins of langt gengið.

 

Það er því miður þannig að misjafn sauður í mörgu fé. Þetta á við bæði konur sem karla. Ef svonalagað á að ganga eftir er t.d.leikur einn fyrir afbrýðisama konu að hefna sín á einhverjum saklausum karlmanni. ( Það hljóta að vera til saklausir karlmenn) Því afbrýðisöm kona er ekki síður hættuleg en afbrýðissamur karl.

 

 

Og þó að t.d. heimilisofbeldi sé fremur framið af karlmönnum þá eiga konur líka sinn hlut í því. Og þó að þeirra hlutur í því sé fremur andlegt getur það líka skilið eftir sár. Það er ekki hægt að hvítþvo konur alveg af fg málum Kært kvödd


mbl.is Stóra systir fylgist með þér!
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Þetta villuljósakjaftæði "

Þetta villuljósakjaftæði er lifandi dæmi um hversu veruleikafyrt þetta 101 lið er. Hátekjulið sem hefur alla tíð verið á spena hins opnbera og aldrei difið hendi í vatn nema volgt. Þetta sýnir hve margir óþurftarmenn sita á hægindastólum  á þessu svokallaða alþingi.

 

 

Og menn sem stunda heiðarlega vinnu ættu að muna þessi orð "villuljós". það þarf að hreinsa þetta óþurftarfólk af þingi. Fólk sem vill setja Ísland á þann reit sem Ráðstjórnarríkin voru 1917 eftir byltinguna. Allt þjóðnýtt og viðskifti eiginlega bönnuð. Kært kvödd


mbl.is Bakkadraumur var villuljós
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Auminga jóhanna"

Auminga jóhanna. Hún þolir enga gagnrýni. Vælandi heletiden yfir íhaldinu og forsetanum. Þessi vælukjóastónn er orðinn hundleiðinlegur

 

" Við eru að gera svo fina hluti" (reyta enn meir af öryrkju-öldruðum og annara bótaþega) Bankarnir fullir af peningum. Stórþjófar með skítnóga peninga erlendis og eru að ná völdum yfir peningakerfi landsins. Og Jóhanna væri bara vælir og vælir.

 

Enda orðin gömul og þreitt og ætti faktíst löngu að vera horfin af þingi eins og allir hrun ráðherrarnir Það eru ágætis stjórnmál að gera ekki neitt láta bara reka á reiðanum. Skella svo bara skuldinni á Íhaldi.

Kært kvödd


mbl.is Forsetinn virði stefnu stjórnvalda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"pattstaða"

Það er alveg satt það er "pattstaða" í íslenskum stjórnmálum í dag. En hvort það þarf kosningar. Nei Birgir en þú ættir að beita þér fyrir að stórir þáttakendur í hruninu úr þínum flokki hyrfu af þingi.

 

Þetta ætti Samfylkingin líka að athuga. Bæði fv og nv ráðherrar hennar ættu líka að taka pokann sinn. Og þessar "íhaldsásakanir" forsætisráðherra eru farnar að fara í taugarnar á fólki. "Gott að hafa barn til blóra og kenna .eim alla klækina"

 

Ekkert þeim að kenna  þó svo að 2-3 aðaleikarnir úr "Dansinum í Hruna" hafi komið úr Samfó Og ræðu stíllinn hjá ráðherranum. Þetta er eins og leikkona að lesa útvarpssöguna. Kært kvödd


mbl.is Pattstaða í stjórnmálum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"út af þingi"

"Sópa eftirlegukindum hrunsins út af þingi"  Mikið að einhver sagði eithvað af viti þarna inni. En þessar eftirlegukindur eru því miður í nv stjórn og nokkrir í stjórnarandstöðu. Þessar rollur virðast bara ekki skilja að " þeirra tími sé kominn "

 

Mér finnst ekki fráleitt að halda að reiði fólksins sé að einhverju leiti beint að þessum "eftirlegukindum" Hvar í flokki þær standa. Fólkið vill ekkert pakk sem tók þátt í dansleiknum í Hruna þarna inni. Kært kvödd


mbl.is Vill nýjar kosningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"eins og eldri borgara"

Steingrímur! Býrð þú ekki í hér á landi eins og eldri borgarar á ÍSLANDI Hvernig í ósköpunum getur þú sæmilega eða jafnvel ágætlega vel gefin maðurinn haldið þessari helv.... vitleysu fram.

 

 

Farðu út á meðal eldri borgara og spurðu þá fyrst þú ert svona ílla upplýstur um kjör þeirra. Þarna hefur einhverju slegið niður og fengið flensuna aftur . Varstu ekki sjálfur að leggja fram tillögu um að þær greiðslur frá Tryggingastofnum sem áttu að hækka gerðu það ekki.

 

 

Hvaða  bata ertu að tala um ? Varstu kannske að tala um  bata bankanna og gleymdir forskeytinu Á ? Ekki er neinn bati sjáanlegu hjá fg hóp fólks allavega. Það veit ég af eigin skinni. Kært kvödd


mbl.is Bati er genginn í garð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"skifti litlu máli "

Ég held að það skifti litlu máli af hvoru kyninu liðið í þessum nefndum er. Þetta handónýta lið getur hvort sem er, ekki komið sér saman um neitt. Kært kvödd
mbl.is Furða sig á kynjaskiptingu í nefndum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"ekki sama Jón og séra Jón"

Þetta segir mér bara að það er ekki sama Jón og séra Jón í augum þessara svokölluðu verkalýðsforinga. Sem misstu jarðsambandið þegar stjórnarskifti urðu. Og hvernig ríkissjónvarpið handeraði málið er með algerum endemum.

 

 

Byrjuðu á "fyrirfram pöntuðu" drottningarviðtali við forsætisráðherra. Þar sem mér fannst hinn oft ágæti stjórnandi skí.. langt upp á bak á sér. Og svo fréttarflutningurinn af þingsetningunni. " Kannske tvö þúsund manns" Menn ættu að skoða myndir sem teknar voru af öðrum aðilum..

 

 

Og sjónvarpið sýndi lítið annað en eggjakast. Er VG að takast að koma landinu í gömlu stjórnarætti kommúnistanna. Þar sem fréttir voru matreiddar að "hætti hússins" í almenning. Kært kvödd


mbl.is Guðmundur: fáir að mótmæla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Jæja við höfum efni"

Jæja við höfum efni á að bjóða fleiri þjóðhöfðingum til landsins á næsta ári En ég spyr til hvers and....... Við erum á rassg..... og ekki koma þeir með neina peninga til okkar það er á hreinu.  En þá þurfum við. 

 

Við eigum frekar að bjóða "útrásarvíkingunum" sem stáu af okkur milljörðum til landsins  Í lögreglufylgd og kreista út úr þeim þó ekki væri nema hluta af því sem þeir stálu. Láta Iceland Express flytja þá frítt. Eru engin takmörk fyrir helv.... stórmennsku brjálæðinu í okkur. Mér er vel til Ólafs en þarna fer hann yfir strikið.


mbl.is Fleiri þjóðhöfðingjum boðið til Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"sem auminga Árni Þór fékk "

Þetta fékk mig til að hugsa um hvort eggið sem auminga Árni Þór fékk í hausinn hafi verið harðsoðið. Ég er algerlega á móti öllum skrílslátum hvort þau eru á Austurvelli eður ei. Og mæli þeim ekki bót. En ég man málflutning Árna hér áður. Út af því læðist að mér sú hugsun:" það kemur vel á vondan " Kært kvödd
mbl.is Gleymdu eggjum á eldavél
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (11.9.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband