"hleypur"

Manni datt í hug að einhver maður væri nú að hlaupa eitt langhlaupið enn .Setja eitt metið. Minnir á fyrirsögnina"Skreið til Nigeríu" En þá var átt við þurran þorsk sem var sendur út, Kært kvödd
mbl.is Hleypur úr austari katlinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"enn og aftur"

Enn og aftur og aftur og enn minna þyrlurnar á ágæti sitt. En öllum virðist sama. Það er verið að safna fyrir allslags góðum málum. Og það er vel. En hvað með meiri peninga til Þyrlusveitar LHGÍ.Hvað með að stofna til söfnunar henni til handa. 

 

Skyldi þurfa að einhver ráherra slasaði sig eða veiktist og ætti líf sitt undir þessari sveit til að þetta mál nái eyrum ráðherrana. Sem þá yrðu kannske að láta af einhverjum gæluverkefnum sínum. Kært kvödd


mbl.is Líðan góð eftir svifdrekaslys
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"rjúkandi rúst"

Já það er nefnilega það. Er ekki von að það rjúki úr þessari lönguvitleysu. Er ekki fjárhagurinn ein rjúkandi rúst. Kært kvödd
mbl.is Mikill reykur frá Hörpunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"einlyftu steinhúsi"

Í velhirtu einlyftur steinhúsi niður við höfn úti á landi fara fram einstakir fundir. Þar hittast menn sem sopið hafa marga fjöruna í lífsins ólgusjó. Og sem eru flestir komnir að ævikveldi. Þó fundarstjórinn sé í yngri kantinum og að inn slæðist menn sem þeir elstu gætu jafnvel verið afar, að hvað aldur varðar ef út í það er farið  Þar eru málin rædd og afgreidd á lýðræðislegan hátt.

S5030224 Komnir að ævikveldi 

Þegar menn eru ornir "hýrir" af Merrild 103 Þar er búið að afgreiða hrunið og menn jafnvel komnir að því næsta. Svona er framtíðinni gerð mikil skil. Kvótamálið afgreitt. Fjárhagsstaða heimilinna búin að fá sína afgreiðslu.

ii (1) Hýrir af 

Hér eru málin bara rædd 5 daga vikunnar en afköstin þriðjungi meir en í tvílyfta steinhúsinu við völlinn í austri þar syðra. Engin andsvör við andsvörum eða málþóf liðið. Hér er umræðum stjórnað af rökfestu. 

 

002 Bruggvélin 

Af hræðslu við að jafnréttisráð fari að skifta sér af hlutunum þá verður kyns þátttakenda ekki getið. En til huggunar fyrir feminista skal tekið fram að þar hefur engin kona tapað mannorði sínu í umræðunni. Hvað sem svo segja má um suma svokallaða saumaklúbba.

007 Stjórnar af rökfeslu 

Mestu reynsluboltarnir í hjónaböndum í þessu liði hafa sagt í mín eyru að þeir leysi allflest ágreiningsmál í sínu sambandi með orðunum:" JÁ ELSKAN". En þessir sömu menn geta svo staðið fastari en andsk..... á sínu (stundum bölvaðari vitleysu að mínu mati) í snörpum umræðum á fg stað. Þá er ekkert Já elskan hvað það varðar.

002 Drykkjarmálin 

Heldur málið kannske leyst með: "Andsk...... kjaft... getur verið í þér maður. Sumar konurnar ættu bara að heyra í þeim. Og  ég sem þekki kannske konur ekki mikið gæti þó vel trúðað að þær yrðu bara ánægðar með"SÍNA MENN" Þessa prúðu engla.

005 Hvaða vél ?

En ólíklegustu mál eru hér reyfuð og rædd. Ef einhverjum langar að vita hver ja þið viti, hverri þá fást engin svör. En ef menn langar vita hvaða vél er í hvaða bát þá fæst svar við því. Eða hvað þar var að fá "tvískift eða eða meir" á síðutogi þá fást svör við því

la gó Meir en tvískift

Ef skáld breita orðum annara skálda er það að mig minnir kallað "skáldaleyfi" En ég veit ekki hvað að er kallað ef eins óskáldlegur og ég breytir orðum mikilla skálda .En mig langar til að breyta ljóði eins af okkar bestu skálda Steins Steinars og hafa það svona. "Og mér er að sjálfsögu sama / hvert sálin að lokum fer / Í einlyftu steinhúsi við höfnina / má trúa hverju sem er/

Nokkrir þátttakendur

003 Hér hefur yfirkjaftaskurinn í horninu sagt eitthvað af viti( heldur ´ann) 

 

002 Og hefur talað af innlifun og heldur sjálfur af mikilli speki

 

004 En þessi er nú ekki alveg viss um það

001 Jæja loksins heldur hann kja... Og öðlingurinn við hliðina á honum er feginn

005 Þá er þessi ekki síður ánægður


"mikil mistök"

Þarna held ég að XD hafi gert mikil mistök. Ef þeir vilja "flekklausa" forustu.  Bjarni Ben er, hvernig sem á það er litið "flæktur" í fjármálabrask. Sama hvaða gleraugu notuð eru, Rökin á móti því eru bara lögfræðilegt sjónarspil. Og hörðustu XD menn setja bara sjónaukan fyrir blinda augað og láta sem ekkert sé. En spyrjum að leikslokum. Verður fólk búið að gleyma því í næstu kosningum. Það er frægt þetta gullfiskaminni í Íslendingum. Eða fær hann þá útreið sem neyðir hann frá formannssætinu. Ekki veit ég. Kært kvaddir sem o.sv, frv


mbl.is Bjarni kjörinn formaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"ekkert efni á"

Án nokkurs gríns sem ég hefði heldur ekkert efni á að vera með vegna hræðslu minnar við þessi dýr. Þá velti ég fyrir mér. Skyldi konan hafa verið rauðklædd?? Kært kvaddir o.sv.frv
mbl.is Nautgripur réðst á konu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"saxast á limi"

Ja nú fer nú að saxast á limi Björns bónda hvað þinglið XD varðar Þótt reynt væri að koma í veg fyrir það var samþykkt á landsfundinum að :"Þeir sem hafi þegið háa styrki og meiri fyrirgreiðslur en almenningi stóð til boða sýni ábyrgð með því að stíga til hliðar" KK


mbl.is Forystumenn íhugi stöðu sína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"hælir sér af"

SJS hælir sér af að ""Nú væru hins vegar breyttir tíma og nú réði ríkið yfir 70 til 80% af fjármálakerfinu með eign á bönkum, sparisjóðum, Íbúðalánasjóði, Byggðastofnun og fleiri stofnunum.  Nú snérist baráttan hins vegar um framvinduna og hvort halda mætti í almannaeigu þessum eigum og að félagslegar áherslur yrðu áfram ráðandi í fjármálakerfin""

 

 

Takið eftir þessu "fleiri stofnunum". Þeir stjórna bönkum sem aldrei hafa gengið eins hart að skuldurum sínum. Þeir segjast stjórna þeim stofnunum sem aldrei hefur skert kjör þeirra hópa sem minna mega sín, eins mikið. Og aftur á að láta ESB-málið  í dóm kjósenda svo þeir geti svikið það aftur. þ.e.a.s VG.  Það er alveg á hreinu að SJS myndi sitja áfram í þeirri stjórn ef svo vildi til að ESB samningar yrðu samykktir. Þá ennþá ánægðari með sjálfan sig og störf sín. KK


mbl.is Koma þessum draug frá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"óspilltum"

Ég held að ef XD kysi Pétur sem formann yrði það mikil gæfa fyrir þá. Ég held að hann sé einn af fáum óspilltum þingmönnum flokksins. Þá lyki kannske líka þessum fjan.... lögfræðingahroka sem mér hefur fundist svífa yfir vötnunum hjá þeim.

 

T.d. í styrkjamálinu. Reynt að sneiða hjá aðalatriðunum með einhverjum lögfræðibrellum.Og heyra vælið í sumum XD.  Að VG og Samfó séu líka að halda fundi til að draga athyglina frá landsfundi XD.  Nú verður Mogginn að halda vel á spöðunum í fréttaflutningi

Hvar er nú baráttuhugurinn þegar er verið að ná í svona"tittl....skít til áróðurs? Skyldu þeir hafa búist við fólki frá þeim flokki inn í formannskjörið ?. Og hvað um FIFA ? Hversvegna í andsk..... frestuðu þeir ekki "2010 World Cup" þegar landsfundur XD stóð fyrir dyrum? KK 


mbl.is Skorast ekki undan ábyrgð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"gula spjald"

Mér finnst forusta VG ætti að taka þetta gula spjald Lilju Móses alvarlega. KK


mbl.is Draumsýn að flokkurinn lifi af
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"hvað tókst ?"

Hvar tókst? Að skerða kjör almennings svo mikið að aldrei hefur stærri hópur á landinu lifað undir"sultarmörkum" Það er von að S J S hæli sér. Hann hefur slegið öll met hvað þetta varðar. Og ekkert lát virðist vera á því Kært kvaddir sem það o.sv. frv
mbl.is „Já það tókst“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"í knöppu máli"

Það segir í þessari frétt að varaformaðurinn hafi farið "í  knöppu máli yfir stöðu flokksins í ríkisstjórn" En að mínu mati er staða flokksins í þessari "tæru vinstristjórn" afar knöpp svo ekki sé meira sagt, Kært kvaddir o.sv.frv
mbl.is Flokksráðsfundur VG settur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"setulið"

Það mætti minnka þetta "setulið" í húsinu við völlin um þriðjung. Og allir að undanteknum 2 eða 3 sem þar sitja nú ættu bara sitja heima.Kært kvaddir o.sv.frv
mbl.is Segir koma til greina að skipta kjördæmum upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"mikið var"

Það var mikið að forustumenn XD skildu að samstarf við aðra er annað en drottna yfir öðrum. Það hafa forustumenn flokksins undanfarið ekki skilið En þetta skildi Ólafur Thors manna best. Kært kvaddir o.sv.frv
mbl.is Skuldavandi heimilanna best leystur með samstarfi flokka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"var gert"

Mikið var að eitthvað var gert af viti  Eða hvað? Kært kvaddir o.sv fr
mbl.is Sjálfstæðismenn sektaðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"á vitlausum enda ?"

Er ekki hér verið að byrja á vitlausum enda ?.Árinni kennir íllur ræðari stendur einhverstaðar. Eða er XD saklaus af hruninu?  Og eru allir þingmenn með hreinan skjöld gagnvart kjósendum þessa lands? Á ekkert að hreifa við styrkjahneykslinu? Kært kvaddir sem það eiga skilið
mbl.is Saga afdrifaríkra mistaka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"engin ný sannindi"

þetta eru engin ný sannindi. Lítum okkur nær. Þræta ekki allir þessir andsk.... sem komu okkur á hausinn sök Kært kvaddir sem það eiga skilið
mbl.is Eiturlyfjabarón neitar sök
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"frelsi"

Jú víst gáfu þeir mönnum frelsi til að ná höndum yfir bankana. En taka svo enga ábyrgð á gerðum hlutum. Og svo bera þeir umhyggju fyrir þeim sem gáfu þeim stórgjafir. Með því að gefa þá einhverra hluta vegna ekki upp. Körorð XD í hnotskurn Svo í kaldhæðni örlaganna verður lokahófið haldir í Gullhömrum.Kært kvaddir sem það eiga skilið
mbl.is Dagskráin liggur fyrir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aftenging

Nú ætla ég að aftengja mig gömu togurunum. Þetta byrjaði á að ég ætlaði að blogga um þetta hér:

jaxlar 001 Ég ætlaði líka að vekja athyli á togarasíðu Hafliða Óskarssonar á Húsavík en slóðin er hér:

http://www.togarar.is/  

En Hafliði er alger alfræðiorðabók um skip allavega um nýsköpunartogarana. En ég ætlaði aðeins að minnast á þá og togarana sem þeir leystu af hólmi. Nú sem sagt þegar músin tók jóðsótt fæddist fíll. Og ég bið Hafliða vin minn afsökunar ef honum  finnst ég hafa seilst inn á hans svið. Það er ekki meiningin.

 

Þorvaldur magnússon Þorvaldur Magnússon í fullum skrúða  Einn af þessum gömlu hetjum 

Hafliði á mikinn heiður skilið fyrir síðuna. En ég get hreinlega ekki slitið mig frá þessu nema að minnast aðeins á nokkur skip úr hópi þessara gömlu undanfara "Nýsköpunnartogarana" Og þau þungu högg sem þau urðu fyrir. Og nokkura frægra manna sem þessum skipum stýrðu. Ímyndið ykkur lúkarnir í gömlu togaranna tóku uppí 24 menn.

 dhoon Skemd brú eftir brotsjó.

Ekki var nú miklu vatni til að dreifa enda voru skipin kolakyntir gufutogarar. Í 2 eða 3  nýsköpunartogaranna voru 16 manna lúkar stærsta vistarveran, Og menn töluðu um hallarsalarkynni. Og vatnssalerni varð að veruleika um borð í togara  Gamli menn töluðu um að þeir (nýsköpunartogararnir) gætu mætt hvaða veðri sem væri. Og eins og í Halaveðrinu komust þeir að öðru þegar frá leið. Það liðu 12 ár frá því að sá 1sti kom til landsins þar til sá 1sti fórst í rúmsjó

Ég hef sagt frá nokkrum togurum sem týndust í WW2

Top.BMP Gullfoss fórst með allri áhöfn 19 mönnum. Skipstjóri var Finnbogi Magnússon, faðir Finnboga heitins fv skipstjóra hjá Eimskip

 

reykjaborg Reykjaborg fórst og með henni 13 menn en 2 björguðust. Skipstjóri var Ásmundur Sigurðsson bróðir hins ástsæla skólastjóra Stýrimannaskólans í Reykjavík Jónasar Sigurðssonar

Sviði Sviði fórst á stríðsárunum með allri áhöfn 25 mönnum. Skipstjóri var Guðjón Guðmundsson faðir Eyjólfs fv skipstjóra hjá Jöklum og Eimskip.Og ef ég treysti á götótt minni þá var Þorbergur Friðriksson 1sti stm faðir Guðrúnar Katrínar heitinnar fv forsetafrúar.

 

jón ólafsson Jón Ólafsson fórst með allri áhöfn 13 mönnum Skipstjóri Sigfús Ingvar Kolbeinsson

Maður getur ekki skilið við gömlu gufutogarana án þess að minnast á nokkra sem þar gerðu garðinn frægan T.d Tryggva Ófeigsson og Bjarna Ingimars á Júpiter

júpiter Júpiter

Guðmundur Jónsson á Skallagrími

Skallagrímur Skallagrímur

Sigurjón Einarsson á Garðari

 

garðar 003 Garðar

Guðmundur Markússon á Tryggva gamla

 tryggvi gamli Tryggvi gamli

Vilhjálmur Árnason á Venusi

venus Venus

Sjálfsagt gleymi ég einhverjum sem ætti að vera hér. En þetta eru þeir sem ég minnist svona í fljótu bragði. Kært kvaddir sem það eiga skilið


Meir af "Halaveðri"

Við skulum halda aðeins áfram með halaveðrið:Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur hefur sýnt mér þá vinsemd að senda mér veðurkort frá þessum tíma. Ég gríp hér niður í "rafbréf" Einars: "Tölurnar með þrýstilínunum eru ekki mb eða hPa.  Innsti hringurinn samsvarar 935 hPa þrýstingi, svo kortið sýnir strax án  þess að nokkuð annað séð skoðað að þetta vður hefur svo sannarlega verið alvöru."

comphour 212 30 211 225 168 14 50 28

Þetta hefur verið eins og Einar bendir réttilega á "alvöruveður" Mikil leit var gerð að skipunum 2 og sést hér leitarsvæðið

Top.BMP Eins og sjá má ef myndin skannast vel hefur það ekki verið nein smávegalengd  sem Egill Skallagrímsson hefur rekið af Halanum að krossinum sem gerður er þarna ca V af Látrabjargi. Skipin sem lentu í þessu voru misjöfn .Að gæðum og aldri. Annaðhvort byggð í Þýskalandi eða Englandi. Þýsku skipin þóttu betri sjóskip allavega þegar bræla var komin að ráði.

 

Skallagrímur 1924 Áhöfnin á Agli Skallagrímssyni 1924, Sennilega margir þarna sem lentu í Halaveðrinu 

 

En hálf leiðinleg í þæfingi en svo sjóborgir er komið var slæmt veður. Ensku skipin sem um ræðir voru annaðhvort smíðaðir í Beverley eða Selby. Margir gamlir sjómenn sögðu að "Selbyarnir" hefðu verið betri en "Beverleyarnir" Og ef við athugum skipin í Halaveðrinu þá er listinn svona: Þýskbyggðir voru: Ása (1918 í Kopman í Dordrecht) slapp skipa best.Gulltoppur (1920 Unterweser í Lehe) lenti í miklum hremmingum en en dugnaður og kjarkur manna bjargaði skipinu, Gylfi (1920 Seebeck í Geestermunde) Slapp nokkuð vel.

fd30norbreck Enskur togari frá þessum tima Sennilega Beverleyskip þvi Selbytogararnir voru með vírnet á brúarvængjum

 

Selbyar: Tryggvi gamli (1920) Slapp nokkuð vel. Earl Haig (1919) lenti í miklum erfiðleikum en komsr til hafnar með mölbrotna brú m.m. Egill Skallagrímsson ( 1916) Lenti í miklum erfiðleikum en með harðfylgni komst skipið til hafnar. Field Marshall Robertson  fórst(1919) með allri áhöfn 35 mönnum (6 enskir) Hilmir (1913) slapp með brotna brú og bilað stýri. Ari (1920) slapp nokkuð vel með bilað stýri. Þórólfur (1920) slapp við stór áföll. Draupnir (1907) slapp vel.

 

ísing Ísaður togari 

Leifur heppni (1920) fórst með allri áhöfn 33 mönnum Surprise (1920) slapp nokkuð vel Beverleyarnir voru: Njörður (1920) Fékk á sig hvert brotið eftir annað. En með óbilandi dugnaði og kjarki tókst skipverjum að koma skipinu með glugga og hurðarlausa brú til hafnar  Cesersio(1915) komst við illan leik til hafnar .Jón Forseti (var smíðaður hjá  Scott Bowling í Bowling Englandi 1907)slapp vel  Læt þetta duga nú.Ég vil þakka Einari Sveinbjörnssyni fyrir veðurkortið  Kveð þá kært sem það eiga skilið


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 535992

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband