"Ja nú reynir illilega á heiðarleika"

Ja nú reynir illilega á heiðarleika frambjóðenda stjórnarflokkan a. Sem náðu völdum í síðustu kosningum. Ef t.d loforð um breitingu á greiðslum til lífeyrisþega og öryrkja verða svikin sem og auknu fé til aðalsjúkrahúss landsins, þá getur þetta fólk sem situr á hinu svokallaða alþingi algerlega gleymt einhverju sem kallað er virðing fyrir já því sem réttilega ætti að vera kallað:"Hið háa Alþingi"

 

 

Þá heldur þetta bara áfram að vera einhver náhirð lygara sem engin tekur mark á Sem svo sannarlega stór hluti undanfara þeirra voru. Eldriborgarar og öryrkja og þeir sem minna mega sín eru að verða fullvissir um að stærsti hlutinn af kosningaloforðunum verði svikinn. Og andsk..... mætti þá lækka rostan  í þeim þingmönnum sem hæst hafa látið um að hinar og þessar upphæðir sem renna ætti til fg sjúkrahúss. Einhvern vegin hef ég ekki trú á að maður sem stjórnað hefur því (að margra mati af snilld) í geng um geigvænlegan niðurskurð fari að yfirgefa hið sökkvandi skip ef björgunin væri í sjónmámi. Sé það rétt að engin björgun sé í sjónmáli þá má segja "svei sé þessum andsk..... lygurum"  Verið samt öll kært kvödd


mbl.is Óttast enn meiri niðurskurð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Nú er mælirinn eiginlega"

Nú er mælirinn eiginlega að verða fullur. Ekki það að maður byggist við miklu frá hægri vængnum fyrst sá vinstri brást eins illilega og raun varð á.Enn og aftur og aftur og enn á að ráðast á garðinn þar sem hann lægstur. Nú skorar ráðherra fjármála.(við skulum ekki nefna af hvaða ætt hann er. Því sumt sem maður skrifar er ritskoðað) .á hina staurblönku alþýðu þessa lands að biðja aðeins um vatn í grautinn og sleppa saltinu.

 

Hvernig á maður með greind sem er svona um meðallag kannske rétt undir, eins og ég að skilja hlutina nú til dags Á sama tíma og fg ráðherra biður okkur hérna niður við grasið að hemja okkur í heimtingum þá kvartar einn af þeim sem meira mega sín yfir því að lækka eigi skatta á honum.Meðan fólk hreinlega láti lífið vegna fjárskorts í aðal sjúkrahúss landsins. Forstjóri einnar stærstu útgerðarsamsteypu landsins hafði áhyggur af svefni barna sinna vegna ofurgjalds sem leggja átti á útgerðina. Nú sofa börnin sennilega yfir sig á hverjum morgni, því gjaldið var lækkað svo samsteypan borgaði einhverja milljarða í arð.

 

 

Ég skil vel að menn "fjárfesti" í fyrirtæki til að ávaxsta peninga sína. Og arður sé greiddur þegar vel gengur. En að ekki skuli mega skerða þann arð eitthvað aðeins meira þegar að  fjármagna þarf mannslíf, þ.e.a.s. þegar fjármagn vantar nauðsynlega til að halda opnum lífsnauðsynlegum stofnunum í heilbrigðisgeiranum það tekur yfir allan þjófabálk. Ég var sjómaður í 53 ár í flest þessara ára borgaði ég mína skatta og skyldur.Undanskylin 15 ár sem ég (vegna lítils framboðs af vinnu í þeim geira sem ég starfaði í) starfaði erlendis. Fjárfesti í þjóðfélaginu gæti maður jafnvel sagt. Það eina sem þessir svokallaðir ráherrar virtust þora að gera í hinu mikla fjármála hruni var að marg skera niður þann arð sem mér finnst ég eiga inni eftir mínar slíkar fjárfestingar.

 

 

Nokkrum valinkunnum mönnum leyfðist að setja fjármálakerfið það kyrfilega á hausinn að marga áratugi tekur að rétta það við. Hvað var gert við þá. Ekkert enn. Og verðu öruglega ekkert gert. Þessir valinkunnu menn sem sitja nú glottandi út í löndum með alla vasa fulla fjár hafa færustu lögfræðinga til að velta málum þeirra fram og til baka í kerfinu þar til allt verður fyrnt. Og að svo verði að lækka skatta á þeim  þeir sem jafnvel hafa margar milljónir á mánuði (stundum á viku) fyrir setu í slitastjórnum er með hreinum ólíkindum. Nei það skulu bara vera við "sauðsvartur"almúginn sem skal borga brúsann. Og hinn ættstóri ónefndi ráðherra (sem hefur nóg af salti) biður þann svarta að vera nú ekki að heimta meira salt. Svo að allt fari nú ekki fjand... til aftur og enn.

 

 

Vilhjálmur frá Skáholti kvað einu sinni

Stæli ég glóandi gulli
úr greipum hvers einasta manns
þá væri ég örn minnar ættar
og orka míns föðurlands.

Þannig er Ísland í dag.Það var þannig í gær og verður þannig á morgun og hinn og hinn Maður gerir síg að fífli á fjögurra ára fresti og stundum er styttra á milli þessara fíflaláta sem kallast kosningar. Maður fíflast til að hlusta á fagurgalan og trúir og kýs. Niðiurstaða ávallt sú sama.Ef almúinn á fyrir saltinu í grautinn þá fer eittvað sem heitir verðbólga af stað.Og skerða þarf kjör þeirra Ég taldi mig nú eins og ég hef talið mig hafa gert síðan 1959 hafa kosið rétt.En ég sé nú að það var tóm vitleysa. Eins og í flest skiftin áður þó með örfáum undantekningum. Þó kannske munnurinn á fleiri verkalýðsleiðtogum en þessum eina þarna uppi á Skaga opnist núna vegna hægri slagsíðu trúi ég ekki á þá. Er orði uppgefinn á nöldrinu og kveð ykkur kært

     
mbl.is Hafa verið að glöggva sig á stöðunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Sept. 2013
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 103
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband