Lottóvinningurinn

Hvernig getur staðið á því að sá sem seldi segir þetta:"Þegar þú kaupir notað skip þá þarftu að eyða í viðgerðir og ég vissi að Íslendingarnir þyrftu að eyða miklum fjármunum í þær," segir Kevin O'Brien, fyrrum eigandi Oilean Arann"Af hverju var ekki hlustað á hann þegar hann talar um mikla fjármuni.Var ráðgöfum íslenskra stjórnvalda skítt sama hvað myndi kosta að gera við hana.Hvernig getur verið að eins vanir menn sem ráðgafar ríkisins í þessu máli eru taldir vera hlusta ekki á og/eða gera sér ekki grein fyrir hverskonar"ryðkláf"þeir voru að láta kaupa fyrir almannafé.

 

Nú vilja menn vita í gegn um hvaða skipasala voru kaupin gerð?Og hver fékk sölulaunin fyrir söluna?Og hvað voru þau há?.Það er skylda nv samgönguráðherra að upplýsa það mál,Hann getur ekki skotist undan þeirri kröfu eftir aðkomu hans að málinu sem óbreitt þingmanns.Eru sölulaunin innifalin inni í þessu kaupverði sem virðist rokka frá 104-108 milj.Ef þetta er talinn hár"lottóvinningur"í Írlandi þá gef ég lítið fyrir lægri vinningana


mbl.is Ísland vann í lottóinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Póli-tík

 

 

    null              

 

"Ein gagnlegasti lærdómur sem lífið hefur kennt mér er að þöngulhausarnir hafa oft rétt fyrir sér".Þetta á ekki ómerkari maður en Sir Winston Churchill að hafa sagt einhverju sinni.Síðustu daga/vikur hafa framámenn í þjóðfélaginu sem hlynntir eru Bakkafjöruhöfn farið"hamförum"í áróðri sínum fyrir þessum framkvæmdum.M.a aðstoðarmaður ráðherra samgangna og stjóri bæjarmála í Eyjum.

                           

Báðir þessara manna hafa aðeins nefnd einn mann til sögunnar sem andstæðing þessara framkvæmda þ.e.a.s Grétar Mar.Stjóri bæjarmála í Eyjum endar grein sem hann skrifar í "Fréttir"(bæjarmálablað í Eyjum) með þessum orðum."Dómsdagsspár sjálfskipaðra sérfræðinga eru ekki til þess fallnar að verða til stoðar,frekar en innantómir fagurgalar.Vöndum okkur því ábyrgðin er mikil:"Í sama blaði skrifar einn sá maður sem ég myndi telja hafa meira vit á Bakkafjörumálinu en fyrrgreindir meðmælendur málsins til samans og ég veit að Grétar fyrirgefur mér þó að ég fullyrði að fyrrgreindur maður hafi meira vit á staðháttum þarna en hann.

 

                                        

Þessi maður sem hefur ekki setið á sínum skoðunum á þessu máli segir m.a. í þessari grein sinni""Verði farið af stað með litla 500 metra sinnum 10 metra háa sjávarnargarða sem hannaðir eru samkvæmt skýrslu Siglingarstofnunar,er betur heima setið en af stað farið.Þar sem litla ferjuhöfnin verður sífellt full af sandi eða ófær vegna veðurs og brims þar sem hún er staðsett inni í brimgarðinum og nær ekki út fyrir rifið.Ætla starfsmenn og hönnuðir Siglingarstofnunar að vera ábyrgir fyrir því að frátafirnar á ferjusiglingum Herjólfs í Bakkafjöru,í litla og ófullkomna höfn,verði ekki meiri en nú eru á siglingu Herjólfs til Þorlákshafnar""Svo mörg voru orð þessa þaulvana skipstjórnarmanns sem stundað hefur sjó úr Eyjum um árabil.

 

Ég hef ekki skilið þennan"Dómdagsspámannsstimpill"sem Grétar Mar er búinn að fá á sig frá títt fyrrnefndum 2 herramönnum.En það getur hreinlega komið honum vel.Það má taka það svo að hann sé eini maðurinn sem kannske hægt sé að taka mark á.Hinir séu ekki svara verðir.Mér fannt það dálítið broslegt að stjórn bæjarmála í Eyjum hélt blaðamannafund um borð í einu af hinum nýju og glæsilegu fiskiskipum sem nýlega eru komin þangað.Hvers eigandi lét þau orð falla um tilvonandi framkvæmdir í samgöngumálum,að þau væru það sem danir kalla"humbug"Hann tók samt ekki svona til orða en ég man ekki lengur orðið sem hann notaði en ég man að meiningin var á þessa vegu.Ég hef haft mínar áhyggur af þessari tilvonandi höfn sem ég byggi á minni reynslu frá höfnum þar sem mikið brim er útifyrir.

 

                              

Og ég veit að ég deili þeim áhyggum með mér,miklu reyndari skipstjórnarmönnum um að í miklu brimi gæti maður rekið"afturendann" svo niður að stýri og skrúfur löskuðust og skipið yrði stjórnlaust.Við skulum hafa það hugfast að tilvonandi skipstjóri verður að koma inn í höfn sem hvorki hann né aðrir  þekkir og með skip sem hann er ekkert farinn að þekkja á.Ég á góðan kunninga í Siglingastofnun sem er hlynntur málinu og ég hef hlustað á hans rök og get fallist á nokkuð af þeim.Einnig hlustaði ég á aðalhönnuð hafnarinnar í sjónvarpinu í gær,að mig minnir og mér fannst hann komast vel frá því viðtali.Og ég veit að hann hefur beðið samstarfsmenn sína að skrifa niður öll rök fyrir framkvæmdinni hvort þau séu með eða á móti sem falla er menn skoða líkanið.Þessi maður var ekki með neina sleggudóma um menn sem ekki eru sammála honum og kalla þá"Dómsdagsspámenn"

                          

Það er oft svo að þegar menn vantar rök þá grípa þeir til skítkasts.Ég skora á menn að ræða þessi mál án nokkura fordóma eða hnútukasta.Fá álit sem flestra skipstjórnarmanna og þá á ég við skipstjórnarmenn hvaðanæfa að.Hvað segja t.d.skipstjórar sem siglt hafa mikið á ströndinni hérlendis.Hvað segja t.d. ferjuskipstjórar frá Hanstholm og fleiri höfnum sem aðstæður gætu gætu verið líkar þessari fyrirhugaðri höfn.Hvað segja t.d.núverandi  og fv skipstjórar á"Herjólfi"Við skulum láta stóru orðin og flokkadrættina(og kannske sumarhúsamálin)víkja fyrir málefnalegri umræðu.

 

                 

Myndirnar eru allar teknar án leyfis af "Shipspotting.com"nema Bakkafjöruuppdrættirnir

Bertrand Russel á að hafa sagt eitt sinn"Það versta við veröldina er að þeir heimsku eru ávallt vissir í sinni sök en þeir vitru eru fullir efasemda""Kannske full djúpt í árinni tekið og þó.Ég vil enda þessar vagngaveltur mínar með orðum Bæjarstjóra í Eyjum er hann segir:""Vöndum okkur því ábyrgðin er mikil""Undir þau orð tek ég.Kært kvödd


Ferðasaga 4

Carrabean            

Ég skildi við ykkur í Galvestone,eftir mikið"skuespil"þar.Næsta höfn var Puerto Limos i Costa Rica.Á leiðinni kom skeyti frá útgerðinni um næstu lestun en hún var "Full//bekvem last af Greenheart lumber.Georgtown/Glasgow"Einnig kom skeyti þar sem okkur var hælt í hástert yfir góða skipulagningu á þeirm farmi sem við vorum að klára að losa,Og ég veit að skipið fékk fleiri svona túra eftir að ég hætti.Og er faktíst í "timecharter"hjá sömu aðilum.

                      

Kvöld í Carrabean                                             Frá Costa Rica      Myndir teknar í óleyfi af "Netinu"

Við komu til Puerto Limos  að kveldi 2nnars jóladags og vorum aðeins 2 tíma í höfn.Við fengum leiðindaveður til Georgstown og komum þangað 5 jan 2004.Greenheart er trjátegund sem (að ég held)aðeins vex í Guyana og í Belize.Þetta er mjög harður viður og er svo þungur í sér að hann sekkur.Greenheart er t.d.notað í undirstöður járnbrautarteina og í bryggjur.Hann mun vera á válista S.Þ um tré í útrýmingarhættu.Það er mikið hægt að skrifa um Georgtown.Og ekki á færi svona staula eins og ég er í skrifum.

                    Brú yfir Delemara River 

Þinghúsið í Georgtown                 Fiskimaður  á Demerara River         Brú yfir Demerara River

Myndir af netinu

Georgtown liggur við Demerara River.1966 fékk landið sjálfstæði.Fyrst voru sósjalískar stjórnir við völd sem hafa kannske ekki tekið málin nógu föstum tökum.Og ef Skotinn (eigandi farmsinns)vinur minn er traust heimild náðu nokkrir"gæðingar"tökin á öllu sem máli skifti Auðsjáanlega hefur verið gróska í öllu þarna það bera hálfhrunin mannvirki á öllum sviðum merki um.Hver á aðalsökina ætla ég mér ekki að dæma um.Eigandi,farmsins fyrrnefndur Skoti var staddur þarna.Bara til að fá farminn keyptan þurfti hann að setja peninga inn á bankareikninga í Sviss einskonar mútur.Síðan þurfti hann að semja um verðið og borga farminn áður en afhending ætti sér stað.

 

   

Bryggjumyndir frá Georgtown.Mínar myndir    

Oft þyrfti hann að bíða eftir afhendingu.Þarna fer maður ekki í land öðruvísi en með vopnuðum verði.Glæpir eru mjög algengir þarna.Almenningur sýpur dauðan úr skel meðan auðmennirnir velta sér uppúr peningum.Mig minnir að verkamenn vinni sér inn 5 dali á dag.En verðlag er í lægra lagi og vegna þess fór ég einn daginn aðeins í land til að kaupa mér T- shirts og stuttbuxur sem lítil not hafa orðið af vegna þess sem síðar skeði í heilsufarsmálum.Ég hafði komið nokkrum sinnum til Georgtown(sigldi þangað t.d nokkrar ferðir með "Rís")en aldrei haft tíma til að fara í land.

 

 Gamlir og yfirgefnir dallar           

Og svo bauð Skotinn okkur Andrési í kvöldverð með farmseljendunum eitt kvöldið.Þeir komu í stórum Mesedes bílum akfeitir með gullhringi á flestum fingrum og gullsnúrur um hálsinn.Illskiljanlegir hvað ensku snerti..Svo komu 2 af þeim um borð meðan á lestun stóð og ég átti mátt með mig þegar verið var að hjálpa þessum"drekum"um borð.En þarna virtist allt vera í niðurníðslu sama hvert litið var.Hrunin hafnarmannvirki  eru minnismerki um blómlegt líf við höfnina

    

Sennilega 2 gamlir"danir"Lady Zai til vinstri Marline í miðju og svo gamall "landi" Albert 1 ex Eldvík en þessa mynd tók ég Í Georgtown í einni af mínum fyrri ferðum þar.

 Ömurlegt satt að segja.Einhversstaðar stendur að"Það eru ekki minnismerkin sem segja okkur söguna.Það eru rústirnar""Það má kannske segja um Georgetown.Hvarvetna blasa við manni rústir verksmiðja og leifar af blómlegum iðnaði.

               

Mörg "stykkin"vógu um og yfir 30 tonn og þau urðum við að taka með báðum bómmunum.

Þetta var dálítið erfið lestun.Komið var með tréð á prömmum.sem stundum þurfti að taka frá og koma með annan í staðin með passandi tré.Málbandið mikið notað.Öll trén sem eru sneidd eru höggvin til með öxum.

                     

Við bryggju í Georgtown                                     í nógu að snúast

Skotinn vildi meina að eftir að"innfæddir"tóku við völdum þá hafi þeir hirt allan ágóða af iðnaði og námugreftri en ekkert gert til að halda hlutunum við.

 

   Lega Gyuana        Þennan fengum við á leiðinni þangað en við höfðum yfirleitt færi úti á siglingum og fengum oft á krókinn T,d sverðfisk eins og þennan,gullmarkril og túnfisk.Allt án kvóta

Lestunin gekk vel og allir voru ánægðir.Hún tók 5 daga og fórum við frá Georgtown þ 9 jan 2004.

 

Við komum svo til Glasgow þ 25 jan eftir viðburðarlitla ferð.Þá þegar höfðum við fengið að vita að skipið átti að lesta aftur til Falklandseyja.Í Glasgow fórum við Andreas skipstjóri í frí.Hann eina ferð eins og ég ætlaði líka en ég var sleginn út af laginu um tíma af þeim leiða sjúkdómi Krabbameini.Þetta varð svo síðasta sjóferð mín til Carrabean Sea.

                      

Þessar myndir eru fengnar að"láni"af Netinu en þær eru fra Greenock(Rétt hjá Glasgow) þar sem við losuðum

En Andreas er enn skipstjóri á Marianne Danica og siglir nú í "timecharter"hjá sömu aðilum sem áttu IMO farminn forðum.Hann átti líka eftir að fara nokkrar ferðir til Falklandseyja.Lesta svo í Brasilíu til Carrabean og svo lesta Greenheart lumber í Georgtown.

                                     

Frá Greenock  og Glasgow sjálfri Myndirnar fengnar að láni af Netinu

En skipstjórinn sem leysti hann af í Glasgow forðum heitir Niels Nielsson og er það í síðasta skifti sem ég hef séð hann,en hann var að losna úr "gíslingu"sjóræninga í gær.En hann er nú skipstjóri á"Daniva White"Eftir að hafa náð mér nokkurn veginn af"krabbanum"og byrjað að sigla aftur og vonast til að komast á mitt góða skip"Marianne Danica"varð ég að látra í minni pokann þar sem"pumpan"bilaði.Svo núna sit ég og læt hugan reika til baka.Reyni að koma orðum að þessu reiki ef einhver hefði smá ánægju af því.Á milli þess sem ég reyni að"rífa"kjaft yfir ýmsu sem fellur ekki að þeim skoðunum sem ég leyfi mér að hafa og fáir hafa áhuga á

Kært kvödd


Lögregla m.m.

 

                             

Ég hef áður hælt Geir Jóni Þórissyni.Mér finnst hann komast vel frá sínu starfi.Mér finnst hann heill og samkvæmur sjálfum sér.Og hann er þeim eiginleika gæddur sem mér finnst vanta svo mikið hjá flestum stjórnendum hjá "Ríkisbatteríinu" að geta viðurkennt það,ef mistök verða hjá hjá viðkomandi stofnun.

     

Til hægri Geir Jón í glímu við Gísla Óskars á Þjóðhátíð 1975.Myndin tekin í leyfisleysi af heimssíðunni WWW:heimaslóð.is

Ég man eftir einum af ónefndum forvera hans í þessu starfi sem aldrei gat viðurkennt að neitt væri aðfinnsluvert. hjá sínum mönnum.Þótt að margt benti þess gagnstæða.Geir Jón virkar þannig á mig allavega að hann geti frekar verið mannasættir heldur en hitt..Mér eru minnistæðir lögreglumenn í bæ úti á landi þegar ég var ungur og  Bakkus var mitt"idol" Það voru 4 almennir löggæslumenn í þessum bæ.2 voru ornir vel fullornir en hinir 2 töluvert yngri.Þeim var yfirleitt skipt þannig niður á vaktir að þeir eldri voru saman á vakt á móti þeim yngri.

                         

Þessar myndir hafa ekkert með efnið að gera annað en að þær eru teknar af heimasíðu lögreglunar og náttúrlega án leyfis.

Það voru oft böll um helgar og í landlegum í öðru eða báðum samkomuhúsum þessa bæjar,Það brást aldrei að allt var snarvitlaust í slagsmálum og látum þegar þeir yngri voru á vakt en það hreyfði sig varla nokkur maður er hinir áttu vaktina.Þeir yngri óðu yfirleitt með kylfurnar á lofti að mönnum sem voru kannske að gera sig klára í slagsmál en hinir komu að svipuðum atvikum með sínum rólegheitum og oftast tókst þeim að stilla til friðar áður en eitthvað varð úr orðahnippingum.Ég upplifði það sjálfur er þjónustuferill minn hjá Bakkusi stóð yfir hvernig lögregluþjónar gátu sett allt á annan endan með sinni framkomu..Ég einhvernvegin upplifi Geir Jón þannig að hann sé með það á hreinu hvernig á þessum málum eigi að taka.

                                          

 En mikið vorkenni ég æðsta yfirmanni hans ráðherra dómsmála.Sem aldrei hefur gert misstök og er í mínum huga sá sjálfumglaðasti maður sem ég þekki til.Ekki það að ég þekki hann nema af því sem frá honum kemur í ræðu eða riti..Enda geri ég ekki ráð fyrir að honum þætti ég samsvara hans stöðu í þjóðfélaginu""Og úr því þeir krossfestu þig Kristur / hvað gera þeir við ræfil eins og mig""Nú varð hinum þekkta grínteiknara Sigmund það á að særa tilfinningar hins tigna mans.Ég má bara ekki mæla. Hvernig dettur Sigmund í hug að gera svona ósvinnu.Ég ætla bara að vona að um þetta sé einhvernig veginn  hægt að kenna háum aldri hans um.Ég ætla líka bara að vona að Sigmund sjái að sér og teikni strax mynd af háttvirtum ráðherra þar sem "Geislabaugurinn"sjáist vel.

                       

Svo að öðru máli en skyldu upphafinu á greinini.Mér finnst Vilhjálmur "Borgó"komast nokkuð vel frá sínum málum,En þó er ég ekki sammála honum og fleirum sem vilja"Ríkið"burt úr Austurstræti.Og í því máli finnst mér satt að segja hann ekki vera samkvæmur sjálfum sér.Í Njálsgötu málinu(Dvalarstað fyrir útigangsmenn)hafði fólkið aðallega áhyggur af barnaleikvelli þar í grennd."Villi"afgreiddi það mál með að segja að vel yrði fylgst með þarna.Af hverjum? spyr ég.Og ég held að svarið sé:"af lögreglunni"Getur þá lögreglan ekki líka haft auga með að útigangsmennirnir séu ekki að ónáða fólk hvort það eru"túristar"eða bara venjulegt fólk sem ekki á í vandræðum með drykkju sína og þurfa að koma í"Ríkið"Nú er málið það að ég er mjög hrifinn af framtaki "Borgarinnar"í húsnæðismálum útigangsmanna.

                    

En ég er ekki viss um að Njálsgatan sé kannske alveg sá staður sem hentar slíku húsnæði.Ég á gott með að setja mig í spor "útigangsmanns".Var einn af þeim oft svona milli skipa o.sv.fr þegar samvinna okkar Bakkusar var sem mest.Ef að lögreglan er sýnileg við"Ríkið"og myndi ávíta mig og biðja mig um að hætta að vera að"betla"þarna annars myndu þeir"taka mig" þá færi ég af staðnum og leitaði færist annarstaðar.Nú svo yrði kannske komið uppí"bokku"og ég myndi fara að draga mig að næturstaðnum.Ég kæmi að barnaleikvellinum.Ég veit að mörgum af okkur þessum mönnum sem misst hafa þráðinn í lífinu og sem ekki hafa náð honum (þó að mér hafi tekist það)þykir verulega vænt um börn.Alveg án nokkurar ónáttúru.

 

Ég gæti vel ímyndað mér að mig myndi langaði tala aðeins við krakkana á eins heilbrigðan hátt og mér væri unnt.Ég gæti trúað af minni reynslu að flestir þessara manna séu góðmenni inní sér og vilji þessum börnum ekkert illt.En ef ég ætti t.d.barnabarn á þessum leikvelli væri ég ekki hrifin af slíku.Þegar ég fyllti þennan flokk þá lágu gamlir og yfirgefnir bátar og togarar við Ægisgarðinn.Mín"hótel"hétu t.d Bragi(af mörgum kallaður Ameríku Bragi vegna þess að hann var smíðaður þar)og Íslendingur.Ég hafði yfirgefið þennan mannlega"vígvöll"þegar "hótel Síríus"komst í gagnið.Öll þessi"hótel"voru yfirleitt fjarri mannabústöðum eins og sést á upptalningunni fyrir þá sem þekkja til Reykjavíkurhafnar.

 

             

Þessir menn áttu það allir sameiginlegt að vera skáld hver á sínu sviðinu og þykja sopinn góður.Til vinstri Eyjólfur kallaður ljóstollur.Síðan Modest Mussorgsky frægt drykkfelt tónskáld og síðan mynd af kápu á ljóðabók Vilhjálms frá Skáholti

 

Ég er mjög fylgandi dvalarstað fyrir utangarðsmennn.En nærvera við barnaleikvöll er kannske ekki alveg besti staðurinn.Það hlýtur að vera að hægt sé að finna hentugri stað.Þetta sagði Ólafur Þ Þórðarson eitt sinn í þingræðu""Það minnir á það að Vilhjálmur frá Skáholti orti ljóð utangarðs. Það er enn stefnt að því að utangarðsmenn skuli vera í þessari borg. Vissulega getur verið að það stafi af því sama og var hans meinsemd. Hann sagðist hafa vanrækt að vinna fyrir Ólaf Thors og Co"".En sýnileg löggæsla er heldur ekki nóg ef lögreglumennirnir eru ekki starfi sínu vaxnir.Þ.e.a.s kunna ekki að tala menn til og vera með einhvern óþarfa ofstopa .Ég veit líka að þeir þurfa oft að taka á sínum stóra sínum í sambandi við drukkið/dópað fólk.Og þessi heimur fer harðnandi og starf lögæslumanna síður en svo öfundsvert.En með þann yfirlögreglumann sem allavega er í Reykjavík finnst manni að hægt sé að horfa jákvætt fram á veginn í þessum málum.Ég vona að við eigum sem flesta Geir Jóna

Reykjavíkur breiður bær
bestu kostum hlaðinn,
- heilags anda blíður blær
breiðist yfir staðinn.

Þetta orti Eyjólfur "ljóstollur" um bæinn sinn

Og við skulum enda þennan pistil á orðum skáldsins sem kenndi sig við"Skáholt"úr kvæðinu Borg mín borg

Þótt aldrei muni óskir mínar rætast,

um öll þín bestu dýrlegheit ég syng.

Ég lofa það,sem líf mitt gerði sætast, 

þinn ljósa dag og bláa fjallahring.

Og ávallt hoppar hjarta mitt af kæti,

ef horfi ég á gullnu torgin þín

Ó,borg mín borg,ég lofa ljóst þín stræti

þín lágu hús,þitt gull og brennivín   

Ó,ljúfa borg,ég lofa einnig hrærður

loftið blátt- og drekk því gullna skál

því aldrei mun ég svo í fjötra færður

að fegurð þín ei gleðji mína sál

 

Kært kvödd


Ferjur m.m

                   

Jæja nú stendur til að kaupa nýja ferju.Valið stendur til með að vera á milli þessara tveggja skipa hér að ofan.Hefur ráðherra samgöngumála kallað skipaverkfræðinga í Færeyjum til ráðgafar vegna þess að engum úr þeim geira er treystandi hér um slóðir til skipakaupa.Til að byrja með á hún að sigla til Grímseyjar eða þangað til ferjan sem keypt var til þeirra siglinga verður til.En gæti svo tekið við Bakkafjörusiglingum ef verktökum tekst að halda öllum grjótgörðum á sínum stað en þangað til eru ár og dagar að haldið er.En eins og kunnugt er voru sprenglærðir spekingar sendir út um allan heim til að finna nýjan farkost fyrir Grímseyinga.Eftir langa leit fundu þeir mjög ódýran farkost í Hong Kong

Eins og sést á meðfylgandi mynd þarfnast skipið"aðeins"smáviðgerðar.En aðstoðarmaður ráðherra samgangna segir það smáræði.Því að samið hafi verið við skipasmíðastöð í Thailandi sem stendur dálítið tæpt og verði bara borgaðar nokkrar"millur"á mánuði svo stöðin lafi,En eftir viðgerðir verði eiginlega komið nýtt skip sem verði mjög svo ódýrt í rekstri

En svona mun skipið líta út eftir þessar breytingar sem munu taka nokkur ár, það er að segja ef skipasmíðastöðin fer ekki"hausinn"á meðan.Afgangar og bútar munu svo notaðir til að laga 2 smáferjur sem keyptar hafa verið í Singapore til flutninga meðan þjóðvegakerfið er að jafna sig á síauknum þungaflutningum

                   

En fv og núverandi ráðherrar samgöngumála ásamt fv og nv aðstöðarmönnum munu vera á förum til Singapore til að verða viðstaddir mikla heimildakvikmyndahátíð en heimildarmynd um ferjukaup íslendinga sem tekin hefur verið mun hafa verið tilnefnd til æðstu verðlauna þar.Einnig hefur verið gerð tölvumynd um svokallaða Bakkafjöruhöfn

        

Eru hér nokkrar stillimyndir úr umræddri tölvumynd

                

                   

En þetta er nú bara fíflalæti í gömlum karli sem þykist vera sniðugur.En mig langar til að sýna ykkur myndir af alvöruferju sem siglir á milli hafna á annari en þó minni eyju í N-Atlantshafi .Þ.e.a.s M/S"Smyrill"í Færeyjum.Þeir eru sko ekki í vandræðum með ferjubransan þó þar búi ekki nema um 50,000"Sálir"

  

     

 

 Það er auðvelt að láta sig dreyma og láta sem þessar myndir séu teknar hér við Eyjarnar.Þótt þetta skip sé kannske aðeins of langt en það á ekki að vera neitt vandamál því við höfum mjög góða skipaverkfræðinga sem er í lófa lagið að stytta það um eina 10 metra.Nú svo höfum við góða stjórnmálamenn með æfingu í svoleiðis hlutum.Að lokum læt ég fylgja mynd sem tekin er af einum nýjasta"Fossinum""Stórafoss"sigla út úr höfninni í Ijmuiden

Myndirnar eru teknar ófrjálsri hendi úr"shipspotting.com".Kært kvödd

 


Ferðasaga 3

 

Basseterre                 

 Við að nálgast Basseterre                         Basseterre

Sælir góðir hálsar.Ég skildi við ykkur í Port of Spain.Næsta höfn var Bassseterre  á eyjunum St Kitts Nevis..Sem tilheyra svokölluðum"Leeward Islands"sem ég á minni lélegu ensku myndi þýða"Hléborðaeyjar"'Eg hafði komið þangað nokkrum sinnum áður og komist í land.Yndislegt fólk eins og margt fólk á eyjunum í Caribbean sea.

                       Barreterre

"Litlu Antillaeyjur"                                               St Kitts Nevis                                     

Þarna er allt frekar hreint og fínt svona að mestu leiti.Þarna eru "stevedorarnir"(þeir sem sjá um lestanir og losanir)og verkamenn þeirra mátulega kærulausir en of kærulausir fyrir sprengiefni að mínu mati.Að mig minnir áttum við að losa 3 gáma af sprengiefni.Þeir ætluðu að nota báðar bómurnar(gámarnir of þungir fyrir 1 bómu)Og eftir 3 eða 4 tilraunir og búnir að koma hjarta í mér fjandi neðarlega þá stoppaði ég þessa teyju og tog losunartilraun.Ég vil helst fá að springa í loft upp heima á Íslandi og var líka ekki alveg tilbúinn í það á þessum tíma.

Basseterre        Bassererre Frá  St Kitts Nevis 

Enda stóð í"Charterpartíinu"(farmsamningunum)að ekki ætti að nota bómur skipsins nema þar sem losað væri"útá"En allt fór þetta vel."Handan"við hornið var krani en kranastjórinn hafði víst"lent áð´í"og var ekki hífingarhæfur strax.Ég verð að játa að oft fara um mann hlýar tilfinningar þegar maður rifjar upp ýmis atvik eins og hjartnæmar ræður stewedorsformannsins þarna um ágæti sinna spilmanna.En mikið vantaði nú uppá samstillinguna hjá þeim.Og ekki virtust þeir hræddir við hættuna af sprengingu ,enda kannske í heimahöfn.

null                        

Frá Basseterre

Það er mikið um ferðamenn á eyjunni mikill straumur af skemmtiferðaskipum sem hafa viðkomu í Basseterre.Ég komst ekki í land í þessari ferð eins og ég sagði fyrr.Eitthvað varð svo óklárt með að klarera skipið út..Því urðum við að leggjast við akker.

                                      

"Kíkt á Kroppana"?

 Ég man nú ekki lengur hver ástæðan var en þetta leystist daginn eftir.þ11 des.yfirgáfum við svo Basseterre og nú skildi "Stórveldið"USA heimsókt.Eða Galveston í Texas.Þeir áttu að mig minnir 4 gáma.Við komum á ytrihöfn Galveston kl 0600 þ 19 des og nú uphófst mikill sirkus..Menn undra sig kannske yfir hve minnugur ég er á tíma og dagsetningar þegar ég man ekki t.d tölu á gámum m.a.en það á sér þær skýringar að Hempel málingarframleiðandinn gefur út dagatalaspjöld sem við fengum nokkur stykki af við hver áramót en þar ég skrifaði allar komur og brottfarir á og hef geymt að undanskildum 2 árum sem hafa týnst í flutningum..

                        Ströndin við Galveston

 Já við komum til Galveston þ 19 des.kl 0600.Við höfðum fengið"escort"af einu af US Coastguard skipunum og sem gaf okkur upp akkerisstað.Við lögðumst svo við akker nú kom stærra herskip og leysti"Kútterinn"af.Nú fengum við þau fyrirmæli að "Lóðsleiðarinn"(kaðalstigi notaður fyrir lóðsa þegar þeir koma og fara)skyldi hanga bb meginn og skildi skipstjórinn standa á brúarvægnum þeim megin og með hendur þannig að þær séust.En við hinir skildum raða okkur upp við lunninguna stb og halda höndum einng þannig að þær sæust.

              

 Herskipið lagðist nú  stb við okkur ca 50-60 m frá og stóðu svo um 10 manna hópur um borð í því sem miðaði byssum á okkur meðan "landgönguliðar sjóhersins"(mín tilgáta um flokkinn) ca aðrir 10 komu úr gúmmituðru frá herskipinu upp að  lóðsleiðaran og um borð.Eftir að hafa rannsakað skipið hátt og lágt og sennilega fullvissað sig um að engir"terroristar"væru um borð kom önnur "tuðra"og nú frá fyrrgreindu Coast Guard"kútter"með flokk manna sem voru aðeins vopnaðir skammbyssum.Megin hlutin af hinu liðinu hvarf nú til síns heima þ.e.a.s herskipsins aðein 4 voru eftir og nú byrjaði naflaskoðunin á okkur.

Galveston                          Frá Galvelston

Við vorum kallaðir fyrir einn í einu og teknar myndir af okkur við komuna inn þar sem við héldum á  pössum okkar.Allslags spurningar voru spurðar sem ég man ekki lengur hve gáfulegar voru.Svo var það furðulegasta það voru gefnir  landgöngupassar út á hvert nafn þó svo að enginn  okkar hefði gilda"Visum"í okkar pössum.Ég hef ekki verið þekktur fyrir aðdáun mína á Coast Guardinum í USA (þrátt fyrir blogg mitt í sumar um "tindátana"hans Björns)og muldraði eitthvað um" fuc..bullshit" við olbogaskot skipstjórans og íllilegt augnaráð flokkforingans.Svo eftir allslags japl og muður lauk þessum skrípaleik.

Galvest               Frá Galvenston

Og við vorum færðir að bryggu.Og svo byrjuðu"æfingarnar"við losunina.Stærðar krani stóð klár til losunar en hann þótti ekki hæfur af "liðinu"og urðum við að býða eftir öflugum bílkrana.Sem mér sýndist vera algerlega nýr af nálinni.og biðum við komu hans í 5 eða 6 tíma(mér datt nú svona snögglega í hug að það væri nú heppni á okkur að það  skildi vera búið að smíða hann því annars hefðum við kannske orðið að bíða eftir að hann kláraðist)Svo var það"sprederinn"þ.e.a.s útbúnaður til hífingar á gámum.Það gekk nú alveg fram af mér þegar að honum kom.Ég gat ekki betur séð en hann hafi verið mjög nýlegur eða allavega lítt notaður.En hann stóðst ekki vökul augu"Gardanna"nýr spreder skildi notast.Bið eftir honum lengdi leiðinlega viðstöðu í "Lýðræðisríkinu"USA.

Coast Cuard hæfn        Galveston

Coast Cuard Base                                   Galvestone

En "frekjan"bar nú í bakkafullan lækinn þegar þeir rufu öll innsigli á þeim gámum sem þeir gátu opnað sem vera áttu um borð.Og skipuðu okkur svo að ganga frá farmi í þeim aftur eftir þá ef þeir rótuðu í honum.Þetta endaði með því að Andreas skipstjóri kallaði mig á"eintal" til að biðja mig bara að fara og"halla"mér..Þarna hefur hann sennilega"bjargað"mér frá nokkra mánaða fangelsi því einn af skipstjórum hjá H.Folmer og vinur minn Willy Larsen lenti í margra mánaða fangelsi fyrir"kjaftbrúk"við US Coast Cuard.

Danica WhiteM/V Danica White 

Hann var skipstjóri á Danica White sem nú er í gíslingu í Sómalíu er það skeði í Vilmington.Ég verð að segja að ég hef sigld töluvert bæði seinni ár og áður á svokölluð"Kommúnistaríki"en þar var aldrei miðað á mig byssu svona alveg beint.En mikið djöf.... átti ég bágt með að senda þeim ekki"fingurinn"þegar þeir miðuðu á okkur byssunum.Ég hefði sennilega ekki geta skrifað þetta blogg ef ég hefði gert það.Við sluppum svo úr "Lýðræðinu"eftir kl 2200 þ 20 des..Læt þetta nægja af lýðræði og/eða svoleiðis.Hef sömu fyrirvara á þessu skrifelsi mínu og fyrr.Kært kvödd


Bakkafjara

 

null 

Ég hafði nú ekki ætlað mér að blogga meira um þessa frægu fjöru.En ég get ekki orða bundist eftir að hafa lesið grein eftir aðstoðarmann  samgönguráðherra í Fréttablaðinu í dag og sérstaklega þegar hann segir að:""Ég hvet því fólk til að hlusta ekki á dómdagsspámenn á borð við Grétar Mar Jónsson sem segir slíka höfn hættulega en færir engin rök fyrir því önnur en að hann hafi verið á sjó.Slíkur málflutningur HENDUR EKKI VATNI""Það vill svo til að ég veit meira um rök Grétars en aðstoðarmaðurinn.Ég veit að Grétar fékk sínar efasemdir eftir fund hér í Eyjum sem fv frambjóðandi hefur sennilega ekki séð sér fært að vera á.Hann fékk sínar efasemdir frá öðrum "Dómsdagsspámönnum"sem eru margir af þekkstustu skipstjórnarmönnum hér í Eyjm.Það þarf enginn að segja mér það að aðstoðarmanninum sé ekki kunnugur skoðunum þessara manna.Hann hefur þá ekki verið með á nótunum í því sem átti að vera aðalkosningavígi hans Vestmannaeyjum.

 

Ég ætla ekki að blanda neinum af þessum mönnum hér í Eyjum í þessi skrif mín.Því ég tel mig vita að aðstoðarmaðurinn sé fullkunnut nöfn þeirra.En af hverju hann nefnir bara Grétar Mar í þessu samhengi er mér sannarlega engin ráðgáta hann vill ekki vitna í þá skipstjórnarmenn héðan úr heimabyggð hans sem eru á móti þessu af hræðslu við,að mínu mati að málstaður hanns sé byggður á sandi eins og Bakkafjara svo sannarlega er í orðsins fyllstu merkingu.Allavega í dag.Var ráðherraaðstoðarmanninum ekki kunnugt um ferð"Lóðsins"þangað í vor.Af hverju kallar hann ekki eftir rökum frá mönnum sem þar voru um borð.Grétar Mar var ekki um borð.Mér finnst það alveg með endemunum ef frambjóðandi til Alþingiskosninga fylgist ekki meira með í sínu t.v kjördæmi og hans fv heimabyggð ef honum hefur ekki verið kunnugt um þessa ferð.Annars vísa ég á blogg sem ég skrifaði í vor og svo aftur um daginn.

 

Ég hef hlustað á rök Siglingarstofumanna og get skilið þau en þau hafa ekki sannfært mig.En ef af þessu verður vona ég bara að ég hafi ekki rétt fyrir mér.Menn tala um sjóveiki..En hvað um að brjótast t.d.í vitlausu verðri á sandinum (fínt fyrir þá sem ætla að láta sprauta bílinn)  og lenga bílferðna um alllangan tíma .Hvað með þá bílveiku.Nú hef ég ekki fylgst svo með vega samböndum milli R.víkur og .t.d Hvolsvallar.Ef kæmi nýtt og hraðskreiðara skip milli VE og þ.hafnar þá styttist tíminn líka á sjó


Ferðasaga 2

     

Andreas Krossá                    

Kafteinninn                                                      "Jólaskipið"laust úr klóakinu

 Mig langar tilað taka ykkur aftur í ferðalag.Það hefst eiginlega i Port Stanley á Falklandseyjum.Við höfðum losað jólavöruna í Port Stanley,Meðan við stöðum þar við hafði komið "telex"frá útgerðinni um að til stæði að"slutte"(danirnir kalla að skipið se "sluttet"þegar búið er að semja um næsta farm)til flutninga á"Imo Cargo"(sprengiefni og hættulegum farmi)frá Santos Brasilíu til nokkurra hafna í Carribean.,Svo nú var stefnan sett á Santos og fljótlega fengum við lestunnarlista og fyrirmæli um að skipuleggja lestunina í samræmi við IMO reglugerðir.Þetta kostar mikla vinnu vegna að sumt mátti ekki vera undir dekki og sumar tegundir verða vera í ákveðinni fjarlægð frá annari.Seinna á leiðinni kom svo staðfestingin á lestunni.

 

    

Marianne Danica                         og            "Gamli Landinn"                 

 Við komum svo eins og ég sagði frá til Santos þ 19 nov 2003.Við höfðum"Cargoplan"tilbúið við komuna til Santos.Ég var búinn að segja ykkur frá "gamla landanum"sem lá þarna í höfninni,lá þar lúinn með sína stb slagsíðu og upplitaða fána.Ég man nú ekki lengur fjöldan á gámunum sem við lestuðum.Ég hafði þetta allt í bókum sem ég hafði skrifað allar lestanir á öllum skipum sem ég sigldi á  hjá H.Folmer.Ég hafði fyrir vana að gera skissu af öllum lestunum í stílabækur sem ég geymdi og gat svo oft stuðst við þegar lestað var.Nú hef ég glatað þeim(sennilega í flutningum)og sakna þeirra því oft var gaman að fletta upp í þeim og rifja upp ýmislegt sem kom upp við hinar ýmsu lestanir

 

                                        Santos

Frá Santos

 Nú það tók ekki langan tíma að lesta í Santos og um morguninn 20 sigldum við þaðan.Ég verð að viðurkenna að ég einhvernveginn vorkenndi skipinu sem einusinni hét eftir bróðir fyrsta landnámsmannsins,að skilja svona við hann yfirgefinn af  íslendingum sem hann hafði þó þjónað vel og flutt mikil verðmæti að landi.Nú lá hann þarna hallaði undir flatt og svei mér þá ef hann stundi ekki þegar hann veifaði sínum upplitaða fána  kveðandi um leið og við sigldum framhjá honum á leið út úr höfninni..Ofurseldur útigangsmönnum og rottum.

 

Paramario     Surinam

Gömul mynd frá Paramario       Surinam

Fyrsta losunarhöfn var Paramario í Surinam.Ég hafði komið þar nokkrum sinnum áður og kunni vel við fólkið,þarna er mikil fátækt en allt hreinlegt og maður gat farið óáreyttur þarna í land.En í þetta sinn var stoppið stutt.Komum þangað kl 0300 þ.1sta des og fórum aftur kl 2000.Þaðan var ferðinni heitið Georgetown í Guyana..Við vorum varla komnir inn í landhelgina ar hraðbátur kom á móti okkur og vopnaðir verðir settir um borð.

 

Maður með mönnum                  Tveir verndarar

Sumir þykjast vera maður með mönnum.                   2 af "verndurunum 

 Á þessum slóðum eru "sjóræningar"oft athafnasamir.Þessir verðir voru svo um borð meðan við losuðum í Georgetown og Linden sem var næsta höfn og svo út úr landhelginni aftur,Eftir losun í Georgtown sem var í pramma úti á ytri höfninni var ferðinni heitið sem fyrr sagði  lengra upp með fljótinu Delemara til bæjar sem heitir Linden en þar er stór gullnáma Omani .Nú þessar losanir gengu átakalaust fyrir sig.

Omai gullnáman                      Linden

Losun í Linden

Verndararnir                       Delemara 1 

"Verndararnir"                                                   Við Delemarafljót

 Ég á eftir að víkja aftur að Georgetown en við áttum eftir að koma aftur þangað til lestunnar..Næsta  höfn var svo Port of Spain á Trinidad en þangað var sólarhrings sigling frá Georgetown.Við komum til P.S um 7 leitið um morguninn 8 des.Búnir að losa og farnir um 4  um daginn.Þetta var í fyrsta skifti sem ég kom til P.S.

Delemara 2       Delemara 3

Við Delemara 

En ég hafði nokkrum sinnum komið til annarar borgar á Trinidad Point Lisas.En ég hef verið allt í allt í um 2 ½  ár að þvælast um Carrabean á skipum félagsins..Eitt sinn "munstraði"ég á eitt skipið í Point Lisas.Ég hafði stóra upphæð að mig minnir 20.000 US $ meðferðis til skipstjórann frá útgerðinni.Ég var settur á hótel eftir flug Kastrup- London -Grenada-Trinidad.Ég bað agentinn sem keyrði mig til hótelsins að biðja um öryggishólf þegar við kæmum þangað.

Georgetown  Lóðsin upp Delemara River Georgetown

Losun                og lóðsinn upp Delemarafljótið

Því að glæpir eru mjög tíðir í þessari borg og ég þorði ekki fyrir minn litla líf að vera með svona mikla peninga í hótelherberginu.Þegar við komum í mótökuna og agentinn hafði talað við manninn í móttökunni opnaði sá síðarnefndi stóran læstan peningaskáp og tók út eina skúffu og rétti mér.Í skúffunni lá pappirsnepill sem ég í fávisku minni hélt að væri einskonar kvittering sem ég ætti að taka sem ég og gerði. og stakk síðan í vasann án þess að athuga hann neitt.Ég þurfti að bíða komu skipsins í 3 daga.

Porto Spain     Point Lisas  

Port of Spain                                  Point Lisas

Ég hafði ekki mikinn áhuga á að sjá mig um fannst"andrúmsloftið"ekki passa mér svo ég hélt mig bara á loftkældu herberginu drakk ferskan kaldan ávaxtasafa (var hættur í þjónustu Bakkusar er þetta var) og las eða horfði á sjónvarp.Það var svo á öðrum degi að ég var að ná í eitthvað í jakkanum.Dettur þá ekki þessi bréfsnepill á gólfið,Ég tek hann upp og brýt hann sundur.Það sem ég hafði í minni hreiræktaðri íslensku fávisku haldið að væri númer á skúffunni sem peningar útgerðarinnar væru geymdir var óvart ávísun uppá 280.000 Trinidad $.Ég flýtti mér í snatri og náði tali af Hótelstjóranum og sagí honum frá þessum mistökum.

 

CarrabeanTrinidad 

Ég skildi nú lítið af orðaflauminum (þarna var töluð svokölluð Trinidadian Creol English)í honum en hann ætlaði mig alveg að éta og faðmaði mig og kyssti(þó að kynvilla sé bönnuð  þarna með lögum)dansaði svo í kring um mig og klappaði saman lófunum.Þegar steppdansinum lauk sagði hann að héðan í frá væru þær veitingar sem ég þyrfti að borga sjálfur á reikningi hússins"On the house".

Trinidad       

Frá Trinidad 

Svo spurði hann mig að því hvort mig vantaði ekki einhvern til að horfa með mér á sjónvarpið.Ég skildi nú fyrr en skall í tönnum og þar sem ég var nú orðin eins og"gamli Ford"gamall og seinn í gang og á þesum tíma eyðni og alsæmis afþakkaði ég gott boð.Eftir þetta var mikið verið að koma með kaldan ávaxtasafa til mín.Og stundum"dvöldust"þeim svolítið dömunum svona við að "þurka af"eða"hagræða rúmfötunum"en ekki hrökk sá gamli í gang þó svo að hamast hafi verið á sveifinni.Kannske vantað meira "innsog".

 

Þjóðarblóm tr

Chaconia þjóðarblómið á Trinidad

Ég fékk það aldrei alveg á hreint þetta með ávísunina.En hún hafði verið talin týnd og tröllum gefinn þangað til að"gamli Fordinn"uppalinn á Íslandsmiðum kom henni til skila.Einnig vissi ég ekki um gengið á Trinidad $.En þetta var nú útúrdúr frá ferðasögunni  í des 2003.En ég ætla að láta þetta nægja í bili.Þetta er nú ekki skrifað til neinnar frægðar á neinn hátt heldur eru þetta  bara gamall kall að láta hugan reika til baka og ef einhver hefði gaman af að taka þátt í "reikinu"Kært kvödd


Viljum svör

 null                      

Staksteinar Morgunblaðsin krefja Fiskistofustjóra um svar vegna upplýsinga sem blaðið telur sig hafa vegna kvótasvindls í sjávarþorpi úti á landi.Eftir frásögn blaðsins uppgötvaðist þetta af eftirlitsmanni Fiskistöfu og að sögn blaðsins var lögregla kvödd á staðinn,Í Staksteinagreininni sem ber yfirskriftina:"Hví þessi þögn"segir m.a"Ekki verður annað skilið af þeim viðbrögðum sem blaðamenn hafa fengið en að Fiskistofa hyggist færast undan því að veita upplýsingar um málið,Hvers vegna"

 

Nú hljótum við almenningur líka að heimta svar frá umræddum"Stjóra"Ég tel mig ekki það vitgrannan að ég trúi því að Agnes Bragadóttir hin þaulvana blaðakona fari með svona grafalvarlegt mál sem þetta er,og að öll hennar skrif um málið sé eingöngu byggð á"kjaftasögum"Ég vil heldur ekki  trúa því að ritstjórar Morgunblaðsins"leggist í víking"og leggi margnefndan"Stjóra"í einelti.Hvernig væri fyrir þennan"Stjóra"að hætta þessu yfirklóri og komi til dyrana eins og hann er klæddur.

 

                         

Við vitum öll að þrátt fyrir góða tollgæslu þá viðgengst hér smygl,Ég haf aldrei heyrt neinn frá"Tollinum"fortaka það og segja"Jú það getur verið að það sé smyglað hingað en þetta er nú svo pínulítið að það tekur ekki að tala um það",En þetta finnst mér allavega liggja í orðum Fiskistofustjóra þegar hann talar um að"Brottkast" og"Kvótasvindl"sé svo lítið að það taki ekki að tala um það.Ein flaska eða 1 cíkarettupakki  fram yfir löglegan tollvarning er smygl hvernig sem við snúum orðinu eða reynum að teygja það og toga og þótt góðhjartaður tollari láti mann sleppa með það í gegn.Einn fiskur sem er umframkvóta og sem fleygt er í sjóinn er brottkast hvernig sem við teygjum og togum það orð.Fiskurinn er yfirleytt dauður er hann kemur í sjónn aftur.Ég geri allavega ekki ráð fyrir að menn sem ekki eiga kvóta fyrir tegundinni komi að landi með með afla úr henni til að fá á sig stórsekt.Mér finnst ekki þurfa miklar gáfur til að skilja það.Þetta kallast á hreinni íslensku"BROTTKAST" 

                  

Nú segir kannske einhver"hvern ands..... er hann að rífa kjaft,Gömul fylli..... og smy...."En það kemur bara þessu máli neitt við.Ég hef nú í nokkuð mörg ár reynt eftir fremsta megni að þræða hinn þrönga veg en tel mig ekki komin í neina englastöðu.En ég hef minn atkvæðisrétt.Og ég geri þá kröfu til þeirra manna sem lýðræðislega valdir stjórnendur þessa lands  fela forsjá hinna ýmsu opinberu stofnana að þeir komi hreint fram við þjóðina.

null             

Séu ekki að fela sig bak við einhvern"kjaftasögu"þvætting.Og hvað með barnabarn eins farsælasta útgerðarmann landsins sjálfan ráðherra fiski og landbúnaðarmála,Getur hann kannske ekki litið upp úr smérinu (ég er ekkert að gera lítið úr bændum þó ég orði þetta svona)og kíkt á störf undirsáta síns í "barnaverndarnefnd"þorsksins.Ef eitthvað vit væri í hlutunum ættu þeir félagar að halda blaðamannafund strax á mánudag og skýra málið sem"Mogginn"sem kallar þetta"tiltölulega litla og einfalda mál"en er svona harður á.Það ætti ekki að skemma nein rannsóknargögn.Málið er komið í hámæli hvort sem.En menn skilja bara ekki þessa þögn,

                                    

Svo að öðru.Það eru aðrir menn sem í öðru ráðuneyti sem almenningur á heimtingu á að fá svör frá.Það er frá ráðherra samgöngumála og/eða hans undirsátar,Maður að nafni Kristján Möller var óbeyttur þingmaður í vor og viðhafði stór orð í sölum Alþingis um"ferjuskrífli"sem keypt var til að halda uppi ferðum til Grímseyjar.Það var barið í borðið og svör heimtuð . Á forsíðu Fréttablaðsins í dag er svo frétt sem hljóðar svo:"Grímseyjarferjan sögð lélegt skip"og svo frétt á bls 14:"Nýja Grímseyjarferjan vanhirt og hrörlegt hræ"Þar lýsir Ólafur J Briem skipaverkfræðingur hjá Siglingastofnun sjálfstæðu mati sem hann var beðin um að gera á"Gripnum"

                     null

Frá upphafi hefur verið ljóst að burðargeta þessa"aldraða og veika" skips var töluvert minni en þess er fyrir var í starfinu.Og 140 tonnum minna en Eyjaskeggar töldu sig þurfa,Það þarf ekki að lesa lengi til að sjá að hér er einn"Byrgisskandalinn"í uppsiglingu.Almannafé sóað í einhverja"gæðinga"Kristján Möller á að hafa sagt í hádegisfréttum sl miðvikudag að hann óttaðist að kosnaðurinn við þennan"óheillagrip" færi upp í 600 miljónir..Það er 350 miljónum meira en mælt var með og 250 miljónum meira en kom fram í svari fv ráðherra til umrædds Kristjáns og sem hann hélt hvorki vatni eða vindi yfir,Hann barði sér á brjóst og krafði forvera sinn í starfi um greið svör og hverjir væru ábyrgir,Nú berja margir í þjóðfélaginu sér á brjóst og krefja hann svara.Það stendur í skýrslu Ólaf að 2 menn hefðu farið til Irlands 19 nóv 2004 og mælt með kaupunum.Annar þessara manna var Einar Hermansson skipaverkfræðingur en hver var hinn?Frumskógatrommurnar segja sögur af kaupum íslenskra manna á"hræinu"sem svo eiga að hafa selt Ríkinu"djásnið"með allgóðum hagnaði.

                           

Nú vaknar sú spurning af hverjum keypti Íslenska Ríkið þennan"Geirfugl 2"? Kristján Möller verður að skýra málið og leggja sannleikann á borðið svo almenningur þurfi ekki að mynda skoðanir sýnar á"kjaftasögum"Þetta sýnir manni enn og aftur hvernig maður er hafður að fífli 2 ár í röð á 4rra ára fresti.Menn berja sér á brjóst sem óbreittir þingmenn í stjórnarandstöðu en svo lokast á þeim"glufan"er í ráðharrastóla er komið,Að lokum vil ég vitna í blogg núverandi ráðherra í vetur.Ég vona að ég brjóti engin lög með þessari tilvitnun í blogg sem öllum er opið;"" Við höfðum óskað eftir því að fulltrúar Vegagerðarinnar, Grímseyjarhrepps, Vélsmiðju Orms og Víglundar, svo og Einar Hermannsson skipaverkfræðingur og aðal ráðgjafi Samgönguráðuneytisins kæmu á fundinn til að skýra þetta mál og svara spurningum.

Skemmst er frá því að segja að aðeins fulltrúar Vegagerðarinnar og Ríkiskaupa komu á fundinn. Fulltrúar Samgönguráðuneytisins neituðu að koma á fundinn en í auglýstu fundarboði kom fram að Jóhann Guðmundsson frá Samgönguráðuneytinu kæmi á fundinn.
Ætli Sturla hafi svo bannað honum að mæta og svara fyrir þátt Samgönguráðuneytisins í málinu ?

Einar Hermannsson aðal ráðgjafi ráðuneytisins mætti heldur ekki á fundinn og ekki kom fram hvers vegna, ætli Sturla hafi stoppað hann líka?""Stattu nú við stóru orðin Kristján Möller!!og upplýstu málið,Kært kvödd


Vald auðsins

                   Frá Dunkirk

Þann 5 febr. 2000 kom danska flutningaskipið"Thor Emilie"til hafnar í Dunkerque í Frakklandi frá Ipswich í Englandi.Ákveðið hafði verið að skipið skildi lesta c,a,2000 ts farm af "Oxyd Zink Ore"í bulk.Þ.e.a.s.í lausu.

                   Thor Emilie

Farmurinn hafði verið fluttur á prömmum innar úr Frakklandi,og var losaður beint af þeim og í lestar skipsins.Lestunin hófst kl 0800 þ.7/2 og var lokið um kl 1900 þ.8/2.Skipið sigldi þó ekki af stað fyrr en kl 1000 þ 9 og var ferðinni heitið til Porto Vesme á eyjunni Sardínu.

               

Í fyrstu fékk skipið leiðindaveður sérstaklega í Biscayen en þar var vestan stormur með tilheyrandi sjó.Víð Cap S. Vincent fór veðrið að batna og þegar skipið var út af suðaustasta odda Spánar Cap de Gata tók það stefnu á Porto Vesme í ágætis veðri.

  

 Um borð í skipinu var 7 manna áhöfn.Skipstjóri var Torben Matz.Yfirvélstjórinn var ungur dani en aðrir í áhöfn voru frá Philipseyjum.Skipið var smíðað í JJ Sietas skipasmíðastöðinni í Hamborg.1975

 

Skipið hafði gengið undir nokkrum nöfnum m.a. "Löften"með heimahöfn St.Johns þegar T&C AS.í Svendborg keypti það 1997.Skipið hafði losað Monoammonium Phosphate í bulk í Ibswich Englandi.Í Ibswich hafði skipstjórinn móttekið skeyti frá útgerðinni um að hann ætti að lesta í Dunkerque "Oxyde Zink Ore"Skipstjórinn fletti upp í IMDG kódanum(handbækur um flutning á hættulegum efnum:ath.mín)og í "TomasStowage"(ensk handbók um lestun á hinum ýmsu vöruteg,ath.mín)en gat hvergi funndið neitt um þetta efni,

            

Eftir losun í Ibswich voru lestarnar rækilega þrifnar og voru þurrar og góðkenndar til lestunnar þ 7 feb,kl 0600 í Dunkerque.Farmurinn var bókaður í gegn um meglara í Marseille í Frakklandi sem agent fyrir Gencore í Sviss.Farmurinn var færður að skipinu í prömmum og losaður úr honum með krana úr landi,Farmurinn sá út sem grá mold eða ryk með nokkuð stórum klumpum.Skipstlórinn hafði samband við útgerðina strax um morguninn þ 7 og sagðist ekki finna neinstaðar neitt um þennan farm "befragtari"(flutningastjóri)útgerðarinnar kvaðst ekkert heldur finna neitt í sínum bókum en það gæti vel verið að það myndi myndast eiturgas frá farminum.

Glencore International AG
Image:Glencore Logo.jpg
 

Skipstjórinn vakti athygli befraktarans á að sér þætti farmurinn vera"skítugur"og bað befraktarinn hann að gera grein fyrir því á"Bill of Lading"(BL)Og sama dag skrifaði skipstjórinn"protestbréf"til agentsins um efnið.Um hádegi byrjaði að rigna skipaði þá skipstjóri að lestunum skyldi lokað.Hafnarverkstjórinn var ekki ánægður með það og vildi meina að hættulaust væri að lesta þennan farm í rigningu.Skipstjórinn bað agentinn um meiri upplýsingar um farmin og þ.á.m,um skriðvirknina("angle of repose)Um kl 1900 hafði stytt upp upp hélt þá lestunin áfram til kl 2200.Morgunin eftir hófst svo lestunun aftur og lauk henni kl 1900.Þann dag móttók svo skipstjórinn  skeyti frá efnaverksmiðjunni sem framleiddi farmin um að hættulaust væri að lesta efnið í rigningu og að efnið hefði legið úti í 3-4 mánuði og þessvegna:"is no risk of toxic vapours from the Zinc Skimming although they have been wet by rain"

                             

Skipstjórinn áttaði sig ekki á að tegundar heitinu á farminum hafði verið breitt í Zinc Skimming,Eftir móttöku á þessu skeyti ákvað skipstjórinn að lestuninni skyldi framhaldið þó svo að smáskúrir væru allan daginn.Þegar skipið var fulllestað var veður orðið slæmt W-lægur vindur yfir 20.m/s svo skipstjóri ákvað að fresta brottför skipsins þar til daginn eftir.Út af því spurði agentinn hvort ekki væri í lagi að koma með skipspappírana morguninn eftir.Á þetta féllst svo skipstjórinn sem ákvað brottför kl 1000 daginn eftir,gengu veðurspár eftir enn þær spáðu lægandi um nóttina.Áður en skipið sigldi kom agentinn með skipspappírana um borð til undiritunar á BL stóð"clean on board"Þessu mótmælti skipstjórinn og skrifaði sínar athugasemdir á BL"cargo contaminated with pieces of plastic,paper,and wood"Skipstjórinn hafði ekki enn áttað sig á breitingunni á að farmurinn bar nú nafnið"Zinc Skimming in bulk"Var síðan lagt af stað kl 1000 og gekk ferðin sem framar greinir.Þ 17 febr kl 0600 um morguninn tók skipstjórinn sína vakt í brúnni.

 Thor Emilie

Kvöldið áður höfðu stm,vélstj og hann ákveðið vinnu sem framkvæmd skyldi yfir daginn.Vélstjórinn og vélavörðurinn skildu skifta um fíltera og hreinsa aðra,Auk venjulegrar vélavinnu.Hásetarnir skyldu vinna frammi á bakka við viðhald.Rústberja menja m.a.Um 11 leitið skreppur skipstjóri niður í baðherbergi sitt,Meðan hann dvelur þar verður gífurleg sprenging.Hann slengist um koll.Við það vankast hann eitthvað en missti ekki meðvitund.Hann  er strax klár á að mikil sprenging hefur orðið í skipinu en hélt í fyrstu að hún hefði orðið í vélarrúmminu.Brunaboðar og viðvörunarbjöllur hljómuðu.Han hleypur nú í gegn um setustofuna þar sem allt var á tjá og tundri og út á bátadekkið til að hlaupa upp í brúnna utandyra.Er hann er að komast í stigann kemur kolgrænn sjórinn á móti honum.Þá verður honum ljóst að skipið er að sökkva."Thor Emilie"sökk svo  beint niður án nokkurrar slagsíðu með örlítin aftur stafnhalla

,Skipstjórinn veit svo næst af sér á floti á sjónum með gúmmibátshylkið við hlið sér.Gúmmíbáturinn blés sig svo upp og gat hann klifrað um borð í hann.Hann gerði sé nú grein fyrir að hann hafði særst  á nokkrum stöðum sem blæddi úr en þó ekkert alvarlega.Hann sá hinn gúmmíbátinn uppblásin en mannlausan ca 50 metra frá honum.Hann gat róið að honum og batt hann við þann sem hann var í.Hann rak svo allan daginn og hélt "udkikk"eftir öðrum áhafnarmeðlimum og skipum.Það var svo kl 2040 að V/S"Verdi"möltuflaggað skip fann hann á stað:37°32´N og 002°27´A.

null 

Af skýrslum sést að kl 1121 UTC meðtekur RCC(Rescue Coordinnation Center)Karup signal frá satellit sem staðfestir að signalið sé frá EPIRB tæki sem tilheyrði Thor Emilie.Strax var reynt að ná sambandi við skipið en án árangurs.Síðan var sett í gang leit á þessu svæði sem endaði á fyrrgreindan hátt nema hvað að þyrlur munu hafa leitað um morguninn en án árangurs

Farmurinn sem T.E.flutti var Zink Skimming var seld frá verksmiðju sem heitir Metaleurope í eigu alþjóðahrings í Sviss sem heitir Glenore til annars fyrirtækis í þess eigu Noyelles Godaul.Nú eru liðin rúm 7 ár og engin hefur verið látinn svara til saka um af hverju Torben Matz skipstjóri var látinn sigla út úr höfninni í Dunkerque með tikkandi sprengu.

 

Það virðist svo að mannslíf eru oft lítils virði í sambandi við peninga.Múltímiljónaauðhringur eins og Glenor lætur sig hafa það að falsa pappíra til þess að borga ódýrari frakt.Mazt skipstjóri hafði margoft beðið agentinn um pappíra frá sendandanum yfir þennan farm sem hann er er skyldugur(sendandinn)til að láta skipstjóranum í té samkv Solas,Chapter VI Part A.Regulation 2.Hann hélt því einnig fram að hefði honum verið gerð grein fyrir breytingunni á heiti farmsins hefið hann í samvinnu við útgerðina viðhaft allt aðrar aðgerðir við lestunina og jafnvel afbeðið hana vegna lítillar loftræstingar.Allavega við haft strangari reglur varðandi opin eld og þvíumlíkt.

 

 Torben Matz

Þetta segir í skýrslu "Opklaringsenhedens"(sennilega sambærilegt við Rannsóknarnefnd sjóslysa hér):""at det har været afgörende medvirkning til forliset at charteraftalen blev ingået på et forkert grundlag,idet afskiberen af lasten,firmaet Glenore i Svejs,som sagen foreligger opplyst for Opklaringsenheden opgav forkert betegnelse for lasten til mæglerfirmet Polyship i Marseille""

 

Ég á oft bágt með að skilja þegar verið er að tala um há laun stjórnenda banka og fjármálafyrirtækja þá er talað um að þessir menn beri svo mikla ábyrgð.En þegar kemur að ábyrgð á mannslífum þá kveður við annan tón.Hvað er t.d með flugstjóra á stórri farþegaflugvél með kannske uppundir 300 mannslíf ekki held ég að þeir séu neitt of sælir af launum sínum allavega ekki ef höfð er í huga ábyrgð sem þeir bera.Hvað með skipstjóra á stórum farþegaskipum með fleiri þúsund mannslíf.

 

Ábyrgðin virðist bara vera í sambandi við peninga.Kannske hefur hann fengið launa og stöðuhækkun sá sem falsaði farmsheitið í telexunum sem gengu á milli befraktarans hjá T&C(eigendur Thor Emilie)og skrifstofu Glenor sem sá um farminn sem settur var um borð í skipið á röngum forsemdum.Sem kostuðu líf,eins dana og 5 Filipseyjinga:Máttur auðsins er mikill.Enda sagði skáldið góða frá Skáholti:

Stæli ég glóandi gulli
úr greipum hvers einasta manns
þá væri ég örn minnar ættar
og orka míns föðurlands.

Kært kvödd

 

 


Carlsen skipstjóri

 

            Til hægri Carlsen með syni sína

Það skeði áður en "terrorórræðið"byrjaði og Tvíburaturnarnana hrundu.Fyrir Kóreu stríðið,Víetnam og Persaflóastríðin,Og áður en"Múrinn"féll.Og áður en orðið"terror"komst inn í orðabækur.Það var desemberkvöld 1951 að M/S"Flying Enterprise"lét úr höfn í Hamborg.Við stjórnvölinn var danskur skipstjóri Kurt Carlsen(mun hafa verið bróðir minkabana hér á landi með sama nafni,ath.mín)Í skúffu í skrifborði skipstjórans lá símskeyti,Dulmálsskeyti frá útgerðarmanninum Hans Isbrandtsen í New York.Kurt Carlsen var uppáhalds skipstjóri Isbrandtsen og oft virkaði hann sem faðir Carlsens..Í dulmálsskeytinu var m.a.upplýsingar um hluta af farminum.

null  Carlsen og Bekker blaðamaður 

Skipið"Flying Enterprise"var eitt af svokölluðum"Libertyskipum"

          null 

Skipum sem byggð voru upp á nokkrum tímum jafnvel,eftir að hlutar úr skipunum höfðu verið byggðir víðsvegar um Bandaríkin sem svo voru fluttir á einn stað og skipin rafsoðin þar saman.Það var byggt 1944 og hét fyrst Cape Kumakari og var 6.711 tonn.Skipið var aðallega í"konvoj"siglingum til Rússlands í seinni heimstyrjöldinni.Isbrandsen keypti skipið 1947skýrði það Flying Enterprise og notaði það svo í stykkjavöru flutningum milli Evrópu og USA,Víkjum aftur að brottförinni frá Hamborg.Ferðinni var heitið til New York.Skipið hreppti strax slæmt veður er út í Norðursjóinn kom.null        

Svo 28 des.í miklum sjó og ca 300 sml frá strönd Englands fóru að myndast rifur í dekkið aftan við yfirbygginguna.Suður voru farnar að gefa sig sem var velþekkt"fyrirbrigði"frá"Libertyskipunum"Skipshöfnin reyndi að halda skiðinu saman með því að setja stálvíra yfir rifurnar og strekkja þá eins og hægt var"Vi prövede at sy hende sammen med stålwirer fra for til agter"sagði Carlsen skipstjóri seinna.Næsta morgun var skipið komið með 40°slagsíðu og ákveðið var að yfirgefa það.Um borð var 40 manna áhöfn og 8 farþegar.Allir björguðust í nálæg skip,sem voru ameríska herflutningaskipið"General A,W.Greely og enska flutningaskipið"Southland"nema Carlsen skipatjóri.

 

                                   

"General A.W.Greely"  

Hann neitaði að fara frá borði,Sagðist ekki yfirgefa skipið fyrr en það kæmist í höfn(með aðstoð dráttarbáta)eða það sykki,Í fyrrgreindu skeyti frá útgerðarmanninum hafði staðið m.a,:"Ég lít á þig sem Ambasador fyrir mig og útgerðina.Alltaf fljótandi en aldrei á reki vona ég"Enski dráttarbáturinn"Turmoil"kom á staðinn 3 jan,

     

Næsta dag komst svo stýrimaður dráttarbátsins Kenneth Dancy,Carlsen til hjálpar um borð í Flying Enterprise.Taug var sett á milli skipana og byrjaði svo drátturinn.Þegar hér var komið sögu var hallinn á F,E 60-65°.

null                  

 

Allt gekk nú vel þar til skipin voru stödd ca 40 sjm frá Falmouth á Englandi.Þá slitnaði taugin. Gerðar voru fleyri tilraunir með að koma taug á milli  en án árángurs  Eftir þessa 13 daga frá byrjun erfiðleikana var hallinn nú orðin um 80°.Og skipið lá þungt í sjónum.Og svo var það 10 jan að Carlsen viðurkenndi sig sigraðan og þeir Dancy stukku frá borði og var bjargað um borð í Turmoil.

        Síðustu myndir sem teknar voru af F,E.hringurinn á myndinni til vinstri er dreginn utan um þá félaga Carlsen og Dancy    

Tekið var á móti Carlsen sem þjóðhetju þegar hann kom til New York og einnig í Danmörku þegar hann kom þangað.Miklar spegúlasjónir hafa verið um hvað það eiginlega var í lestum skipsins.Eftir farmskrám var það m.a. Wolswagen bílar,Grasfræ og Pig Iron(hrájárn)Einnig mun hafa verið um borð stór fúlga af peningum og einnig dýr Stradivarius fiðla.Nú er talið að einnig hafi  verið 5 tonn af "Zirconium",

    

 Stálblanda sem þjóðverjar framleiddu.En þessi blanda er notuð t.d í rör í kjarnorkuverum.Og að þetta sem F.E flutti hafi átt að fara í kjarnaofninn í USS Nautilus sem þá var í byggingu.

 

Carlsen var alltaf þögull sem gröfin um hvað stóð í skeytinu fræga,En Carlsen á að hafa játað þetta fyrir dönskum blaðamanni Bjarne Bekker 1976,Hann á að hafa sagt Bekker að kafarar hafi seinna kafað að flakinu og sótt þessi 5 tonn.En þetta á að hafa seinkað bygingu Nautilus í 5 eða 6 mánuði.Bekker mun vera eini blaðamaðurinn sem Carlsen talaði um þessa hluti um.Carlsen dó 7 okt.1989.Kafarar sem seinna hafa kafað að flakinu munu hafa staðfest að gat hafi verið brennt á skrokk F.E.

            Til vinstri er"telegraffið" og til hægri sést stýrishjólið.Myndir teknar af köfurum sem kafað niður af flaki F,E

Þessu er rænt og ruplað hér og þar m.a, af heimasíðu Bjarne Bekker /www.seniorlife.dk.Ég vil enn og aftur minna á að þetta á ekki að vera einhver sagnfræði eða þvíumlíkt.Þetta er bara það sem kemur út úr grúski gamals karls sem hefur áhuga á ýmsu gömlu og birtir árangurinn hér ef einhver sem man þessa atburði hefði gaman af að rifja þetta upp,Kært kvödd


Ferðasaga

 

Þar sem maður finnur ekkert sérstakt til að rífa kjaft yfir þá langar mig að segja ykkur smá ferðasögu.Enda er ekki gott að vera alltaf með einhverja déskotans neikvæðni,Það fer illa með sálina.Ég sigldi nokkur ár hjá danskri útgerð H.Folmer(Sömu útgerð og á"Danica White"skipið sem rænt var fyrir 2 mánuðum síðan)Þessi ferð minnti dálítið á stykkjagóssflutninga hér áður fyrr.Ég hafði komið um borð í M/S"Marianne Danica"30-09-2003 í Glasgow.Skipstjóri var góður vinur minn færeyjingur að nafni Andreas Krossá.Þaðan var svo ferðinni heitið til Shorehamn.En þar áttum við að lesta stykkjavöru (General Cargo) til Port Stanley á Falklandseyjum.Við komum svo til Shoreham þ 03-10 og komum þá beint í helgi Og byrjuðum að lesta þ.06.

       

Lestun í Shorehamn

Við vorum svo 5 daga að lesta,Í fyrstu var ég mjög ósáttur við aðferðina.En brettum var kasserad og troðið faktíst í hverja rifu.En svokallaður"Supercargo"(hleðslustjóri)fullvissaði mig um að þetta væri vaninn við lestun til Falklandseyja.Við losunina þar komst ég svo að raun um að það reyndist rétt,Daginn sem við komum kom "agentinn"að sjálfsögðu um borð.Hann sagði okkur að það væri vaninn að skipin sem færu þarna niðureftir tækju yfirleitt eitthvað af"gæludýrum"með t.d, hunda og ketti.Þetta kæmi í staðin fyrir einangrun á dýrunum er komið væri á áfangastað.En núna væri bara búið að panta fyrir eitt dýr og væri það hvolpur,sem myndi koma um borð á mánudag.,Nú á mánudag var svo komið með hvolpinn litla tík sem kölluð var"Arven"Skipperinn afgirti strax  rými fyrir hana á sinn hvorum brúarvængnum,

     

 Andreas og Arven

Við lestunina varð maður þess var að Bretunum var alls ekki um þessa flutninga sem eru mikið niðurgreiddir af breska ríkinu.En á Falklandseyjum búa um 2000 manns,fyrir utan um 2000 manna herliðs sem er á eyjunni.En herinn sér sjálfur um sína flutninga þangað.En vörur kosta það sama úr búð á eyjunum og í Englandi.En þetta var síðasta lestun í Englandi fyrir jól.Svo að við vorum kallaðir"Jólaskipið"Við lögðum svo af stað frá Shorehamn þ 10-10.áleiðis tl Cap Verde eyja en þar áttum við að taka olíu,

                               

                                        Marianne Danica   og "Supercargoinn"í Shorehamn 

Það var nú tíðinda lítið á leiðinni,Við fórum utan við Traffic separation zónana(aðskildar siglingarleiðir)við Ouessant og Finisterra svo við slippum við aðal traffikina,Littla Arven var hin sprækasta og vann strax hug og hjörtu áhafnarinnar.Besti leikurinn hjá henni var að elta svampbolta sem við hentum út á gólf,Hún kom svo með boltann horfði á mann og beið þar til maður tók hann af henni og henti svo út á gólf.En svo fór hún að sýna einhver merki um að eitthvað væri að.Hún hafði alltaf minni og minni lyst á matnum og héldum við fyrst að hún væri sjóveik.En A-kul var og veltingur töluverður.

      

M/V Maninha ex Esja á Cap Verde

Þ 19/10 um hádegi komum við til Cap Verde.Mér duttu nú flestar dauðar lýs úr höfði er ég uppgötvaði skipið sem lá fyrir framan okkur við bryggjuna.Var þar ekki kominn "gamall kunningi"eða M/V"Maninha"sem áður hét"Esja"og var byggð á sínum tíma hjá Slippstöðinni á Akureyri.Ég hafði einmit leyst af sem stm á því skipi um tíma en þá var það undir stjórn Boga Einarssonar þess merka skipstjóra sem nú er látinn fyrir nokkrum árum.Ég hitti einn af skipverjum/vaktmann en ekki urðu samræðurnar vegna tungumála erfiðleika."Cap Verdi verri god best shipp"sagði hann.Eftir vatn og olíutöku var lagt af stað aftur,Sama A kulið og sami veltingurinn var.Allt gekk að óskum nema okkur virtist alltaf draga af  litlu Arven.Lystin virtist alltaf fara þverrandi.Andreas reyndi eins og hann gat til að fá hana til að borða en allt kom fyrir ekki..Og boltinn var ekkert skemmtilegur lengur.Svo var það um morguninn þ 27/10  að ég kom uppí brú um  lá svartur plastpoki með einhverju í á gólfinu og þegar ég þreifaði á honum fékk ég grun minn staðfestan,Litla Arvin var dáin.Það er ótrúlegt að sjá glitta tár í augum sumra þessara drenga sem telja"very cool"yfir litlum hvolpi.En svona er það nú..Menn voru miklu hljóðari það sem eftir lifði ferðar.

  Andreas að reyna að mata litlu Arven

 Við komum svo til Port Stanley að snemma að morgni þ 4/11.Þá vildi ekki betur að þegar við vorum að leggja að bryggju bilaði"gírinn við aðalvélina svo að"Jólaskipið"kom eiginlega upp í sjálfa aðalgötuna.Og ekki nóg með það heldur strönduðum við,við aðalklóak bæjarinns(þar eru ekki neinar dælustöðar sem pumpa"skítnum"langt út á haf)Eftir að allur floti heimamanna var komin á vettfang og með að hífa í akkerið(sem hafði verið notað til að reyna að stoppa skipið)komumst við á flot aftur og að bryggju.Eyjaskeggar gerðu góðlátlegt grín að öllu saman og sögðust adrei hafa fengið"Jólaskipið"uppí aðalgötuna fyrr.

"Jólaskipið"laust úr klóakinu 

 Ég minnist þess ekki að hafa komið í höfn þar sem maður hefur verið eins velkominn í eins og þarna,Eyjaskeggjar voru mjög vinalegt fólk sem virtust vera mikið blandaðir,.Landslag minnti á Ísland.Þegar við komum í nóv. var vor.Veturinn ekki alveg búinn.Þurftum að stoppa 3 eða 4um sinnum vegna að það byrjaði að snjóa.Eyjabúar lifa aðallega á landbúnaði.Eina frakt frá Eyjunum er ull og gærur.Mér skilst að allur fiskikvóti sé leigður til útlendinga,Ekki var nú losunargræjunum fyrir að fara.En losað var með skipsbómunum.Það var ein af ástæðunum fyrir að skipið fékk þessa flutninga að það var útbúið bómum.Það fór svo nokkrar ferðir en ég varð að hætta er heim var komið úr þessari ferð vegna veikinda.En það er önnur saga En farnar eru að mig minnir 5 ferðir á ári með vörur til eyjanna.En bara í örfáum ferðum er frakt til baka.Þannig að svo verður að finna fraktir eftir losun.

 

  .Losun í Port Stanley

Meðan við vorum að losa fengum við skilaboð um að við ættum að lesta"IMO Cargo"(sprengiefni og þessháttar)í Santos í Brasilíu til nokkurra hafna í Caribbean.Við vorum svo 8 daga að losa,En mikill tími fór t.d,í að tína smáhluti sem bretarnir höfðu troðið í sem flestar glufur uppí svo til gerðar græjur.sem samanstóð af bretti og neti,Við vorum svo 7 daga upp til Santos þ 19/11 komum við þangað.Það er dálítið langur vegur upp fljót til Santos.Á leiðinni sá ég svo skip sem mér fannst ég kannast við.Ég fór nú að kíkja betur og sá þá mikið upplitaðan íslenska fánann í skut.

                           

                                                Mars Ak 100 í Santos

Skipið hallaðist nokkuð í stjórnborða.Er nær dró gat ég svo lesið nafnið"Mars"AK 100.Þarna var þá kominn Hjörleifur ex Freyja sem frændi minn Pétur Þorbjörnsson hinn kunni skipstjóri og uppoðshaldari var lengi skipstjóri á Hálf fannst mér hann umkomulaus þarna með sína stb slagsíðu og upplitaða fána.Lóðsin sagði mér að þetta skip væri til mikilla vandræða enginn vissi hver ætti það og þarna hefðu útigangsmenn og stórar rottur íverustað.Oft rekst maður á"gamla landa"í höfnum erlendis en sjaldan með eins stuttu millibili og þarna átti sér stað.Læt þetta nægja allavega í bili af ferðasögum.Kært kvödd


"Fyrsti Kvenforseti Bandaríkjanna"

   Edith Bolling Wilson

Varrnarmálaráðherran var eldrauður í andlitinu.Hann hamraði í borðið við hvert orð til að leggja áherslu á þau.:"þetta er algerlega óásættanlegt.Þessi kona hefur tekið völdin.Hver heldur hún eiginlega að  hún sé.Forseti Bandaríkjannn?"(fengið að láni úr bók Leo Bellett )Í meir en 6 vikur hafði forsetinn hreinlega verið einangraður frá þjóðinni.Nánustu samstarfsmenn,þjónar og aðrir sem reyndu að komast að sjúkrabeði forseta Bandaríkjanna Woodrow Wilson (28-12-1856-03-02-1924) var mætt af eiginkonu hans Edith (fædd Bolling) sem hleypti engum öðrum að sjúkrabeði hans en lílækni og hjúkrunarkonu.Væri erindið áríðandi varð viðkomandi að bíða við dyrnar en Edith fór inn með skilaboðin eða pappírana sem viðkomandi kom með kom til baka með undirskrifaða pappíra eða munnleg skilaboð frá forsetanum.Þeir voru til sem héldu því fram að Edith hreinlega falsaði nafn forsetans.

 

Máverk af Edith Bolling Wilson í Hvítahúsinu

Edith Bolling Galt var fædd í Wytheville Virginíu 15-11-1872.Hún var  sjötta í röðinni af 11 börnum Sally White og William Holcomble Bolling dómara.15 ára innritaðist hún í  Marta Washington sem nemandi í hljóðfæraleik og 2 árum  seinna í minni tónlistarskóla í Richmond Virginía.Í heimsókn hjá systur sinni í Washington D.C kynntist hún upprennadi gimsteinasala.Norman Galt sem hún giftist 1896.Þeim fæddist sonur 1903 sem lifði bara nokkra daga.Þessi erfiða fæðing gerði Edith að óbyrju.1908 missti hún mann sinn skyndilega,Hún lifði kyrrlátu lífi eftir lát manns síns og sennilega aldrei kynnst Wilson forseta ef læknir forsetans hefði ekki verið trúlofaður einni af bestu vinkonu Edith.Doktor Gary Grayson var áhyggufullur yfir heilsu forsetans.Hann hafði misst konu sína 1914 og tekið lát hennar mjög nærri sér.Hann lokaði sig meir og meir af, og var farinn að þjást af þunglyndi.

  Woodrow Wilson

Dr Grayson hafði hitt Edith Galt mokkrum sinnum og heillast af henni.Hún var fögur,vel að sér og heillandi.Kærasta Grayson skipulagði samkvæmi þar sem þau voru kynnt þunglyndi forsetinn og hin glæsilega ekkja.Frænka forsetans Helen Woodrow Bones hélt heimili fyrir frænda sinn.Hún og Edith urðu góðar vinkonur.Oft óku þær saman í bíl Edith.Hún átti rafknúinn bíl þann eina í Washington og vakti hann oft athygli fyrir utan Hvíta Húsið þegar hún kom að sækja vinkonu sína.Vitanlega hittust forsetinn og Edith  þegar hún var í heimsókn,Þar kom svo að því að hún var boðið í kvöldverð í einkaíbúð forsetans.Planið fór að virka.Meir og meir fór forsetinn að dragast að hinni fögru fertugu Edith.Og hann byrjaði að skrifa henni.Hann sendi henni bók með litlu korti:"Ég vona að bókin verði þér til ánægju.Þú hefur gefið mér svo mikið"Og í kjölfarið komu svo fleiri kvöldverðarboð,Og svo eftir einn kvöldverðinn kom svo bónorðið.Í minningum skrifar hún"Án þess að hugsa um að vinskapur okkar hafi tekið þessa og án þess að hugsa um að það gæti sært hann svaraði ég;"En það getur ekki verið að þér elskið mig.Þér þekkið mig ekki:Svo svo er minna en ár síðan kona þín dó""Wilson svaraði"Ég skil að þú lítur á samband okkar sem góða vináttu.

   Hvíta Húsið

En hér í Hvíta Húsinu mælir maður ekki tíman í vikum,mánuðum eða árum.Hér er það löng reynsla manna sem stýrir atburðarrásinni.Síðan kona mín dó hef ég verið einmana og lifað gleðilausu lífi.Ég var hræddur um að særa þig og kannske hneyksla.En það vel þekki ég þig að ég hefði aldrei fært þetta í tal við þig ef ég hefði ekki verið búinn að ráðfæra mig við dætur mínar og frænku.Viltu verða konan mín?"Og forsetinn útskýrði fyrir henni að þau gætu ekki haldið áfram að hittast án þess að trúlofa sig.Fjölmiðlarnir vöktu yfir hverju skrefi fosetans.Hann gæti aldrei koma í heimsókn til hennar án þess að það vekti umtal á einn eða annan hátt.Og að hún gæti heldur ekki komið í Hvíta Húsið nema við opinberar athafnir.Í langan tíma reyndi hann að sannfæra hana.Með tárin í augunum tjáði hann henni ást sína og að hann gæti ekki lifað án hennar."Ef þú neyðir mig til að gefa svar núna verður það að vera nei"sagði hún."Ég verð að fá tíma til að átta mig.síðan maður minn dó hef ég ekki hugsað mér að gifta mig aftur."Og forsetinn varð að láta sér það svar nægja.

 Máverk af Wilson í Hvíta Húsinu

Í fleiri mánuði hugsaði hún málið:Ætti hún að segja já,myndi hún gera hann hamingusaman.Myndi hún passa í hlutverkið sem forsetafrú.Spurningarmerkin voru mörg.Og ekki var það til að létta undir með henni að bæði frænka forsetans og læknir sögðu henni að forsetinn væri að falla aftur í gamla þunglyndið.Hún ferðaðist milli staða til að finna ró og hugsa yfir stöðu sinni.Þegar hún kom svo heim eftir 2ja mánaðar fjarveru beið hennar vöndur af gulum rósum ásamt boðskorti í kvöldverð í Hvíta Húsinu,"Hann kom út úr Bláa herberginu"skrifar hún seinna í minningum sínum"hann var virkilega myndarlegur í dökkum fötunum þegar hann kom til mín með opinn faðminn og faðmaði mig að sér um leið og hann heilsaði mér.Þegar ég faðmaði hann að mér og horfði beint í augu hans þá brast eitthvað innra með mér.Ég vissi þá að ég vildi ganga með honum til enda veraldar"Svo í ökuferð eftir kvöldverðinn fékk hann sitt já í áheyrn bílstjórans og öryggisvarða.Næsta dag 15 september 1915 opinberuðu þau svo trúlofun sína

Staðsetning"Bláa herbergisins"

En nú fór slúðrið á fulla ferð.Illkvittnar sögur komust á kreik,Sú illkvittnast var sú að Dr Grayson átti að hafa eitrað fyrir fyrri konu forsetans svo hann gæti giftst Edith.Og það varð verra Sama dag og trúlofunin átti sá sér stað kom kona að nafni Mary Allen Peck fram í dagsljósið.Hún uppástóð að Wilson hefði skrifað henni yfir 200 bréf og sent henni 7.500 dollarra.En Peck fannst hún auðmýkt og yfirgefin og hótaði að gera bréfin opinber ef Wilson giftist Edith Bolling.Það voru 2 af Wilson nánustu samstarfsmönnum er sögðu honum frá þessu.Honum brá mjög við frétirnar.Hann mundi eftir þessum bréfum,og hann þekkti til Peck.Hann hafði hjálpað henni í erfiðleikum sem hún hafði átt í.Peningana hafði Wilson lánað henni prívat og tekið veð í húsi hennar,Hann var klár á að þetta mál gæti skaðað hans pólitíska feril.En Wilson leit það alvarlegri augum ef Edith flæktist í málið.Hann kallaði á lækni sinn Dr Grayson og bað hann að fara undireins til Edith og segja henni sannleikan og að ég leysi hana undan trúlofunni og giftingarheitinu ef hún vill það.Dr Grayson gerði það sem fyrir hann var lagt.Hann sagði Edith hvað hafði skeð,Hún setti hljóðan og sendi Grayson með skilaboð um að hún myndi svara forsetanum skriflega.

Skopmynd af Wilson frá 1913

Eftir að hann var farinn,sat hún lengi og hugsaði sitt mál."Ég byrjaði að sjá hlutina í réttu ljósi,Það var okkar líf sem þetta snérist um.Stjórnmálin og hneykslin var allt annað.Ef mér þætti ekki svo vænt um þennan mann til að bera með honum hans byrðar þá er þetta ekki ást"skrifaði hún í minningum sínum.Hún settist við skrifborðið og skrifaði langt svar til hans þar sem hún vottaði honum ást sína og þá ákvörðun sína að standa við hlið hans á hverju sem dyndi:"Ég geri það ekki af skyldurækni eða meðaunkun eða af heiðrinum sem fylgir því að vara forsetafrú en ég geri þetta af ást",Síðan sendi hún sendiboða með svar sitt.En hún fékk ekki svar strax og ekki daginn eftir eða þar næsta dag.En 3 dögum seinna birtist Grayson.Hann bað hana að koma strax með sér í Hvíta Húsið"Er það hann sem biður um það?" spurði hún,Nei svaraði Glayson og hristi sorgmæddur höfuðið,

 

Hann er veikur og þegar ég talaðu um að sækja þig vildi hann það ekki,honum fannst það ekki réttlátt gagnvart þér,En þú verður að koma,ég óttast um líf hans.Hún fór með honum.Þegar hún kom inn í svefnherbergi hans brá henni.Þarna lá hann frekar dauður en lifandi.Andlitið hvítt og augun virtust líflaus.Hann sagði ekkert en rétti fram aðra hendina til að heilsa henni.Grayson skildi þau eftir ein.Þau sátu þögul um stund og hún hélt í hönd hans sem var ísköld."Fékstu bréfið frá mér"spurði hún.Hann kinnkaði kolli.En hann hafði ekki opnað það.Hann hafði ekki þorað að opna það af hræðslu um að hún hefði hafnað honum.Þann 18 des.giftu þau sig á heimili Edith þau höfðu lítið tíma fyrir sig sjálf. 2 árum seinna var Wilson neyddur tl að láta USA verða þátttakandi í 1stu Heimstyrjöldunni.

    World War 1  Wilson lætur þjóðþingið vita um slit á stjórnmálasambandi við Þjóðverja 3 febr.1917

 Árið þar á eftir og eftir vopnahléið var Wilson mikið upptekinn við að reyna að stofna Þjóðabandalagið og fór m.a. til Evrópu til að koma því á,Samhliða friðartilraunum hans átti hann áhrifamikla andstæðinga sem gerðu honum lífið leitt.Hin nýja frú hans stóð við hlið eins og klettur.Án hennar hefði hann sennilega ekki staðist álagið.Heilsa hans hafði verið léleg í forveg og undir friðarsamningum í París 1918 hafði hann fengið aðkenningu af slagi.

  Wilson kemur heim eftir Versalasamningana

Sennilega náði hann sér aldrei alveg af því.Hann fékk svo alvarlegt bakslag í  kosningaferðalagi sínu í USA haustið 1919.Sennilega gerðu menn mistök að reyna að leyna veikindum hans.Allslags slúðursögur fóru á fullt,Hann var orðin geðveikur,hann hafði smitast af sýfilis í París og fl í þessum dúr.Og af pólisískum andstæðingum því var haldið fram að honum væri haldið sem fanga í Hvíta Húsinu.En eina sem"lak"þaðan út var að hann hefði fengið taugaáfall og væri á góðum batavegi.

 Wilson á fundi með ráðherrum sínum

Nú rétt 1 öld seinna vita menn að forsetinn var milli heims og heljar,Hann hafði fengið heilablóðfall sem gerði það að verkum að hann varð mállaus og hann hafði hálflamast.Ástand hans var eiginlega þannig að eftir stjórnarskránni hefði hann átt að láta völdin í hendur varaforseta síns.En þrátt fyrir það þá hélt Edith maka sínum einangruðum á sjúkrabeði sínu og bannaði læknunum að segja sannleikann.Hún sjálf var þess full viss að hann mundi ná sér.Hún var þess fullviss að ef náttúran fengi að hafa sinn gang myndi það ske.Og kraftaverkið skeði.Eftir 17 mánuði hafði Wilson náð sér það vel að hann birtist opinberllega aftur,En allan þann tíma sem hann var frá stjórnaði Edith Bolling  Wilson eiginlega þessu máttugasta ríki heims.Þrátt fyrir að hann væri lamaður öðrumegin hélt hann áfram forsetastörfunum og vildi t.d fara fram á endurkosningu,En bæði Edith og hans nánustu samstarfsmenn töldu að nýr kosningaslagur yrði honum ofviða.

 Heimili Wilson hjóna að:"Embassy Row sem var gert að safni um hann 1994

 1921 eftirlét svo Wilson embættið til Warren Harding, og 3 árum seinna dó Wilson,,Edith Bolling Wilson dó 28 desember 1961 (á 105 ára afmælisdegi bónda síns)89 ára gömul Í 40 ár helgaði hún líf sitt til að heiðra minningu manns síns Woodrow Wilson. Forsetanum sem hafði helgað líf sitt friði Hún var ein af 4 langlífustu forsetakonum USA.Hinar voru Bess Wallace Truman,Lady Bird Johnsn. og Bety Ford.

 

   Woodrow Wilson's signature 

Þúsund dollara seðill með mynd af Wilson sem ekki mun vera í umferð lengur og"Signarur"hans,og grafreitur Woodrow Wilson í Washington National Cathedra.

Ég vil en og aftur minna menn ef einhverjir nenna að lesa hingað.Það má alls ekki taki taka þetta sem einhverja sagnfræði.Þessu er rænt og ruplað úr hinum ólíklegustu stöðum og er afrakstur af grúski gamals mann sem alltaf hefur haft áhuga á konum og viljað"grúska"í þeim.En aldur veikindi og fyrri hegðan hefur sett honum nokkuð stólinn fyrir dyrnar svo nú "grúskar" hann aðallega í þeim á þennan hátt.Þetta er bara sett fram ef einhverjir aðrir hefðu  gaman af að  lesa t,d, um þessa sennilega gleymdu konu.Sem stundum hefur verið nefns"Fyrsti Kvennforseti Bandaríkjanna"Kært kvödd


Kona með stórt hjarta

 

 Marion Davies

Fyrir 110 árum þ.3 janúar fæddist stúlka í Brooklyn NY USA sem skýrð var Marion Cecilia Douras, Þetta stúlkubarn átti eftir að fá nafn sitt skrifað á spjöld sögunar sem: Marion Davies,Hún var yngst af 5 börnum dómara að nafni Bernhard J Douras.Hún gekk í rómversk katólskan skóla og byrjaði að æfa ballet 4ra ára.16 ára fékk smáhlutverk í einni  af NY revíunum þar sem revíu og söngleikjakóngurinn Florrie Ziegfield"uppgötvaði"hana,

Árið er,1918.Primadonnan í Ziegfield Follies söngleiknum hafði sett aðeins meiri andlitsfarða á sig,klætt sig í mest kynæsandi búninginn og skipað þjónustustúlku sinni að hafa hafa flösku af Kampavíni og ís tilbúið eftir sýninguna.Það lá spenna í loftinu því orðrómur var á kreiki um að blaðakóngurinn William R Hearst yrði viðstaddur sýninguna og að hann myndi koma baksviðs að henni lokinni.Eftir að fagnaðarlátunum linnti og tjaldið hafði verið dregið fyrir í síðasta sinn var það ekki  búningsklefi Primadonnunar sem blaðakóngurinn gekk til.Heldur gekk hann rakleitt til þrönga gangsins sem dansararnir héldu sig og beint til hinnar óþekktu dansstúlku Marion Davies.Þetta var upphaf að einni frægustu ástarsögu sögunnar á milli hinnar 22 ára gömlu"ljósku"og hins 55 ára blaðakóngs.Sem á þessum tíma var einn af áhrifamestu og ríkustu mönnum veraldar.Á þessum tíðspunti átti hann um 30 dagblöð og tímarit.Hann átti kvikmyndafélag,bókaútgáfu,nokkrar alheims fréttastofur,áhrifamiklar útvarpstöðvar.Hann átt meirihluta í stórum námafyrirtækjum  bæði í S - og N.Ameríku,Hann var einn af stæstu fasteignaeigendum í NY og átti miklar landeignir í Mexicó. 

 William R Hearst

Hearst - stórveldið gat með völdum sínum sett stríð af stað.Sett af forseta og komið forsetum til valda,Það hafði faktist komið stríði á milli USA og Spánar 1898 eftir byltingu á Kúbu,Og síðan haft afgerandi áhrif á stríðslokin.W:R Hearst var enginn kvennabósi sem notaði peninga sína og völd til að táldraga konur.Í15 ár hafði hann verið hamingusamlega giftur:Millicent Hearst(Millicent Veronicu Willson)sem hafði alið honum 5 syni .W:R:Hearst hafði verið konu sinni trúr og ekki þekktur fyrir nein hliðarspor.Hann hafði byggt hinn stórfenglega"Hearst Castle"utanfyrir San Simeon í Kaleforníu.Þar sem stórstirni og annað frægt fólk þess tíma eins og t.d.Gary Grant:Max Brothers Charlie Lindbergh .Joan Crawford Calvin Coolidge Chaplin.Mary Picford.og Winston Churchill voru tíðir gestir.Í Hearst Castel var engu tilsparað.Innanhússundlaug með gullklæddum veggjum.Útisundlaug í Rómverskum stíl.Marmaragólf,og dýr listaverk frá öllum heimshornum á veggjum.Margar sögur gengu un hvernig Hearst hitti M.Davies.Ein var sú að Millicent Hearst hafi sjálf bent maka sínu á hana eftir að hún hafi átt að hafa séö Davies í söngleik"þessa stúlka ætti að fá hlutverk í myndinni sem þú ert að láta framleiða"á hún að hafa sagt við mann sinn.

 

 

              Úr Hearst Castel

En trúverðugustu heimildirnar eru sagðar komnar frá hinni frægu"blaðurskjóðu"Heddu Hopper"sem sagðist hafa verið í leikhúsinu kvöldið fræga 1918.Davies átti að baki sér mislukkaðar tilraunir til frægðar og frama í kvikmyndum,en fyrsta mynd sem hún lék í fyrir atbeina Hearst var"Cecilia of the Pink Rose"Menn hafa brotið heilan yfir af hverju þessi valdamikli maður féll svona kylliflatur fyrir þessari,jú fögru en að mestu óreyndu stúlku.Menn hafa helst hallast að því að það hafi verið hvernig hún umgekkst hann með algeru ótta- og virðingarleysi,En slíku var hann ekki vanur.Hún hreinlega neitaði vera honum undirgefin og stofnaði oft til rifrildis við hann opinberlega og prívat. Hearst yfirgaf fjölskyldu sína fljótlega eftir þeirra fyrsta fund og byrjaði að búa með henni.Hann skildi þó aldrei að lögum við konu sína og við opinberar athafnir var hún yfirleitt við hlið hans.

  Millicent Hearst

 Millicent viðurkenndi aldrei aðskilnað þeirra,Hann talaði við hana daglega og þau reyndu að skapa börnum sínu eins áhyggulaust líf og þeim var unnt,Hearst var Davies stundum frekar faðir en elskhugi.Hann kenndi henni tungumál og hvernig maður ber sig að í samkvæmislífinu.Margir af vinum Hearstfjölskyldunar reyndu að fá hann til að snúa til baka til konu sinnar en án árangus.Þó að Hearst og Davies væru saman á ferðalögum veitingastöðum og hótelum og öll þjóðin vissi um samband þeirra þá kom aldrei orð um samband þeirra í slúðurdálkum blaðanna.Davies var aðallega fræg fyrir leik í gaman-og söngvakvikmyndum.Hún léh m,a,á móti Leslie Howard. Clark Gable,Bing Crosby.Gary Cooper og fl.

Hún er talin hafa átt í stuttum ástarsamböndum við Charlie Chaplin og Dick Powel.Samband hennar við Chaplin átti eftir að draga stóran dilk á eftir sér.19 nóv 1924 voru Davies og Hearst um borð í lystisnekkju Hearst"The Oneida"ásamt nokkrum gestum þar á meðal Chaplin og kvikmyndaframleiðandanum Thomas Harper Ince(sem stundum var kallaður"faðir kúrekamyndanna)og fleiri.Tilefnið var 42 ára afmæli Ince.Hearst mun hafa verið óður úr afbrýðisemi út í Chaplin út af sambandi þeirra Davies.Eftir að hafa tekið feil á Chaplin og Ince í myrkrinu á Hearst að hafa skotið Ince í misgripum.(Hugsið ykkur af hve miklu við hefðum misst ef hann hefði ekki tekið feil ef sagan er sönn)Síðan á Hearst að hafa beitt áhrifum sínum svo að Ince var sagður hafa látist af hjartaáfalli.Sagan segir að Herman Mankiewiz,höfundur kvikmyndahandritsins að"Citizen Kane"kvikmynd sem Orson Welles gerði og sem á að hafa Hearst sem  fyrirmynd að aðalpersónu.hafi skýrt Welles frá sannleikanum í málinu.Welles á svo að hafa sagt Peter Bogdanovich söguna í sambandi við útgáfu bókar um Welles:"This is Orson Welles"Leikrit um atburðin varð til,sem svo varð að kvikmynd sem Bogdanovich gerði  2001 sem heitir:"The Cat´s Meow"

    Ince     Chaplin 

Í myndinni leika m.a.Edward Herrmnn (Hearst) Eddie Izzard (Chaplin) og Kristen Dunst (Davies)

Sambandið við Povell stóð svo stutt yfir á fjórða áratugnum

 

Hún gaf svo kvikmyndaleik upp á bátinn,Bæði vegna þess að henni sjálfri fannst að henni skorti hæfileika til dramatískra hlutverka og einnig af því að elskhugi hennar vildi ekki sjá hana í fleiri hlutverkum sem hina"heimsku ljósku"Þeir sem grunuðu Davies um græsku um að táldraga og féfletta Hearst fengu sönnun um hið gagnstæða.Í verðhruninu 1929 missti Hearst mikil auðæfi.Og um 1938 átti Hearst í miklum fjárhagsvanda.Davies skilaði honum aftur öllum verðmætum sem hann hafði gefið henni í sambandi þeirra,En það voru skartgripir og listmunir fyrir miljóna dollara.Hún gaf honum einnig villu sem hún sjálf hafði keypt sér í Holywood,Hearst stóð af sér óveðrið og skilaði henni þá aftur öllu sem hún hafði afhent honum.En sett þó eitt skilyrði fyrir villunni.Að hann hefði rétt á að búa í henni til æfiloka.Þetta samþykkti Davies með mikilli ánægu.Lífið hafði leikið Hearst grátt og hafði hann eldst mikið á fáum árum.Hann var ekki eins valdamikill og áður.Stjórnmálamenn og fólkið í landinu hræddust hann ekki sem áður og fjölskyldan leit á hann sem fjarskyldan ættinga,En Davies stóð við hlið hans,Hún hjúkraði honum las fyrir hann og sá til að honum liði vel.1947 fékk hann hjartaáfall.Með hjálp Davies tókst læknunum að halda honum til lifs.En 1951 var það búið.Hearst kvartaði um vekjum í fótunum

 

.Læknarnir ákváðu að gefa honum blóð.Davies sat við hlið hans og strauk honum um ennið,Þarna sat hún og rifjaði upp fyrir honum hamingusamt samband þeirra sem hafði staðið í um 30 ár,Hann reyndi að kyssa hana og þá var það búið svo dó hann 88 ára,Davies var óhuggandi.þrátt fyrir að hún hafi verið viðbúinn þessu.Læknarnir gáfu henni róandi sprautu og hún sofnaði.Hún vaknaði svo einsömul með hjúkrunarkonu hjá sér.Þegar hún svaf höfðu forstjórar Hearts veldisins og ættingar sett allt á fullt.Líkið flutt með flugvél til San Fransisco án vitundar Davies,Plan sem hafði verið gert þegar menn sáu að hverju stefndi hafði verið sett í gang,Í blaðaviðtali sagðist hún hafa verið svikin"Ég fékk ekki að kveðja hann"sagði hún,Það var mikil spenna hjá ættingum er erfðarskráin var opnuð.Það létti svo yfir fólki þegar að það sem það óttaðist stóðst ekki.Það var ekki minnst á Marion Davies í erfðarskránni.En svo dimmdi yfir aftur.W,R,Hearst hafði einu ári fyrir dauða sinn stofnað sjóð henni til handa  þar sem hann ánafnaði henni ábatan af 30.000 hlutabréfum í Hearst - veldinu til æfiloka.Og atkvæðisréttur þessa hlutar var meiri en 130.000 hlutabréfanna sem eftir stóðu.Hearst hafði gefið völdin yfir Veldinu til Davies.Erfingunum og stjórnendum fannst jörðin gliðna undir sér.Bestu lögfræðingar sem völ var á voru ráðnir til að fá þennan sjóð ógildan.En Davies yppti bara öxlum;"Mér líkar ekki hugsunin um réttarhöld.Ég veit ekki hvað ég á að gera,En ég vil helst ekki gera neitt sem væri á móti W,R,H vilja."Enginn veit svo hvað gerðist bak við tjöldin,En samkomulag var gert í góðu,Eina sem Davies lét hafa eftir sér var:"Ég seldi öll mín völd fyrir dollar,Kannske gerði ég mistök .En nú er þessu öllu lokið,"Tíu vikum eftir dauða Hearst gifti Davies sig skipherra í flotanum Horace Brown.Þeir sem sáu brúðkaupsmyndina fannst brúðguminn minna merkilega mikið á William R,Hearst,

          

1941 gerði leikarinn/leikstjórinn Georg Orson Welles(1915-1985)kvikmynd sem heitir Citizen Kane.sem að margra mati er nefnd besta kvikmynd allra tíma.Welles lék sjálfur aðalhlutverkið.En fyrirmynd að þeirri persónu er sagt að sé William R Hearst.Fyrir bragðið varð fullur fjandskapur á milli Welles og Hearst.1996 var svo gerð heimildarmynd um átökin milli Welles og Hearst,Sem keppti um"Óskarinn"en tapaði fyrir mynd um Önnu Frank

 

Davies fékk aðkenningu af heilablóðfalli 1956 og greindist með krabbamein sama ár sem hún fékk bót á eftir uppskurð.Hún lét mikið gott af sér leiða í allslags velferðarmálum sérstaklega í sambandi við börn..Davies dó svo af krabbameini 1961.Hún var jarðsett í"Hollywood Forever Cemetery" að viðstödu fjölmenni m,a.Mary Pickford og Herbert Hoover.Er hún dó lét hún eftir sig meira en 30 miljónir dala,Áður hafði hún gefið milljónir til góðgerðarstarfsemi.En saga Marion Cecilia Douras er stundum nefnd sem dæmi um konur með stórt hjarta.Þetta er ekki hugsað sem nein sagnfræði heldur er þetta afleiðingar af grúski gamalls karls sem ekkert þarfara hefur að gera.Um merka,en sennilega gleymda konu.Og sem kannske einhver annar hefði gaman að lesa um.Kært kvödd

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  


Munnræpa

 

Ég tek ofan fyrir Geir Jóni Þórissyni.Loksins,loksins kemur háttsettur maður undir Dómsmálaráðuneytinui og viður kennir að þar starfi mennskir menn.Viðurkennir að gerð hafi verið místök sem hann harmi.Alltof oft hefur maður þurft að hlusta á útþynntan vaðal af útskýringum á að engin mistök hafi átt sér stað.Mér finnst það alveg með endemum hvað valdamenn og/eða svokallaðir fyrirmenn í þessu þjóðfélagi hella af helberum þvætingi yfir almenning í landinu.Mér fannst Geir Jón komast vel frá Kastljósi kvöldsins.Og það á merkisdegi fyrir einn af forverum hans í starfi en í dag (31/8) eru 80 ár síðan Erlingur Pálsson synti hið fræga Drangeyjarsund

Ég held að æðsti yfirmaður,(ráðherra dómsmála) Geir Jóns ætti að fara með honum út í Drangey í tilefni dagsins og láta hann(Geir Jón)kenna sér í ró og næði hvernig menn viðurkenna mistök á hreinni íslensku og tæpitungulaust.Það er forkastanlegt hvað sumir af þessum fyrirmönnum bera á borð fyrir fólk með sæmilega greind,Manni dettur helst í hug Brytinn á Bessastöðum að tala niður í Svartholið þar,til þeirra félaga Jóns Hreggviðssonar,Ásbjörns og Hólmfasts.Hvernig þvættingurinn lekur út um bæði munnvikin,og kjafturinn á þeim gengur rangsælist´þegar þeir tala t.d hvernig heimsmarkaðsverð á bensíni hefur bara áhrif á eina bensínstöð úti á Kársnesi.Og hvernig"óþurftarlýður"espar fólk til að kjósa ranga menn í prófkjöri,að maður tali nú ekki um þann"rumpulýð"sem strikar yfir nöfn mætra manna svo þeir falla um sæti.Mér finnst þetta frekar ætti að kallast munnræpa heldur en það sem orðið stendur fyrir í dag en það er yfirleitt lyktarlaust.Því að af sumri ræpu,allavega leggur oft mikinn fnyk.

Allstaðar þar sem ég hef komið erlendis og menn hafa einhverja hugmynd um þetta littla sker norður í höfum þá hefur mér funndist fólk líta á okkur sem sæmilega vel upplýsta þjóð,Þess vegna er þetta furðulegt hvað sumir innfæddir ráðamenn telja sig hátt yfir okkur hin hafnir,Maður er kannske ekki að fara fram á það sama og Vilhjálmur frá Skáholti fer fram á er hann í kvæði talar við"sinn"herra:

"Hvað sem trú vor týndum sauði lofar

ef taglsins auðmýkt nær í hjartað inn

mig langar til,er tunglið færist ofar

að tala við þig eins og bróðir minn"

Mér eru minnistæð orð,Ingólfs þórðarsonar hins mæta og eftirminnilega kennara við Stýrimannaskólan,við einn af nemendum sínum sem viðurkennt hafði að frávera sín,frá prófi hefði stafað af afleiðingum glaums og gleði næturinnar fyrir prófið:"ja það er gott að ennþá skuli finnast menn á Íslandi sem viðurkenna í sér helv.... vitleysuna en þykjast ekki hafa étið eitraðar sardínur"sagði´ann.Mér finnst oft hroki við almenning smjúga hreinlega inn í merg og bein.Skelfing væri það nú uppörvandi fyrir menn sem komnir eru á efri ár og hafa unnið sínu landi vel að þessir svokallaðir mektarmenn færu að tala við þá eins og það væri meira á milli eyrnana á þeim en grautur sem ég hataði sem barn.

 

Gefum Vilhjálmi frá Skáholti aftur orðið:

"Sjá margoft hefur staðið styr um þeirra nöfn

sem státa sig um nætur í veislum betri manna

og lítið hafa syndgað og lítið gist í höfn

en lifa vel á gulli og elsku manna"

Ég var um tíma stm/skipstjóri hjá íslenskri útgerð.Eitt af skipunum var með svokallaðan"ramp"í skutnum þar sem hægt var að aka þungum farartækjum inn auk hliðarports þar sem lestað/losað var á lyftur sem fluttu vöruna eftir þörfum.Einnig var skipið búið 30 t krana,Eitt sinn þegar ég var skipstjóri var ég kallaður á fund forráðamanna útgerðarinnar.Ég var spurður hvort ég treysti mér til að snúa skipinu í vissri höfn þannig að skuturinn kæmi að bryggjunni,Það byðist flutningur á þungu tæki(sem ég man ekki lengur hvað var)til þessarar hafnar.

 

Ég sá engin vandkvæði á því en sagði í leiðinni að það væri best að hringa í umboðsmann útgerðarinnar í viðkomandi höfn og spyrja um bilið á milli bryggjupollana svo að öruggt yrði að rampurinn kæmist á milli þeirra,"Nei það er alveg óþarfi"var sagt"við eru búnir að tala við verkfræðingina hjá"Vitamál"og þetta á að ganga"Ekki meir um það.Skipið var lestað með tækið aftast við rampinn síða brettavara og gámar undir og uppá lúgunni,Nú til að gera lengri sögu styttri að þegar við vorum búnir að snúa skipinu í höfninni(sem var sú 1sta í ferðinni)komst ekki rampurinn niður.Of lítið bil á milli polla.

 

Það varð svo náttúrlega úr að við lögðum skipinu uppað eins og venjulega urðum svo að hífa alla gáma í land, keyra alla brettavöru sem var fyrir framan tækið einnig í land,svo að við gætum híft  það í land.Allt þetta tók að mig minnir um 12 tíma.Sem ef,hringt hefði verið í ómenntaðan mann í staðinn fyrir spekingana hjá fyrrgreindri stofnun ekki tekið nema 1-1 ½ tíma Það hefði ekki verið neinn vandi að lesta skipið með tilliti til þessa.Hræddur er ég um að hefði einhver svona mistök orðið hjá óbreyttum starfsmanni eins og t,d mér hefði það getað kostað ja allavega miklar ákúrur


Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Ágúst 2007
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 4
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 537313

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband