"má ekki nefna"

Það er sumt sem maður má ekki nefna orðið hér á landi Ef maður segir skoðun sína á t.d. kynhneigð þá er maður fullur fordóma. Ef maður hefur skoðun á innflytendum og segir hana er maður rassisti. Það er hreinlega mikil þöggun í gangi um nokkur mál, Ég tala nú ekki um mál sem kemur við kaunin á vissu fólki í vissu póstnúmeri Kært kvödd
mbl.is Meiri harka í fangelsunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Ítölsk yfirvöld hafa"

Ítölsk yfirvöld hafa oft verið talin höll undir Mafíuna þar í landi. Nú virðist hún hafa fengið þor til að afmá þennan halla. Annað en má segja um stjórnvöld á Íslandi sem ekki þora að gera neitt nema að setja enn betri halla undir Mafíuna hér.

 

 

Svo nú er leiðin með réttum halla og greið fyrir þessa glæpamenn út í fjársvikin enn um sinn. Að öllu óbreyttu á þessari "tæru" vinstristjórn eftir að vera minnst sem stærsta písk á almúgann. Stjórn innbyrðis tilbúna hlægilegra vandamála vegna ámátlegra tilrauna sumra ráðherra til að klóra yfir lygaskítinn  Ef einhver vindur væri til í hinni tæru ætti hún að svifta stærstu bankaræningana íslenskum ríkisborgararétti.

 

Við eigum að losa okkur við glæpamenn hverra þjóða þeir væru úr landinu, Og fg íslenskir glæpamenn hafa fyrirgert rétti sínum að vera Íslendingur, Við náum aldrei neinu að ráði úr þeirra sívaxandi sjóðum. Þessvegna á að losa okkur frá að sjá þessi hálfglottandi fés dafna enn og aftur hérlendis við að merja peninga út úr alþýðunni.

 

Við flögguðium öllum kaupaskipaflotanum út og ættum ekki að vera í vandræðum að flagga þessum andsk.... einnig. Með banni um að stíga fæti hér á land. Ef þeir voguðu það þá mætti skj... þá hvar sem þeir sæust Kært kvödd


mbl.is Tóku eignir kaupsýslumanns eignarnámi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"af hreinni samvisku"

Mér finnst nú bara einn flokkur úr húsinu við völlin geta talað af hreinni samvisku eithvað um afsagnir, Þar á ég við fv Eimskipafélagssjómannin Þór Sari & co Kært kvödd
mbl.is Skýr og brýn ástæða afsagnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Svo bregðast krosstré"

Svo bregðast krosstré sem önnur tré. Er nú einn aðal "riddari götunnar" úr svokallaðri búsáhaldabyltingu fallinn??. Er að sannast og aftur og enn að"Byltingin étur börnin sín" ?? Kært kvödd
mbl.is Gylfi og Jóhanna töluðu saman
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"ekki löghlýðnasti maður Íslandssögunnar"

Ég er ekki löghlýðnasti maður Íslandssögunnar. En ég hef orðið að taka ábyrgð á því sem ég hef óhlýðnast. Og ég er eins gamall og á grönum má sjá. En mér dettur ekki í hug að þessir glæpamenn sem stóðu að stærsta "bankaráni" í fg sögu verði látnir taka einhverja ábyrgð á gjörðum sínum.

 

 

Rökin eru of mörg til að trúa því,  Og þetta vita þeir sem vilja vita. Margir af þessum glæpamönnum eru aftur komnir í (hafa aldrei horfið þaðan sennilega í raun) raðir ríkustu manna landsins.

 

Þeir gefa skít í íslenskt réttarfar. Vita sem er að vildarvinabræðralagið bjargar þeim. Ég sagði íslenskt réttarfar því ég held að íslenskt réttlæti sé ekki til. Þjóðið sjálf mærir þessa menn.

 

 

Hvernig væri ef menn hættu að versla í Bónus, segðu upp Stöð 2, hættu að kaupa Fréttablaðið o,sv fr o.sv fr. Meðan það er ekki gert er engin meinig í bulli fólks um að sækja þessa menn til saka. Því þjóðin borgar fyrir þá rándýra verjendur. Og á meðna á þessu stendur stendur þessi lýður glottandi álengdar yfir heimsku fólks Kært kvödd


mbl.is Jón Ásgeir svarar fyrir þá stefndu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"hve litla athygli kvennafótbolti "

Mér finnst satt að segja með hreinum endemum hve litla athygli kvennafótbolti virðist vekja hér á landi. Ekki það að ég sé eitthvert "fótboltafrík" en mér finnst gaman af fallegu spili,

 

Þegar ég bjó í Svíþjóð var ég eitt sinn í takkaleik við fjarstýriguna á laugardags eftirmiðdag. Þá "datt"ég niður á kvenaknatspyrnuleik milli Umeå og einhvers finnskt liðs. Það endað með að ég horfði á allan leikinn  (ólíkt mér) og hafði mikið gaman af.

 

Stelpurnar voru algerlega óhræddar við að "fara í "andstæðinginn og spiluðu virkilega skemmtileg knatspyrnu. Mig minnir að  þetta Umeå lið hafi verið með þeim betri í Evrópu Kært kvödd


mbl.is „Hélt að ég myndi fara að grenja“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"miðspaugsstofan"

Ég gæti komið til með að sakna þeirra spaugsstofu sem fyrirsögnin vitnar til. En ekki þeirrar sem hefur aðsetur við Lækjartorg að maður tali nú ekki um þá sem er við Austurvöll. En mér finnst satt að segja nóg komið af spaugstofum í bili.  Þær eru í fjölmiðlum sama hvaða nafni þeir nefnast á hverjum degi

 

Og mér finnst það nú með hreinum endemum að miðspaugsstofan, í upptalningunni skulu láta það líðast að fyrirtæki sem stjórnað er af fólki úr "útrásarvíkingahópnum" skuli komast upp með að ná til sín réttinum af sýningum frá HM í handbolta til að geta kreist meira úr úr almenningi þessa lands enn meiri peninga

 

Þetta var eitt af því fáa sem Ríkissjónvarpið hefur haft upp á að bjóða fyrir þá sem eru hér niður á jörðinni. Ég kem ekki til að  sakna þess. En ég veit um marga á mínum aldri sem gera það. Fólk sem engin efni hafa á þessum aukasjónvarpsstöðvum. Kært kvödd


mbl.is Munt þú sakna Spaugstofunnar?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"gamlir moðhausar"

Enn og aftur kemur mál sem gamlir moðhausar mér líkir skilja ekkert í. Þessi "fræðingurinn" segir þetta og hinn "fræðingurinn" hitt.

Hverju á maður að trúa?? Þarf ekki í þessari "umboðsmannafári" að fara að stofna Umboðsmann almennings.

 

Hans verksvið verði t.d. að taka hluslausa(eins hlutlaus og hægt er hér á landi) afstöðu ti svona mála t.d. Einnig að setja niður við, fyrir hönd umbjóðenda sína, íslenska ráðamenn þegar lygabullið hefur náð yfirhöndinni í tali þeirra.

 

Og ég er viss um að umboðsmanni almennings yrði vel tekið og hann fengi næg verkefni. Kært kvödd


mbl.is Hvetja alþingismenn til að fella frumvarpið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"ske í kring um þá"

Íslenskt stjórnkerfi viðist vera með endemum. Ráherrar, (allavega þykast þeir ekki ) virðast stundum ekki vita baun um hvað er að ske í kring um þá, Hvort þetta er satt veit ég ekki.

 

Eða hvort ráðherrar eru þarna að klóra yfir skítinn og kenna undirmönnum um vitleysuna, En stundum gengur þessi "óvitaskapur" ráðherra  algerlega fram af manni Ég held að við eigum heimsmet í óvitaskap hjá ráðherrum Kært kvödd


mbl.is Talið nóg að kynna minnisblaðið ráðuneytinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"síðasta söludag"

Það er staðreynd fólk veigar sér við að kaupa matvöru þega hún fer að nálgast síðasta söludag. Þegar ég bjó í Svíþjóð voru í sumum búðum allavega sérstakir básar fyrir slíkan mat sem þá var jafnvel undir hálfirði.

 

Viðvörunar merki voru yfir básunum þar sem fólki var gert þetta ljóst, Oftast var mikil ásókn í þetta af innflytendum eldri borgurum og fl. Ég keypti oft þannig mat og fann ekkert athugavert við matinn. Af hverju er svona básar ekki leyfðir.

Svo þeir sem það vilja geti verslað þennan mat. Það er blóðugt að það skuli vera hent mat fyrir tugi ef ekki hundruði milljóna meðan stór hluti þjóðarinnar hreinlega sveltur. Kært kvödd


mbl.is Rannsaka hversu miklu magni matvæla er hent
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

" ílla við einhverja vini sína. "

Þetta setur en fleiri stoðir undir það sem ég skrifaði í gær. Þessir svokölluðu stjórnmálamenn og ráðherrar ráða engu Heldur klíka auðugra menntamanna sem búið er að hreiðra um sig í ráðuneytum og allstaðar. Eins og t.d þarna í tveimur ráðuneytum. Þeir voru ekkert að láta ráðherrana sjá svona skítaplögg sem gátu komið sér ílla við einhverja vini sína. 

 

Það er til gömul saga um ráðuneytisstjóra sem við skulum bara kalla Jón en ráðherra skulum við bara kalla Guðmund Svo skeði það að maður af götunni þurfti að ná tali af ráðherra og hafði komiið nokkrum sinnum án árangurs.

 

Svo kom hann einusinni enn  og spurði um Guðmund sem ekki var við. Þá spurði símastúlkan."villtu ekki bara fá að  tala við Jón sjálfan" Svo miklu réði þessi ráðuneytisstjóri að hennar mati.Kært kvödd


mbl.is Vissi ekki af áliti og krefst útskýringar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"styðja þessa menn."

Það er ekki hægt annað en styðja þessa menn. En því miður held ég að þessum fræga botni í þessari frægu kreppu sé ekki en náð.

 

Þeir þ.e.a.s þeir hjá LSS og aðrir í þessu þjóðfélagi séu ekki búnir að sjá þær kjaraskerðingar sem eiga eftir að koma í dagsljósið. Skerðingar af völdum manna sem eru á fullu út um allan heim að "ávaxta" sín pund. Kært kvödd


mbl.is BHM styður kjarabaráttu LSS
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"ná vopnum sínum aftur"

Hér er enn eitt dæmið um "útrásarvíking" á fullu. Þeir eru flestir að ná vopnum sínum aftur. Kært kvödd
mbl.is Iceland Express bætir við flugferðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Nokkrir smásendlar"

Það er bara það, það verður enginn dreginn til ábyrgðar af höfuðpaurunum.  Nokkrir smásendlar verða skotnir en hinir sleppa.  Enda eru þeir í bullandi svikamyllubraski og græða mikla peninga. Og geta því keypt sér frelsi með dýrum löfræðingum.  Allt svona er líka erfitt í landi þar sem ekki er hægt að fá dómara til að dæma knattleik öðruvísi en hann sé skyldur eða tengdur einhverjum í öðru liðinu. Kært kvödd
mbl.is Von á fleiri ákærum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

" á sandsílaleysinu"

Vinur minn danskur fiskimaður fullyrti það í mín eyru að markrill væri horfin allavega á hans veiðisvæðum en sandsílið komið aftur, Er þarna ekki komið svarið á sandsílaleysinu við Vestmannaeyjar. Markríll veiðist nú á stöng hér í Eyjum. Kært kvödd
mbl.is Geta nagað sig í handarbökin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"eru hve vel fangageymslur "

Af hverju eru það alltaf mestu fréttirnar af allslags samankomum hve vel fangageymslur eru sitnar?? Ekki veit ég hvað "Hverfissteininn" tekur marga. En er hann ekki líka fyrir Kópavog. Seltjarnarnes Álftanes og Mosfellsbæ?? Kært kvödd
mbl.is Fangageymslur fullar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Þorkell vinur minn ánægður."

Til hamingu Eyjamenn. Nú verður Þorkell vinur minn ánægður. Og ég líka. Ég hef áður lýst áliti mínu á þjálfara Eyjamanna Heimi.  Mér finnst heilbrigðin einhvern vegin skína svo af þessum manni. Og ég held að hann hljóti að vera verðug fyrirmynd ungra stráka. Aftur til hamingu Eyjamenn Kært kvödd
mbl.is Eyjamenn unnu 3:2 sigur á Haukum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"biðjast afsökunnar "

Þetta er ekkert í sambandi við þessa fyrirsögnina um rangar vísbendingar. En ég er að velta fyrir mér orðalaginum. Þegar beðist er "velvirðingar" á einhverju þá er ekki verið að biðjast afsökunnar á hlutnim /atvikinu. Eða hvað? Er það ekki léttvægara en að sega "við biðjumst afsökunnar" á þessu eða hinu?  Ég held nefnilega að orðið "afsakið" sé að detta úr málinu. Allavega úr máli hinna lærðu. Kært kvödd
mbl.is Rangar vísbendingar í krossgátu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

" þessu rándýri og hægt er."

Það ætti að leyfa eins miklar veiðar af þessu rándýri og hægt er. Markrill er horfin að mestu úr Norðursjónum svo nú veiða danir álíka mikið af sandsíli og áður. Nema að umhverfissinnum detti í hug að taka þennan óvætt upp á armana eins og suma aðra keppinauta okkar íslendinga um fiskinn í sjónum. Kært kvödd
mbl.is Smábátar mega veiða makríl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"þyrlurnar"

Hvað sagði ég áðann! Enn og aftur. Aftur og enn minna þær á sig, þyrlurnar Kært kvödd
mbl.is Slasaðist í hestaferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Ágúst 2010
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 537323

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband