31.7.2011 | 15:28
"Sprengisandsþátt"
Ég "datt" inn á þennan Sprengisandsþátt í morgunn. Ég heyrði nú samt ekki þessi orð Halldórs, En ég skil ekki af hverju Mogginn skýrir ekki frá viðtalinu við Guðbjart Hannesson.
Sem fyrir minn smekk var miklu athygliverðara en viðtalið við Halldór. Eða af hverju ekki var minnst á upprifjun á gömlu viðtali við þær stöllur Ólöfu Nordal og Steinunni Valdísi sem tekið var nokkru fyrir hrun. Þau viðtöl sannfærðu mig um þetta algera gagnleysi stjórnmála. Þær stöllur "dásömuðu" þv stjórn. (sjálfstæði og samfó)og hömpuðu báðar forustu þv flokksleiðtoga samstarfsflokkana. Þeir væru þeir einu sönnu til að stjórna landinu
Og mér fannst Guðbjartur standa sig þannig, að í mínum huga kemur engin annar til greina sem formaður Samfó til framtíðar. Maðurinn er flugmælskur og pollrólegur í sínum málflutningi. Og hann opnaði augu manns á ýmsum góðum árangri sem náðs hefur en andstæðingarnir steinhalds kja... um.
Þó ég styði ekki þessa ríkisstjórn þá finnst mér satt að segja sá málflutningur sem einungis er til þess gerður að fella ríkisstjórnina og skilur ekkert annað eftir sig ílla til fallinn. Kært kvödd
![]() |
Sveitarfélögin munu segja upp fólki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
31.7.2011 | 14:58
"Troddu þér svo inn í"
![]() |
Týndu tjaldi og gistu í fangaklefa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.7.2011 | 21:42
"suma ráðherrana"
![]() |
Margir minnast Bóbó |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.7.2011 | 21:38
"frændum vorum"
Mikil sorg ríkir nú hjá frændum vorum eftir atburði dagsins. Og ýmislegt flaug í gegn um hugann. En ég hnaut illilega um endirinn á þessari frétt þar sem segir:
"Norska fréttastofan NTB segir, að grunur leiki á að árásirnar í dag séu ekki runnar undan rifjum alþjóðlegra hryðjuverkasamtaka heldur beinist þær fyrst og fremst að norskum stjórnmálaöflum. "
Ekki þekki ég til innanríkismála í Noregi en einhver hefur, ef þetta er rétt misst þolinmæðina við einhver stjórnmálaöfl þar í landi. Ömmi Inni talar um að menn haldi ró sinni. En verður maður ekki bara að segja:" maður líttu þér nær". Verið ávallt kært kvödd
![]() |
Sást í Osló áður en sprengingin varð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.7.2011 | 11:33
"barn til blóra"
"Gott er að hafa barn til blóra og kenna því alla klækina" var einusinni sagt.
"Murdoch segir að óvandað fólk í lágum stöðum innan fyrirtækisins hafi svikið og gabbað stjórnendur þess, þar á meðal Murdoch sjálfan.Stjórnendurnir hafi ekki vitað um hleranirnar, ekki einusinni Rebekha Brooks sem var aðalritstjóri News of The World í þrjú af þeim árum sem þær voru stundaðar"
þetta er sagt í einni frétt. Þetta er háttur fína fólksins. Að klessa svona á þá lægst settu. Var það ekki flatskjárkaup og þvíumlíkt hjá okkur þessum sauðsvörtu sem kom bankahruninu af stað. Mig minnir að ég hafi lesið það og heyrt einhverntíma. Kært kvödd
![]() |
Murdoch snéri við |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.7.2011 | 20:33
"auðvelt að blindast"
Það er auðvelt að blindast og eða gleyma sér við akstur hér við höfnina íblíðunni undanfarið. Hér eru hlutirnir að gerast eins og alltaf. Síðasta vika hefur verið virklega lífleg Á föstudag voru hér að minnstakosti fjögur flutningaskip til að lesta mestalla flóruna af afurðum
Á fimmtudag
Aflaskipið Þórunn Sveinsdóttir, Axel, Onafjord
í GÆR FÖSTUDAG
Arnarfell, Silver River, Axel
Silver River
Axel
Í dag
Júpiter að koma
Wilson Aveiro að lesta mjöl
Key Fighter kom að lesta lýsi
Andi ævintýranna fór
![]() |
Blindaðist af sól og ók á staur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.7.2011 | 18:34
"við "ljóta fólkið" að fara. "
![]() |
Fallega fólkið í garðpartýi hjá Jakobi Frímanni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.7.2011 | 18:14
"fögnum við öll"
![]() |
Fagna nýrri brú |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.7.2011 | 17:39
"algerum ólíkindum "
Mér finnst það með algerum ólíkindum hvernig sú tæra stendur að þessum málum. Það á "að reyna" að leiga þyrlu fyrstu mánuði næsta árs. En þá fer TF-LÍF í umfangsmikla skoðun.
En svo er það rúsínan í pylsuendanum ef svo skáldlega má að orði komast. Hér vitna ég í greinina og eru leturbreitingar mínar:
"Fyrir liggi að TF-LÍF fari í umfangsmikla skoðun í janúar á næsta ári sem gæti tekið tvo til þrjá mánuði. Sú skoðun hafði verið áformuð nú í haust en var frestað þar sem ekki þótti viðunandi að aðeins ein þyrla væri til taks í langan tíma. TF-GNÁ þurfi hins vegar að fara í stutta skoðun í ágúst sem taki fáeinar vikur".
Aðeins einn dagur með eina þyrlu er á mjög gráu svæði. Og í ágúst, er talað um, er einn umferðarríkasti mánuður ársins Svona til hjálpar aumum fjárhag LHGÍ finnt mér að þetta lið sem tekur stórfé frá Ríkinu fyrir nefndarstörf (þótt það sé í ágætlega launuðum störfum fyrir) ætti að gefa LHGÍ launin fyrir þau. Verið ávallt kært kvödd
![]() |
Gæslan vill leigja þyrlu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.7.2011 | 17:02
"nægir peningar"
![]() |
Auðlindanefnd skipuð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.7.2011 | 19:36
"peningum bara dælt út"
![]() |
Kostnaður við Sæfara eykst |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.7.2011 | 15:14
"fólk beri minna traust"
![]() |
Hlusta eftir því sem fólk er ósátt við |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.7.2011 | 21:56
"duglegu mann"
![]() |
Staðinn að meintum ólöglegum veiðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.7.2011 | 21:38
"heimsmetabók Guinnes "
![]() |
Tillaga Sivjar í TIME |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.7.2011 | 21:35
"tregara en tárum taki"
Mér finnst það tregara en tárum taki að við íslendngar skulum ekki eiga sjálfir skip undir íslensku fána til að sýna þetta fallega land okkar. Það væri nóg að gera fyrir svona skip (ekkert bílaferjuvesen bara skemmtiferða skip)
Sigla með útlendinga já og landsmenn á sumrum hér við land. Svo með íslendinga í Caribbean Sea á vetrum. Og það eru alger öfugmæli að vöntun íslenska fánans á skipum héðan útgerðum skuli bitna aðallega á sjómannastéttinni.
Sem framar öðrum stéttum lærði að virða og elska þennan heimsins fegursta þjófána. Hverjir sem það eru, sem stóðu í vegi fyrir að hann héldi áfram að blakta í skutum skipa gerðum héðan út, mega hreinlegs skammast sín inn að beini. Verið ávallt kært kvödd
![]() |
Farþegum fjölgar með skemmtiferðaskipum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.7.2011 | 17:59
"gát að vera í fyrirrúmi."
Í þessu máli verður gát að vera í fyrirrúmi. Vitaskuld er það geðveiki, morð og hreinlega virðingaleysi fyrir lífi að gera svona. En það verður á líta á hvaðan fólkið kemur. Þetta fólk hefur upplifað miklu harðari heim en við þekkjum. Hér hefur eitthvað "klikkað" í móttöku þess.
Það þyrfti að athuga niður í kjölin. Ég hef stundum bent á fáfræði íslendinga hvað varðar líf og kjör annara þjóða. Það vill svo til að ég var sjómaður í farmennsku í ófá ár. Og við sjáum oft raunveruleikan berari augum en ferða eða námsmaðurinn. Því fátækrahverfin eru alltaf upp af hafnarhverfunum. Ég hef séð með eigin augum stóra rottu togast á um eitthvað við smábarn á öskhaug í Indlandi.
Ég sigldi oft upp Mekong fljótið til Saigon í Víetnam. Það kom fyrir að við sáum barnslík á floti á fljótinu. Þegar maður spurði hafnsögumennina svöruðu þeir að "bátafólkið" sem lifði á fljótinu væri svo bláfátæk að stúlkubörn væru oft óvelkomnar í þenna heim og væri þeim þá bara fleygt í fljótið við fæðingu.
Ekki veit ég neitt um þessa vesalings Litháa sem lentu í þessu hér núna en eitthvað hefur farist fyrir í að taka á móti þeim og kynna þeim að svona geri maður allekki á íslandi þó svo barnið sé óvelkomið í þennan heim. Sem þrátt fyrir allt er með bestu heimum í alheimi Þ.e.a.s sá íslenski Hlúið vel að þessari aumnga konu Setið hana ekki í fangelsi. Kært kvödd
![]() |
Gæsluvarðhald og geðrannsókn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.7.2011 | 17:43
"Cat Ballou "
![]() |
Himinblíða á Húsavík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.7.2011 | 17:24
"þessi listamaður"
Það hættu margir hreinlega að kaups Moggan þegar þessi listamaður var látin hætta þar. Þegar ég var í siglingunum var ég með hálfa áskrift að Mogganum Og blaðið var sent á útgerðuna sem svo sendi mér það í næstu höfn. Mikið höfðu danirnir gaman af teikningum Sigmunds.
Ég tala nú ekki um ef ég gat útskýrt tilefnið. Sigmund er einn af þessum alþýðulistamönnum sem við þessir sauðsvörtu hér niðri á jörðinni kunnum að meta. Og svo að þessari hátíð sem nú stendur yfir. Hér er að vísu hálfleiðinlegt veður en mikið af fólki í bænum er ég keyrði um hann áðan. Ekki gat ég séð vín eða neitt þvíumlíkt á einum einasta manni.
Ég get seint hætt að lofa sjálfan mig fyrir að hafa haft rænu og vit á að flytja hingað eftir fimmtán ára sjálfskipaða útlegð. Hér er fagurt mannlíf og hér sér maður hlutina gerast. Og Vestmanneyingar eru upp til hópa frábært fólk. Mér datt í hug um daginn að gerast áskrifandi að bæjarblaðinu hér. Það var nú lítið mál. "Ertu búinn að fá blaðið sem kom í gær" var spurt
Nei svaraði ég. Ég "skutla" einu til þín á eftir var þá sagt Og blaðið á hurðarhúninum þegar ég kom heim . Þurfti ekki einusinni að opna póstkassan. Og í þessu síðasta blaði Frétta las ég þá fallegustu minningargrein um mann sem ég hef lesið. Já í Vestmannaeyjum er gott að búa og fagurt mannlíf. Kært kvödd
![]() |
Fjölmenni á goslokahátíð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.7.2011 | 17:19
"til hamingu"
![]() |
Nýtt skip í flota Eimskips |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Ólafur Ragnarsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
kolbrunerin
-
gudruntora
-
gmaria
-
dala
-
nafar
-
valmundur
-
johannesgylfi
-
gudrunmagnea
-
rheidur
-
gretarmar
-
magnusthor
-
nilli
-
georg
-
lydurarnason
-
reykur
-
johanneliasson
-
helgigunnars
-
hector
- kerfi
-
kallimatt
-
jonsnae
-
jp
-
jaj
-
hva
-
valurstef
-
sigurjonth
-
einherji
-
fiski
-
jakobk
-
harhar33
-
rs1600
-
iceman
-
thorirniels
-
kjartan
-
oliskula
-
1kaldi
-
gretar-petur
-
jon-o-vilhjalmsson
-
skulablogg
-
floyde
-
ragnarb
-
meistarinn
-
palmig
-
aevark
-
morgunbladid
-
zumann
-
jensgud
-
gutti
-
gudni-is
-
saethorhelgi
-
geirfz
-
iceship
-
fuf
-
saemi7
-
ketilas08
-
kokkurinn
-
einarorneinars
-
xfakureyri
-
siggith
-
stormsker
-
valli57
-
markusth
-
luf
-
framtid
-
vefritid
-
jakob
-
postdoc
-
jenni-1001
-
mal214
-
partners
-
iceberg
-
valdivest
-
torfis
-
gattin
-
malacai
-
benz
-
gumson
-
hildurhelgas
-
minos
-
seinars
-
skinogskurir
-
krist
-
thjodarheidur
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.6.): 79
- Sl. sólarhring: 79
- Sl. viku: 90
- Frá upphafi: 537404
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 12
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar