"Ég ákæri"

J´accuse (I accuse!); Ég ákæri.  Skrifaði frægur rithöfundur fyrir löngu síðan. Ekki ætla ég mér að bera mig saman við þann mikla mann orðsins eins og ég hef upplifað hann.

 J accuse  Hin fræga blaðagrein  Zola í Jan 1898

En ég ætla að leyfa mér að skjótast í hans ham ef svo má að orði komast. Ég man ekki betur en að  núverandi  ríkisstjórn hafi lofað að ekki yrði hreyft við kjörum þeirra sem lægstu kjörin hefðu þauEmile Zola Émile Édouard Charles Antoine Zola. Ég er ekki rithöfundur því síður frægur (nema kannske af endemum) En ég ætla að leifa mér að gefa hugmyndafluginu lausan tauminn og gefa Emilie Zola orðið um stund. Í Dreyfus málinu ákærði hann að mig minnir í 9 atriðum. Við skulum sjá hvað hann kemst hér í mörg Zola J%27accuse v3

Emilie Zola hefði sennilega sagt:"

1sta Ég ákæri þá menn sem komu þjóðinni í þessa stöðu. Ég ákæri þá hreinlega fyrir landráð.

 

2nnað Ég ákæri þá stjórnmála/embættismenn sem sofandi létu reka að feigðarósi.Það skagar hátt uppí landráð.

 

3ja. Ég ákæri stjórnmálamenn sem ætla að taka"Versala"útgáfu af svokölluðum Icesave reikningum góða og gilda. Og samþykkja óviðráðanlegar afborganir fyrir komandi kynslóð. Það gengur nærri landráði

 

4ða  Ég ákæri forustumenn lífeyrissjóða sem taka sér milljónalaun á meðan þeir lækka greiðslur til sjóðsfélaga,Í veruleikanum stórfelld fjársvik, En í þeim heimi sem við lifum í heitir"staðið við samninga".

 

5ta Ég ákæri þá embættis og stjórnmálamenn sem reyna að setja stein í götu rannsóknar á hruninu ó- eða meðvitað.

 

6 Ég ákæri þá þá bankamenn sem tældu eldriborgara sem eitthvað höfðu lagt til hliðar til að legga það í þessa stórkostlegu svikamyllu sem afleyðingarnar af, eru  nú að sjá dagsins ljós. Ef réttlætinu væri fullnægt ætti að dæma þá menn til langrar fangavistar.

 

7 Ég ákæri þá ráðherra sem ætla að leggja milljarða í einhvert hávaðahús  sem verið er að  bygga við Reykjavíkurhöfn á meðan öryrkjum. öldruðum og þeim sem minna mega sín er hreinlega sagt að éta það sem úti frýs.

 

 

8 Ég ákæri þann stjórnarflokk sem nú telur sig hreinan af öllum skítnum.Og er eins og óþekktarormur sem veit upp á sig sökina en setur upp þennan líka sakleysissvip .Skammist ykkar

 

 

9.Ég ákæri alla ríkisstjórnina hreinlega fyrir kosningaloforða svik. Það kemst næst kosningasvikum."

 

 

Ég sjálfur hef það eftir ástæðum gott. Ég hef margoft sagt að að foreldrar voru höfundar að mínu lífi. En ég sjálfur höfundur að ferlinum. Og ég hef engar áhggjur á mér. Ég kem til með að lufsast þetta eins og undanfarið. Caran d ache dreyfus supper Gæti verið fundur hjá ríkisstjórninni nú um stundir.En ég hef áhyggur af fólki sem er verra sett en ég er og það af annara völdum. Og þeir serm því ollu virðast ekki kunna að skammast sín . En rífa bara kjaft úti í löndum frjálsir allra ferða með kellingarnar á sólríkum ströndum innan um aðra fjármálaglæframenn. Læt þetta nægja í bili:En það kemur meir.Kært kvödd


mbl.is Staðan skýrist í næstu viku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í Loftinu

"Flugmaðurinn dó í loftinu" Svona hljóðar fyrirsögn á DV.is. Var hann örugglega ekki inn í flugvélinni ? Það er alls ekki ekki tilhlýðilegt að gantast með svona atvik. En fyrirsögnin fer einhvernveginn fyrir brjóstið á mér. En þetta er kannske alveg rétt orðað. Kært kvödd
mbl.is Flugstjóri lést í miðju flugi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Donkeymenn

Gamlir sjómenn kannast ábyggilega við orðið donkeyman. En donkeymen voru eiginlega 1stiu vinsumennirnir (spilmenn á flutningaskipi) og eða 1stu kyndararnir á skipum. En á árdögum siglinga nútímans voru lestunar/losunarútbúnaður harla frumstæður.pruessen1stu hafnarkranar voru með gufukötlum kolakyntir Og mennirnir sem sáu um þá voru kallaðir donkeymenn. En fyrir daga gufukranana voru notaðir Asnar.þ.e.a.s dýrategundin til að hífa og slaka. Sérstakur maður(donkeymen) stjórnaði dýrinu. Og nafnið donkeyman fluttist yfir á kranamennina. Svo vóru settir gufukatlar og spil í stæstu seglskipin.Og nafnið fluttist líka á þá sem um það sáu. Hér er t.d mynd af donkeyútbúnaðinum:image 20 Af hverju er ég að nefna þetta núna . Jú því mér finnst myndin sýna okkur ástandið í þjóðfélaginu nú um stundir. Skipið samsvara þjóðarbúskapnum. Donkeymaðurinn ríkisstjórnina og asninn þjóðina. Það skal alltaf vera almenningur sem ber stærstu byrgðarnar. Að öðru. Framsóknarmenn eru ekki hrifnir af nýasta tónverki Samfylkingarinnar:Einleikur á bjöllu. Opus eitthvað. dre0982lAlveg sama þótt formaður þeirra tæki þátt í verkinu  Bells1  Munu þeir vera með frumvarp í undirbúningi um að taka upp flautu og kortakerfi eins og í fótbolta.200px Yellow card 2 svg 2 gul og svo útvísun úr ræðustól  292399741 0 Framsóknarmenn munu vera búnir að stofna flautugerð. Þar sem úrvalið mun vera mikið af allslags flautumwhistle pink mCRYSTAL WHISTLERachel Leigh whistle necklace Svo mun vera fundur í bígerð þar sem framsóknarmenn munu flauta fyrir alþingisforsetannclown baaad 163565FreedomofSpeechSteynianno free speech En forsetinn mun vilja hefta eða jafnvel loka algerlega fyrir munn framsóknarformannsins  shut up and put up En nú munu beðmálin vera í hámæli hjá frömurunum og sjöllunumcc clown6 og virðast ástir vera að takastwomen perfect match2 Sjallarnir vilja kveikja í ýmsum gögnum í sambandi við hrunið og gera"sumum"lágt undir höfði hvað flótta frá ábyrgð varðarj0385522 Læt þetta nægja af nöldri í bili og kveð ykkur kært


Þyrlusveitin í Eyjum!!!!

 

Þetta féll úr hjá mér einhverra hluta vegna um daginn 

 

Þetta er vinur minn Ben( smáplat)  arg hund 1 Sem ásamt mér hefur hinar ýmsu skoðanir á hlutunum og segir þær í gegn um mig. Eða þannig. Okkur Ben hefur sjaldan líkað líkað við sérfræðingaval hins silfraða Egils. Og svo endaði hann með þann daprasta. Ekki var hann silfri sleginn en hálf var hann fiðraður og ekki var alveg fá því að maður dytti líka í hug tjara,

S2300061 Hann á ekki þyrlu útgerðarmaður þessa báts

Eins og gert var við hættulega gasprara hér á öldum áður. Þeim var velt uppúr þessum ósóma ef til þeirra náðist. Ég hlustaði með athygli í fyrra það sem Eiríkur Stefánsson hafði fram að færa og var sammála honum í mörgu.  En svo fór skörin að færast upp á bekkinn og æðubunugangurinn tök öll völd. Eftir hans kenningu ættu við hér í Vestmannaeyjum ekki að sjá til sólar vegna þyrluflugs útgerðarmanna. Þetta þyrlukjaftæði Eiríks er honum til skammar.

 

codGadus morhua, the Atlantic cod.

Margir flokksbræður mínir í Ff hafa haft stór orð um útgerðarmenn og kallað þá jafnvel glæpamenn. En ég held að stærsti hlutinn sf þeim séu menn úr sjómannastétt sem hafa hangið í þessu eiginlega fastir vegna óréttlátra laga. Allavega hafa sumir gefist upp og selt bát og kvóta hreinlega vegna óhagræðis. Nokkrir útgerðarmenn hér í Eyjum gerðu það t.d. fyrir nokkrum árum.

 

arrowdown3 120 rf 011008 Íslenska fiskveiðistefnan í reynd

Ég heyrði að einn þeirra hefði verið á fullu í símanum að reyna að selja fiskinn sem hann fékk í síðasta hali.  En það voru 15 tonn í pokunum.  En gat ekki fundið kaupenda og varð að sleppa fengnum. Þá á hann að hafa gefist upp á þessari hringavitleysu og seld heila klabbið. Og kvótinn burt. Það væri gaman að heyra í Eiríki hvað yrði um fólkið hér í Vestmannaeyjum ef  einyrkjarnir í greininni seldu nú sína útgerð út frá Eyjunni. Menn sem hafa reynt að hanga í þessu frekar af vilja en mætti vegna kolrangrar stefnu í fiskveiðimálum.S2300076 Og ekki þessa

En við, ég og vinur minn Ben viljum meina að í útgerðarkörfu Vestmannaeyinga sé ekkert skemmt epli. Og erum við nú að tala um svindl á löndunum bæði til vinnslu hér og til útflutnings. Við vitum ekkert um braskið á kvótanum. og það er ekkert til umræðu hér heldur .Hér finnast engir sægreifar nú um stundir allavega.

Preserved Codfish Bodara Í verslun erlendis á góðum prís

Vinur minn Ben er svo ungur að hann man ekki hvernig þessu árans var kerfi kom á. En ef minnið er ekki að bregðast mér þess meir þá var þessu komið á til verndar fiskistofnum. Til verndar fiskistofnunum ja háleitt var markmiðið sem þeir Kjartan og Steingrímur settu sér við ásetning þessara laga um kvótakerfi 1980 ef ég man rétt.

06%20bri 998%20Codfish%20on%20Georgeshp í torfum

Og þau áttu bara að standa í nokkur ár. Bara nokkur ár Ímyndið ykkur 29 ár og Hafróástand fiskistofna í lágmarki. Árið 1990 skrifaði útgerðarmaður bátsins á fyrri myndinni eftirfarandi:"Fiskveiðistefna sem leiðir til að braskari kallast búhöldur en fiskimaður skussi er röng" Tilvitnun líkur

 

RedNoseWorker 450x348 Kannske íslenskir sægreifar í London??? 

Lög voru sett um daginn til að koma ákveðnum mönnum út úr ákveðinni stofnun vegna slæglegs árangurs við verðbólgu. Hvernig væri að stofna til svona lagatilbúnings aftur og nú til að koma máttlausum stjórnendum annarar stofnunar út. Læt þetta duga af röfli í bili. Kært kvödd


mbl.is Leiði mótun sjávarútvegsstefnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eftir sjómannadag

Hátíðarhöld Sjómannadagsins tókust allstaðar veil að ég held. Veðrið hélt sér á lágu nótunum hvað vind og vætu varðaði. Gamlar sjóuglur heiðraðar. Og blómssveigar settir við minnismerki. En mér finnst satt að segja vanta eitt minnismerki. Við hliðina á minnismerki um óþekkta sjómanninn mætti reisa minnismerki um óþekktu sjómannskonuna.

 

 

Á bak við nafnið sjómannskona liggur oft mikil saga. Oftar en ekki mikil harmsaga. Þessu konum hefur að mínu mati alltof lítill gaumur verið gefinn. Mér hefur undanfarið oft hugsað til sjómannskonunnar. Skip hafa týnst og farist. Hér á árum áður hlustuðu konurnar oft á "bátabylguna" sérstaklega þegar ill veður gengu yfir. Og ef ekkert heyrðist í"þeirra"bát komu áhyggurnar.

Oftast var um léleg loftnet eða léglega geyma um að ræða. En oftar en ekki var alvara á ferð. Þá þurtu konur að takast á við stóra hluti. Láta börnin t.d.ekki finna fyrir kvíðanum og sv fr. Þetta átti við dagróðrabátana. Togarnir gátu líka"dottið"út vegna fyrrgreyndra ástæðna. Ef þeir skiluðu sér ekki á "códatímum"

 

 

Þá tóku códafélagarnir sig til og náðu sambandi t.d. á VHF eftir að þau tæki komu í gagnið. Eða menn spurðust fyrir uns skipið kom í leitirnar. Svo fengu skip áföll og það fréttist strax í land. Þegar svona skeði þá var dagurinn langur hjá sjómannskonunni. Í janúar 1960 tæpu ári eftir að b/v Júlí fórst á Nyfundnalandsmiðum skilaði togarinn Úranus sér ekki á códatímanum. Leit var hafinn. 

 

 

 

Forsíða Mbl miðvikudaginn 13 jan þvert yfir með stærsta letri:"Óttast er um togaran"Úranus"á Nýfundnalandsmiðum. Og undirfyrisögn"Síðast heyrðist til hans á sunnudagskvöld "og svo Ofsaveður hamlar leit skipa og flugvéla.Og enn síðar.Tekið er að óttast um Reykjavíkurtogarann Úranus,sem að undanförnu hefur verið að veiðum á Nýfundnalandsmiðum,en þangað fór hann 28 desember..Á Úranusi er 28 manna áhöfn.Skipstjóri er Helgi Kjartansson en eigandi Júpiters hf í Reykjavík.

Ekki hefur heyrst til togarans síðan á sunnudagskvöld.Hafði togarinn Þormóður Goði samband við Úranus síðast kl 10.þegar hætti að heyrast frá togaranum.Á forsíðu er einnig viðtal við Ólaf Björnsson sem var fastur loftskeytamaður á Úranusi en var í fríi,hann segir þar m.a: ":Ég tel enga ástæðu til að óttast um skipið að svo komnu máli.Mjög víðtæk leit var gerð að togaranum.Bæði frá Canada,Nýfundnalandi og Íslandi(Keflavík)

Forsíða Mbl 14 jan 1960 

Ólafur loftskeytamaður hafði rétt fyrir sér því á forsíðu Mbl fimmtudaginn 14 jan.þvert yfir með stærsta letri Úranus fundinn og skipshöfn hans heil á húfi.síðan með smærra letri Fagnaðarbylga fór um Reykjavík er gleðitíðindin bárust og svo Almáttugur hvað maður er búinn að vera hræddur.

Síða er sagt frá að senditæki togarans hafi bilað.Mbl var áheyrandi að eftirfarandi samtali milli skipverja á Þormóði Goða og vandamanns hans í landi. Þ.Goði:"þeir eru búnir að finna hann "Kona" í Rvík:"Eru þeir búnir að finna hann,Guðs sé lof" "Þ.Goði:"Já hann er 200 mílum á eftir okkur" "Konan:"Ó hvað það er dásamlegt. Þ.Goði:"Það var eitthvað biluð hjá honum senditækin og hann getur ekki látið til sín heyra,en það virist allt vera í lagi hjá honum" "Kona": "Almáttugur guð,hvað maður er búinn að vera hræddur"". b/v Þormóður Goði   Ég tek þetta sem dæmi um sálarástand( ef maður má komast svo skáldlega að orði ) hjá sjómannskonunni. Takið eftir þessum orðum hjá konu skipsverjans á Þormóði Goða:"Almáttugur guð,hvað maður er búinn að vera hræddur". Þetta lýsir meir en þúsund orð líðan sjómannskonunnar. Hennar maður var óhulltur en starfsfélagar hans höfðu verið týndir en nú fundnir. Það er ekki að ófyrirsynju að í hópi harðasta baráttufólks fyrir bættu öryggi sjómanna eru sjómannskonur.

 

 

Og margar staði þar framar öðrum. Ná þar nefna t.d. Rannveigu Vigfúsdóttir konu hins affarasæla skipstjóra Sigurjóns Einarssonar kenndan við b/v Garðar frá hafnarfirði og Gróu Pétursdóttir konu hins, einnig affarasæla skipstjóra Nikulása K Jónssonar kendan við b/v Otur. Þessar konur koma bara upp í hugan í fljótu bragði sem framverði í baráttunni hér á árum áður. 

 

 

En það eru tugir ef ekki hundruðir af Rannveigum og Gróum sem við,sem sjómennsku höfum haft og eða höfum að atvinnu  eigum jafnvel allt upp að unna. Mér finnst satt að segja að við ættum að heiðra minningu hinnar óþekktu sjómannskonu með einhverskonar minnismerki sem svo lagður yrði svo blómsveigur að á Sjómannadaginn. Mér finnst sú ágæta kona eiga það skilið af þjóðinni.

 

 

Hve oft hefur hún ekki þurft að bíða kvíðinn milli vonar og ótta af fréttum af fyrirvinnunni . Og í mörgum tilfellum fleiri en 1 úr fjölskyldunni.Syni,föður,bróðir mági. Stundum breittist vonin  í söknuð og öfugt. Ég vil að minningu þessara kvenna verði sómi sýndur og hann verði tekinn inn í hátíðathöld Sjómannadagsins.

 

Sleppð þessu ráðherrabulli í ræðuhöldum Sjómannadagsins og látið sjómannskonuna tala. Látið hana segja ykkur hvernig það er að reka heimili með X börnum X afborgunum af x atriðum. Láta þær segja frá kvíðanum í vondum veðrum. Láta  segja frá hvernig það er að vera öfunduð af einhverjum X launum sem kallinn hefur sem svo kemur drulluþreyttur heim alveg búinn á ´þí.

 

 

Nú skora ég á hagmælt fólk að vera búið,fyrir næsta sjómannadag, að semja ljóð sem einhver góður hljómlistarmaður gæti svo samið, lag við og sungið verði svo á Sjómannadögum framtíðar um leið og Íslands Hrafnistumenn. Einhverstaðar stendur:" að ber er hver að baki nema sér bróður eigi! Ég vil meina :"að ber er hver sjómaður,að baki nema konu eigi. Læt þetta duga í bili. Bið þann sem FLESTU ræður að vísa okkur hinn rétta veg til sjós og lands. Kært kvödd


Sjómannadagur

Á sunnudaginn verður sjómannadagurinn 71 árs. Ég leyfi mér að fullyrða að hann hafi aldrei verið haldin við erfiðari aðstæður í þjóðfélaginu en nú.Þegar sá 1sti var haldinn hátíðlegur hafði skollið á heimskreppa nokkrum árum áður,en menn voru farnir að sjá til lands hvað hana varðaði. Og á árdegi hans var jú önnur vá fyrir dyrum. Styrjöld yfirvofandi í Evrópu. Og hún byrjaði 3ja september 1939. image 72Frá árdögum dagsins.

Þessi styrjöld kostaði mörg líf íslenskra sjómanna. (kring um 300) Einnig skapaði hún erfiðleika á að afla nauðsynja til landsins. En að henni lokinni ( styrjöldinni ) höfðum við Íslendingar heldur betur rétt úr kútnum. Og upphófst mesta blómaskeið sem íslendingar upplifað til þess. Og þarna skeði það sem átti eftir að koma okkur í koll æ síðan að mínu mati. Við eiginlega skutumst út úr moldarkofunum og kömrunum og inni hallir með vatnssalerni og öllum þv þægindum. butler 03Sennilega hefur engin þjóð“grætt“eins mikið á stríðinu en við Íslendingar. Og á hverju græddum við jú nokkur % af þjóðinni sem kallast sjómenn voru við að afla fiskjar sem þeir síðan sigldu með til Englands. Brutu hafnbann Þjóðverja og sigldu á einum af hættulegustu svæðunum í Orustunni um Atlantshaf. Bændurnir sáu okkur svo fyrir þeim nauðsynjum sem þeir sköpuðu. Já það lyktaði allt af slori og kúaskít. Og því miður fengu sumir þefinn af púðrinu líka. Grimmdin í styrjaldaraðilar hlýfðu engum. Árásir voru gerðar á óvopnuð íslensk fiski og farskip og þeim sökkt fyrirfaralaust- lítið.Úr blaði í sept.1939:

“ Þjóðin verður því að taka því sem að höndum ber,með skynsemi og stillingu,slaka á kröfum sínum, þótt fyllilega rétmættar séu meðan nýtilkomið styrjaldarástand helst.butler 05 Þetta síðasta á ekki síst við sjómennina sem eiga óuppgerða reikninga við stjórn og þing í ríkara mæli en önnur stétt.En einmitt því fremur sýna sjómenn þegnskap sinn og drenglund með því að ganga ótrauðir fram fyrir skjöldu um afla og aðdrætti í þjóðarbúið á þrengingartímum. Sjómenn leggja líf og limi í hættu á friðartímum og fá minni þökk en skyldi.

En vera kynni að augum þeirra, sem kaldrifjaðastir eru í garð sjómannastéttarinnar islensku. opnist ekki í annan tíma, betur en nú fyrir því hvar þjóðin væri stödd ef atorku sjómanna nyti ekki við. Enn gæti svo tiltekist, að þeir sem sitja á hjassanum heima í inni sínu, meðan slysa- og lífshætta sjómanna margfaldast, skilji að hér á landi er risin upp stétt manna sem ber á herðum sér íslenska menningu og afkomu, frekar öðrum íslenskum stéttum““

Svo mörg voru þau orð, skrifuð fyrir tæpum 70 árum. Það hefur mikið breyst á þessum 70 árum. En margt á hreinlega við daginn í dag.  Talið er að um 300 íslenskir sjómenn hafi farist á stríðsárunum. Miðað við höfðatöluna frægu mun þetta vera svipað og Bandaríkjamenn misstu af mönnum í stríðinu. Margt og mikið hefur sem betur fer breyst í öryggismálum sjómanna  til hins betra. Þökk sé ýmsum aðilum. Meiri menntun,stærri skip,fullkomnari tæki og fl og fl..

En enn og aftur verða það sjómenn sem að stórum hluta koma til með að koma okkur út úr þeirri kreppu sem nú stendur  og þessari styrjöld sem geysar á alheimsfjármálamarkaðinum. En að núinu. Ég skora á sjómenn að láta heyra í sér á sjómannadaginn. Og hreinlega að banna fulltrúum stjórnvalda og útgerrðarmanna að koma í ræðustóla þennan dag. Þeir hafa hvort sem er ekkert fram að færa annað einhverja loðmollu um  ágæti sjómanna.

Sem aldrei er á öðrum dögum er talað um. Nú eiga sjómenn að nota daginn um leið og þeir minnast fallina félaga og fagna úr greypum Ægis gripna til að krefjast ýmissa réttar bóta. Bera baráttu spjöld í skrúðgöngum. Sjómenn ég skora á ykkur að rísa upp á“afturlappirnar“og sýna þessu listaspýrudóti að það eruð þið sem eruð undirstaðan undir þessu nú hálfgjaldþrota þjóðarbúi. Fólk á listamannalaunum aflar sáralítils gjaldeyris á móts við ykkur. Þó þetta lið láti mynda sig í bak og fyrir við allslags mótmæli Íslenskir sjómenn munið að það voru þið sem komuð svokallaðri menningu á koppinn.

Það voruð þið sem öfluðu peninga svo hægt væri að borga svokölluð listamannalaun. Ég skora enn og aftur á ykkur að láta heyra í ykkur á Sjómannadaginn. Hafnið öllu leirburðsrugi sem vellur út um munnvikin á þessum svokölluðum stjórnendum þesa lands. Og hleypið engum frá  þesum stórútgerðarblokkum í ræðustóla öðruvísi en að þeir lofi að hætta við að braska með kvótan.

Munið að það voru störf sem gáfu af sér slor og fjósalykt sem kom þessari þjóð á lappirnar. Og munið það íslenskir sjómenn að dagurinn ykkar heitir Sjómannadagur og hreint ekkert annað Öll önnur nöfn eru lagleysa. ‚Ég óska ykkur til hamingu með daginn ykkar á sunnudaginn og velfarnaðar , vonandi slysalitlum komandi árum. Verið ávallt kært kvaddir

 


Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Júní 2009
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband