12.2.2010 | 18:29
"sammála"
Jóhanna er sammála öllu og stýrir algerlega duglausir ríkisstjórn. Á þessum erfiðu tímum ætti hreinlega að loka Alþingi senda þá skuggasveina og meyjar sem það sitja heim Enda til einskins nýt og þjóðin algerlega búinn að missa trúna á þetta lið
Fela svo óháum og hlutlausum mönnum jafnvel erlendum (þar sem það væri þrautin þyngri að finna slíka íslendinga) stjórn landsins næstu 10 - 15 árin meðan við erum að vinna okkur upp úr ÖLLUM ósómanum.
Öllum sagði ég því stór hluti fg skuggasveina/meyja eru bendluð við allan helv.... ósóman. Koma þessum siðblindu afætum í burt frá stjórn landsins. Við erum að upplifa smápart af sönnunum um að hafa ekki þingmenn sem ráðherra. Ég kveð kært þá sem eiga það skilið
![]() |
Eiga að víkja til hliðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
12.2.2010 | 18:09
"veitir kannske ekki af"
Þeim veitir kannske ekki af þessum lyfjum í flokknum þeim.Gamlir kallar að velli lagðir af föngulegum konum. Nafninu bráðlega breitt í Vinstri Grænar eða kannske frekar Vinstri Bleikar Kærar kveðjur til þeirra sem eiga það skilið
![]() |
Skora á ráðherra að endurskoða niðurskurð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.2.2010 | 18:03
"hetjur"
Maður verður ósjálfrátt hreykinn af að vera íslendingur við svona fréttir. Að íslendingar séu framarlega í allslags hjálparstarfi. Með allri virðingu fyrir í íþróttum og handbolta þá finnst mér nafnið "hetja" dálítið of notað nú um stundir.
Ég vona að fólk skilji hvað ég er að fara. Fólk sem leggur sig í stóra hættu við að hjálpa/bjarga öðrum eru virkilegar hetjur. Maður gæti kannske skift hetjum í 2 flokka Hvurndagshetjur og Sparihetjur. Hvurndagshetjur er fólk eins og rústabjörgunarmennirnir á Haíti um daginn Flugmenn og aðrir starfsmenn LHGÍ.Sjúkraliðar lögregluþjónar Nú þetta hjúkunarfólk sem greint er frá í greininni heyrir undir þennan flokk.
Ég held satt að segja að fólk hér heima viti ekki alveg út í hvað þetta fólk er að fara út í. Þegar svona skeður í þessum fátæku löndum er mikil hætta á að allslags hættulegir sjúkdómar breiðist út. Það vill svo til að ég hef kynnst sjúkrahúsi á Haíti af eigin raun.Ég segi kannske frá því seinna. Við getum sett íþróttafólk okkar í Sparihetjuflokkinn.
Og við þurfum að styðja báða flokkana Eins og þegar við heiðrum íþróttamenn fyrir unnin afrek( sem ég er ekki að gera lítið úr) ættum við kanske t.d að heiðra flugsveit LHGÍ með góðum framlögum þegar þeir bjarga mannslífum.
Og af því stór hluti þjóðarinna lítur niður á sjómenn af því þeir tilheyra engum anga af svokallaðri menningu þá ber að líta á að það getur einhver af fg hóp hnigið niður einhverstaðar langt frá næsta lækni. Og þá væri fjandi hart að fá svarið :"ekki hægt að senda þyrlu vegna fjárskorts"Læt þetta duga í bili og kveð þá sem eiga það skilið kært.( margir líta á þessa kveðju sem hroka en mér er andsk..... sama)
![]() |
Hjálparstarfsmenn til Haiti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.2.2010 | 02:36
á hvaða lyfjum??
Á hvaða lyfjum er þetta lið eiginlega ??.
En sem betur fer er ekkert að marka þetta vegna þeirra mörgu sem ekki svöruðueða ætla að skila auðu.
Þetta sýnir vel vantrúna á "kaffibrúsakallana"við Austurvöll Þá sem eiga það skilið kveð ég kært
![]() |
Sjálfstæðisflokkur með mest fylgi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.2.2010 | 00:05
Hvað liggur á??
Maður er alveg steinhættur að botna í hlutunum Um hvað er að ske í hausnum á sumun ráðherrum. á meðan einn þeirra ferðast um landið og boðar lokanir á sjúkrahúsum og heilsugæslum ferðast annar erlendis og boðar ja hvern andsk..... það er óljóst.
Meðan landhelgisgæslan er í svo miklu fjársvelti að líf manna er sett á spil, þá er hent milljónum í "gæluverkefni"sumara ráðherra. Hvaða manni með greind yfir meðallag dettur í hug að EBE hjálpi upp á sakir hér.
Hvaða manni með fg greindarstig dettur í hug að þegar EBE er komið í standandi vandræði með sum meðlimslönd sín fari þeir að taka hálfgjaldþrota land í sínar raðir. Með 2ja stafa verðbólgu og svo sollið viðskiftalíf að skítalyktin af því er að kæfa "nágrannana" Svo þeir halda um nefið og pynguna.
Væri nú ekki annars vit í að staldra aðeins við og nota peningana sem í þetta fara í landhelgisgæsluna eða i gæslu á heilsufari landans. Reyna að halda lífi í sauðsvarta liðinu svo hægt sé að rú það enn betur inn að skinninu
Ég er það gamall að ég man vel eftir er fjárlögin náðu þeirri, að þess tíma himinháu tölu "MILLJARÐUR" Nú er þessi tala bara vasaaur hjá þeim skítseiðum sem komu okkur á kaldan klakan Og sem spóka sig um "millahverfin" í London og fleiri borgum þar sem svona þjófahyski safnast saman í
Meðan ekki er hægt að sækja heiðarlegan sjómann með hjartabilun út á sjó vegna fjárskorts LHGÍ. Og þessir stórþjófar eru svo bara dubbaðir upp í stjórnarformenn í þeim fyrirtækjum sem þeir keyrðu í þrot og sem verið er að draga upp úr skítnum á okkar borgaranna kostnað. Ég misnotaði brennivín og fl í mörg ár mér til óbóta og skammar
Sem heitir í dag að vera alkahólisti. Mér þykir þessir gjörningar bankana og rökstuðningur þeirra fyrir þeim vera eins og ég hefði á mínum verstu árum verið settur yfir vínbúð af því ég hefí svo langa og reynslu af brennivíni. Alþingismenn eru algerlega búið að missa tiltú fólksins. Svo maður tali nú ekki um ráðherraliðið. Einu ráðherrarnir sem fólkið treystir eru ekki alþingismenn. Það er athyglivert. En þrátt fyrir reiðina kveð ég þá sem eiga það skilið kært
![]() |
Össur ræðir við nýjan utanríkisráðherra Litháen |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.2.2010 | 23:09
"fátt um fína"
![]() |
Flatlúsin í útrýmingarhættu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.2.2010 | 17:42
"við landasölu"!!!
Gvöð hve menn geta verið ófyrirleitnir. Hvernig getur mönnum dottið í hug að selja landið sitt. Vonandi fær þessi ungi maður mjög harðan dóm
Annars er enginn hætta á að neinn úr sauðsvarta hópnum hljóti nokkra náð allavega ekki hjá Hæstavinaréttinum. Og þetta með "Landabruggið" nær nú hæðstu hæðum. Því að Landabrugg og landabrugg er alls ekki það sama Í fyrra dæminu bruggar þú landi þinu launráð sem verða fjárhag þess að falli En í seinna bruggar þú einhvern fjáran sem sett er á flöskur verður þó ekki nema nokkrum alkahólistum að falli Sem eru kannske bara fullir hvort sem er
Nú í fyrra dæminu verður þú að stjórnarmanni í dýrmætustu félögunum í eigu bankanna Aftur og nú með enn þá meiri lúðrablæstri en áður En fyrir seinna brotið verður þú að sakamanni og átt heima í tugthúsinu En hvað um það Enn og aftur er manni komið á óvart hvernig talað er við okkur þessa bölv... sakleysingja hér niður á jörðinni.
Okkur sakleysingana niðri á jörðinni
Hvaða heilvita manni dettur í hug að það sé alfarasælast að þeir menn sem settu þjóðina á hausin fái að koma að kaupsýslu strax aftur.
Og þá hlýtur sú spurning vakna hjá lítt menntuðum almúgamanni eins og mér og sem ekki býr á 101 svæðinu. Hvaðan úr andsk...... fá þeir peninga. Er ekki þjóðin að gangast undir hálfgerða aftöku vegna fjárglæfra þeirra. Er ekki verið að afskrifa milljarða vegna gjörða þessara manna
Ég man að ég las ungur, um prest á Hruna í Árnessýslu til forna. Prestur var gefin fyrir glaum og gleði (hefur kannske veitt Landa) og í stað þess að messa á jólanótt lét hann sóknarfólkið dansa spila og hafa í frammi allslags ósæmilega hegðun í kirkjunni. Þetta mun hafa farið fyri brjóst móður prests sem Una hét og var öldruð,guðhrædd Og mun bæði hafa verið skyggn og forspá. Setti hún niður við son sinn vegna þessa athæfis hans.
Á þetta vildi sonurinn ekki hlusta.Einhverju sinni er "geimið" í kirkjunni gekk alveg fram af þeirri gömlu.Gengu hún nú til sonar síns og biður hann að hætta En eins og sona er oft siður gegnir hann ekki. En segir :"einn hring enn." Mig minnir að 3svar hafi hún gengið til sonar síns með bónina"game over"
En hann ekki hlýtt.Í síðustu ferðinni heyrir hún að kveðið er digrum rómi "hátt lætur í Hruna/hirðar þangað bruna/svo skal dansinn duna/að drengir megi það muna/."Til að gera langa sögu stutta þá bara sökk kirkjan fólkið og heila klabbið Sennilega allt til helv.... En það mun hafa verið sá svarti sjálfur er kvað Mér finnst satt að- sega ástandið í dag líkjast þessum "dansi" nema að að er bara 1sti hringur búinn
Og nú sé verið að "bjóða upp"í annan hring. Maður má kannske þakka fyrir að 6 fetin nálgast óðum svo maður sleppur kannske við næsta hring. Læt þetta duga í bili Verið ávallt kært kvödd
![]() |
Staðinn að verki við landasölu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Um bloggið
Ólafur Ragnarsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
kolbrunerin
-
gudruntora
-
gmaria
-
dala
-
nafar
-
valmundur
-
johannesgylfi
-
gudrunmagnea
-
rheidur
-
gretarmar
-
magnusthor
-
nilli
-
georg
-
lydurarnason
-
reykur
-
johanneliasson
-
helgigunnars
-
hector
- kerfi
-
kallimatt
-
jonsnae
-
jp
-
jaj
-
hva
-
valurstef
-
sigurjonth
-
einherji
-
fiski
-
jakobk
-
harhar33
-
rs1600
-
iceman
-
thorirniels
-
kjartan
-
oliskula
-
1kaldi
-
gretar-petur
-
jon-o-vilhjalmsson
-
skulablogg
-
floyde
-
ragnarb
-
meistarinn
-
palmig
-
aevark
-
morgunbladid
-
zumann
-
jensgud
-
gutti
-
gudni-is
-
saethorhelgi
-
geirfz
-
iceship
-
fuf
-
saemi7
-
ketilas08
-
kokkurinn
-
einarorneinars
-
xfakureyri
-
siggith
-
stormsker
-
valli57
-
markusth
-
luf
-
framtid
-
vefritid
-
jakob
-
postdoc
-
jenni-1001
-
mal214
-
partners
-
iceberg
-
valdivest
-
torfis
-
gattin
-
malacai
-
benz
-
gumson
-
hildurhelgas
-
minos
-
seinars
-
skinogskurir
-
krist
-
thjodarheidur
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 12
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar