"Litlu verður Vöggur feginn."

"Litlu verður Vöggur feginn."  Segir í Hrólfssögu Kraka. Þetta gæti átt við Steingrím J núna. Hann hrósar sér af miklum sigri með að fá 27% af greiddum atkvæðum. Af 722 hræðum á kjörskrá sáu 261 eða 36% sér fært að kjósa yfirhöfuð. Af þessum 261 kusu 199 Steingrím eða um 27%.

 

 

Einhverntíma hefði sá góði maður gert grín að svona tölum ef einhver annar flokksleiðtogi fengið svona útreið. Vöggur hafði þegið gullhring af Hrólfi þegar sá síðarnefndi sagí fg orð. En nú virðist þessi "Vöggur" nútímans ekki hreppa gullstólin sem hann í dag situr í.

 

 

Enn og aftur erum við vitni hve mikill hégómi þessi stjórnmál eru. Hvernig þeir ávallt snúa málunum á haus sér í vil. Ekki veit ég hvað margir eru á kjörskrá í NA-kjördæmi. En 199  hlýtur að vera 0 komma eitthvað af þeim Og ætti ráðherran að hafa miklar áhyggur af þessu. Kært kvödd


mbl.is Steingrímur: Sterkur listi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Jæja þá eru þau hjúin"

Jæja þá eru þau hjúin sem stjórna þessu landi búin að opinbera sig gagnvart þeim sem undir hafa orðið í þesssu ímyndaða velferðarþjóðfélagi. Hugsið ykkur stóryrðin og upphróparnar sem kæmi frá þessu hyski væru aðrir við völd. Hvorugt þeirra myndi halda vindi né vatni yfir ástandinu. Og fv Samfylkingarmaðurinn Gylfi yrði sleginn til riddara.Og stærstu orðin notuð

 

 

Og hvorugt virðist fylgast með hinum almenna borgara, Hvað segir hann um ástandið? Það kemur þeim hjúum ekkert við. Hlustið t.d. á "Reykjavík síðdegis" sennilegas 99% af fólki sem hringir inn í svokölluðu "lof eða last" á Bylgunni lastar þetta tvíeyki. Ég hlustaði áðan og þá kom ein sem mærði þau. Hún eiginlega froðufellt af vandlætingu yfir fg ASÍ manni og áttu stjórnendur fullt í fangi að stoppa hana. Og aðal mæringin var um hve hjúin hefðu varið hag eldri borgara vel. Ja svei.

 

 

En það er bara verst að við vitum hvað við höfum en alls ekki hvað við fáum. Aldrei fyrr hefur það verið sannað eins rækilega að það er sama rass.... undir öllu þesu liði sama hvers flokks það er. Bara komast í valdaaðstöðu og svo til fjan.... með öll loforð. Og hlusta á Steingrim J forustumann vinstra fólks á Íslandi hrósa IMF ( International Monetary Fund))  tekur út yfir allan þjófabálk. Þvílíkur sósalisti Kært kvödd


mbl.is Jólamaturinn allt að 70% dýrari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Des. 2012
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31          

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 98
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband