"verða foreldri í kreppu."

Já það er sennilega erfitt að verða foreldri í kreppu. Enn kannske ekki slæmt að fæðast sem einstaklíngur í þannig ástand. Ég fæddist inn í kreppu og um  þá ríkisstjórn sem ríkti og er þetta skrifað :"Meginverkefni stjórnarinnar var að takast á við þau vandamál sem fylgdu kreppu sem á Íslandi stóð frá 1931 til 1940"

 

Hún var kölluð: "stjórn hinna vinnandi stétta" Þeirri  ríkisstjórn varð sennilega til happs að stríð braust út 1939. Í þeirri ríkisstjórn voru miðju og vinstri menn. Þá voru til alvöru vinstri menn. Nú eru þeir horfnir út í veður og vind. Og mér finnst það óvirðing við þá menn að þessir andsk.... sem nú stjórna skuli kenna sig við þá. Mikið af  fólki sem lifði kreppuna á áratugnum 25-40 lifir enn.

 

Þetta fólk kom þessari þjóð á lappirnar. Fv verkamenn, bændur og sjómenn. Og meira að segja kom þessum lýð sem nú kúgar það út yfir öll velsæmismörk til mennta. Nú eru svokallaðir vinstri menn búnir að koma hlutunum þannig fyrir að þetta fólk óttast dauðan.

 

 

Ekki sem slíkan heldur afleiðingar hans á eftirlifendur. Að hann hleypi illilega upp á skuldasúpunni sem það fólk er komið í. Þetta verður núverandi íslenskum svokölluðum vinstrimönum til ævarandi skammar.

 

Ég vona bara að Lilja Mósesdóttir taki saman við aðrar dugandi konur og komi íslendingum til bjargar. Því þetta virðist vera karlmönnum ofviða. Enda eru það yfirleitt konur sem reka heimili landsins, Við skulum undanskilja nokkra ónefna aðila.

Eins og ég sagði fæddist ég í kreppu og kem til með að drepast í kreppu. Og nú leyfi ég mér "smálotto" Jað þið vitið til hvers, Verið ávallt kært kvödd


mbl.is Fæðingarorlofssjóður þarf að spara 300 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"fagnaðarefni"

Kannske eftir að hafa búið erlendis um tíma fær maður alltaf hálfgerðan beig af þegar auglýst eftir svona ungu fólki, Og það er ávallt fagnaðarefni þegar þau koma fram heil á húfi. Og hvað ungt fólk varðar þá held ég að foreldrar "táninga" í dag megi þakka fyrir hvern dag sem ungingur þeirra sleppur við að lenda í klóm eiturlyfja. Kært kvödd


mbl.is Aron Geir er kominn fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"ég á von að því í næstu viku"

Ímyndið ykkur hvernig stjórnin og þeirra þingmenn reyna að drepa málum sem þjóðin bíður eftir, á dreif með allskonar málatilbúningi. Í hvaða siðmenntuðu landi dytti stjórnarþingmanni sem bæri hag þjóðar sinnar fyrir brjósti í hug  að flækja mál með þessum hætti.

 

Ekki  bæta þeir ásýnd hins"lága" alþingis með svona fíflagangi. Og hvað skyldi forsætisráðherra hafa oft sagt þessa setningu. "ég á von að því í næstu viku" Nei þetta óhreina lið ætti að hunskast heim og þvo sér á eigin kosnað. Ekki að nota sápu sem hinn almenni borgari borgar. Verið kært kvödd.


mbl.is Þingmenn þvoi sér í framan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"að "leka"

Maður skilur eiginlega ekki í hvernig hægt er að "leka" einhverju frá ríkisstjórn sem lofaði og stærir sig af að "allt sé uppi á borðunum" Engin feluleikur um neitt. Stjórnmálamenn ættu að hætta þessum upp í ermina loforðum. þetta er t.d. ein af ástæðum þess að fólk ber enga virðingu fyrir alþingi og þingmönnum. Kært kvödd
mbl.is Sakar Barnaverndarstofu um að leka póstunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"æra óstöðugan"

Það er kannske til að æra óstöðugan að fara skrifa um þess frægu höfn.Ég var í fyrstu á móti gerð hafnar í Bakkafjöru, En ætli sé ekki hægt að segja að ég hafi "tekið skírn". Aðal trúboðarnir eru miklir vinir mínir.

 

 

Með Sigmar Þór Sveinbjörnsson fremstan í flokki. Ég lét hann hafa mest áhrif á mig vegna þess, í fyrsta lagi að hann átti enga sumarbústað nærri Bakkafjöru og hafði þessvegna engra hagsmuna fram yfir mig t.d. hvað málið varðaði. Og ekki síst af því að ég þekki mannin af miklum drengskap og ég veit að hann ber öryggi sjófarenda mjög svo fyrir brjósti. Eins og mér fannst í fyrstu mörg rök á móti finnst mér aftur nú svo seinna mörg rök með.

 

Það sem ég hafði aðalega áhyggur af var að ef skip með óvarða skrúfu og stýri færi þarna inn í einhverri töluverðri ölduhæð væri hætta á að það rækji afturendan svo niður að stýri og skrúfa yrðu óvirk. En ég tók því alltaf skýrt fram að ég hefði sáralitla reynslu sem sjómaður á þessum slóðum eða staðnum sem slíkum. Og nú segi ég fyrst þetta er komið á koppinn þá verðum við að horfa á þetta með bjartsýni.

 

Það má allsekki tala þetta þannig niður að fólk verði hrætt við að taka skipið.. En það hefur mér fundist vera gert núna.Ég er sennilega einn um þá skoðun að of geyst hafi verið af stað riðið. Vissulega lokkuðu þjóðhátíðarpeningar og ferðaþjónustan græddi meðan allt var í lagi Og vitalega sparast mikil olía að sigla bara í Landeyjar. En ég er hræddur um að kúfurinn sé að fara af ágóða ferðaþjómustunnar.

 

Vegna þess að ekkert hefur verið hægt að treysta á fg siglingar Það er voðalega gott að sitja í skrifstofustól og tala um hvernig það eigi að gera þetta. Þ.e.a.s sigla Herjólfi inn í Bakkafjöruhöfn. Það hefði bara átt að gera svona eða hinseginn. En flestir sem hafa bílpróf þekkja það sennilega að þegar eitthvað virkilega óvænt skeður. Þá hefur maður kannske sekúndubrot til að taka ákvörðun sem stundum er röng.  Og þannig ske slysin

 

Þetta er eins hjá skipstjóranum.Ef eitthvað óvænt skeður hefur hann kannske sekúndu brot tið að ákveða sig. Að vísu eru viðbrögð hjá vönum manni oft ósjálfráð  Og mér finnst satt að segja þessar tilraunasiglingar með tugi farþega ekki ná neinni átt. Mörgum þotufarþegum er ekkert vel við þegar hreyflanir eru keyrðir af fullu afli afturábak til að stoppa vélina og allt nötrar stafnana á milli. Skipafarþegar eru kannske af öðrum toga og stundum eru þeir (líka í þotunum) skólakrakkar án foreldra og þau geta orðið dauðskelkuð ef t.d skipinu slæi flötu og vélarafl notað til hind ýtrasta. og skipið hristis og skylfi stafna á milli

 

Danskur vinur minn sagði mér sína reynslu af veru sinni á ferju þar sem krakkahópur fylltist ofsahræðsu þó ekkert virkilega hættu ástand hefði í raun skapast. Og það var ekkert grín  Það mætti segja mér að Herjólfur hefði farið fleiri ferðir í vetur af farþegarnir hefu alltaf verið þaulvanir sjómenn. Það er vissulega margt sem skipstjórinn þar, þarf að taka ákvörðun um og hafa í huga.

 

Og vitalega þykir mér þetta líill vandi sitjandi hér og rita.þetta niður. Ég gæti þessvegna skrifað hér leiðbeiningar fyrir Herjólfsmenn, En ætli ég láti þá ekki um þetta. En ég held að menn hafi vantað aðeins meiri þolinmæði. Það er sama hve háum skrifstofustól þú situr þú stjórnar ekki náttúruöflunum. Þau fara sínu fram sama hve hár stóllimm er. Eins er það með bíla og skip. Það er hvorki til það skip eða sá bíll sem ekki er hægt að missa stjórn á.

 

Og menn hafa flaskað á að ögra náttúruöflunum. Það hugsa ég að Vestmannaeyingar viti manna best.Mér fyndist  rétt að doka nú við í einhvern tíma. Einhverjar viku mánuð þar til menn eru komnir með sæmilega stjórn á þessu sem allsekki er til staðar í dag Fá almennilegar dæluskip grafa þetta  sem er fyrir nú og fylgast svo með hvað skeður.

 

Sigla Herjólfi t,d, þegar lítið er umleikis morgun ferð í Þorlákshöfn en fara svo farþegalaus í Landeyjahöfn. Að kveldi æfar sig á skipinu í höfninni og kynnast hvering skip og höfn geta fungerað saman sem best. Svo er annað sem ekki má ske. Það er það að þegar fram líður ug hlutirnir farnir að skýrast að þá verði Þorlákshöfn ekki notuð sem auðveldi kosturinn heldur algerlega í neyð.

 

Að menn fari ekki þangað af því þeim finnst það hægara og nenni jafnvel ekki að fara í hina. Ég man vel þegar maður var búinn að semja við Hilmar á Vopnafirði eða Kjartan á Stöðvarfirði og fl um að landsetja flutninginn á þessa staði í næstu höfn á undan eða eftir til að losna við "leiðinlega" höfn. En til þessa treysti ég þeim Herjólfsmönnum til að láta ekki ske.

 

Því þá er Landeyjahöfn dauðadæmd Þessi hringlandaháttur með ferðirnar eins og nú er orðin að skrípaleik. Eða þessar tilraunaferðir neð fullt af farþegum  eru ekki af góðu.Eyjamenn hafa beði eftir betri samgöngum í áravís og hvað gera einhverjir mánuðir til eða frá mánuðir nú.

Nota versta kafla ársins til að sjá hvernig þetta getur virkað best. Best væri að keypt yrði sandæluskip sem svo þjónaði höfnum hér við S - ströndina, Um áratuga skeið var til grafskip hér í Eyjum sem skrifaði sína sögu með stóru letri. En allt kosta þetta það sem ekki er til nú um stundir. En Bakkarfjara verður að kosta það sem með þarf ef ekki á að fleygja enn meiri peningum í súginn En nú er komið nóg af þrasinu svo ég kveð ykkur kært


mbl.is Ófullnægjandi skilyrði í Landeyjahöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"allslags brögðum"

Það ku vera hægt að fá þetta með allslags brögðum.Þ.e.a.s bragðtegundum. Skyldi sá gamli hafa fallið fyrir jarðaberjabragðinu. Ekki veit ég Verið ávallt kært kvödd
mbl.is Páfi hlynntari smokkum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Maður ætti kannske "

Þetta væri kannske athugandi fyrir okkur gamlingina  Maður ætti kannske að hringja í "Skonna" og fá meiri upplýsingar Kært kvödd
mbl.is Nýtt typpi í boði Berlusconi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"biður um réttlæti"

Sá tunnufjöldi sem þarf til að koma þessum hávitum í ríkistjórninni í skilning um að fólk þessa lands biður um réttlæti, er sennilega ekki til í landinu. 

 

Hvernig má það vera að einn af forsprökkum hrunsins skuli geta selt fyrirtæki í Noregi fyrir 300 milljónir og komast af með fenginn ,meðan hann skuldar skilsnefnd bankans sem hann stjórnaði 800 milljónir.

 

Af hverju er ekki þessum andsk.... smalað heim og eigur þeirra teknar upp í skuldir þeirra við þetta þjóðfélag. Þyrlusveit LHGÍ gæti vel notað eitthvað af f n upphæð.

 

það á að taka þessa djöfl.. og herða að þeim hengingarólina þar til þeir borga. Af hverju brúka Jóhanna og ég tala nú ekki um Steingrím J sinn stólpakja.. sem þau  hafa "brúkað" í stjórnarandstöðu á þetta þjófalið.

Þægilegir ráðherrastólar gera þessa fyrrgreinda kja... að engu .Það sem gusaðist út á útsogimu er nú orðið hvísl á innsoginu. En svo þegar allt er í lagi með hvað mörg fífl styða þau þarna í fíflafabrikkunni þá rífa þau hann upp á gátt og nota útsogið , "Komið þið bara með vantrausttillögu" gaggaði yfirhænan í kofanum um daginn og haninn reigði sig og tók undir. Hálf var þetta nú hjáróma gagg,

 

En hvað um það gamlir hundar geta aldrei geta lært að sitja og gamlar hænur verpa sjaldan. Þessvegna út með allt þetta gagglið úr kofanum við völlinn.Eins og það leggur sig Tveggja ára þingseta í einu í svona árferði er alveg nóg. Það hefur sannast nú. Undir svona kringumstæðum á að kjósa öran og henda út óhæfu liði tíðar. Talið ekki um kosnað annað eins er nú bruðlað í algerlega óþarfagæluverkefni. Selja má líka nokkrar sendiherravillur út í heimi t.d. Verið ætið kært kvödd


mbl.is Tunnumótmæli boðuð á þriðjudag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Nóv. 2010
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 537323

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband