"Já þessir Baldrar eru góðir"

Já þessir Baldrar eru góðir í "hakkinu" Einn þurfti þó ekki að brjótast inn í neitt . Hann vissi sem var hvernig "hakkinu" var háttað. Kært kvödd
mbl.is Baldur besti hakkarinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Eitthvað er hér sem"

Eitthvað er hér sem ekki passar : „Landsfundurinn telur það vera eitt af forgangsverkefnum VG,
flokkseininga og þingflokks, að herða róðurinn við að upplýsa þjóðina um
eðli og afleiðingar ESB-aðildar.“ En stjórn sem þessir hálfbj.... eru aðilar að er á fullu í undirbúningsviðræðum um aðild. Útlendingar hrista höfuðið yfir þessari andsk..... vitleysu. Fræg setning frá stríðsárunum:" haltu mér slepptu mér" á hér við. Kært kvödd
mbl.is Ályktun um utanríkismál samþykkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Skelfing er gott að sjá"

Skelfing er gott að sjá að gróði sé hjá þessu liði. Það er kandhæðni örlaganna að sá flokkur sem lengst hefur gengið fram í að "plokka" ellilífeyrisþega öryrkja og þá sem minna mega sín, sé rekin með slíkum hagnaði. Gott að þessu VG liði líði vel með sína samvisku í skjóli gróða. Kært kvödd
mbl.is VG rekin með 21,8 milljóna hagnaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Ég er nú ekki alveg sammála"

Ég er nú ekki alveg sammála öllu sem Lilja hefur haft fram að færa. En ég og ég veit um fleiri koma til með að fylgast vel með því sem á eftir að koma frá þessari mögnuðu konu. Kært kvödd
mbl.is Vill lýðræði í atvinnulífið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Það er frábært að heyra"

Það er frábært að heyra hvað fólk er áhugasamt um þetta skip. Og þetta ætti að vera skýr skilaboð til stjórnvalda þessa lands að setja mál LHGÍ ásamt heilbrigðisþjónustunni í algeran forgang.

 

Það er eiginlega alveg furðulegt á þessari tækniöld þegar hægt er að kveikja undir kartöflunum með farsíma að ekki skuli vera hægt að skera meir niður í svokallaðri utanríkisþjínustunni.

 

Reyna t.d. að "tjóðra" ráðherra þeirra mála í heimahögum. Það mætti láta "borðfána" duga, eins og einn góður maður í sjórnsýslunni í gamla daga orðaði það svo skemmtilega á mörgm þessum EBE ráðstefnum.

 

Sem furðufuglarnir í VG vita ekki hvað snýr upp eða niður á. Önnur fræg orð "Ertu að koma eða fara" eiga við fg ráðherra. Hvað skildi ferðakosnaður hinnar svokölluðu "stjórnsýslu" vera orðin á þessu ári. Kært kvödd


mbl.is Hátt í 6.000 hafa skoðað Þór
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Nokkrir "velvaldir" menn"

Þarf enginn að svara fyrir hvernig stóð á þessu mikla tapi lífeyrissjóðanna. í áhættufjármögnun. Nokkrir "velvaldir" menn á ofurlaunum mega leika lausum hala  með fé sjóðanna að vild.

 

Og og ef enhverjum dirfist að segja eitthvað eru þeir miskunnarlaust barðir niður jafnvel með rógi. Ég vil minna á skrif Jóhanns Páls Símonarsonar sem ráðamenn sjóðanna  hafa reynt að niðurlægja á allan hátt. 

 

Og það er sama hvert er litið það borgar sig ekki að spara á íslandi. Ekki eru þetta góð skilaboð til unga fólksins. Það er á hreinu.

Kært kvödd


mbl.is Skerða rétt um 6%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Maður skorinn á háls"

"Maður skorinn á háls í Mosfellsbæ" Svo hljóðar fyrirsögnin. Einhvernveginn ( en það er nú sennilega arfavitlaust) finnst mér það tákna að hann hafi verið drepinn.

Hefði ekki nægt að segja "Maður særður á hálsi" En það hefur sennilega ekki þótt nægilega æsileg fyrirsögn fyrir nútímafólk

 

Aðra fyrirsögn sá ég einhverstaðar  "Biskupinn fraus" Jæja hugsaði ég  lokaðist nú  kallinn inni í frystigeymslu. En þá var þetta í einhverjum leik nútímans sem gamlingi eins og ég skil ekki

Kært kvödd


mbl.is Maður skorinn á háls í Mosfellsbæ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Ekki ætla ég "

Ekki ætla ég að mæla dýraníði eða brengluðu kynlífi neina bót. En ég sé þetta með svolítið öðrum augum ef svo mætti segja.

 

Mér finnst þetta bara minna á þegar ýmsir svokallaðir "fyrirmenn/konur" þessa lands koma fram fyrir alþjóð og lýgin vellur svo úr báðum munnvikjum að manni verður óglatt. Og ætlast til að við þessir sauðsvörtu hérna niðri jörðinni trúi öllu bullinu.

 

Það hefur mörg vændiskonan breyst í asna og öfugt í meðförum þessa liðs Kært kvödd


mbl.is Segir vændiskonu hafa breyst í asna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"engin spurning "

Mér finnst það engin spurning um hver eigi að fá verðlaunaféð. Vitanlega Lögreglan. Nú hlýtur lögleysingunum í VG að líða ílla. Lögreglan að standa sig á heimsmælikvarða. Kært kvödd
mbl.is Óvíst með verðlaunaféð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Til hamingu "

Til hamingu Landhelgisgæslumenn já og aðrir íslendingar með þetta gæsilega skip. Sem vonandi verður hér til frambúðar til aukins öryggis sjómanna við Ísland. Og til öryggis landsmanna allra í landi sem náttúruhamfarir geta skeð hvernær sem er. Kært kvödd
mbl.is Þór var vel tekið í Eyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"ná lögum og rétti"

Það þarf einhvern veginn að ná lögum og rétti úr höndum VG Það er brýnna mál en skifta um forseta. Kært kvödd
mbl.is Stjórnvöld veikja lögregluna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"stelpunum okkar"

Margfallt húrra fyrir "stelpunum okkar" Því að það eru þær sko. Furðulega lítil athygli sem þær fá þrátt fyrir að standa sig mun betur en karlpeningurinn í tuðrusparkinu.  Kært kvödd
mbl.is Ísland heldur toppsætinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"allri virðingu fyrir konum"

Með allri virðingu fyrir konum sem ég met mikils hef ég skoðun á þessu máli.  Ég á móti bæði mannsali og ofbeldi gegn konum. Já og ofbeldi yfirleitt En andlegt ofbeldi er líka til  En þetta stórasystir dæmi  finnst mér aðeins of langt gengið.

 

Það er því miður þannig að misjafn sauður í mörgu fé. Þetta á við bæði konur sem karla. Ef svonalagað á að ganga eftir er t.d.leikur einn fyrir afbrýðisama konu að hefna sín á einhverjum saklausum karlmanni. ( Það hljóta að vera til saklausir karlmenn) Því afbrýðisöm kona er ekki síður hættuleg en afbrýðissamur karl.

 

 

Og þó að t.d. heimilisofbeldi sé fremur framið af karlmönnum þá eiga konur líka sinn hlut í því. Og þó að þeirra hlutur í því sé fremur andlegt getur það líka skilið eftir sár. Það er ekki hægt að hvítþvo konur alveg af fg málum Kært kvödd


mbl.is Stóra systir fylgist með þér!
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Þetta villuljósakjaftæði "

Þetta villuljósakjaftæði er lifandi dæmi um hversu veruleikafyrt þetta 101 lið er. Hátekjulið sem hefur alla tíð verið á spena hins opnbera og aldrei difið hendi í vatn nema volgt. Þetta sýnir hve margir óþurftarmenn sita á hægindastólum  á þessu svokallaða alþingi.

 

 

Og menn sem stunda heiðarlega vinnu ættu að muna þessi orð "villuljós". það þarf að hreinsa þetta óþurftarfólk af þingi. Fólk sem vill setja Ísland á þann reit sem Ráðstjórnarríkin voru 1917 eftir byltinguna. Allt þjóðnýtt og viðskifti eiginlega bönnuð. Kært kvödd


mbl.is Bakkadraumur var villuljós
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Auminga jóhanna"

Auminga jóhanna. Hún þolir enga gagnrýni. Vælandi heletiden yfir íhaldinu og forsetanum. Þessi vælukjóastónn er orðinn hundleiðinlegur

 

" Við eru að gera svo fina hluti" (reyta enn meir af öryrkju-öldruðum og annara bótaþega) Bankarnir fullir af peningum. Stórþjófar með skítnóga peninga erlendis og eru að ná völdum yfir peningakerfi landsins. Og Jóhanna væri bara vælir og vælir.

 

Enda orðin gömul og þreitt og ætti faktíst löngu að vera horfin af þingi eins og allir hrun ráðherrarnir Það eru ágætis stjórnmál að gera ekki neitt láta bara reka á reiðanum. Skella svo bara skuldinni á Íhaldi.

Kært kvödd


mbl.is Forsetinn virði stefnu stjórnvalda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"pattstaða"

Það er alveg satt það er "pattstaða" í íslenskum stjórnmálum í dag. En hvort það þarf kosningar. Nei Birgir en þú ættir að beita þér fyrir að stórir þáttakendur í hruninu úr þínum flokki hyrfu af þingi.

 

Þetta ætti Samfylkingin líka að athuga. Bæði fv og nv ráðherrar hennar ættu líka að taka pokann sinn. Og þessar "íhaldsásakanir" forsætisráðherra eru farnar að fara í taugarnar á fólki. "Gott að hafa barn til blóra og kenna .eim alla klækina"

 

Ekkert þeim að kenna  þó svo að 2-3 aðaleikarnir úr "Dansinum í Hruna" hafi komið úr Samfó Og ræðu stíllinn hjá ráðherranum. Þetta er eins og leikkona að lesa útvarpssöguna. Kært kvödd


mbl.is Pattstaða í stjórnmálum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"út af þingi"

"Sópa eftirlegukindum hrunsins út af þingi"  Mikið að einhver sagði eithvað af viti þarna inni. En þessar eftirlegukindur eru því miður í nv stjórn og nokkrir í stjórnarandstöðu. Þessar rollur virðast bara ekki skilja að " þeirra tími sé kominn "

 

Mér finnst ekki fráleitt að halda að reiði fólksins sé að einhverju leiti beint að þessum "eftirlegukindum" Hvar í flokki þær standa. Fólkið vill ekkert pakk sem tók þátt í dansleiknum í Hruna þarna inni. Kært kvödd


mbl.is Vill nýjar kosningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"eins og eldri borgara"

Steingrímur! Býrð þú ekki í hér á landi eins og eldri borgarar á ÍSLANDI Hvernig í ósköpunum getur þú sæmilega eða jafnvel ágætlega vel gefin maðurinn haldið þessari helv.... vitleysu fram.

 

 

Farðu út á meðal eldri borgara og spurðu þá fyrst þú ert svona ílla upplýstur um kjör þeirra. Þarna hefur einhverju slegið niður og fengið flensuna aftur . Varstu ekki sjálfur að leggja fram tillögu um að þær greiðslur frá Tryggingastofnum sem áttu að hækka gerðu það ekki.

 

 

Hvaða  bata ertu að tala um ? Varstu kannske að tala um  bata bankanna og gleymdir forskeytinu Á ? Ekki er neinn bati sjáanlegu hjá fg hóp fólks allavega. Það veit ég af eigin skinni. Kært kvödd


mbl.is Bati er genginn í garð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"skifti litlu máli "

Ég held að það skifti litlu máli af hvoru kyninu liðið í þessum nefndum er. Þetta handónýta lið getur hvort sem er, ekki komið sér saman um neitt. Kært kvödd
mbl.is Furða sig á kynjaskiptingu í nefndum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"ekki sama Jón og séra Jón"

Þetta segir mér bara að það er ekki sama Jón og séra Jón í augum þessara svokölluðu verkalýðsforinga. Sem misstu jarðsambandið þegar stjórnarskifti urðu. Og hvernig ríkissjónvarpið handeraði málið er með algerum endemum.

 

 

Byrjuðu á "fyrirfram pöntuðu" drottningarviðtali við forsætisráðherra. Þar sem mér fannst hinn oft ágæti stjórnandi skí.. langt upp á bak á sér. Og svo fréttarflutningurinn af þingsetningunni. " Kannske tvö þúsund manns" Menn ættu að skoða myndir sem teknar voru af öðrum aðilum..

 

 

Og sjónvarpið sýndi lítið annað en eggjakast. Er VG að takast að koma landinu í gömlu stjórnarætti kommúnistanna. Þar sem fréttir voru matreiddar að "hætti hússins" í almenning. Kært kvödd


mbl.is Guðmundur: fáir að mótmæla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Okt. 2011
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31          

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 91
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband