Stórþjófnaður á lífeyri???

Getur það verið að ríkisrekin stofnun þ..e.a.s Tryggingarstofnun Ríkisins hafi stundað stórþjófnað af fólki?Spyr sá sem ekki veit.En eitt veit ég að ég átti í deilum við þá út af ellilífeyrisgreiðslum frá Svíþjóð.Ég bjó í Svíþjóð frá 1990-2005.Lífeyrir á Íslandi er reiknaður frá 16 aldri til 67ára.sjómenn geta byrjað að taka lífeyri.Í mínu tlfelli til 1990 að ég flutti út og var skrifaður það til 2005.2003.þegar ég varð 65 ára byrjuðu svíar að borga mér lífeyri.

 Eru gamlingar hlunnfarnir af TR

En svíar fara á eftirlaun 65 ára.Þarna tapa ég þessum 2 árum í lifeyri.Þegar ég á sínum flutti heim fékk ég tilkynningu um að ég yrði á skertum grunnlífeyri vegna tekna erlendis frá.Ég reyndi að benda á að þetta væri svía hlutur af mínum eftirlaunum.en án nokkurs árangurs.Þú hefur tekjur erlendis frá segja þessir vísu menn hjá TR.Nú hefur mér verið sagt að þarna séu menn hreinlega að "stela"af mönnum sem eru í sömu sporum og ég.Það sé ekkert sem geti skert eftirlaun nema lífeyrissjóðsgreiðslur.

seniortattoo2 Er verið að skerða ellilaun sumr?

Ellilífeyrisgreiðslur sama hvaðan þær komi og séu í samræmi við búsetu mannsins í því landi þær komi frá megi ekki skerða eftirlaunabætur hér.En það geri aftur á móti lífeyrissjóðsbætur sem komi frá búsetulandinu..Mér er sagt að TR noti sér þýðingarvillu.Þ.e.a.s þeir þýði allar eftirlaunagreiðslur hvort sem það er ellilífeyri eða lífeyrissjóðs greiðslur undir sama hatti.Að þeir vísvitandi geri ekki grein á ellilífeyri frá hvers ríki sem maður hefur búið í og lífeyrissjóðgreiðslum.Ef svona er í pottinn búið þá er ríkið eða TR búið heinlega að stela sennilega milljónum af  eldri borgurum þessa lands sem hafa búið erlendis hluta af starfsævi sinni.

AguaVerdeSunrise002 Fólk á að hafa það gott þegar húmar að kveldi

Alþingismanninum Pétri Blöndal sem sér ekkert annað en þjófa og glæpamenn í almennatryggingarkerfinu ætti að skoða þetta með athygli.Ég birti hérna svokallaða:"Inkomstdeklaration 2007"Þar sést að það er gerður greinarmunur á:"Garantipension/garantiersättning"sem á plagginu þýtt sem grunnlífeyrir og Pension sem er þýtt sem lífeyrissjóður.En TR þýðir þetta allt sem Pension.Sem er ef satt er stórþjófnaður á eftirlaunum saklausra borgara.Ja sveiattan.Mikið mega þessir menn skammast sín ef þetta er rétt.Hvert skildi ágóðinn af þessum þjófnaði? Renna?Menn sem minna mega sín eru dæmdir í fangelsi fyrir stuld á Wiskeypela.

76yg Hluti af"Innkomstdeklaration"

En hvað með menn sem kannske kaupa Wiskey fyrir svona ílla fegna peninga.Hvaða dóm skyldu þeir fá.Það er kannske kominn tími fyrir fólk sem hefur orðið fyrir þessum grunaða þjófnaði að safna sér saman og láta reyns á þetta fyrir dómi.1 gamall sjóari sem kannske hefur verið hlunnfarinn hefur ekki efni slíku.

Ef myndin af"Inkomstdeklaration"hér fyrir ofan prentast vel sést að undir liðnum lífeyrissjóður er svokallað ATP .Ekki getur TR klínt á mig að ég fái stórar upphæðir frá því.Þannig er mál með vexti að ég fæ lítið sem ekkert ATP frá Svíþjóð því ég vann mest allan tíman í Danmörk og ég fæ ekkert ATP frá Danmörk því ég bjó þar aldrei.Ég held að þjófalyktarsnuðrarinn P.B ætti að athuga þetta mál og koma ef satt er þjófunum undir lás og slá.Réttur guð geymi ykkur öll og verið af mér kært kvödd.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Sæll Ólafur, eftir að ég slasaðist á þumalputta og var frá vinnu í 7 mánuði þá kynntist ég hvernig Tryggingastofnun ríkisins notfærir sér ráðaleysi og reynsluleysi fólks, þeir hjá TR og tryggingarfélögin treysta því að fólk gefist upp ef þeir bara þæfa málin nógu lengi, en í mínu tilfelli var það skrattinn sem hitti ömmu sína. kær kveðja.

Helgi Þór Gunnarsson, 1.10.2008 kl. 22:41

2 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Sæktu um gjafsókn félagi

Jón Aðalsteinn Jónsson, 1.10.2008 kl. 23:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 535283

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband