"Skelfing er þetta"

Skelfing er þetta að verða þreytandi að hlusta á þessa foringa fv sjórnarflokka láta eins og þeir hafi stjórnað óaðfinnanlega og kenna núverandi stjórnarsinnum um ömurlegt ástandið (sem er að vísu rétt að hluta) í þjóðfélaginu Og nú kunna þeir öll svörin sem virtust vera týnd þegar þeir voru við stjórn Verið ávallt kært kvödd
mbl.is Vill aðstoð erlendra sérfræðinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"13% til 211%"

"Yfirmenn og stjórnarmenn Icelandair hafa á síðustu fjórum árum hækkað í launum um 13% til 211%" Segir þetta ekki allt sem segja þarf um þetta verkfall.

Stæli ég glóandi gulli
úr greipum hvers einasta manns
þá væri ég örn minnar ættar
og orka míns föðurlands.

Verið ávallt kært kvödd

mbl.is Gífurleg launahækkun stjórnenda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Mér finnst satt að segja"

Mér finnst satt að segja hrikaleg kvenfyrilitning felast í þessum ummælum mannsins "Ég veit ekki hvers vegna þessi stelpa fékk mig til að segja þessa hluti,“ Þessi maður kann auðsjáanlega ekki að skammast sín:því miður er svona fólk til sem finnst ekkert að hjá sér og kemur svo öllu óþægilegu yfir á aðra. "Ekki benda á mig" Verið ávallt kært kvödd
mbl.is Donald Sterling „biðst afsökunar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Ef vel ætti að vera "

Ef vel ætti að vera þá ætti að dæma þessa andsk... sem komu milljörðum undan í skattaskjól til að koma með fé úr þeim og borga svona skuldir.Þeir eiga skítnóg af peningum. Allavega tala ýmsar húseignir þeirra t.d á Flórída sínu máli. Svo á að rannsaka rækilega allar gerðir stjórnenda félaga sem sýsla með fé eldri borgara.Komst ekki stórfellt misferli upp hjá einu svona heimila. Hvað var gert við þá ábyrgu. Ekkert ,Síró.

Vilhjálmur frá Skáholti hitti naglan á höfuðið sem svo oft áður þegar hann kvað m.a

Og feitur klerkur fljótur var til svara,/ fljótur til að skýra þetta mál / Þú komst frá guði ,en hvert þú ert að fara / Kemur eftir lit á þinni sál

og svo síðar

 

En sértu vondur,viljirðu ekki trúa / á vísan guð og kirkju þessa lands / þá færð þú ekki í fögrum heimi að búa / þá ferður vinur,beint til andskotans

 

Og alltaf þegar svona mál koma upp þá er sama tuggan lapin "Ekki horfa í baksýnisspeglana" Það er því miður ekkert til í refsilögöfinni sem nær yfir þessa helv.... stórþjófa. En ef maður stelur límbandsrúllu getur maður fengið margra mánaða dóm Villi frá Skáholti kvað líka þetta

Stæli ég glóandi gulli
úr greipum hvers einasta manns
þá væri ég örn minnar ættar
og orka míns föðurlands.

Verið kært kvödd
mbl.is Fara yfir rekstur öldrunarþjónustu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Jahá á nú bölv.... hringdansinn að byrja aftur"

Jahá á nú bölv.... hringdansinn að byrja aftur.Lærðu menn ekkert.Var það ekki álíka gleypu gangur langt kominn að setja félagið á hausinn Og var ekki álíka gleypugangur örðru skipafélagi að falli hér á árum áður  Sem að vísu fg félag stórgræddi á. Verið ávallt kært kvödd

 


mbl.is Eimskip ræður eigendur til ráðgjafar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Getur fólk ekki"

Getur fólk ekki andsk..... til að gera þetta í hljóði !!! Komst ekki svipað mál í fjölmiðla hérlendist fyrir nokkrum árum. Kært kvödd
mbl.is Fangelsi fyrir of hávaðasamt kynlíf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Hræddur er ég um "

Hræddur er ég um að XD verði að fara að hugsa sinn gang allavega í henni Reykjaví hvað sveitastjórnir varðar. Einnig er farði að hrikta í stoðunum í landsmálunum. Verið ávallt kært kvödd
mbl.is Samfylkingin stærst í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hundruð starfa í Helguvík

Hvað er oft búið að tönglast á þessum orðum í sambandi við Helguvík undanfarin ár Verið ávallt kært kvödd
mbl.is Hundruð starfa í Helguvík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Það gefur augaleið"

Það gefur augaleið.SA fékk því áorkað með því að fá því framgengt að lög voru sett á sjómennina Dettur einhverjum í hug að SA menn verði eitthvað samningsliprari framm í september.Með engan þrýsting á sér. Það er bara þetta gullfiskaminni hjá íslendingum  annars væri rétt að minna á hvers flokksr ráðherran var sem setti lögin. Bara svona til að minna á hverja menn sem vilja að verkfallsréttur lítilsmagnans sé hafður í heiðri viti hverja þeir eiga ekki að kjósa . Þó sveitastjórnarkosningar séu kannske annars eðlis en hinar þá eru þrjú ár ekki lengi að líða Verið ávallt kært kvödd
mbl.is Herjólfur aftur á byrjunarreit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Jæja þá ætti "

Jæja þá ætti þessum helgarskrípaleik Ömma og Ásþórs að linna Verið ávallt kært kvödd
mbl.is Bannað að rukka ferðamenn við Geysi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Nú veit ég eiginlega"

Nú veit ég eiginlega ekkert um þetta mál En maður hlýtur að spyrja. Er enginn sem fylgist með þessum félögum ? Fyrr en allt er farið til andsk.....  og sumt af fólkinu hreinlega á götunni. Er algert eftirlitsleysi á öllum sem sýsla með fé almennings að einhverju ráði. Verið ávallt kært kvödd
mbl.is Harmi slegnir íbúar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Nei svona pjat verður"

Nei svona pjat verður að bíða.Þetta andsk..... sníkjulið verður að bíða. Það liggur meira á að koma kaupaukunum til duglegra fjármálamanna í gagnið. Braskararnir verða að ganga fyrir. Verið ávallt kært kvödd
mbl.is Dráttur gæti orðið á lækkun gjaldanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Skelfing væri gott "

Skelfing væri gott að fá plástur sem drægi úr umtöluðu hjá sumum svokölluðum "stjórnmálamönnum" Sérstaklega einum forustumanni  stjórnarandstöðunnar sem aldrei þreytist á að vera á móti öllum sköpuðum hlut sem fram er borið af nv stjórnvöldum Sem hafði fjögur ár til að laga hlutina en datt þá ekkert í hug til þess að gera það. En ekki dygði venjulegur plástur á þverrifuna á ´onum Verið ávallt kært kvödd
mbl.is Plástur sem eykur sjálfstraustið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Í hinni virkilegu kreppu 1929"

Í hinni virkilegu kreppu 1929-1939 slitu margir núlifandi íslendingar sér út til að  koma þessu þjóðfélagi í þann sess sem það hangir í í dag. En þetta fólk fær trekk í trekk kaldar vatnsgusur frá samfélaginu og fjármálaveldinu. Unga fólkið sem ræður í mörgum bæjarfélögum og flestöllum fjármálafyrirtækjum  hafa engan áhuga á þessum gamlingum. Þeir síðarnefndu sennilega meira upptekið at að fá kaupauka en af því að þessum árgöngum fólks líði vel í ellinni Verið ávallt kært kvödd
mbl.is Þurfa að reiða fram milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Hull yrðu bikarmeistarar."

Gaman væri ef Hull yrðu bikarmeistarar. Þetta er í fyrsta skifti sem ég tek afstöðu með ensku knattspyrnuliði. Maður á góðar (þó misgóðar að vísu) minningar frá Hull. Verið ávallt kært kvödd
mbl.is Hull í úrslitin í fyrsta sinn í sögu félagsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"hvernig þessi mál eru komin"

Það er með hreinum ólíkindum hvernig þessi mál eru komin í þann hnút sem þau eru í  Í guðanabænum alþingismenn hristið af ykkur doðan, hættið að jagast um hverjum þetta er að kenna og gerið eitthvað af viti í málinu Hættið öllu þessu andsk..... svara og andsvara fíflagangi og farið að vinna vinnuna ykkar. Þið voruð ekki kosinn í einhverjar skotgrafir. Öllum til ama og leiðinda.

 

Þið voruð kosin til þess að reyna að bæta líf hins almenna borgara þessa lands en þið virðist því miður engan áhuga hafa á því. Og í guðanabænum hættið þessari fja..... uppgerðar kurteisi "háttvirtur"og "hæstvirtur" Því það eru um níutíu % af þjóðinni búin að missa alla virðingu fyrir ykkur. Það er bara ennþá meiri sýnarmennska svona titlatog innandyra hjá ykkur. Þeir sem eiga það skilið séu kært kvaddir


mbl.is „Næsti lausi tími er 8. maí“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Hann ætti að drulla sér heim"

Hann ætti að drulla sér heim og fara að gera eitthvað jákvætt  í útrýmingu fátæktar. Já það er munur að vera maður og míga standandi Og ráðherra á ráðstefnum erlendis,berja sér þar á brjóst og fara mikin um um þetta mál. En koma svo heim og halda þar áfram að gera ekkert í málinu Verið ávallt kært kvödd
mbl.is Markmiðið er útrýming fátæktar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Það mætti senda "

Það mætti senda þetta lið í eilífðarfrí. Hvað liggur svosem eftir það þetta árið. Ekkert Verið ávallt kært kvödd
mbl.is Páskafrí Alþingis til 28. apríl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Þetta er nú að verða "

Þetta er nú að verða einhvert Lilju Móses-dæmi. Rýkur upp í skoðanakönnunum en verður svo ekki að neinu. Ekki það mér fannst verst að flokkur Lilju skyldi deyja út. Hún þorði þó Verið ávallt kært kvödd

                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                               


mbl.is Nýr flokkur nyti 20% stuðnings
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Það væri gaman að fá að vita fyrir hvað"

Það væri gaman að fá að vita fyrir hvað í hverju þessi svokallaði "kaupauki" felst Verða þeir kannske verðlaunaðir sem ná mestum árangri í að hafa það af fólki sem það jafnvel ætti kröfu á með ýmisskona útursnúningum á lögum. Ég þekkti sænskan mann sem vann við þarlent tryggingarfyrirtæki. Þessi maður var góðmenni og hreinlega þoldi ekki hvernig fyrir hann var lagt að reyna að ganga eins ein langt og hægt var að "snuða" fólkið um bætur. Hann gafst upp og snéri sér aðöðrum störfum. Verið ávallt kært kvödd
mbl.is Sjóvá hyggst taka upp kaupaukakerfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 11
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 535366

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband