18.9.2009 | 21:07
Slys á sjó
Sem gömlum sjóara sem aldrei hugsaði um öryggi til sjós á sínum tíma finns mér nú aldrei nóg gert til að tryggja öryggi sjómanna. En mergurinn málsins finnst mér vera sá að sjómaðurinn sjálfur sé meðvitaður um sitt eigin öryggi. Sjómenn ættu að forðast þann hugsunarhátt sem einkenndi mína kynslóð. Segja ekki t.d við þá sem þá sem vilja hugað að örygginu "Ertu sjóhræddur" Eins og var oft þekkist hér áður fyrr. Ég hugsa með háffgerðum hryllingi þegar menn reyktu í kojunum. Dós undan niðursoðinni mjólk skorin þannig að hægt var að hengja hana á rúmstokkinn. Og þegar maður hugsar um loftræstistokkana. Ég var af og til yfir 20 ár á nýsköpunartogurunum en ég man aldrei eftir að þeir væru hreinsaðir. Og ef kjötpoki (grisja) var bundin fyrir úttakið varð hann kolsvartur eftir andartak. Menn geta ímyndað sér eldhættuna sem fáir eða enginn hugsaði út í. Eldurinn er að mínu matu orðinn skæðasti óvinur sjómannsins. Miklu skæðari en áður var vegna gerfiefna nútímans. En sem betur fer eru sjómenn nútímans meira upplýstir um hætturnar. Þökk sé Hilmari Snorrasyni og hans mönnum LHGÍ og starfsmönnum hennar og Siglingastofnum Íslands (vona að þetta sé rétt nafn) og starfsmönnum hennar. En góð vísa er aldrei of oft kveðin. Þessa slóð hefðu allir sjómenn gott af að skoða: http://www.nautinst.org/london/Presentations/Docs%20for%20website/Seminars%20etc/Lifeboat%20Safety/Schat-Harding%20Group%20Presentation.pdf Og slysin gera aldrei eða sjaldan boð á undan sér. Nútímasjómaðurinn má aldrei frekar en þeir gömlu máttu, slaka á árverkninni þrát fyrir alla tæknina Það er eigilega með endemum hvernig oft er staði að mönunar málum. Örþreyttir menn á stjórnpöllum skipa að fylla út einhverjar andsk..... skýrslur Læt þetta duga í bili. Kært kvödd
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:11 | Facebook
Um bloggið
Ólafur Ragnarsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
- kolbrunerin
- gudruntora
- gmaria
- dala
- nafar
- valmundur
- johannesgylfi
- gudrunmagnea
- rheidur
- gretarmar
- magnusthor
- nilli
- georg
- lydurarnason
- reykur
- johanneliasson
- helgigunnars
- hector
- kerfi
- kallimatt
- jonsnae
- jp
- jaj
- hva
- valurstef
- sigurjonth
- einherji
- fiski
- jakobk
- harhar33
- rs1600
- iceman
- thorirniels
- kjartan
- oliskula
- 1kaldi
- gretar-petur
- jon-o-vilhjalmsson
- skulablogg
- floyde
- ragnarb
- meistarinn
- palmig
- aevark
- morgunbladid
- zumann
- jensgud
- gutti
- gudni-is
- saethorhelgi
- geirfz
- iceship
- fuf
- saemi7
- ketilas08
- kokkurinn
- einarorneinars
- xfakureyri
- siggith
- stormsker
- valli57
- markusth
- luf
- framtid
- vefritid
- jakob
- postdoc
- jenni-1001
- mal214
- partners
- iceberg
- valdivest
- torfis
- gattin
- malacai
- benz
- gumson
- hildurhelgas
- minos
- seinars
- skinogskurir
- krist
- thjodarheidur
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 23
- Frá upphafi: 535992
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 22
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Heill og sæll Ólafur. Þetta er þörf ábending hjá þér, og hafðu þökk fyrir að vekja menn til umhugsunar um þessi mál. Það eru alltof fáir sem hafa áhuga á þessum málaflokk og þá er ég að tala um sjómennina sjálfa.
Sjálfur er ég nú að taka saman hvað margir sjómenn hafa bjargast í gúmmíbáta við ísland frá því þeir komu til sögunar, eða réttara sagt þá er ég að bæta við samantekt um þetta frá Ásgeir sem rak Gúmmíbátaþjónustuna í Reykjavík en sú samantekt náði til 2000, Ásgeir er mikill áhugamaður um þessi mál og kann margar sögur sem tengjast þessum gúmmíbjörgunarbátum . Þetta eru stórmerkilegar tölur og upplýsingar sem verða settar á netið þegar ég hef klárað að fara yfir þessi 9 ár.
Kær kveðja
Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 18.9.2009 kl. 22:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.