"Mér hefur þótt það með miklum"

Mér hefur þótt það með miklum endemum hverig þessir hálfvitar(ég get ekki sagt annað) á þessu svokallaða alþingi hafa haldið á málum Langhelgisgæslunnar. Og það er enginn á þessari samkundu undanskilin frekar en nokkur ráðherra undanfarinna áratuga. Hvert einasta land sem liggur að sjó heldur uppi öflugum " Coast Card" Til að verja land sitt óboðnum gestum. Í hvaða mynd þeir geta svo verið. Landhelgisbrjótar, smyglarar, að maður tali nú ekki um björgun mannslífa. Hámark aumingjaskaparins hvað þetta varðar kom í ljós um daginn við skipströndin tvö. Þegar í ljós kom að Gæslan hafði bara einni og hálfri!!!!!!! skipsáhöfn á að skipa. Gera menn sér ekki grein fyrir hvað þetta þýðir. Þessi dýrmæta reynsla manna sem þessi stofnun þarf svo virkilega á að halda er að tapast með þessu framhaldi

LHGÍ þyrfti nokkur svona skip

LHGI

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Nei og aftur nei Þessi "svara og andsvara lýður" karpar um fánýta hluti í einhverskonar poppulismaleit. Hefur engum úr þessum lýð skilist hvað t.d eyðifirðirnir á Austfjörðum eru galopnir fyrir smyglurum bæði með stolið góss úr landi og eiturlyf m.a inn. Búið er að skera svo niður í allri löggæslu að allt er þetta óvarið bæði frá landi og sjó. Ekki þyrfti að leggja mörg % á þær útgerðir sem þéna mest og borga milljarða út í arð til eigenda sinna til að hægt væri að bæta fjármál Gæslunnar Ekki er ég á móti að menn fjárfesti í ýmsu og fái hofsaman arð. Kannske þess meiri sem betur árar í ríkifjármálum En það er meira en dapurt, eiginlega sorglegt að hlusta á þessa andsk.....  ráðmenn ár eftir ár eftir ár röfla um að nú sé illt í ári svo nú þurfi að herða sultarólina.

Það var stungið af frá landinu með ógrynni fjár án þess að nokkuð væri gert

 hyperinflation1

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

En mergurinn málsins að þessi ól er bara á þeim sem minna mega sín. Hinir ríku safna að sér auð en tíma ekki sjá af neinum peningum til eins og t.d. LHGÍ. Og það fjármagn sem til hennar rennur kemur frá okkur sultaróla aumingunum og þessvega er hún svelt eins og við. Meðan flatmaga auðmennirnir á flötunum og synda sundlaugum fyrir utan villurnar á Flórída og viða þar sem sólin skín á rangláta meira en kannske hér. Og þegar einhverjir af okkur þessum sultarólaaumingum reyna eitthvað að malda í móinn þá er það kallað " vinstrimanna öfundarhjal" Það vill svo til að ég er ekki vinstrimaður og að ég satt að segja öfuna engan  Nema kannske einhvern sem er nokkurn kílóum léttari en ég. En ég vil að vel sé búið að fg stofnun og það séru spöruð ýmis gæluverkefni og að fleiri fái afhenta sultaról til að herða til að svo sé. Kært kvödd


mbl.is Green Freezer laust af strandstað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 535185

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband