"Röðin komin að eldri borgurum"

Já það eru viðhöfð stór orð um leiðréttingar á svokölluðum "bótum" til eldri borgara. En eru þetta einhverjar bætur ?. Er ekki kúfurinn af þessu fólki búið að borga sínar skyldur til þjóðfélagsins jafnvel í sextíu, sjötíu ár Við höfum hlustað á þessi stóru orð nú í nokkur ár.

 

 

En hvað hefur skeð. EKKERT  0. Núll. Síró. Þessi tæra vinstristjórn hlustar ekkert á slíkar kröfur. En ef einhvert kjararáð bætir hag ráðherra og þvílíkra skí... , þá sleika þeir út um. Það er tregara en tárum taki að sjá hvernig það fólk sem er fætt á millistríðsárunum er meðhöndlað af þessi fína liði sem því miður strjórnar þessu landi.

 

 

Þessir andsk..... sem tilheyra aðli þessa þjóðfélags og stjórnar því skammast sín fyrir forfeður sína sem einusinni angaði af slori og kúaskít. En það var nefnilega þetta slor og kúaskítsangandi fólk sem kom þessari þjóð á lappirnar. Ekki einhverjar listaspírur eða menningarvitar. Sem nú þiggja glæsihallir byggðar á lélegri kjörum þeirra gömlu og þiggja ofurlaun fyrir að pikka  jafnvel einhverjar glósur úr síðasta fylliríi á tölvu af lélegu minni. Kært kvödd


mbl.is Röðin komin að eldri borgurum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heill og sæll gamli vin, hef aldei verið þér meira sammála, hafðu gleðileg jól.

KV Binni.

Binni (IP-tala skráð) 23.12.2011 kl. 20:51

2 Smámynd: Björn Emilsson

Satt segirðu Ólafur. Menn gera sér allsekki grein fyrir eldri borgarar eiga þessa peninga inni og hafa unnið fyrir þeið hörðum höndum. Svo eitthvað væri nefnt er ekki ráð að leggja niður svokölluð 'Sendiráð´ Islands eða allavegana að fækka þeim um allan helming, nú á tölvuöld. Það mætti telja upp kannske fimmtíu stofnanir ríkisins, sem vel mættu missa sig. Með þeim tekjum sem Island hefur , ætti að ríkja hér algert skattfrelsi einstakliknga og frítt húsnæði fyrir alla.

Björn Emilsson, 23.12.2011 kl. 22:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.1.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 61
  • Frá upphafi: 536301

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 59
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband