"66 ára sögu lýðveldissins"

Aldrei, aldrei í 66 ára sögu lýðveldissins hafa svokallaðir alþingismenn sýnt eins rækilega fram á algert tilgangsleysi veru sinnar í húsinu við völlinn og nú, Þarna hringsnúast þeir eins og kettir í kring um heita graut um eitt einasta mál sem búið var til af þeim sjálfum.

 

Ég legg til að þessir fg menn verði látnir gangast undir geðrannsóknir og gáfnapróf. Þetta minnir mann á smábörn í búðarleik. Eða jafnvel mömmuleik með tilheyrandi drulluköku. Allt í þykistunni. Á meðan á grautardanskeiknum stendur brenna heimilin í landinu. Svo tala þessir trúðar um ásýnd alþingis. Þeir gefta bara bætt hana með einu hundskast heim. Og þó fyrr hefði verið Kært kvödd


mbl.is Ræða Jóhönnu mikil vonbrigði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Hvað með siðferðis og sanngirnispróf ?

Á að gleyma aðalatriðunum í skjóli svika-flokka og svika embætta?

þannig vinnubrögð munu skila öllum minna en engu!

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 21.9.2010 kl. 21:28

2 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Sæl Anna Sigríður og ég þakka innlitið. Það er með hreinum endemum hvernig staðið er að þessum málum. Þetta er svo mikið endemis rugl að gamlir símastaurar eru að verða grænir aftur. Það er hreinlega öllu snúið á hvolf. Og engin skilur neitt í neinu. Allavega ekki við hérna niðri á jörðinni. Því síður hörpuleikarnir í húsinu við völlinn. Þeir ættu að stofna nefnd til að sálgreina þá sjálfa og mæla gáfurnar hjá þeim. Skipa svo nefnd til að reka þá heim sem ekki næðu gáfnafari 10 ára barns sem ég held að enginn þeirra geri. En hvað um þó ástandið sé slæmt og mikið nefndarfargan  kveð ég þig kært sem ávallt

Ólafur Ragnarsson, 21.9.2010 kl. 22:21

3 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Sæll Ólafur ég er að fara að mæta við þetta hús við Austurvöll til að hreinsa út og þrífa það er ekki neitt annað í boði úr því sem komið er! Kveðja samlanda úr Þingeyjarsveit.

Sigurður Haraldsson, 22.9.2010 kl. 00:15

4 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Sæll Sigurður. Og ég þakka innlitið. Taktu varlega á þeim svo þú kreistir ekki þetta litla vit úr  íbúunum. Þeir verða að geta lesið minningargreinarnar í Mogganum á eftir. En það mun nú vera það eina sem heldur Mogganum á floti. Sértu ávallt kært kvaddur og góða ferð

Ólafur Ragnarsson, 22.9.2010 kl. 12:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 5
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 535039

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband