9.9.2010 | 21:19
Enn lekur
Hér sit ég kaldur og rólegur yfir tölvunni Alveg sallarólegur Eins og ég lak um daginn eru menn að skila sér eftir sumarið í húsi friðar. Aðalmennirnir komnir úr sunarfríum. Og eins og gengur er hálfgerð ringulreið á þingmálum enn. Töluvert er dvalist við æskuna. Þetta leiðir kannske af bernskubrekum Bakkafjöru.Og störfum svokallaðrar Ríkisstjórnar" . En sumir eru uppfullir af að meðlimir hennar hafi allir dottið á höfuðið í æsku og hlotið varanlegan skaða af. Einn af aðal þingforsetum rifjaði upp í gær þegar hann 4-5 ára datt ofan af vörubílpalli beint á hausinn á jörðina Sagðist svo hafa rankað úr rotinu upp í rúmmi heima hjá sér. Velti hann fyrir sér hvort þetta hefði haft áhrif á kirtil sem staðsettur er ofarlega í hausnum.. Aðrir voru sammála um að kirtillinn hefu sennilega bara lagast. Annað gæti eiginlega ekki verið. Aðrir töldu, en höfðu það, bara fyrir sig að það gæti verið omvent. Þetta hafi bara verið trix hjá þeim stutta. Það kom nefnilega í ljós að eigandi bílsins var afi konunnar sem sá sem á hausinn datt giftist síðar. Príið upp á pallin hafið verið sjónarspil því sennilega hefur konuefnið verið til staðar en nú þykist hann ekkert muna meir af atburðinum. Svo halda menn að sonardóttir eigandans hafi hlaupið að hinum fallna riddara og strokið honum um vangan. Það hafi síðan lagt riddaran að velli að fullu og hann misst meðvitun og borin heim án hennar. Þ.e.a.s. meðvitunnarinnar . Hvort draumadísin var samferða inn þá er ekki vitað. Það kom seinna. En þetta fall míns góða vinar í bernsku fékk mig til að hugsa um eigið líf. Ekki það að ég hafi dottið beint á höfuðið í bernsku. Það varð seinnitíma vandamál. Enda fæturnir oft sambandslitlir við kirtilin þar efra.En ekkert af þessum kollhnísum mínum leiddi þó af sér hjónaband, En það sem ég er hugsi yfiir er mín tilvera Að sögn móðir minnar datt faðir eitt sinn á hausinn ofan í þvottabala fullan af vatni. Hvort mitt líf kviknaði þessa nótt veit ég ekki. En ef svo hefur verið hafa minir lífs-dagar ekki getað hafa verið ornir margir. Því þetta mun hafa verið á árdögum tilhugalífs þeirra. Móðir mín var þá vinnukona hjá lækninum í Keflavík. Nú svo var það í landlegu (geri ég ráð fyrir því faðir minn var sjómaður í Keflavík) að hann fann að hann skorti kvenlega hlýju. Og því ekki að heimsækja læknisvinnukonuna sem hafði herbergi í kjallara læknisbústaðnum. Góður gluggi var þar á þvottahúsinu sem fg vinnukona gleymdi" að loka almennilega. Faðir minn skreið inn um gluggann en áttaði ekki á að stórþvottur var í bígerð. Bali barmafullur af vatni stóð þar á gólfinu. Steypist nú sailorinn beint á hausinn ofan í hann. Vinnukonan sem sennilega hefur beðið komu hans varð var við einhver djúp andköf. Fann hún biðilinn rennandi blautan og ílla haldin andlega. Háttaði hann og hlúði að honum. Nú svo tók náttúran völdin og segir ekki meir af þessum ástarfundi. Eftir stend ég og brýt heilann. Og mér finnst stóra spurningin vera : var búið að þurka hann nógu vel. Gæti verið að ég hefði verið greindari (sem mér finnst oft skorta mikið á það) hefði hann verið skráþurr. Ég hef aldrei kennt foreldrum mínum um mitt lífshlaup. Þau bjuggu mig að vísu til en ég var höfundur að lífshlaupinu. En nú er komið stórt EF" í þessu máli því einhverstaðar stendur:" Lengi býr að fyrstu gerð" Getur verið að það sem frjógaði eggið þessa nótt (ef svo hefur verið) hafi verið vatnsblandað úr hófi. Hvað um það. Að núinu. Menn skiluðu sér ílla í dag. Laxastofnin er nú í stórri hættu því aðallaxabani hússins í lausagangi upp á landi . Aðal piparsveinninn enn í lausagangi hér í Eyjum. En hann sést ekki nú orðið fyrr en eftir kl 1500 LMT. Hvort það er í sambandi við sögu sem hann heyrði um daginn um stærð á vissum líkamshluta stóðhesta og vandræðum sveitastúlkna vegna þess. Það veit ég ekki En ungir fjallmyndarlegir piparsveinar hljóta að fara hjá sér við að hlusta á þannig sögur. Og kannske er hann í laumi að "gera eitthvað í sínum málum". Mér skilst að það megi finna allsslags aðferðir til breytinga á öllum fjandanum á" netinu", En þessi 1500 LMT mæting er að verða umhugsunarefni. Aðalforseti og yfirhúsráðandi er merkilegur maður að mörgu leiti . Vel giftur og á myndarleg og efnileg börn. Eini rjóður á hans ráði á mínu mati er að hann ekur um á Skoda. Maður er kannske ekki búinn að jafna sig á falli Múrsins" og lokum kalda stríðsins og vill halda í þessa Austur - Vestur stæla. Ég held að innst inni sé hann á minni línu. Allavega ætlar hann að lauma" bílnum í skoðun eldsnemma í fyrramálið og sækja hann svo þegar lítið ber á um hádegið. Þetta get ég svarið. En hann sem er alger alfræðibók á mörgum sviðum ætti að vera fullviss um að Skoda eru smíðaðir Austantjalds" Fyrir utan að vera aðalforseti þingsins er hann aðalráðgjafi þess í mörgum málum. Menn bíða í ofvæni oft á tíðum eftir að vera mataðir á allslags fróðleik.Það slær honun enginn við í ættfræði. Einusinni hringdi í hann, svo maður sletti aðeins enebarn" en þegar samtalinu lauk átti sá sem hringdi minnsta kosti 5 systkini. Svo öflugur er hann. Ég læt þetta duga af leka í dag. Ég tek fram að þetta bull mitt er á engan hátt ætlað að kasta rýð á foreldra mína. Bara saga sem móðir mín sagði mér séð í gamansömu ljósi. Og öðru bulli hér er ekki ætlað til að særa neinn, Mér finnst t.d. Skodinn umtalaði flottur og er ekkert líkur þeim á myndinni að ofan. Hér set ég amen eftir efninu og kveð ykkur kært sem og ávallt
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 10.9.2010 kl. 02:10 | Facebook
Um bloggið
Ólafur Ragnarsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
- kolbrunerin
- gudruntora
- gmaria
- dala
- nafar
- valmundur
- johannesgylfi
- gudrunmagnea
- rheidur
- gretarmar
- magnusthor
- nilli
- georg
- lydurarnason
- reykur
- johanneliasson
- helgigunnars
- hector
- kerfi
- kallimatt
- jonsnae
- jp
- jaj
- hva
- valurstef
- sigurjonth
- einherji
- fiski
- jakobk
- harhar33
- rs1600
- iceman
- thorirniels
- kjartan
- oliskula
- 1kaldi
- gretar-petur
- jon-o-vilhjalmsson
- skulablogg
- floyde
- ragnarb
- meistarinn
- palmig
- aevark
- morgunbladid
- zumann
- jensgud
- gutti
- gudni-is
- saethorhelgi
- geirfz
- iceship
- fuf
- saemi7
- ketilas08
- kokkurinn
- einarorneinars
- xfakureyri
- siggith
- stormsker
- valli57
- markusth
- luf
- framtid
- vefritid
- jakob
- postdoc
- jenni-1001
- mal214
- partners
- iceberg
- valdivest
- torfis
- gattin
- malacai
- benz
- gumson
- hildurhelgas
- minos
- seinars
- skinogskurir
- krist
- thjodarheidur
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 23
- Frá upphafi: 536128
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 21
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæll Ólafur, þakka þér fyrir góða sögu vinnufélaga mínum, já víst eru skódi góðir í dag, en voru það ekki þegar Willum afi átti sinn, enda sögðum við krakkarnir "skódi ljóti sem drýfur ekki upp í móti"
Kær kveðja.
Helgi Þór Gunnarsson, 10.9.2010 kl. 00:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.