"Hver sá flokkur"

Hver sá flokkur sem færir hina íslensku þjóð  saman, laðar til samstilltra átaka fyrir góðum og nytsömum málum, skapar samúð og góðvild milli stétta okkar fámenna þjóðfélags, hver sá flokkur  sem þessu fær áorkað er góður flokkur Og þannig flokk vil ég kjósa

 

Það er sagt að í Etýðu fyrir píanó,opus 10 nr 5 eftir Frederic Chopin,sé aðeins einn tónn á hægri hendi,sem er spilaður á hvítu nótunum.Allt annað er spilað á svörtu nótunum.

 

Af hverju er ég að segja þetta. Jú mér dettur þetta í hug er ég hugsa um hvernig stjórnendur þessa lands hafa spilað lög sín undanfarið. Hvað varðar þá sem minna mega sín og standa höllum fæti í lífinu Allt spilað á svörtu nótunum.Og nú hef ég í huga skilgreiningu almennings á hvítu og svörtu

 

Gerir fólk sér grein fyrir  smáninni sem felst í fyrir fólk sem þarf að fara til hjálpasamtaka og standa í biðröðum til fá þar ókeypis mat og kannske einhverjar flíkur.Ekki það að ég þarfnist þess en þann flokk sem kæmi því til leiðar að þetta hverfi, þann flokk  myndi ég vilja kjósa

Verið ávallt kært kvödd


mbl.is Dugar fyrir skuldaleiðréttingu og meiru til
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"hafa bæði hálfan prest og fullan"

Einhverstaðar skeði þetta hvað varðar hálfan eða fullan prest

"Ungi presturinn var svo stressaður í fyrstu messu sinni að han stamaði og hikstaði á hverju orði í sinni fyrstu ræðu.Áður en hann messaði í annað skiftið hafði hann samband við prófastinn og bað um ráð.Prófastur ráðlagði honum eftirfarandi:Settu nokkra dropa af vodka í vatn og derkktu það.Og þú munt strax finna hvernig þú slappar af.Prestur gerði eins og prófastur ráðlagði.Daginn eftir fékk prestur meðfylgandi bréf:

“Kæri vinur!

Næsta skifti skalt þú setja nokkra dropa af vodka í vatnsglas enn ekki nokkra dropa af vatni í vodkaglas.Svo langar mig að vekja athygli þína á nokkrum atriðum svo að það gerist ekki aftur.Litla skálin við hliðina á altarinu er ekki klósett

Reyndu að komast hjá að beyja þig niður að styttuni af Maríu Mey og ekki”káfa”á brjóstunum á styttunni

Boðorðin voru 10 ekki 12 og enginn af þeim var dvergur

Við tölum ekki um Jesús með orðunum”J.C.and the boys”

Við tölum ekki um Júdas sem”fjandans blaðurskjóða”

Bin Laden hefur ekkert með dauða Jesús að gera

Syndarar hafna í helvíti ekki á fjóshaugnum

Faðir vor skal lesast í himnum ekki út á götu

Mjög áríðandi:Veran sem sat í horninu við altarið og þú kallaðir”fjandans hommatitt”og djöfu..”klæðskifting” það var ég

Með von á að þú takir þetta til greina vi komandi guðþjónustur

Með kærum kveðjum Prófasturinn"

Þannig lauk þessu bréfi


mbl.is Fjölbreytni að hafa bæði hálfan prest og fullan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Hafísinn var veiklulegur"

Auminga hafísinn fékk hann flensuna !!! Var sendur læknir á staðinn??? Nei annars í fullri alvöru þessi hlýnun sem "veikir" hafísinn er ekkert grín En mér finnst fyrirsögn fréttarinnar vera það Verið ávallt kært kvödd
mbl.is Hafísinn var veiklulegur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Árni Páll horfði yfir salinn"

Árni Páll horfði yfir salinn í Gamlabíó (þó svo að öll sæti væru setin) og reiknð svo út að:" Óháð öllu öðru þá er þetta örugglega stærsti 9,5 prósenta flokkur í heimi," .Er þetta það sem heitir "Líkindareikningur" Verið ávallt kært kvödd
mbl.is Ekki komist til að ræða við kjósendur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Þar er ekki nóg að trúa "

Þar er ekki nóg að trúa á stefnu flokks fram í rauðan dauðann, ef maður trúir ekki á foringann sem á að framfylgja henni Svo einfallt er þetta nú. Verið ávallt kært kvödd
mbl.is Bjarni: Trúi á stefnuna fram í rauðan dauðann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 7. apríl 2013

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 99
  • Frá upphafi: 537423

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband