"rétta stöðu ríkisstjórnarinnar"

Enn og aftur,enn og aftur reynir þessi maður að rétta stöðu ríkisstjórnarinnar í augum okkar 100.000 krónu fólksins.

 

Það væri gaman að sjá niðurstöður úr ef Gallup gerði könnun á vinsældum hans. Almennur borgari þessa lands er steinhættur að trúa þessum foringum sem þiggja milljónir á mánuði nú um stundir.

Eiginlega ekki fyrir annað en reyna að fegra svikasjórnina sem nú er við völd í landinu. Kært kvödd


mbl.is Eiga í viðræðum við stjórnvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"landinu dýrkeypt"

Já það urðu verkalýðnum í landinu dýrkeypt þegar hagfræðingarnir náðu sínum sess í ASÍ. Ég fer ekkert ofan af því.

 

 

Og þessi grein sýnir best hve langt forustumenn þeirrar hreyfingar eru skriðnir upp í. Ja þið megið ráða hvaða líkamshluta Jóhönnu & co þið notið í samhenginu. Þetta segir líka meir en þúsund orð hve  eldriborgarar og slíkir hópar eru algerlega vopn og varnarlausir.

Það er eins augljóst og frost á Fróni að þeir hópar mega bara frjósa í hel með glottandi "útrásarvíkinga" með milljarða eftirgjafir og milljóna arð af miljörðum í skattaskjólum og allslags felustöðum í baksýn

 

 

Það liggur við að maður skori á gamlar refa og rjúpnaskyttur að taka fram "haglarana" og ,nei maður má ekki hugsa svona.Og mikil skelfing mega íslenskir stjórnmálamenn skammast sín í dag. Þeir horfa á þetta algerlega afskiftalausir.

 

Enda eru þeir sem kenna sig við þá sem vildu í "gamla daga" gera veg þeirra sem minna mega sín sem mestan eru nú að níðast sem mest á þeim. Og nú þegar maður heyrir orðið  vinstri menn  eða norræn velferð þá dettur manni í hug orðatiltækið "snúið roð í hund". Kært kvödd


mbl.is Vantrauststillaga fékkst ekki afgreidd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 19. janúar 2012

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 91
  • Frá upphafi: 537407

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband