"Starfshópur um myrkraverk"

Starfshópur um myrkraverk. Þetta mislas ég þegar ég sá fréttina. Hugsaði strax er Svandís að ná áttum um stjórnarfarið. En svo bresta krosstré sem önnur tré. Myrkravernd var það heillin.

 

 

Og aftur lyftist á manni brúnin. Á nú að fara að vernda okkur eldriborgara og þvílíka fyrir myrkrinu sem þessi ríkisstjórn eys yfir okkur. Nei og aftur nei. Það er ekkert í spilunum hjá þessari "tæru" vinstri stjórn sem sýnir einhverja glætu hjá þessum hópum. En gaman væri að vita hve margar nefndir og starfshópa væru í gangi í stjórnkerfinu og hve mikið væri eytt í slíkt.

 

 

Hvað skildu margar "afætur" frá hinum ýmsu stjórnmálaflokkum sitja í þeim á launum frá okkur hinum sauðsvörtu. Hópar og nefndir sem jafnvel eru bara nafnið en meðlimir taka sín laun fyrir setu þar.Það kemur  sennilega alltof mikið við kaunin á liðinu í húsinu við völlinn að nokkrum úr þeim hópi langi til að vita það.

 

 

Það má varla hundur míga upp við staur núorðið örðuvísi en stofnaður sé um það starfshópur. En það nafn virðist nú vera fínna orð en nefnd. Og í það virðast oft nægir peningar vera til . Þetta lið ætti að sjá sóma sinn í að setja á stofn starfshóp án allra prófessora og hagfræðinga sem virkilega athugar stöðu þess fólks sem kom þessari þjóð til mennigar og mennta. Fólk sem fædd er á fyrrihluta síðustu aldar. Ég vil meina að hagfræðingabylgjan hjá ASÍ hafi valdið verkalýð þessa lands óbærilegu tjóni. Kært kvödd


mbl.is Starfshópur um „myrkravernd“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Fyrst að ákæra á einhvern "

Fyrst að ákæra á einhvern í þessu máli á að ákæra heila settið. Og einhverstaðar í "siðuðu" þjóðfélagi hefði þjóðþingið "losað" sig við allt það fólk sem hægt er að bendla við þetta margumtalaða hrun.Fyrst margt af í aðdraganda þess varðaði við lög.

 

Nei ekki í hinu svokallaða velferðarríki Íslandi. Þar sem ráðamenn tala um bananalýðveldi með hæðnistón í röddinni. Nei hér, fá þeir jafnvel bara stöðuhækkun. Banana hvað?????? Kært kvödd


mbl.is Fleiri verði dregnir fyrir landsdóm
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Já Jóhanna gagnrýnir"

Já Jóhanna gagnrýnir Samtök Atvinnulífsins út af gagnrýni þeirra á svikum á gefnum loforðum En hún minnist ekkert á máttlausa gagnrýni ASÍ enda veit hún um þægu drengina sína þar.Þeir gera enginn "skammarstrik" af sér Þeir hafa hljótt um sig nú.

 

 

Virðast hafa tekið ljóð Davíðs alvarlega þegar hann kveður m.a: "Þeim gleymist oft sem girnast glaum og dans./ að ganga hægt hjá verkamannsins kofa/. Ó, hafið lágt við litla gluggann hans/og lofið dagsins þreytta barni´að sofa...." Þessir ASÍ dindlar ganga nú virkilega hjótt framhjá húsum eldriborgara og annara í viðlíkum hópum Þessa menn auk stjórnarherrana þarf að losna við.  Og  þetta sýnir manni betur en margt annað helv.... hræsnina sem gegnsýrir svokölluð "stjórnmál"

 

 

Og hefur kannske alltaf gert. En ljósleiki þess hefur aldrei verið skýrari en akkúrat nú. Mikið skelfing getur þetta barnabarn Jóhönnu Egilsdóttir hagað sér illa gegn hennar hugsjónum.Sem barðist fyrir "dagsins þreytta barni" á sínum tíma. Kært kvödd


mbl.is Gagnrýndi harðlega Samtök atvinnulífsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 16. janúar 2012

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 91
  • Frá upphafi: 537407

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband